Morgunblaðið - 05.12.2005, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 330. TBL. 93. ÁRG. MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
www.postur.is
8.12.
er síðasti öruggi skiladagur
á jólakortum til landa
utan Evrópu!
Einstök
stund
Umsögn um tónleika Garðars
Thórs Cortes Menning
Fasteignir | Breyting undir hlíðum Helgafells Hús eða
íbúð á Spáni 100% lán eða leiga Íþróttir | Yfirburðir
Rúnars Kristinssonar Fyrsta tap Njarðvíkinga
MARGIR lögðu leið sína í miðbæ
Reykjavíkur í gær, annan sunnu-
dag í aðventu, þegar ljósin voru
tendruð á Óslóartrénu. Guttorm
Vik, sendiherra Noregs á Íslandi,
færði Steinunni Valdísi Óskars-
dóttur borgarstjóra tréð að gjöf í
fallegu vetrarveðri á Austurvelli.
Þegar hin sjö ára norsk-íslenska
Kristín hafði kveikt ljósin á 12
metra háu trénu stigu gestir á svið.
Þar mættu Reyndar og Raunar, úr
leikritinu Leitinni að jólunum, Hug-
leikur sýndi brot úr Jólaævintýri og
þá komu þrír jólasveinar, bræð-
urnir Stekkjarstaur, Stúfur og
Þvörusleikir, sem fengu leyfi hjá
Grýlu til að fara til byggða viku á
undan áætlun og sjá jólaljósin
tendruð á Óslóartrénu. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jólaljósin kveikt
á Óslóartrénu
DANSKA stjórnin ætlar að takmarka verulega
straum innflytjenda til Danmerkur á næsta ári
og verður það ekki síst gert vegna skuggalegra
talna, sem fram koma í svokallaðri velferð-
arskýrslu, en hún verður birt á miðvikudag.
Claus Hjort Frederiksen atvinnuráðherra
segir, að innflytjendum frá vanþróuðum ríkjum,
til dæmis Sómalíu, Íran, Írak, Líbanon og fleiri,
verði fækkað verulega en ljóst sé, að þeir séu
mikil fjárhagsleg byrði fyrir danskt samfélag.
Segir Frederiksen, að þeir, sem fái landvist,
verði að geta gengið í eitthvert starf strax.
Kom þetta fram á fréttavef Jyllands-Posten í
gær.
Aðlögun hefur alveg mistekist
„Við neyðumst einfaldlega til að taka upp
nýja stefnu í innflytjendamálum. Útreikningar
velferðarnefndarinnar eru skelfilegir og sýna
meðal annars hve aðlögun innflytjendanna hef-
ur algerlega brugðist,“ sagði Frederiksen.
Í starfi sínu reiknaði velferðarnefndin út
hvað það þýddi ef tekið yrði alveg fyrir straum
innflytjenda frá vanþróuðum ríkjum. Þá kom í
ljós, að þörfin fyrir sparnað í velferðarkerfinu á
næstu áratugum hyrfi að 75%.
Að því er fram kom í Berlingske Tidende í
gær hafa danskir jafnaðarmenn efasemdir um
fyrirhugaðar breytingar og Irene Simonsen,
samflokksmaður Frederiksens og talsmaður
Venstre í málum, sem snerta aðlögun innflytj-
enda, telur, að þær geti stangast á við alþjóða-
samninga.
Innflytjendalög verði hert
Kostnaður dansks samfélags vegna innflytjenda sagður „skelfilegur“
Vænta
svara
frá Rice
Washington. AP, AFP. | Condoleezza
Rice, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, mun upplýsa ríkisstjórnir í
Evrópu um meint fangaflug í för
sinni til fjögurra Evrópuríkja nú í
vikunni. Kom það
í gær fram hjá
Stephen Hadley,
öryggisráðgjafa
Bandaríkja-
stjórnar. Sagði
hann, að meintir
hryðjuverka-
menn væru ekki
pyntaðir erlendis.
„Eitt af því,
sem hún mun
segja, er þetta: Sjáum nú til. Við eig-
um öll í höggi við hryðjuverkamenn
og þess vegna verðum við að standa
saman,“ sagði Hadley í viðtali við
Fox-sjónvarpsstöðina. Fullyrti
hann, að þessi mál væru í samræmi
við bandarísk lög og Bandaríkja-
menn virtu fullveldi annarra ríkja.
Í viðtali við CNN-sjónvarpsstöð-
ina endurtók Hadley, að Rice myndi
tjá sig um þetta en þegar hann var
spurður hvort CIA, bandaríska
leyniþjónustan, væri með leynileg
fangelsi í Evrópu, sagði hann, að
væri svo, væri „um að ræða nokkuð,
sem ekki er unnt að ræða“. Slíkar
upplýsingar myndu aðeins gagnast
óvininum.
Viðurkenndu mannrán
Sendiherra Bandaríkjanna í Berl-
ín viðurkenndi á síðasta ári á fundi
með innanríkisráðherra Þýskalands,
að CIA hefði rænt þar í landi þýsk-
um þegni, fæddum í Líbanon, og
haldið honum saklausum í fangelsi í
fimm mánuði. Bað sendiherrann ráð-
herrann að segja ekki frá þessu, að
því er fram kemur í The Washington
Post.
Deilur | 14
Mun líklega ekki
tjá sig mikið um
leynileg fangelsi
Condoleezza Rice
ELÍSABET Bretadrottning hyggst ekki biðja fyrir tengda-
dóttur sinni, Camillu Parker Bowles, í opinberum bænum
sínum. Þetta kom fram í svari bresku hirðarinnar við fyr-
irspurn þingmannsins Andrews McKinlays og sagði þar að
ekki lægju persónulegar ástæður að baki.
Í opinberum bænum er Guð beðinn að blessa drottninguna
og mann hennar og Karl. Á sínum tíma var Díönu prinsessu
einnig getið sérstaklega í bænum drottningar. Einnig er
beðið um blessun konungsfjölskyldunnar og sagði talsmaður
drottningar að tengdadóttir hennar væri þar með talin.
Robert Lacey, sérfræðingur um konungsfjölskylduna,
sagði í Sunday Times að drottning væri æðsti yfirmaður ensku biskupakirkj-
unnar og gæti ekki beðið sérstaklega fyrir Camillu vegna þess að hún og
Karl hefðu bæði framið hjúskaparbrot í fyrra hjónabandi.
Biður ekki fyrir Camillu
Camilla Parker
Bowles
Fasteignir og Íþróttir í dag