Morgunblaðið - 05.12.2005, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 05.12.2005, Blaðsíða 27
skein úr hverju andliti. Þau Blöndals- systkinin eins og þau voru gjarnan nefnd á Siglufirði, voru ákaflega sam- rýnd og þegar rætt var um eitt þeirra var nánast óhjákvæmilegt að eitt- hvert annað þeirra bærist í tal. Í mínu minni voru það faðir minn Lárus og systkini hans, Bryndís, Anna og Óli sem skipuðu þennan sess enda önnur systkini búsett fjarri Siglufirði. Allt þetta fólk var og er þjóðþekkt fyrir glaðsinni og geðprýði sem enn ber minningu þeirra hátt á lofti löngu eft- ir að þeirra stjörnur lýstu skærast. Allir sem áttu sér starfstöð á Siglu- firði til lengri eða skemmri tíma á síldarárunum þekkja til systkinanna og oftsinnis er maður minntur á þessi tengsl og þá alltaf á jákvæðum nótum. Óli var þeirra systkina yngstur og ég man aldrei eftir Óla öðruvísi en glöðum og reifum. Það var alltaf gam- an að hitta Óla. Hann var til í spjall, stutt sem langt eftir því sem atvik gáfu tilefni til. Í gegnum tíðina hef ég tekið þátt í pólitísku starfi og þar átt- um við Óli sameiginlegt áhugamál. Þeir bræður pabbi og Óli og þau systkini öll voru reyndar ótrúlega pólitísk og höfðu unun af því að ræða þau málefni hvort heldur sem var við samherja eða andstæðinga. Áttum við Óli oft langar samræður um mál af þessu tagi allt fram á síðustu ár og hafði hann þá alltaf mjög afdráttar- lausar skoðanir á þeim málefnum sem til umræðu voru. Mér þykir ákaflega vænt um þessi samtöl sem við Óli átt- um og ég er ekki í vafa um að þau hafa haft veruleg áhrif á mína pólitísku sýn í lífinu. Óli var skemmtilegur maður sem gerði samferðamönnum sínum lífið mun skemmtilegra en það hefði verið án hans. Það er eitthvað sem allir ættu að gera að markmiði með sínu lífi. Ég vil þakka Óla samfylgdina, uppörvunina og samræðurnar í gegn- um tíðina og veit fyrir víst að hann, pabbi og þeirra fólk á góða daga fram- undan, handan þess veruleika sem við skynjum. Takk fyrir allt og allt, Óli frændi. Þinn frændi Lárus. Þegar ég rifja upp kynni mín af og samstarf við Óla J. Blöndal kemur margt í hug, leiðir víða legið saman. Það er með mig eins og flesta Siglfirð- inga, af minni kynslóð, að ég minnist hans fyrst í Aðalbúðinni ásamt systk- inum sínum Lárusi, Önnu og Bryn- dísi, því það má með sanni segja að þá var Aðalbúðin sannanlega AÐAL- BÚÐIN, þar sem allir komu við, bæði börn og fullorðnir, þar var ekki aðeins verslun heldur einnig hálfgerð fé- lagsmiðstöð í miðjum bænum, sem þá var og stóð undir nafni sem einn af stærri kaupstöðum landsins. Þegar ég árið 1965 tók við formennsku í Fé- lagi ungra sjálfstæðismanna í Siglu- firði byrjaði samstarf okkar Óla. Hann var þá formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna sem á að halda utan um starfsemi félaganna og það gerði hann svo sannarlega, hann var um áratuga skeið foringi okkar og sá sem starfið hvíldi hvað mest á. Óli var mikill lista- og hugsjóna- maður, ég ætla að segja eina litla sögu sem lýsir hugsjónum hans vel: Í kosn- ingunum 1982 fengum