Morgunblaðið - 30.11.2005, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 35
MINNINGAR
✝ Bjarni EinarBjarnason
fæddist í Reykja-
vík 12 júlí 1921.
Hann lést á Land-
spítalanum – há-
skólasjúkrahúsi 23.
nóvember síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Stein-
þóra Einarsdóttir,
f. 8.8. 1890, d. 3.3.
1985, og Bjarni G.
Dagsson sem
drukknaði í febr-
úar 1921. Fóstur-
faðir Bjarna var Gunnar Jó-
hannsson, f. 29.9. 1895, d. 17.10.
1971.
Hinn 7. júní 1953 kvæntist
Bjarni Júlíönu Símonardóttur, f.
á Siglufirði 18.3. 1930, d. 9.4.
2002. Bjarni og Júlíana bjuggu
fyrst á Siglufirði en síðastliðin
40 ár í Hafnarfirði, fyrst á
Hellisgötu 20 og síðar á Álfa-
skeiði 55. Þau eignuðust fjögur
börn. Þau eru: 1) Særún, f. 8.12.
1949, maki Guðni Einarsson, f.
27.11. 1946, og þeirra börn eru:
a) Einar Ragnar, sambýliskona
hans er Ástrós Sigurðardóttir
og dóttir þeirra er Birta Ósk. b)
Guðríður, sambýlismaður henn-
ar er Gestur Pálsson og synir
þeirra eru Ísak Páll
og óskírður. 2)
Kristín, f. 25.12.
1952, maki Ólafur
Karlsson, f. 1.10.
1954, sonur þeirra
er Bjarni Leó. Áður
átti Kristín dótt-
urina Steinþóru.
Dóttir Steinþóru og
Tryggva Þórs
Svanssonar er
Kristín Sunna. 3)
Ólöf, f. 8.8. 1956,
maki Jón Ragnars-
son, f. 12.7. 1959.
Börn þeirra eru: a) Kristens,
sambýliskona Kristbjörg Sigurð-
ardóttir, sonur þeirra Andri
Þór. b) Júlíana, sambýlismaður
Staffan Linné. c) Erna Bjarkl-
ind. 4) Símon Þór, f. 15.9. 1962,
maki Þóra G. Þórisdóttir, f.
27.5. 1960. Þeirra börn eru: a)
Matthías. b) Eydís Ósk. c) Símon
Már.
Bjarni stundaði ýmis verka-
mannastörf en var mest til sjós
fram til 1969 en þá hóf hann
störf hjá Íslenska álfélaginu í
Straumsvík. Bjarni vann í
Straumsvík til 70 ára aldurs.
Útför Bjarna verður gerð frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag
og hefst athöfnin klukkan 15.
Það er sjaldan ef nokkru sinni
sem manni hefur liðið eins furðu-
lega og nú. Það er eins og gleði og
léttir standi öðrum megin við
mann, en sorg og söknuður hinum
megin. Svo togast þessar tilfinn-
ingar á fram og tilbaka og maður
fær ekkert við ráðið. Stundum er
eins og verið sé að rífa mann í
sundur, en svo dregst maður sam-
an aftur og líður betur. Gleði og
léttir vegna þess að þú fékkst loks-
ins að fara, sem er það sem þú
vildir. Sorg og söknuður vegna
þess hve góðan vin ég missti.
Minningarnar um þig, ekki bara
sem afa, heldur einnig sem vin,
sem maður lék sér við eru ótelj-
andi. Eins lengi og ég man eftir
mér hefur þú verið á sama stað á
Álfaskeiðinu, sem nú stendur autt.
Enginn afi og engin amma. Það
verður aldrei eins að fara inn í
Hafnarfjörð aftur. Það var nefni-
lega ekkert skemmtilegra en að
koma til ömmu og afa í Firðinum.
Amma í garðinum á meðan þú
varst að sprella með mér inni í
stofunni.
Skemmtilegustu æskuminningar
mínar eru einmitt þegar ég hljóp
eftir skóla upp á Álfaskeiðið til að
djöflast í Símoni frænda og afa.
Það skipti ekki máli hvor var á
staðnum, né að það munaði rétt
um 40 árum á þeim því það var
alltaf hægt að stóla á fjör á þessu
heimili. Maður tók glímur við Sím-
on milli þess sem maður horfði á
afa sýna töfrabrögð. Það var alveg
með ólíkindum hvað þú gast gert.
