Morgunblaðið - 05.12.2005, Side 31

Morgunblaðið - 05.12.2005, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 2005 31 DAGBÓK GÆÐI, ÞJÓNUSTA OG ÖRYGGI Í SÖLU Á ATVINNUHÚSI ÞÍNU VELDU EIGNAMIÐLUN eignamidlun@eignamidlun.is www.eignamidlun.is Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali Jóla kveðjur á mbl.is 1. verðlaun: Stafræn myndavél frá Kodak 2. verðlaun: DVD spilari frá Lenco 3. verðlaun: MP3 spilar frá Lenco Glæsilegir vinningar! Þeir sem senda jólakveðju geta unnið til verðlauna frá Hans Petersen Er hárið farið að grána og þynnast? Þá er Grecian 2000 hárfroðan lausnin! Nýlega voru Félagshæfnisögur Bryndís-ar Sumarliðadóttur endurútgefnar,en fyrri útgáfan kom út fyrir ári.En hvað eru félagshæfnisögur? „Þessar sögur eru samdar með það í huga að kenna einstaklingi rétta hegðun í aðstæðum sem hann á erfitt með að þola, þær voru hugsaðar fyrir fólk með fötlun á einhverfurófi en geta nýst öðrum,“ segir Sigrún Birgisdóttir, starfsmaður hjá skrifstofu Umsjónarfélags einhverfra. Hver er reynslan af þessum sögum? „Hún er góð og margir foreldrar sem nýta sér þessa aðferð. Aðferðin kemur frá konu sem heitir Carol Gray, hún er höfundur félagshæfnisagna. Hún skrifaði fyrstu bókina um félagshæfnisögur árið 1991. Hún er sérfræðingur á þessu sviði og er forstöðumaður við Gray Center for Social learning and understanding sem er í Michigan, en þar er hún einnig ráðgjafi við skóla.“ Eru sögurnar hennar Bryndísar sniðnar eftir þessum sögum Gray? „Já, svona sögur eru sniðnar að viðkomandi einstaklingi, þær eru einfaldar og yfirleitt mynd- skreyttar. Þær eru samdar á jákvæðan hátt til að styrkja einstaklinginn. Svona söguform getur líka hentað fólki með aðrar fatlanir en einhverfu og jafnvel langveikum börnum sem þurfa að kljást við lyfjameðferð og aðra langtíma- meðferð.“ Hafa foreldrar haft félagshæfnisögur Bryndís- ar að fyrirmynd eða nota þeir sögurnar hennar eins og þær koma fyrir? „Foreldrar hafa haft sögur hennar að fyr- irmynd en hver og einn lagar söguna að þeim einstaklingi sem verið er að vinna með. Aðrir sem sinna einhverfum nota sögurnar líka.“ Er einhverfa vaxandi vandamál á Íslandi? „Já, með betri greiningartækjum hefur tíðni einhverfu aukist vegna þess að nú finnast þessir einstaklingar sem áður höfðu fengið aðra grein- ingu. Það sem einkennir einhverfu er skert fé- lagsfærni, áráttur og þráhyggjur og málhömlun. Einkennin eru á mjög mismunandi stigi og mis- mikil, þess vegna er talað um einhverfuróf.“ Sögurnar nýtast stórum hópi þessara ein- staklinga. Jafnvel þótt viðkomandi geti ekki lesið má semja sögurnar og myndskreyta vel og lesa þær síðan fyrir hann aftur og aftur þar til hann lærir hverja sögu fyrir sig. Dóttir Bryndísar, sem er er með einhverfu, var t.d. ekki læs þegar hún samdi sögurnar fyrir hana. Hún gaf sög- urnar út af því að henni fannst þær skila svo miklum árangri og vildi því miðla þessari aðferð til annarra foreldra. Bókin fæst hjá Umsjón- arfélagi einhverfra og á Sjónarhóli, sem og í Skólavörubúðinni. Kennsla | Sögurnar kenna félagslega hegðun Félagshæfnisögur endurútgefnar  Sigrún Birgisdóttir fæddist í Reykjavík 1964. Hún útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands 1989 og hefur starfað við bókhald og síðustu árin á skrifstofu Um- sjónarfélags einhverfra. Hún