Morgunblaðið - 28.11.2005, Side 34
34 F MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
N
orðurbakki í
Hafnarfirði er
að breyta um
svip. Hafnar-
mannvirkin
sem þar stóðu
áður, hafa nú
öll verið fjar-
lægð og undirbúningur í fullum
gangi í því skyni að reisa íbúða-
byggð í staðinn. Einn þeirra bygg-
ingaraðila, sem haslað hafa sér
völl á þessu svæði, er Þorvaldur
Gissurarson byggingameistari, en
fyrirtæki hans, ÞG verktakar, er í
þann mund að hefja þarna fram-
kvæmdir við miklar íbúðabygg-
ingar.
Byggðar verða 70 íbúðir í tveim-
ur fjölbýlishúsum við Norð-
urbakka 23–25 og gert ráð fyrir,
að þær verði tilbúnar til afhend-
ingar í byrjun árs 2007. Hönnuður
er Björn Ólafs arkitekt.
„Þessar íbúðir verða í háum
gæðaflokki,“ segir Björn.
„Staðurinn er án efa einn sá
besti fyrir íbúðabyggð á öllu höf-
uðborgarsvæðinu. Skipulag svæð-
isins gerir ráð fyrir hæfilega hárri
byggð, fjögurra og fimm hæða
húsum, sem falla vel að byggðinni
í kring.
Hafnarfjörður er aðlaðandi bær
og byggðin þar fjölbreytileg, en
byggðin er að því leyti óvenjuleg,
að hún hefur mótast smám saman
af hraunlandslagi. Norðurbakkinn
verður hluti af þessari heild, en
hann er í stuttri göngufjarlægð frá
miðbæ Hafnarfjarðar og í beinu
framhaldi af honum.
Frá Norðurbakka verður útsýni
yfir afar lifandi höfn og gamla bæ-
inn í Hafnarfirði. Síðast en ekki
síst er yst á bakkanum víð-
áttumikið útsýni út á fjörðinn
sjálfan og Álftanes, einmitt þaðan
þar sem húsin á Norðurbakka 23
og 25 munu rísa.“
„Eitt af markmiðum skipulags
hverfisins er að móta líflega byggð
og því takmarki er náð með því að
draga út stórar svalir í útsýn-
isáttir og snúa þeim þannig að
sem best njóti sólar,“ heldur Björn
áfram. „Allar íbúðir í þessum hús-
um hafa útsýni, að höfninni, að
firðinum eða að gamla bænum þar
sem hann er fallegastur. Engin
bílaumferð verður milli húsanna
og sjávarsíðunnar og umhverfið
því friðsælt og öruggt. Gangstígur
sem liggur samfellt meðfram sjón-
um tengir húsin við miðbæinn og
við náttúruna á Álftanesi.“
Aðkoma frá Vesturgötu
Aðkoma að húsunum verður frá
Vesturgötu. Húsið við Norður-
bakka 23 verður fjórar hæðir og
með tuttugu íbúðum og húsið nr.
25 verður mun stærra eða fimm
hæðir og með fimmtíu íbúðum.
Í bílakjallara verður eitt eða tvö
bílastæði fyrir íbúðirnar. Í kjallara
verða ennfremur sérgeymslur fyr-
ir íbúðirnar og vagnageymslur. Á
þaki bílakjallara er gert ráð fyrir
leiksvæði og görðum í sameign eða
til sérnota.
Talsvert verður í þessi hús lagt,
en þau verða einangruð að utan að
langmestu leyti og klædd álplötum
og báruáli sem myndar loftræsta
veðurkápu. Svalahandrið verða öll
úr áli eða stáli, þar sem nauðsyn
er vegna burðar og vindálags.
Gluggalistar utanhúss verða allir
úr áli eða öðrum ryðfríum málmi.
Svalir á suðvestur- og norðvest-
urhliðum á 2., 3. og 4. hæð húss
nr. 25 verða glerjaðar með opn-
anlegu glerkerfi nema á efstu
hæðum, en þaksvalir fylgja flest-
um íbúðum á efstu hæðum og á
jarðhæð ofan á bílakjallara.
Þarna er nokkuð djúpt ofan á
Útlitsteikning af fyrirhuguðum íbúðabyggingum. Byggð verða tvö fjölbýlishús með samtals 70 íbúðum. Annað húsið verður fjórar hæðir með tuttugu íbúðum og hitt fimm hæðir með fimmtíu íbúðum.
Sjötíu útsýnisíbúðir munu
áNorðurbakkanum í Hafn
Við Norðurbakka 23–25
eru ÞG verktakar að hefja
miklar íbúðabyggingar.
Magnús Sigurðsson
kynnti sér fyrirhugaðar
framkvæmdir, en nálægð-
in við höfnina og útsýnið
út á sjóinn mun einkenna
íbúðirnar, sem verða í
háum gæðaflokki.
Morgunblaðið/Ómar
Horft yfir höfnina og inn til Hafnarfjarðar.
Morgunblaðið/Ómar
Útsýnið út á sjóinn verður mikið.