Afi var Houdini Íslands! Það hurfu
spil úr höndunum á honum, það
fóru eldspýtur inn um munn og út
um nef og kveikt var í umslögum
með peningaseðlum í án þess að
nokkuð kæmi fyrir seðlana.
Þessi tími var ógleymanlegur.
En það eru ekki bara æsku-
minningar sem koma upp í hug-
ann. Það er svo ótal margt annað
og það sem er efst í huga nú eru
síðustu dagarnir.
Sá tími var mjög sérstakur og
öll fjölskyldan saman. Það var svo
lýsandi fyrir þig hvernig þú svar-
aðir mér þegar ég spurði þig hvort
þú ætlaðir að gera eins og und-
anfarin ár, koma heim aftur. Ég
ætlaði ekki að trúa því sem ég
heyrði, sérstaklega þar sem þú
svaraðir á ensku í þetta sinn. Þú
svaraðir: „No, I’m gonna take a
little trip to heaven.“
Kristens Guðfinnsson.
Elskulegur afi minn er farinn
frá okkur. Stutt er á milli gleði og
sorgar hjá mér þessa dagana. Það
líður tæpur sólarhringur á milli
þess sem ég ligg á fæðingardeild-
inni og eignast lítinn gullmola og
afi minn kveður á öðrum stað á
Landspítalanum. Þegar ég horfi á
þann litla hugsa ég um það þegar
ég kom til afa nokkrum dögum áð-
ur. Þá voru hríðirnar byrjaðar og
hann klappar saman lófunum og
spyr hvort ég sé að færa honum
góðar fréttir. Svona var afi. Vildi
aldrei láta barnabörnin sjá hve
þreyttur og lúinn hann var af veik-
indum sínum.
Ég á ótal minningar um þennan
einstaka mann og brosi út í annað
því ekki geta allir státað af því að
eiga göldróttan afa. Ég hugsa um
öll prakkarastrikin, aprílgöbbin,
stríðnina, sögurnar af fjarlægum
slóðum, sögur af stríðinu, stepp-
dansinn, og síðast en ekki síst
galdrana. Afi var vanur að klappa
mér á öxlina og ekki brást að eftir
próf eða aðra áfanga í lífi mínu þá
hringdi sá gamli og sagði: „Hvað
sagði hann afi þinn? Ég vissi að þú
gætir þetta alltaf, þú ert svo klár
stelpa!“
Ég hugsa líka til þess þegar
hann kom í mat til mömmu, alltaf
svo glaður þegar við vorum ná-
lægt. Steppaði, dansaði og klapp-
aði okkur. Finnst mér gott að
hugsa til faðmlaga hans og get ég
yljað mér við það í huganum.
Amma og afi voru alltaf eitt.
Þegar amma dó varð mér ljóst
hversu duglegur afi var. Þrátt fyr-
ir veikindi síðustu árin þá var hann
alltaf að þrífa og gera fínt heima
hjá sér og svo brunaði hann um
bæinn á kagganum sem hann sá
ekki sólina fyrir. Ég mátti meira
að segja prófa hann og það voru
sko forréttindi að fá að keyra afa-
bíl.
Elsku mamma, það verður skrít-
ið að vita að afi kemur ekki í mat
til þín í kvöld og að ekki sjái ég
hann aftur leggja bílnum fyrir ut-
an hjá þér. Við getum huggað okk-
ur við það að hann var hvíldinni
feginn og að nú er hann kominn til
ömmu.
Ég og fjölskylda mín sendum
öllum sem unnu afa innilegustu
samúðarkveðjur okkar. Guð gefi
okkur styrk.
Þín afastelpa,
Guðríður Guðnadóttir.
Elsku afi. Nú ert þú glaður og
ánægður því amma kom og náði í
þig. Við systkinin vorum mikið hjá
ykkur á Álfaskeiðinu og þegar við
hugsum til þess tíma vakna
margar og skemmtilegar minning-
ar.
Það var alltaf gaman að hitta þig
á Álfaskeiðinu þegar þú varst í
þínu besta stuði (kannski varst þú
búinn að fá þér einn léttan). Stofu-
gólfið breyttist i fimleikasal þú
gekkst á höndum og amma fór í
splitt og við systurnar reyndum
auðvitað að apa eftir. Þú galdraðir
fyrir okkur með spilum og eld-
spýtum og fannst okkur þú vera al-
veg rosalegur galdrakall. Við erum
ennþá að reyna finna út hvernig þú
fórst að.
