Morgunblaðið - 05.12.2005, Page 4
4 MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heimsferðir bjóða þér frábært tækifæri til taka þér frí frá íslenskum hávetri og láta
sólina á Kanaríeyjum baka þig. Bókaðu janúarsólina á Kanarí strax - slökunin mun
svo sannarlega vera tímabær og söknuður eftir íslenskum vetri í algjöru lágmarki.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Kanarísól
á frábæru verði
í janúar
frá kr. 28.295
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Tryggðu þér síðustu sætin og besta verðið!
Verð frá kr.28.295
Flug, skattar og gisting, m.v. 2 fullorðna og
2 börn, 2-11 ára, á Paraiso Maspalomas, 3., 10.
eða 17. jan., vikuferð. Netverð á mann.
Verð frá kr.57.590
Hálft fæði Flug, skattar og gisting,
m.v. 2 í svítu á Suite Hotel Maspalomas Dunas
- hálft fæði, vikuferð, 3., 10. eða
17. janúar. Netverð á mann.
VERIÐ er að gera könnun á hag-
kvæmni þess að reisa koltrefja-
verksmiðju á Norðurlandi vestra,
að sögn Jakobs Magnússonar,
framkvæmdastjóra Samtaka sveit-
arfélaga á Norðurlandi vestra
(SSNV). Hann leggur áherslu á að
málið sé á grunnskoðunarstigi en
segir að rísi verksmiðjan verði það
mikil lyftistöng fyrir svæðið. At-
vinnuástand á Norðurlandi vestra
sé frekar slæmt um þessar mundir
og margir flytjist á brott þaðan.
Spurður um hugsanlega stað-
setningu koltrefjaverksmiðju segir
Jakob að ekki hafi verið tekin
ákvörðun um slíkt og séu allir
möguleikar á Norðurlandi vestra
opnir. Hann segir að bygging
verksmiðjunnar hafi verið í skoðun
undanfarna 7 til 8 mánuði. „Málið
er statt þannig að nú er verið að
gera áætlun á vegum Fjárfesting-
arstofu og SSNV,“ segir Jakob.
Fjárfestingarstofa er eign iðnaðar-
og viðskiptaráðuneytisins og hefur
að sögn Jakobs komið að málinu á
síðari stigum.
„Það er verið að skoða mögu-
leika á þessum iðnaðarvalkosti,“
segir hann og bætir við að kol-
trefjar séu notaðar til byggingar á
ýmiss konar hlutum í dag. Til að
mynda séu nýjar farþegaþotur
sem byggðar eru nú um stundir að
talsverðu leyti úr koltrefjum.
Einnig bílarnir sem notaðir eru í
Formúla-eitt akstrinum, golfkylfur
og keppnisreiðhjól, svo dæmi séu
nefnd.
80–120 störf í
koltrefjaverksmiðjum
Jakob segir að þeir aðilar sem
SSNV hefur rætt við vegna máls-
ins segi að verði tekin ákvörðun
um byggingu verksmiðjunnar sé
hægt að koma henni á laggirnar á
innan við ári.
Spurður um hversu mörg störf
gætu orðið til verði koltrefjaverk-
smiðja reist segir Jakob að það
fari eftir því hvernig verksmiðjan
verði byggð. Algengt sé að að á
bilinu 80–120 manns starfi í nýlega
byggðum koltrefjaverksmiðjum.
Koltrefjaverksmiðja
hugsanlega reist á
Norðurlandi vestra
VIÐ höfum litið svo til að málið hafi
verið í mjög langan tíma í vinnslu og
þessir kostir verið til skoðunar, bæði
ytri og innri leið, segir Sturla Böðv-
arsson, samgönguráðherra, um ný-
lega bókun borgarráðs þar sem skor-
að er á Alþingi að binda ekki
fjárveitingu til Sundabrautar við innri
leið. Í frumvarpi um ráðstöfun á sölu-
andvirði Landsíma Íslands er lagt til
að átta milljarðar verði veittir til lagn-
ingar Sundabrautar en skilyrði er
hins vegar um að farin verði innri leið
– sem talin er hagkvæmari.
Sturla segir niðurstöðuna vera þá
að með úrskurði umhverfisráðherra
hafi verið tekin afstaða til þess að til-
laga Vegagerðarinnar, sem er innri
leið, sé tækur kostur.