við sjálfstæð- ismenn fjóra fulltrúa í bæjarstjórn af níu og gátum því nokkuð ráðið ferð- inni. Óli var bókavörður í langan tíma og naut sín mjög vel í því starfi. Bæj- arstjórnarfundirnir voru haldnir í bókasafninu og var Óli því viðstaddur þá flesta. Roalds-bragginn fór hroða- lega í taugarnar á mér, allur í nið- urníðslu og samfélaginu til skammar, því fluttum við bæjarfulltrúar sjálf- stæðisflokksins tillögu um að rífa braggann og höfðum meirihluta fyrir, þá sat í bæjarstjórn fyrir Alþýðu- flokkinn heiðursmaðurinn Anton Jó- hannsson, þegar tillagan kom fram stóð Anton upp, fór í bókavarðarher- bergið, eftir augnablik birtist Óli í dyrunum og benti mér að koma, hann lokaði, rétti upp höndina og sagði: Ert þú bara brjálaður drengur! Það er skemmst frá að segja að þarna er okkar glæsilega Síldarminjasafn í dag. Óli sat í stjórn sparisjóðsins og þar störfuðum við saman í um tuttugu ár. Ég kem á framfæri þakklæti frá Frí- múrarareglunni þar sem hann starf- aði um árabil. Sl. tíu ár, eða svo hafa þau Gréta aðallega búið á Seltjarnarnesinu í góðu skjóli Guðrúnar, Frigga og allra barnanna. Ég hef annað slagið komið við hjá Grétu og Óla þar sem við rifj- uðum m.a. upp gullaldarárin í Siglu- firði, stöðuna í dag og spurðum hvor annan: Hvað er til ráða? Siglufjörður var og hét, hann verð- ur það kannski aftur og byggist þá m.a. á afþreyingu og ferðamennsku í kringum Síldarminjasafnið. Ég þakka þessum vini mínum samfylgdina, við Ásdís sendum Grétu og fjölskyldunni bestu kveðjur. Björn Jónasson. Á morgni 20. aldarinnar settust tvö barna Lárusar sýslumanns Blöndal að í Siglufirði. Þetta vóru Sigríður Blöndal, kona séra Bjarna Þorsteins- sonar, sóknarprests, tónskálds og þjóðlagasafnara og Jósep Blöndal, símstöðvarstjóri og síðar kaupmaður í Siglufirði. Siglufjarðararmur Blön- dalsættarinnar hefur sett ánægjuleg- an og menningarlegan svip á Siglu- fjörð allar götur síðan. þ.e. á aðra öld. Mætur einstaklingur úr þessum ættboga, Óli Jósepsson Blöndal, er genginn til feðra sinna, 87 ára að aldri. Hann kom víða við siglfirzka sögu. Hann var stofnandi og fyrsti formaður Lionsklúbbs Siglufjarðar, sem var fyrsti Lionsklúbbur hér á landi utan höfuðborgarinnar. Hann var frímúrari og gegndi trúnaðar- störfum í Bræðrafélagi frímúrara og síðar í stúkunni Dröfn í Siglufirði. Hann var um áratugaskeið mikilvirk- ur og leiðandi í starfi sjálfstæðisfélag- anna í Siglufirði og fulltrúi þeirra á kjördæmis- og landsfundum Sjálf- stæðisflokksins. Hann var og vara- bæjarfulltrúi um árabil og sat þá í ýmsum nefndum bæjarstjórnar. Hann sat einnig í áratugi í stjórn Sparisjóðs Siglufjarðar, elztu enn starfandi peningastofnunar landsins. Óli J. Blöndal kom víða við í at- vinnu- og menningarsögu Siglufjarð- ar. Ævistarf hans tengdist þó fyrst og síðast bókum. Hann og bróðir hans, Lárus, sem látinn er fyrir nokkrum árum, ráku um áratugaskeið fyrir- myndar bókabúð í Siglufirði. Síðar tók Óli við starfi forstöðumanns Bókasafns Siglufjarðar. Þar skilaði hann góðu starfi, sem Siglfirðingar mátu að verðleikum. Óli