Morgunblaðið - 05.12.2005, Síða 34
34 MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 5.20 kl. 5.20 og 10.15 B.i. 12
MBL
TOPP5.IS
kl. 8 og 10.20 B.i. 14
Þetta var hið fullkomna frí
þangað til þau fundu
fjársjóðinn!
BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
Sýnd kl. 5.45 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
ÞAÐ SEM KOM FYRIR EMILY ROSE
ER ÓHUGNANLEGRA EN NOKKUÐ
SEM ÞÚ GETUR ÍMYNDAÐ ÞÉR
FÓR BEINT Á TOPPINN Í
BANDARÍKJUNUM!
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 8 B.i. 12 ára
Spennutryllir af bestu gerð með
Edward Burns og Ben Kingsley.
-M.M.J. Kvikmyndir.com
-H.J. Mbl.
-L.I.B.Topp5.is
S.K. DV
Topp5.is
S.V. Mbl.
S.K. DV
Topp5.is
S.V. Mbl.
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40 B.i. 16 ára
Miðasala opnar kl. 15.30
Sími 564 0000
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16
fór beint á toppinn í bandaríkjunum
Alls ekki fyrir viðkvæma
Áætlunin er margbrotnari, útfærslan er
flóknari og leikurinn skelfilegri en
nokkru sinni fyrr
kl. 5.50, 8 og 10.10
fór beint á toppinn í bandaríkjunum
Alls ekki fyrir viðkvæma
Áætlunin er margbrotnari, útfærslan er
flóknari og leikurinn skelfilegri en nokkru
sinni fyrr
hversu langt myndir þú
ganga til að halda lífi
hversu langt myndir þú
ganga til að halda lífi
BLÁSIÐ var til heljarinnar
rokkhátíðar í félagsmiðstöð-
inni Frostaskjóli síðastliðið
föstudagskvöld. Var þetta í
fimmta sinn sem hátíðin
Frostrokk var haldin. Fram
komu 11 hljómsveitir skipaðar
liðsmönnum á aldrinum 13 til
17 ára. Sveitirnar nefnast
Bertel, Savage Solution, Hello
Norbert, Soundspell, Tímasó-
un, Folar, Nóbel, A to Z, The
Oak Society, Eclipse og Old
School.
Viðstaddir jafnaldrar þeirra
og félagar virtust vel kunna
að meta tónlistina sem leikin
var fyrir þá í Frostaskjólinu á
föstudagskvöldið.
Frostrokk í Frostaskjóli
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Elísabet Ögmundsdóttir, Sjöfn Steinssen og Óttar.
Ester Petra Gunnarsdóttir, Tara Brynjarsdóttir, Petra
Sif Jóhannsdóttir og Ólafur Freyr Gíslason mættu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjöldi hljómsveita sá gestum fyrir góðri skemmtun á Frostrokki.
FATAHÖNNUÐURINN Ásta Guðmundsdóttir opnaði nýja verslun á vinnu-
stofu sinni á Laugavegi 25 síðastliðinn laugardag. Þetta er fyrsta verslun
Ástu en verk hennar hafa þó verið seld áður í Bandaríkjunum, Japan, Skand-
inavíu og víðar í Evrópu auk þess að fást í Kirsuberjatrénu og Hótel Nordica
hér á landi.
Fjöldi manns lagði leið sína í verslunina um helgina þar sem var meðal
annars á boðstólum það nýjasta úr smiðju Ástu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Valgerður Sverrisdóttir og hönnuðurinn Ásta Guðmundsdóttir.
Ný verslun við Laugaveg
Myndasöguhöfundarnir Hug-
leikur Dagsson og Lóa Hjálmtýs-
dóttir, Hulli og Lóa, opnuðu um
helgina sýningu á verkum sínum í
Gallerýi Humri eða frægð við
Laugaveg.
Sýningin ber yfirskriftina Jóla-
sýning og er það vel við hæfi þar
sem jólin eru á næsta leiti.
Gestir voru allir í jólaskapi enda
ekki annað hægt á Jólasýningunni
á aðventunni.
Jólasýning
á aðventunni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gestir skoðuðu Jólasýninguna af miklum áhuga.
HLJÓMSVEITIN Írafár og Ís-
landsbanki tóku höndum saman í
nóvember og lagði sveitin upp í
tónleikaferðalag um landið með
það að markmiði að safna pen-
ingum fyrir Einstök börn.
Alls voru haldnir 11 tónleikar
víðsvegar um landið og rann all-
ur ágóði óskiptur til hins verðuga
málefnis. Síðustu tónleikar ferð-
arinnar voru haldnir á laug-
ardagskvöldið í Austurbæ en
voru það jafnframt útgáfu-
tónleikar Írafárs sem gaf á dög-
unum út plötu samnefnda sveit-
inni.
Á tónleikunum var svo allur
ágóði tónleikaferðarinnar afhent-
ur fulltrúum Einstakra barna, en
alls söfnuðust 2,4 milljónir króna.
Arnar Þór Pálsson, formaður
Einstakra barna, sagði við af-
hendinguna að þetta framlag
skipti miklu fyrir Einstök börn og
þær 125 fjölskyldur sem eru að-
ilar að félaginu. „Þetta gerir okk-
ur kleift að halda áfram því góða
starfi sem fer fram í félaginu og
styðja við bakið á fjölskyldum“.
Það var Pálín Dögg Helgadótt-
ir, frá Menningarsjóði Íslands-
banka, sem afhenti ávísunina
ásamt Írafári og nefndi hún að
bankinn hefði glaður komið að
þessum málstað og vonaðist til að
féð sem safnaðist nýttist félaginu
og fjölskyldunum.
Tónlist | Tónleikaferð Írafárs og Íslandsbanka
2,4 milljónir söfnuðust
Liðsmenn Írafárs og fulltrúi Íslandsbanka afhenda formanni Einstakra
barna söfnunarféð í Austurbæ á laugardag.