Morgunblaðið - 05.12.2005, Side 33

Morgunblaðið - 05.12.2005, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 2005 33 Stóra svið Salka Valka Su 11/12 kl. 20 Mi 28/12 kl. 20 Woyzeck Mi 7/12 kl. 20 UPPS Fö 9/12 kl. 20 Fi 29/12 kl. 21 Fö 30/12 kl. 21 Kalli á þakinu Su 11/12 kl. 14 Má 26/12 kl. 14 Su 8/1 kl. 14 Brot af því besta! Í forsal Borgarleikhússins Rithöfundar lesa úr nýjum bókum fimmtudagskvöldið 8/12 kl. 20 Guðrún Eva Mínervudóttir, Hallgrímur Helgason, Hreinn Vilhjálmsson, Ingibjörg Hjartardóttir, Ólafur Gunnarsson, Þórarinn Eldjárn Léttur jóladjass og kaffihúsastemning. Allir velkomnir Aðgangur ókeypis Nýja svið/Litla svið Lífsins tré Su 11/12 kl. 20 Síðasta sýning! Þrjár systur e. Tsjekhov Nemendaleikhúsið Þr 6/12 kl. 20 UPPS Fi 8/12 kl. 20 Lau10/12 kl. 20 Su 11/12 kl. 20 Fö 16/12 kl. 20 Lau 17/12 kl. 20 Manntafl Fö 9/12 kl. 20 Mi 28/12 kl. 20 Alveg brilljant skilnaður Fi 29/12 kl. 20 AUKASÝNING Fö 30/12 kl. 20 AUKAS. Síðustu sýningar! GJAFAKORT GEFÐU EFTIRMINNILEGA UPPLIFUN GJAFAKORT Í BORGARLEIKHÚSIÐ GILDA ENDALAUST Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is Fullkomið brúðkaup Fös. 9.des. kl. 21 Örfá sæti Lau. 10.des. kl. 21 UPPSELT Fös. 16.des. kl. 20 Örfá sæti Lau. 17.des. kl. 19 Nokkur sæti Mið. 28.des. kl. 20 Nokkur sæti Fim. 29.des. kl. 20 Laus sæti Fös. 30.des. kl. 20 Laus sæti Ævintýrið um Augastein Lau 10. des kl. 14 1. kortasýn Örfá sæti Sun 11. des kl. 14 2. kortasýn Örfá sæti Mán. 12. des kl. 10 UPPSELT Miðasalan opin virka daga frá 13-17 og allan sólarhringinn á netinu. Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn. ÖSKUBUSKA - La Cenerentola eftir ROSSINI Frumsýning sun.5. feb. kl. 20 2. sýn. fös. 10. feb. kl. 20 – 3. sýn. sun. 12. feb. kl. 20 – 4. sýn. sun. 19. feb. kl. 20 GJAFAKORT Í ÓPERUNA – jólagjöf sem gleður! Verð við allra hæfi. www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200 Sýningar hefjast kl. 20:30 Miðasala í verslunum SKÍFUNNAR og LAU. 10. DES kl. 20 FIM. 29. DES kl. 20 Læstur litur. Norður ♠Á82 ♥G1073 ♦8432 ♣D10 Vestur Austur ♠G107 ♠D965 ♥4 ♥95 ♦G95 ♦D1076 ♣G87632 ♣K95 Suður ♠K43 ♥ÁKD862 ♦ÁK ♣Á4 Suður spilar sex hjörtu og fær út spaðagosa. Hvernig er best að spila? Skásti kosturinn virðist sá að trompa út tígulinn og senda vörnina inn á þriðja spaðann til að fá íferð í laufið. Þetta er einföld úrvinnsla. Sagn- hafi aftrompar vörnina, tekur ÁK í tígli og notar innkomur blinds á hjarta og spaðaás til að stinga tvo tígla. Spilar svo þriðja spaðanum: Norður ♠– ♥10 ♦– ♣D10 Vestur Austur ♠– ♠D ♥– ♥– ♦– ♦– ♣G87 ♣K9 Suður ♠– ♥D ♦– ♣Á4 Vestur er inni í þessari stöðu og spil- ar laufi. Hér er ekki um hitting að ræða, því ef vestur ætti kónginn myndi austur hafa tekið spaðaslaginn. Sagn- hafi verður að treysta því að liturinn sé læstur – gosinn í vestur og kóngurinn í austur. Litur er sagður „læstur“ þegar hvor- ugur mótherjanna getur hreyft hann án þess að gefa slag. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is ÉG velti því stundum fyrir mér hvort íslenskt samfélag hvetji þegna sína til skapandi hugarfars eða hvort það dragi frekar úr því. Skólakerfið hvet- ur allavega ekki til þess sem skyldi og í sjónvarpinu, þar sem þorri þjóð- arinnar sækir innblástur sinn, eru ís- lenskir þættir eins ófrumlegir og hægt er. Ódýrar eftirapanir af amer- ískum raunveruleikaþáttum á borð við Idol, The Bachelor og Americas Next Top Model. Spurning hvað sé verið að kenna börnum okkar með slíkum eftiröpunum og hvort ekki sé þarft að endurskoða gildi frumleika og frumsköpunar á Íslandi. Slíkt var reyndar gert þegar síga tók á síðustu öld og póstmódernism- inn hóf innreið sína. Í sjónlistum hneyksluðust listspekúlantar yfir því að listamenn væru að endurtaka snemm-módernismann. En það var örlítill munur á nálgun yngri lista- manna og eldri módernista sem fékk spekúlantana til að endurskoða hug- myndir sínar um frumleika. Lista- verk gátu nefnilega verið sjónrænt lík en innihaldið eða nálgunin ger- ólík. Sem dæmi má nefna Neo Geo- listamenn á borð við John Armleder og Meyer Vaisman, sem gengu í smiðju viðtekinnar geometríu. En