Þér fannst gaman að segja okkur
sögur frá því þegar þú varst ungur
og til stuðnings sýndir þú okkur
myndir frá ýmsum heimshornum.
Þú sást spaugilegar hliðar á mál-
unum og sprakkst oft úr hlátri áður
en þú gast klárað sögurnar. Okkur
fannst þið amma eiga rosalega
flotta bíla, þú varst alltaf svo hrif-
inn af amerískum bilum. Og að-
alsportið var að fara á rúntinn með
ykkur.
Þú varst ótrúlega góður í tungu-
málum þótt skólaganga þín væri
stutt. Eftir að við fluttum til Sví-
þjóðar byrjaðir þú alltaf símasam-
talið á sænsku. Þetta fannst okkur
svo merkilegt því það voru 50 ár
frá því þú bjóst í Svíþjóð. Þetta eru
smá brot af minningum okkar frá
því við vorum litlar stelpur.
Þegar þú varst í heimsókn hjá
okkur fyrir tveimur árum í Svíþjóð
varstu 82 ára og mikið veikur, en
þú lést það ekki aftra þér frá því að
taka danssporin á göngugötu
Málmeyjar í glaða sólskini. Við vor-
um báðar svo ánægðar að hafa
kynnst þér svona vel þegar þú
komst til okkar.
Þegar Erna hitti þig á spítalan-
um stuttu fyrir andlát þitt, voru
tennurnar þínar í boxi á náttborð-
inu. Og það fyrsta sem þér datt í
hug var að taka gómarna og láta þá
tala sjálfa Alltaf stutt í djókið og
alveg fram að þinni síðustu stund í
þessu lífi.
Takk, elsku afi, fyrir allt. Kysstu
ömmu frá okkur.
Júlíana og Erna Bjarklind.
Hann var sjómaður dáðadrengur.
Hraustmenni sem sigldi fram undir
þrítugt um öll heimsins höf og upp-
lifði margt á þessum tímum heims-
styrjaldar og kaldastríðs. Þá hafði
lítil stúlka litið dagsins ljós norður
á Siglufirði og Bjarni lagði heims-
höfin að baki og hélt í land en var
þó áfram viðloðandi togara-
mennsku næstu árin. Á Siglufirði
setti hann saman bú með konu
sinni Júlíönu Símonardóttur og þar
fæddust þeim þrjú börn til við-
bótar. Á þessum árum bjó fjöl-
skyldan þó tímabundið á suðvest-
urhorninu þar sem Bjarni hafði þá
fengið vinnu á Vellinum. Um miðj-
an sjöunda áratuginn fluttist fjöl-
skyldan alfarin í Hafnarfjörð og bjó
þar upp frá því.
Á ferðalögum sínum um heiminn
var Bjarni mjög næmur á tungumál
annarra þjóða og var með ólík-
indum hvað honum tókst að til-
einka sér vel ýmis tungumál. Þessi
kunnátta átti eftir að koma sér vel
fyrir hann, bæði þegar hann sótti
um vinnu á Vellinum og eins síðar
við álverið í Straumsvík. Í álverinu
vann Bjarni síðan fram til starfs-
loka.
Innan við tvítugt var Bjarni eitt
ár í í þróttaskólanum í Haukadal og
var alla tíð eftir það mjög meðvit-
aður um mikilvægi líkamlegs at-
gervis. Sjötíu og fimm ára gekk
hann í síðasta sinn upp á Efstadals-
fjall, fjallið fyrir ofan sumarbústað
þeirra hjóna, og fór auðvitað beint
af augum upp. Þrátt fyrir sjúkdóm-
inn sem hann þjáðist af og ýmsar
slagsíður á lífsbátnum framan af
ævi var hann léttur í spori og tein-
réttur til hinstu stundar.
Bjarni var dulur maður og ekki
mikið fyrir að flíka tilfinningum
sínum en hann var mikill vinur vina
sinna. Í banalegunni virtist hann
t.d. hafa meiri áhyggjur af því
hvernig einum úr fjölskyldunni
reiddi af eftir bakaðgerð heldur en
eigin ástandi. Það var líka gaman
að fylgjast með því hvað hann
ræktaði sambandið við börn sín og
barnabörn enn betur enda uppskar
hann það ríkulega í umhyggju
þeirra og umönnun.