„Ef að borgaryfirvöld fara nú að
leggja til að ytri kostirnir séu sérstak-
lega skoðaðir, þá stendur Vegagerðin
frammi fyrir erfiðum úrlausnarefn-
um.“
Ráðherrann vonast til að samráðs-
ferillinn, sem áskilinn er í úrskurði
umhverfisráðherra, geti nú hafist og
að borgaryfirvöld vinni með eðlileg-
um hætti að framgöngu málsins og
Vegagerðinni í samræmi við lög.
Aðspurður hvort það komi til
greina að afnema skilyrðið um innri
leið segir Sturla að ekki hafi verið
fjallað um málið með formlegum
hætti og í raun hafi bókun borgarráðs
ekki borist með formlegum hætti, svo
vitað sé til, í samgönguráðuneytinu.
„Málið er í þessum lögformlega far-
vegi. Úrskurður hefur verið kveðinn
upp og gerir ráð fyrir því að nú hefjist
samráð, eins og þar er kveðið á um,
þannig að ég tel að málið hljóti að fara
í þann farveg.“
Allt bendir til þess að frumvarpið
um ráðstöfun söluandvirðis Símans
verði afgreitt í þessari viku, eða áður
en Alþingi fer í jólafrí næsta föstudag.
Aðspurður hvort hægt væri að breyta
frumvarpinu áður en það verður af-
greitt sagði Sturla: „Ég sé ekki
hvernig það mál verður öðruvísi af-
greitt en er þegar búið. Málið liggur
alveg fyrir Alþingi.“
Forsætisráðherra
taki málið upp
Stefáni Jóni Hafstein, formanni
borgarráðs, þykir það miður ef áskor-
un borgarráðs verður ekki rædd á Al-
þingi. Hann segir að ef Alþingi vilji í
raun afnema þetta skilyrði og skoða
báða kosti þá sé þar enginn vandi á
ferð. Stefán segir bókun borgarráðs
hafa verið einróma, mjög afdráttar-
lausa og í fyrsta skipti á kjörtíma-
bilinu hafi borgarstjórnarflokkur
Sjálfstæðisflokks tekið undir það að
kanna eigi báða kosti. Einnig hefur
Stefán Jón heyrt af því að Halldór Ás-
grímsson, forsætisráðherra, hafi rætt
um það á fundi með Faxaflóahöfnum
að hann teldi að hægt væri að endur-
skoða málið. „Ég vonast þá bara til að
forsætisráðherra taki málið upp,“
segir Stefán Jón sem telur það
þrengja mjög kosti til sátta á meðal
yfirvalda og íbúa að báðir kostir séu
ekki uppi á borðinu og skoðaðir sam-
tímis. „Það er skilyrt af hálfu um-
hverfisráðherra að það sé fullt sam-
ráð við íbúa alls staðar þar sem þessi
braut snertir hagsmuni. Eitthvað
hljóta menn að meina með því að fullt
samráð skuli hafa, ekki að valta yfir
menn. Það er alveg ljóst að það eru
ákveðnir skipulagshagsmunir sem
eru þeim megin að ytri leiðin er vænni
kostur að mörgu leyti og þó hún sé
dýrari til skamms tíma þá er hún
ódýrari til lengri tíma litið.“
Samgönguráðherra segir málefni
Sundabrautar í lögformlegum farvegi
Úrskurður-
inn gerir ráð
fyrir samráði
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
Sturla
Böðvarsson
Stefán Jón
Hafstein
LANDKRABBARNIR, hópur átta nemenda
frá Smáraskóla í Kópavogi, tók um helgina
þátt í Norðurlandamótinu í legókubbakeppni
sem fram fór í Þrándheimum í Noregi.
Keppnin er hluti af alþjóðlegu móti sem ber
heitið First LEGO League og er fyrir 9–14
ára krakka.
Landkrabbarnir, sem eru allir 12 ára, sigr-
uðu í undankeppni sem fór fram hér á landi í
nóvember.
Á Norðurlandamótið voru mætt 28 lið sem
voru sum hver að taka þátt í þriðja eða fjórða
sinn. Ísland, ásamt Færeyjum, tók nú þátt í
fyrsta sinn en þetta var í fimmta sinn sem
keppnin er haldin. Tuttugu og tveggja manna
hópur fór út frá Íslandi en hann samanstóð af
keppnisliðinu, foreldrum, skólastjóra Smára-
skóla og umsjónarmönnum keppninnar
hérna heima.
