Morgunblaðið - 28.11.2005, Qupperneq 61

Morgunblaðið - 28.11.2005, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. NÓVEMBER 2005 F 61 S íðustu mánuði hafa nokk- ur sveitarfélög auglýst úthlutanir á byggingar- lóðum. Einstaklingum hefur verið gefinn kostur á að sækja um lóðir og þeir sem hafa uppfyllt ákveðin skilyrði fengið úthlutað. Markaðsvirði fasteigna um allt land hefur hækkað umfram byggingarkostn- að og af þeim ástæðum sjá margir sér leik á borði og ákveða að byggja sjálfir. Mikilvægt er fyrir umsækjend- ur að lesa vel skilmála sveitar- félaganna um ný- byggingar og gera ítarlega kostn- aðaráætlun áður en ákvörðun er tekin. Það eru ótal atriði sem hús- byggjandi þarf að huga að áður en hafist er handa, t.d. nálægð við leik- skóla, skóla, þjónustustofnanir, um- ferðarálag, fjarlægð frá vinnustað, útsýni og margt fleira. Greiðslumat allt að 45 milljónum króna Sveitarfélögin setja flest skilyrði um greiðslumat upp á allt að 45 milljónir þegar sótt er um lóð. Í greiðslumati er greiðslugeta ein- staklings metin. Aðferð við mat á greiðslugetu og eignastöðu einstaklings. Greiðslugeta: Ráðstöfunartekjur/útborguð laun – framfærslukostnaður – rekstur bifreiðar – rekstur húsnæðis – ör- yggismörk. Eignastaða: Eignir (fasteign) – Skuldir = Hrein eign Hrein eign + nýtt lán þarf að ná allt að 45 milljónum króna ef t.d. um einbýlishús er að ræða. Til að fá greiðslumat þarf að skila: Launaseðlum síðustu þriggja mán- aða.  Skattskýrslu staðfestri af löggilt- um endurskoðanda eða skattayf- irvöldum.  Síðustu greiðsluseðlum allra lána.  Söluverðmati (ef við á).  Veðbandayfirliti.  Samþykki vegna útprentunar lánayfirlits. Í sumum tilfellum er yfirlýsing frá bankastofnun um greiðsluhæfi við- komandi nægjanleg. Í slíkri yfirlýs- ingu lýsir bankinn því yfir að um- sækjandi eigi fyrir og geti staðið undir byggingarframkvæmdum fyr- ir ákveðna upphæð. Kostnaður við greiðslumat getur verið á bilinu 4.500–7.000 kr. Í sum- um tilfellum þarf að söluverðmeta eignir. Gjald fyrir söluverðmat er mismundi milli fasteignasala og mikilvægt fyrir lántakendur að kynna sér kostnaðinn fyrirfram. Hver er kostnaðurinn við lántöku?  Lántökugjald: 1%  Stimpilgjald: 1,5% – fer beint til ríkissjóðs  Skuldabréf útbúið: 1.900–2.800 kr.  Þinglýsing: 1.350 kr. Flest sveitarfélög fara fram á að lóðir séu staðgreiddar en þó hafa sum bæjarfélög boðið lóðalán þar sem lántaki fær lán fyrir lóðinni til allt að 5 ára. Hvað kostar að byggja einbýlishús? Margir tala um þumalputtareglu sem gerir ráð fyrir að kostnaður í sérbýli sé 200.000 kr. á fermetra. Þannig að kostnaður við byggingu 200 fermetra einbýlishúss gæti hæglega verið um 40 milljónir. Í dag er kostnaður lóðar orðinn mun stærri hluti af húsbyggingunni en áður. Verð lóðar getur verið á bilinu 5.000.000–15.000.000 krónur fyrir lóðir á útsýnisstað. Rannsóknarstofnun byggingar- iðnaðarins (www.habygg.is) gefur á heimasíðu sinni upplýsingar um hlutfallslega skiptingu byggingar- kostnaðar, eftir byggingarhlutum. Upptalningin er aðeins til viðmið- unar og geta ýmsir þættir haft áhrif á framgang byggingar eða bygging- arkostnað. Heildarbyggingarkostnaður  