J. Blöndal var góður drengur í þeirra orða fornu merkingu. Það var gott að eiga hann að vini og ráðgjafa. Ég kveð hann með hlýjum huga, söknuði og þakklæti – og árna honum fararheilla á nýjum vettvangi. Ég og fjölskylda mína sendum eftirlifandi eiginkonu hans og öðrum ástvinum innilegar samúðarkveðjur. Stefán Friðbjarnarson. Óli sagði okkur félögunum í Lions- klúbbi Siglufjarðar oft frá því þegar hann fékk hvatningu frá Magnúsi Kjaran stórkaupmanni í Reykjavík að hann ætti að hlutast til að stofna Lionsklúbb á Siglufirði. Hvers vegna? Jú það var til að safna saman einstaklingum sem ættu það sameiginlegt að vinna samfélag- inu allt sem þeir gætu því til heilla og framfara án þess að blanda í það trú eða stjórnmálum. Þetta gekk eftir, Óli safnaði saman 11 mönnum á Siglufirði sem gátu hugsað sér að vinna að slíkum málum. Lionsklúbbur Siglufjarðar var stofn- aður 16. nóvember 1954, þriðji elsti klúbbur á Íslandi og sá fyrsti utan Reykjavíkur, sem varð til þess að hægt var að stofna sérstakt Lionsum- dæmi á Íslandi, Umdæmi 109. Þetta framtak Óla var mörgum til eftir- breytni og Lionshreyfingin náði fót- festu um allt land, landi og þjóð til heilla. Ég gekk í klúbbinn 1959 og hef því starfað með Óla síðan og er því ljúft að minnast hans við fráfall hans, en hann lést 26. nóvember sl. Óli var fyrsti formaður Lions- klúbbs Siglufjarðar og gegndi svo öðrum stjórnarstörfum, var einstak- lega jákvæður og hress félagi og átti auðvelt með að laða menn til starfa. Hann fæddist á Siglufirði 24. septem- ber 1918 og bjó hér og starfaði alla sína ævi mest við bækur, fyrst bóksali og síðan bókasafnsvörður og for- stöðumaður Bókasafns Siglufjarðar. Óli og Margrét Björnsdóttir, eig- inkona hans, fluttu til Reykjavíkur um 1995, en þá voru börn þeirra flutt frá Siglufirði. En tryggð hans við Lionsklúbb Siglufjarðar sem hann átti svo mikinn þátt í að stofna var slík að hann vildi starfa áfram í honum þótt hann flytti burt frá Siglufirði. Við félagar í Lionsklúbbbi Siglu- fjarðar kveðjum Óla með söknuði og þökk fyrir ánægjulegt samstarf og sendum Margréti og börnum þeirra og fjölskyldum innilegar samúðar- kveðjur. F.h. Lionsklúbbs Siglufjarðar Sverrir Sveinsson. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 2005 27 MINNINGAR Elskulegur sonur okkar, faðir, bróðir, barnabarn og frændi, SKARPHÉÐINN RÚNAR GRÉTARSSON, er látinn. Fyrir hönd aðstandenda, Sigríður Margrét Skarphéðinsdóttir. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför elskulegs föðurs okkar, tengdaföðurs og afa, STEFÁNS ÁRNASONAR frá Sauðárkróki. Ingibjörg Stefánsdóttir, Viktor Elvar Viktorsson, Brynhildur Stefánsdóttir, Haukur Stefánsson, og barnabarn. Elsku eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og lang- afi, ELÍAS ÍVARSSON, Suðurengi 7, Selfossi, lést á Sjúkrahúsinu á Selfossi föstudaginn 2. desember. Guðrún Sveinsdóttir, börn, tengdabörn, afa- og langafabörn. Það eru ófáar stund- ir sem við höfum átt saman, afi minn. Frá fyrstu tíð hef ég verið uppalin í Njörvasundinu hjá ykkur og ég var ekki gömul þegar ég fór að vinna í blómabúðinni á Skólavörðu- stígnum. Ég held að ég hafi verið fjögurra til fimm ára þegar ég stóð uppi á stól og sagði: „Ég er sko að vinna hérna,“ með bros á vör! Ég man eftir sögunni af því þegar við fórum í útilegu með ykkur ömmu. Ég var bara sex til sjö ára og vorum við Eiríkur með ólæti í aftursætinu. Þú snarstoppaðir bílinn fyrir utan bensínstöð og raukst út. Okkur brá og sögðum: „Hvert ertu að fara?