Íslenska liðið stóð sig vel miðað við að vera
að taka þátt í fyrsta skipti og endaði í 22. sæti
í heildina en keppninni er skipt í fjóra liði.
Fyrsti liður keppninnar fólst í að keyra
áfram vélmenni sem liðin höfðu hannað,
smíðað og forritað og þurftu vélmennin að
geta leyst úr ýmsum þrautum. Í fyrstu um-
ferðinni með vélmennin lentu Landkrabbarn-
ir í 16. sæti en í því tuttugusta í annarri um-
ferðinni. Vélmennin eru gerð úr legókubbum
og eru þau stærsti hluti keppninnar, með erf-
iðustu þrautirnar og mestu sýninguna.
Tæknina og hugsunina á bak við vélmennin
þurfa þau síðan að útskýra fyrir dómnefnd.
Í einum liðnum fluttu krakkarnir rann-
sóknarverkefni, en Landkrabbarnir tóku fyr-
ir lífríkið í Kópavogsleirunni og fluttu erindi
ásamt myndum með texta af skjávarpa á
norsku.
Lið frá Noregi sigraði í keppninni.
Landkrabbar ánægðir
í Legókubbakeppni
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Róbóti íslenska liðsins vinnur sitt verk vel. Hann er haganlega
smíðaður úr legókubbum af nemendum Smáraskóla í Kópavogi.
HUGGARÐSFÉLÖGIN hafa vísað
kjaradeilu sinni við Reykjavíkur-
borg til Ríkissáttasemjara. Félögin
fimm, sem eru öll innan BHM, hafa
staðið sameiginlega að viðræðum við
Reykjavíkurborg undanfarna tæpa
tvo mánuði. Félögin mótmæla harð-
lega vinnubrögðum samninganefnd-
ar og lýsa allri ábyrgð á töfum samn-
ingaviðræðna á hendur borgarinnar.
Í bréfi HugGarðs segir m.a. að
mikill tími hafi farið í umræður um
starfsmatskerfi. „Niðurstaða þeirra
viðræðna var sú að stéttarfélögin
höfnuðu þátttöku í starfsmatskerfi
Reykjavíkurborgar með skriflegri
yfirlýsingu þann 1. nóvember síðast-
liðinn. Í tilboði að kjarasamningum
sem Reykjavíkurborg lagði fram 15.
nóvember er engu að síður gengið út
frá því sama starfsmatskerfi, sem
stéttarfélögin hafa þegar hafnað.“
Kjaradeilu
vísað til
Ríkissátta-
semjara
HugGarður og
Reykjavíkurborg
NOKKRAR athugasemdir hafa bor-
ist við frumvarp um starfsmannaleig-
ur, sem nú er til umfjöllunar í félags-
málanefnd Alþingis eftir að hafa
verið vísað þangað eftir fyrstu um-
ræðu í þinginu. Stefnt er að því að
frumvarpið verði að lögum fyrir
jólahlé Alþingis, en samkvæmt
starfsáætlun þingsins er það á föstu-
daginn kemur.
Siv Friðleifsdóttir, formaður fé-
lagsmálanefndar, sagði að nefndin
hefði fundað mikið að undanförnu
vegna frumvarpsins um starfs-
mannaleigur og einnig vegna annarra
mála. Þannig hefði nefndin fundað á
laugardag og gert væri ráð fyrir
fundum í dag og á morgun, þriðjudag.
Óvíst væri hvenær frumvarpið yrði
afgreitt frá nefndinni til annarrar
umræðu.
Siv sagði að það hefðu borist
nokkrar athugasemdir frá aðilum
sem fengið hefðu frumvarpið um
starfsmannaleigur til umsagnar, þar
á meðal frá verkalýðsfélögum. Spurð
hvort til greina kæmi að breytingar
yrðu gerðar af hálfu stjórnarliða á
frumvarpinu sagði hún ekkert hægt
að útiloka í þeim efnum. Málið væri til
vinnslu í nefndinni og það væri ekki
komið á það stig að lagðar hefðu verið
fram mótaðar tillögur, hvorki af hálfu
stjórnarliða né stjórnarandstæðinga.
Málið væri hins vegar viðkvæmt því
því það væri hluti af samkomulagi.
Nokkrar athugasemdir
borist við frumvarpið
Frumvarp um starfsmannaleigur til skoðunar í nefnd