er gift Ásgeiri Er- lendi Ásgeirssyni og eiga þau tvö börn. Matsölustaðir og reykingar MIG langar að koma á framfæri skoðun minni um matsölustaði og reykingar. Ég er ein af þeim sem voru búnir að panta sér jólahlaðborð. Daginn áður en fara átti hringdi ég til að vita hvort þetta væri ekki reyklaus staður en þá kom í ljós að það mátti reykja í salnum og varð ég því að af- panta því ég þoli ekki sígarettureyk. Finnst mér mjög slæmt að það skuli vera leyft að reykja á mat- sölustöðum, ekki síst þar sem er standandi hlaðborð. Vil vekja athygli á því að veitingastaðir leyfi ekki reyk- ingar þar sem hlaðborð er í gangi. Varð ég fyrir miklum vonbrigðum yfir að geta ekki farið en ég var búin að panta borð fyrir löngu og leggja í kostnað við að fara þetta. Ein vonsvikin. Klassísk tónlist og RÚV RÍKISSJÓNVARPIÐ sýndi 30.11. sl. frábæran þátt um norska píanóleik- arann Leif Ove Andnæs. Þessu fram- taki ber að fagna og óska eftir meiru slíku. Hinir fjölmörgu aðdáendur klassískrar tónlistar hér á landi og jafnframt sjálfvirkir áskrifendur að Ríkissjónvarpinu eru nánast sveltir þegar kemur að sjónvarpsefni, hvern- ig stendur á því? Áhugavert væri að fá birt yfirlit yf- ir hlutfall klassískrar tónlistar í formi þátta, umfjöllunar eða tónleika- hljóðritana útsent í Ríkissjónvarpinu til samanburðar við aðrar tegundir af tón- list annars vegar og annarra listgreina hins vegar. Enn fremur er nauðsynlegt að skoða hlutfall klassískrar tónlistar í dagskrá samanborið við hlutfall ein- stakra íþróttagreina, t.a.m. sunds eða fótbolta sem virðast fá mikið vægi í dag- skrá. Ofangreindur samanburður myndi gera ótvíræða grein fyrir hversu skertur hlutur klassískrar tónlistar er hjá þessum sameiginlega menningarmiðli þjóðarinnar. Aðdáandi klassískrar tónlistar og áskrifandi að Ríkissjónvarpinu. Svartir skinnhanskar í óskilum SVARTIR kvenshanskar úr skinni fundust við 17. eða 18. bekk í Hall- grímskirkju eftir konsert hjá Mót- ettukórnum sl. þriðjudagskvöld. Hanskarnir voru skildir eftir í fordyr- inu hjá starfsfólkinu þar. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Félagsvist alla má- nud. kl. 14, viðtalstími hjúkrunarfræð- ings kl. 9–11, leikfimi kl. 9 og boccia kl. 10. Vinnustofa opin alla daga frá kl. 9–16.30. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa- vinna, bútasaumur, samverustund, fótaaðgerð. Dalbraut 18–20 | Félagsstarfið er öllum opið. Fastir liðir eins og venju- lega. Kíktu við, líttu í blöðin og láttu þér líða vel. Komdu t.d. í morg- unkaffið fræga alla virka daga og og skoðaðu dagskrána. Jólaferð mánu- dagskvenna 12. des. Jólaferð hverf- isins 13. des. Nokkrir miðar til á Vín- arhljómleikana. Uppl. 588 9533. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids í dag kl. 13. Kaffitár með ívafi kl. 13.30. Línudanskennsla kl. 18. Sam- kvæmisdans framh. kl. 19 og byrj- endur kl. 20. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Ís- lenskar þjóðsögur. Vilborg Dagbjarts- dóttir skáld leiðir eldri borgara um ævintýraheima íslenskra þjóðsagna að Gullsmára 13, þriðjudaginn 6. des. kl. 20 síðdegis. Allir velkomnir. Eng- inn aðgangseyrir. Leshópur FEBK í Gullsmára. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10.05 og 11 í Kirkjuhvoli. Bókband kl. 10, gler- skurður kl. 13 í Kirkjuhvoli. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar. Kl. 10.30 sund og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug. Frá hádegi spilasalur opinn. Kl. 14.30 kór- æfing. Veitingar í hádegi og kaffitíma í Kaffi Berg. Á morgun frá kl. 10 er Vinajálp með sölu á handunnum jóla- vörum. Strætó S4 og 12 stansa við Gerðuberg. Sími 575 7720. Hraunbær 105 | Kl. 9 perlusaumur. Almenn handavinna. Kaffi, spjall, dagblöðin. Fótaaðgerð. Bænastund. Kl. 12 hádegismatur. Kl. 13.30 skraut- skrift. Kl. 15 kaffi. Kór eldri borgara í Mosfellsbæ syngur 8. des. kl 16. Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa kl. 9–16 hjá Sigrúnu, jólakortagerð, silki- og glermálun. Jóga kl. 9–11, frjáls spilamennska kl. 13–16. Böðun fyrir hádegi. Fótaaðgerðir s. 588 2320. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öllum opið. Fastir liðir eins og venju- lega. Skráning hafin á jólahlaðborð sem verður föstudaginn 9. des. kl. 17. Skráningu lýkur 5. des. Enn er hægt að panta miða á Vínarhljómleika Sin- fóníuhljómsveitar Íslands 6. janúar 2006. Frábær jólagjöf! Sími 568 3132. Kvenfélag Garðabæjar | Jólafund- urinn verður að Garðaholti þriðjudag- inn 6. des. og hefst kl. 20. Kaffi- nefndir 11–13–17–20–21. Norðurbrún 1 | Smíði kl. 9, upplestur kl. 10.30. Vinnustofa opin kl. 13– 16.30. Korpúlfar, Grafarvogi | Sundleikfimi í Grafarvogssundalaug á morgun kl. 9.30. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9–12.30, bókband kl. 9–13, hár- greiðsla kl. 9–16, morgunstund kl. 9– 10, boccia og fótaaðgerðir kl. 10, handmennt almenn kl. 13–16.30, gler- bræðsla kl. 13–17, frjáls spilamenska kl. 13. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Jólafundur Kven- félags Akureyrarkirkju kl. 18. Vímu- laus æska kl. 20. Stuðningshópur fyrir foreldra á Eyjafjarðarsvæðinu. Árbæjarkirkja | Jólafundur Kven- félags Árbæjarkirkju 5. des. kl. 20. Jólamatur, jólasaga, aðventuhugleið- ing, happdrætti. Maturinn kostar 1.500 kr. Takið með ykkur gesti. Hjallakirkja | Æskulýðsfélag fyrir 8. bekk er með fundi á mánudögum kl. 20–21.30. Laugarneskirkja | Jólafundur Kven- félags Laugarneskirkju kl. 20. Hildur Eir Bolladóttir, guðfræðingur og æskulýðsfulltrúi, flytur hugvekju. All- ar konur velkomnar. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 d6 6. g4 h6 7. h4 Rc6 8. Hg1 h5 9. gxh5 Rxh5 10. Bg5 Rf6 11. h5 Be7 12. Be2 a6 13. Be3 Hh7 14. Rxc6 bxc6 15. e5 dxe5 16. Bd3 e4 17. Rxe4 Da5+ 18. Bd2 De5 19. Hg5 Dh2 20. Rg3 Hh8 21. Df3 Rd7 22. 0-0-0 Bxg5 23. Bxg5 Re5 24. De2 f6 Staðan kom upp í 1. deild þýsku deildarkeppninnar. Martin Senff (2.469) hafði hvítt gegn Manfred Schoeneberg (2.322). 25. Dxe5! og svartur gafst upp enda verður hann mát eftir 25. …fxe5 26. Bg6#. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. 60 ÁRA afmæli. Í dag, 5. desem-ber, er sextugur Jóhannes Tryggvason, Aðallandi 2. Eiginkona hans er Margrét Kristinsdóttir. Af því tilefni taka þau á móti ættingjum og vinum föstudaginn 9. desember í Gler- salnum, Salarvegi 2, Kópavogi milli kl. 18 og 21. Gjafir vinsamlega afþakkaðar en það myndi gleðja afmælisbarnið ef unglingastarf Víkings nyti góðs af. 70 ÁRA afmæli. Í dag, 5. desem-ber, er sjötug Kolbrún Valdi- marsdóttir, Skipasundi 5, Reykjavík. Fréttir á SMS Árnaðheilla dagbók@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.