“ Og þú svaraðir: „Ég ætla að kaupa hót- el!“ Við þorðum ekki að hreyfa okkur í aftursætinu. Síðan komst þú til baka með Nóa og Siríus súkkulaði með hnetum og rúsínum. Við fengum mola og vorum voða stillt það sem eftir var ferðar. Í dag fer ég ekki í ferðalag nema með svona „hótel“ í farteskinu. Þú hefur kennt mér margt í lífinu og alltaf hef ég getað leitað til þín. Þú hlustaðir á mig og gafst mér ráð, fórst með mér að kaupa fyrsta bílinn og fyrstu íbúðina. Þú varst afi minn en varst mér sem faðir. Ég sakna visku þinnar, ráða, hláturs og ekki má gleyma fallegu bláu augunum með stríðnisglampanum sem ég sé svo oft í yngri dóttur minni. ÓLAFUR KR. HELGASON ✝ Ólafur KristjánHelgason fædd- ist á Strandseljum við Ísafjarðardjúp 5. desember 1921. Hann lést á Beni- dorm 4. september síðastliðinn og var jarðsunginn frá Langholtskirkju 19. september. Dætur mínar voru heppnar eins og ég. Þær fengu að vera oft hjá ykkur í Njörva- sundinu og kynntust þér vel, elsku afi. Það er erfitt að útskýra brottför þína sem gerðist skyndilega úti á Benidorm í fyrsta skipti sem öll fjöl- skyldan kom saman þar. Við vorum bara búin að vera í fjóra daga en á þessum dög- um vorum við búin að fara út að borða á stöðum sem ykkur voru kærir og fá uppáhalds matinn þinn. Við löbbuðum á kvöldin, og síð- asta kvöldið þitt með okkur fórum við í langan göngutúr eftir strönd- inni og sáum flottasta útsýnið yfir alla strandlengjuna. Elsku afi, vonandi líður þér vel að hafa fengið að vera með okkur öllum svona síðustu dagana, og þú varst tilbúinn; búinn að gera það sem þig langaði að gera og sjá. Takk fyrir allt, afi minn. Sigríður Herdís Ásgeirsdóttir. Hausti fylgir vetur með vályndi og snjó. Síðan lifnar vorið með söngfugl í mó. Seint kemur sumar en kemur þó – (Baldur Pálmason.) Elsku langafi, takk fyrir allar stundirnar með þér, við söknum þín. Kristur minn ég kalla á þig komdu að rúmi mínu. Gjörðu svo vel og geymdu mig, Guð, í skjóli þínu. Ísabella og Natalía. Móðir mín og besti vinur, KIRSTEN HALLGRÍMSSON lyfjafræðingur, Sléttuvegi 11, Reykjavík, lést föstudaginn 25. nóvember. Útförin hefur fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Kristján H. Kristjánsson. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, MAGNÚS MÁR SIGURJÓNSSON, Skólagerði 69, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju miðviku- daginn 7. desember kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Hjartavernd. Ágústa Steingrímsdóttir, Margret St. Magnúsdóttir, Steingrímur Magnússon, Bára Magnúsdóttir, Magnús P. Magnússon, Ágúst Magnússon, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.