Að fokheldi = 51%  Frá fokheldisstigi – tilbúið til inn- réttinga = 27%  Frá tilbúnu til innréttinga til full- kláraðrar eignar = 22% Dæmi: 45.000.000 kr. einbýlishús. Að fokheldi gæti því kostnaðurinn numið um 22.950.000 kr. Hvernig á ég að fjármagna bygginguna? Húsbyggjandi þarf í flestum til- fellum sjálfur að eiga fyrir lóðar- kostnaði og kostnaði við að koma byggingunni upp í fokheldisástand. Einnig er möguleiki á að fá skamm- tímafjármögnun t.d. í formi yfir- dráttar. Húsnæðislán er hægt að fá greidd út við neðangreind bygging- arstig. Fokheldi – fyrsti hluti láns af- greiddur. Byggingarstig 4. Fokheld bygg- ing. Tilbúið til innréttinga – annar hluti láns afgreiddur. Byggingarstig 5. Tilbúin til inn- réttinga. Fullbúin eign – þriðji hluti láns afgreiddur. Byggingarstig 7. Fullkláruð eign. Skynsamlegt er að kynna sér vel ýmis lánaform, lánaeiginleika og áhrif lánstíma þannig að hægt sé að velja þá leið sem hentar best. Íslandsbanki býður 5 tegundir húsnæðislána. Verðtryggð íslensk lán – Vextir nú 4,35%. Hægt að fá með jöfnum afborgunum eða sem jafngreiðslu- lán (annuitets). Erlend myntkörfulán (5 myntir í körfu). Blönduð lán – 50% íslensk og 50% erlend mynt. Óverðtryggð lán – 100% íslensk mynt. Vaxtagreiðslulán – 100% íslenskt lán til 5 ára í senn. Lántaki greiðir einungis vexti og verðbætur á láns- tímanum. Við val á húsnæðisláni gæti eft- irfarandi upptalning verið hjálpleg. Ef eignamyndun er mikilvægari en greiðslubyrði þá gæti hentað: – Lán með jöfnum afborgunun- um. – Stuttur lánstími. Ef greiðslubyrði er takmarkandi þá gæti hentað: – Lán með jöfnum greiðslum (an- nuitet). – Langur lánstími. Ef sveiflur í greiðslubyrði er ekki vandamál og eignir og tekjur eru í erlendum gjaldmiðlum þá gæti hentað: – Gengistryggð lán. – Óverðtryggð lán. Þegar ráðist er í framkvæmdir er nauðsynlegt að fá ráðgjöf varðandi hagkvæmust fjármögnunarleiðina. Að ýmsu er að hyggja og aðstæður fólks misjafnar. Gott er að leita til ráðgjafa í útibúum Íslandsbanka en þar er hægt að fá heildarfjármála- ráðgjöf varðandi fasteignaviðskipti. Einnig er hægt að fá ítarlegar upp- lýsingar á heimasíðu bankans (www.isb.is). Ég ætla að sækja um lóð – hvað skal gera? Ragnheiður Jóhannesdóttir                      Morgunblaðið/Jim Smart Markaðurinn eftir Ragnheiði Jóhannesdóttur við- skiptafræðing og deildarstjóra Út- lánaþjónustu Íslandsbanka. KONUR í Kvenfélagi Hrís- eyjar voru hvatamenn að byggingu Hríseyjarkirkju sem vígð var 26. ágúst 1928 og teiknuð af Guðjóni Sam- úelssyni arkitekt. Kirkjugarðurinn í Hrísey er úti við Saltnes, sem er ysta húsið í þorpinu, og var hann tekinn í notkun 2. september árið 1921. Fyrir tíma graf- reits í Hrísey voru eyj- arskeggjar jarðsettir í gamla kirkjugarðinum í Stærra- Árskógi. Kirkjan í Hrísey Morgunblaðið/Arnaldur Kirkjan í Hrísey. KLETTUR eftir Brynhildi Þor- geirsdóttur. Efnið er ryðgað stál og hefur ryðáferðin skírskotun í nátt- úruna, jarðlit eða moldarlit. Íbúa- samtök Grafarvogs keyptu lista- verkið árið 2003. „Klettur“ eftir Brynhildi Þorgeirsdóttur. Klettur Brynhildar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.