í stað þess að upphefja hana eins og áður var gert tvinnuðu þeir hana saman við dægurmenningu og hvers- dagsleika og gáfu henni nýtt gildi og nýja nálgun. Af þeim sökum voru þeir ansi frumlegir. Ívar Valgarðsson er listamaður sem tilheyrir þessari kynslóð póst- módernismans. Hann sækir í smiðju mínimalismans en gefur honum hversdagslegt yfirbragð. Notar gjarnan hráefni sem vísar til húsa- gerðar og heimilisviðhalds, þ.e. ým- iss konar byggingarefni, hörpumáln- ingu o.fl. Upp á síðkastið hefur raunveruleikasjónvarpið tekið á sig skemmtilega mynd í verkum hans og öllu frumlegri en hjá íslenskum sjón- varpstöðvum. Á sýningu í Listasafni ASÍ í hittifyrra sýndi Ívar kvikmynd af því þegar gulur litur þornar og varpaði henni á stóran vegg. Mér fannst það meinfyndið verk en líka fagurt að sjá þar sem stórir rasta- punktar gáfu aðra mynd innan mónókrómsins. Í sýningarrýminu FUGL með- höndlar listamaðurinn kvikmynda- formið með áþekkum hætti í sýningu sem hann nefnir „Fagurblátt – Ljós- fagurblátt“, sem er nettur orðaleikur út frá efni sýningarinnar. Ívar hefur málað tvo dökkbláa fleti á veggi til móts við hvorn annan og varpar síð- an kvikmynd á einn flötinn. Kvik- myndin nefnist „Sól á þili“ og er 30 mínútna upptaka af hvítum veggfleti sem sólarljós skín á. Líkt og með verk hans í ASÍ sýnist manni ekkert vera að gerast í kvikmyndinni og ég efast um að það mundi breyta sjón- rænum eiginleikum verksins ef lista- maðurinn notaði tóman skjávarpa sem varpaði birtu af lampanum á litaflötinn. Það mundi reyndar vanta rastana en að öðru leyti væri sjón- rænn þátturinn hinn sami. Hins veg- ar gerbreytir vitneskjan um innihald kvikmyndarinnar nálgun manns við listaverkið á sama tíma og það slítur það frá viðteknum mínimalisma, eins og t.d. ljósverkum eftir James Tur- rell. Efnislega gerir kvikmyndin ann- ars fátt annað en að lýsa upp bláa lit- inn sem henni er varpað á. En hann dregur þó í sig megnið af ljósinu, enda er litur í eðli sínu ekkert annað en ljós. Bara spurning hversu mikið ljósmagn hann dregur í sig eða varp- ar frá sér. Þetta samspil ljóss og litar tengist síðan tíðarfarinu. Máski er þetta tilraun hjá listamanninum til að lýsa upp skammdegið. Og ef það er tilgangurinn þá tekst honum það með tærleika, húmor og raunveru- legu raunveruleikasjónvarpi. Raunverulegt raun- veruleikasjónvarp MYNDLIST Sýningarrýmið FUGL Opið á verslunartíma. Sýningu lýkur 2. janúar. Ívar Valgarðsson Morgunblaðið/Ásdís Innsetning Ívars Valgarðssonar tengist tíðarfarinu. Jón B.K. Ransu 48. Skáldaspírukvöldið verður haldið í Iðu, þriðjud. 6. des, á jarðhæð, í bókahorninu með gula hægindastólnum. Nú lesa þau Birgitta Jónsdóttir og Kristian Guttesen úr nýútkomnum bókum sínum. Birgitta les úr skáldsög- unni Dagbók Kameljónsins og Kristian úr nýútkominni ljóða- bók, Litbrigðamyglu. Birgitta Jónsdóttir leikur einnig á hljóm- borð. Gestir mega koma með hress- ingu úr kaffihúsinu á fyrstu hæð. Skipuleggjandi kvöldsins er sem fyrr Benedikt S. Lafleur. Birgitta og Kristian á Skáldaspírukvöldi Kristian Guttesen Birgitta Jónsdóttir HJÁ Skjaldborg er komin út bókin Pöllusögur – söguleg skáld- saga fyrir börn, eftir Birgittu H. Halldórsdóttur. Myndir gerði Guð- ráður B. Jóhanns- son. Birgitta er fyrir löngu orðin landskunn fyrir skáldsögur sínar fyrir fullorðna en hér sýnir hún á sér nýja hlið. Í bókinni segir frá Pöllu, tíu ára stúlku, sem er fædd árið 1889 og á heima hjá frændfólki sínu á Vestfjörðum. Fjöl- skylda hennar fluttist vestur til Kan- ada eins og margir Íslendingar á þessum tíma en Palla litla vildi ekki fara og varð eftir. Þetta er fjörleg saga, skemmtilega skrifuð og lýsir á lipran og spennandi hátt lífi íslenskr- ar þjóðar fyrir rúmri öld. Margir skemmtilegir atburðir verða í lífi Pöllu en hún fær einnig að kynnast alvöru- hliðum lífsins. Þetta er bók sem á fullt erindi til ungra lesenda og höf- undi hefur tekist listavel að búa til heildstæða og skemmtilega sögu úr minningabrotum sem amma hennar sagði henni þegar hún var barn. Bókin er 102 bls. Nýjar bækur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.