Síðustu árin gegndi Bjarni
ákveðnu starfi fyrir okkur hjónin;
hann var „eftirlitsmaðurinn“ eins
og hann og við kölluðum hann í
gamni. Þegar við brugðum okkur af
bæ kom Bjarni daglega og leit eftir
að allt væri í lagi, settist um stund,
las blöðin og dottaði og sinnti
hundinum ef hann hafði fylgt með í
kaupunum. Þessu sinnti hann af
stakri skyldurækni og nákvæmni
en jafnframt ánægju yfir að geta
orðið að liði.
Bjarna, vin okkar, kveðjum við
með söknuði og þökkum honum
samfylgdina í meira en hálfa öld.
Ástvinum hans biðjum við guðs-
blessunar.
Ingibjörg og Atli.
Það sitja allir hljóðir og hlusta,
börnin og þeir sem eldri eru. Sögu-
maðurinn býr yfir einstökum frá-
sagnarhæfileikum, hann kemur
upplifun sinni og ævintýrum vel til
skila. Hann notar líkamann til að
fylgja orðum sínum eftir enda mjög
vel á sig kominn líkamlega, í flottu
formi. Hann leikur við börnin,
sprellar, galdrar og skemmtir sér
vel sem og allir í kringum hann.
Hann hljóp, gekk hratt, það
mátti engan tíma missa, mottóið
var að lifa lífinu lifandi og það gerði
hann svo sannarlega hann Bjarni
Einar Sædal Bjarnason, einn af
börnum Steinþóru Einarsdóttur frá
Vatnsleysuströnd. Steinþóra móðir
hans sagði mér frá því að þegar
hún gekk með hann Bjarna sinn
hefði faðir hans farist í sjóslysi.
Þegar ég kynntist Bjarna var
hann orðinn fullorðinn, hann var
orðinn afi og voru ferðir hans og
Júlíönu Símonardóttur konu hans
tíðar til Særúnar vinkonu minnar
og nágranna til tveggja áratuga en
Særún er elsta barn þeirra hjóna
Bjarna og Júlíönu, sem á sjötta
áratugnum fluttu frá Siglufirði til
Hafnarfjarðar og undu hag sínum
vel, þó svo að Siglufjörður hafi átt í
þeim sterk ítök.
Í svo nánu nágrenni sem við vin-
konurnar bjuggum í með mönnum
okkar og börnum urðu til góð kynni
á milli foreldra okkar og fjöl-
skyldna.
Bjarni og Júlíana voru ólík en
samhent hjón, Júlíana lést árið
2002.
Nú þegar Bjarni er kvaddur er
mér efst í huga þakklæti og virðing
til þeirra hjóna fyrir ánægjulega,
hreinskiptna og góða samfylgd,
trygglyndi og vináttu alla.
Elsku Særún, Stína, Símon, Ólöf
og fjölskyldur, við Böddi og dætur
okkar vottum ykkur okkar innileg-
ustu samúð. Blessuð og varðveitt sé
minning um Bjarna Einar Bjarna-
son.
Valgerður Sigurðardóttir.
BJARNI E.
BJARNASON
Fleiri minningargreinar um
Bjarna E. Bjarnason bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu
daga. Höfundar eru: Bjarni Leó og
Steinþóra og Kristín Sunna.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
NANNA ÞURÍÐUR ÞÓRÐARDÓTTIR
frá Siglufirði,
Safamýri 55,
lést á líknardeildinni á Landakoti miðvikudaginn
23. nóvember.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn
1. desember kl. 15.00.
Þórður G. Möller, Ingibjörg S. Helgadóttir,
Rögnvaldur G. Möller, Þóra Kristinsdóttir
og barnabörn.
Helluhrauni 10, 220 Hf.,
sími 565 2566,
www.englasteinar.is
Englasteinar
Fallegir legsteinar
á góðu verði
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma, langamma og systir,
SÓLEY ÞÓRARINSDÓTTIR
frá Suðureyri
við Tálknafjörð,
lést á heimili sínu í Rituhólum í Reykjavík fimmtu-
daginn 24. nóvember.
Útför hinnar látnu fer fram frá Fella- og Hólakirkju
föstudaginn 2. desember kl. 13:00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast
hennar, er bent á sjóðinn Blind börn og heimahlynningu Krabbameins-
félagsins.
Ólafur Magnússon,
Hjördís G. Ólafsdóttir, Guðbergur Pétursson,
Gerður S. Ólafsdóttir, Þröstur K. Sveinbjörnsson,
Magnús Ólafsson, Ingibjörg Jónsdóttir,
Þórarinn Ólafsson, Dagmar Viðarsdóttir,
barnabörn, barnabarnabarn
og systkini.