Morgunblaðið - 05.12.2005, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 2005 7
FRÉTTIR
www.toyota.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
30
21
4
1
1/
20
05
... en hér á Íslandi er vetur.
Það er kannski sumar í Ástralíu ...
Þess vegna fylgja vetrardekk á felgum
öllum seldum Corolla og Avensis fram til áramóta.
Toyota
Nýbýlavegi 4
KÓPAVOGUR
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
AKUREYRI
Sími: 460-4300
Toyotasalurinn
Njarðarbraut 19
REYKJANESBÆR
Sími: 421-4888
Toyotasalurinn
Fossnesi 14
SELFOSS
Sími: 480-8000
Avensis
Verð frá 2.240.000 kr.
Corolla
Verð frá 1.685.000 kr.
Jólasöfnun
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
er hafin
Þeir sem vilja leggja nefndinni lið vinsamlega hafið samband
á skrifstofutíma í síma 551 4349 eða á netfangið
maedur@simnet.is. Einnig er hægt að leggja framlög inn á
reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119.
Dagana 5. og 6. des. er tekið á móti umsóknum
vegna jólaúthlutunar.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Sólvallagötu 48.
Neskaupstaður | Umferðarstjórn var
sett á veginn um Oddskarðsgöng nú
um helgina þegar steypubílar þurftu
að fara 300 ferðir um þau. Verið var
flytja 900 rúmmetra af steypu frá
Reyðarfirði í gólfplötu nýju frysti-
geymslu Síldarvinnslunnar í Nes-
kaupstað.
Það má segja að göngin þoli varla
slíka umferð þar sem þau eru mjög
þröng og aðeins með einni akrein og
litlum útskotum þar sem erfitt er að
mæta stórum bílum. Alloft verða taf-
ir á umferð í gegn um þau þegar
stórir flutningabílar fara um og
þurfa að silast í gegn þar sem engu
má muna að þeir komist vegna
þrengsla. Göngin voru mikil sam-
göngubót þegar þau voru tekin í
notkun, en þau eru barn síns tíma og
anna ekki vel þeirri umferð sem nú
er um Oddskarð. Í þetta sinn gekk
allt vel undir öruggri stjórn björg-
unarsveitarmanna sem önnuðust
umferðarstjórnina.
Göngin
barn síns
tíma
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
ÚRKOMA á Akureyri hefur verið
umfram meðallag síðastliðna sex
mánuði og nýliðinn nóvembermán-
uður var engin undantekning hvað
það snerti, en mánuðurinn var um-
hleypingasamur á landinu,
sérstaklega framan af að því er
fram kemur í upplýsingum Veð-
urstofunnar.
Úrkoma á Akureyri er nú orðin
um 90 millimetrum meiri á fyrstu
ellefu mánuðum ársins en venju-
legt er á heilu ári. Úrkoma í
Reykjavík í nóvember var hins
vegar um 20% neðan meðallags.
Meðalhiti á landinu var ofan
meðallags í mánuðinum víðast
hvar, hálfri gráðu ofan meðallags í
Reykjavík, en nánast í meðallagi á
Akureyri. Sólskinsstundir á land-
inu voru einnig í meðallagi í nóv-
ember.
Úrkomusamt
á Akureyri
TVEIR farþegar slösuðust þegar
tvær lestir rákust á í aðgöngum tvö
við Kárahnjúkavirkjun á laug-
ardagsmorgun, að sögn Ómars R.
Valdimarssonar, talsmanns verk-
takafyrirtækisins Impregilo. Ekki
er vitað nákvæmlega hversu mikil
meiðsl þeirra eru, en þau munu þó
ekki vera alvarleg. Mennirnir voru
fyrst fluttir til Egilsstaða og var
þar ákveðið að fara með þá með
sjúkraflugi til Akureyrar til nánari
skoðunar.
Um borð í annarri lestinni voru
þrír farþegar auk lestarstjórans, en
lestarstjórinn í hinni var einn á
ferð. Hvorugur þeirra slasaðist.
Lestirnar voru á um 20 km hraða er
þær skullu saman.
Tveir slösuðust
í lestarslysi í
Kárahnjúkum
♦♦♦
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111