Morgunblaðið - 05.12.2005, Page 36
36 MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
„Meistarastykki!“
-F.G.G., Fréttablaðið
„Tilvalin
fjölskylduskemmtun
sem auðgar
andann!“
-S.P., Rás 1
„Sjón er sögu ríkari!“
-H.J., Mbl
eeeee
Þar sem er vilji,
eru vopn. eeee
S.V. MBL
Þar sem er vilji, eru vopn.
eeee
S.V. MBL
eee
H.J. Mbl.
eeee
V.J.V. topp5.is
Þau eru góðu
vondu gæjarnir.
Sýnd bæði með
íslensku og ensku tali.
Þegar maður er þetta lítill verður maður að hugsa
stórt.
Harry Potter og Eldbikarinn kl. 6 - 8 og 10 B.i. 10 ára
Green Street Hooligans kl. 5.45 - 8 og 10.15
Lord of War kl. 5.30 - 8 og 10.20 B.i. 16 ára
March of the Penguins kl. 6 og 8
Litli Kjúllinn kl. 6 Íslenskt tal
Tim Burton´s Corpse Bride kl. 10 Gæti vakið ótta ungra barna!
eee
H.J. Mbl.
eeee
V.J.V. Topp5.is
Er frábær staður til að uppgötva sjálfan sig upp á nýtt.
H örkulegasta kvikmynd ársins
er komin. Kýldu á þessa.
Stranglega bönnuð innan 16 ára.
Stattu á þínu og láttu það vaða.
EINS og margar jólasögur fjallar
Noel um fólk sem er á einhvern hátt
einangrað, einmana eða sorgmætt og
kvíðir því yfirvofandi hátíð fjölskyldu-
lífs, ljóss og friðar. En þar sem um
jólasögu er að ræða kemur eitthvað
óvænt fyrir á aðfangadag, lítið krafta-
verk eða merkingarþrungin lífslexía
sem færir með sér óvænta hamingju
þegar jóladagur rennur upp. Í Noel
er slík saga sögð í gegnum nokkra að-
skilda persónuhópa og hefur leik-
stjórinn Chazz Palminteri náð sér í
þó nokkra stórfiska í helstu hlutverk
þó svo að um frumraun hans í kvik-
myndaleikstjórn sé að ræða. Susan
Sarandon leikur eina af helstu per-
sónum myndarinnar, Rose, konu á
miðjum aldri sem er bókaútgefandi í
New York og sér fram á að verja jól-
unum ein með móður sinni sem er
með Alzheimer á háu stigi. Robin
Williams leikur dularfullan aðstand-
anda sjúklings í næsta herbergi við
móður Rose – en þessi persóna reyn-
ist vera nokkurs konar engill sem
færir Rose boð frá heilabilaðri móð-
urinni. Meðal annarra þekktra leik-
ara eru Penelope Cruz sem leikur
hina ástföngnu Ninu sem er við það
að yfirgefa unnusta sinn Mike vegna
þess hversu afbrýðisamur hann er.
Úr því vandamáli leysist á fremur
langsóttan hátt er Mike hittir roskinn
mann, Artie að nafni (Alan Arkin),
sem heldur því fram að Mike sé látin
eiginkona hans endurborin. Þetta eru
einungis tvö dæmi um þær þvinguðu
þroskasögur sem Noel samanstendur
af. Þær eru í besta falli forvitnilegar
en fara ýmist yfir mörk hins fárán-
lega eða ofurvæmna eftir því sem
kvikmyndinni vindur fram. Susan
Sarandon er tvímælalaust sá leikari
myndarinnar sem nær að halda henni
réttu megin við hið vemmilega og af-
káralega, meðan aðrir leikarar berj-
ast við sín hlutverk með misjöfnum
árangri. Ég mæli frekar með að fólk
skelli einhverri gamalli klassík eða
Prúðuleikaraútgáfunni af Jólaæv-
intýri Dickens í tækið ef það er að
leita sér að góðri jólamynd fyrir há-
tíðarnar.
Langsótt krafta-
verk á jólum
KVIKMYNDIR
Leikstjórn: Chazz Palminteri. Aðal-
hlutverk: Susan Sarandon, Penelope
Cruz, Paul Walker, Alan Arkin og Robin
Williams. Bandaríkin, 96 mín.
Sambíóin Kringlunni
„Susan Sarandon (t.h.) er tvímælalaust sá leikari myndarinnar sem nær að
halda henni réttum megin við hið vemmilega og afkáralega, meðan aðrir
leikarar berjast við sín hlutverk með misjöfnum árangri,“ segir meðal ann-
ars í umsögn Heiðu Jóhannsdóttur um jólamyndina Noel.
Heiða Jóhannsdóttir
Breski sjónvarpskokkurinn Jam-ie Oliver, sem nefndur er kokk-
ur án klæða í sjónvarpsþáttum sín-
um, ráðleggur karlmönnum að
standa ekki við pönnuna án klæða.
Oliver segir í viðtali við tímaritið
Q, að hann hafi eitt sinn ætlað að
matreiða nakinn fyrir Jools, eig-
inkonu sína. Hann hugsaði hins veg-
ar ekki út í að þegar sjóðheit olían
snarkaði á pönn-
unni slettust
örsmáir dropar í
allar áttir, þar á
meðal á við-
kvæma og óvarða
líkamsparta.
„Það endaði
með því að ég
brenndi mig tölu-
vert. Ég varð að nota poka af frosn-
um baunum til að kæla mig niður.
Þetta er í eina skiptið sem ég hef
eldað nakinn og það er ekki góð hug-
mynd,“ sagði Oliver.
Fólk folk@mbl.is
HEIMILDAMYNDIN Mánar í
Höllinni var frumsýnd í Selfossbíói
um helgina. Í myndinni segir frá æv-
intýrum hljómsveitarinnar Mána frá
Selfossi þegar þeir hituðu upp fyrir
Deep Purple í Laugardalshöllinni í
fyrrasumar. Gunnar Sigurgeirsson
ljósmyndari fylgdi hljómsveitinni
eftir í 72 daga á æfingatímabilinu og
á tónleikunum sjálfum en þetta er
fyrsta myndin sem Gunnar fram-
leiðir undir merkjum fyrirtækis síns,
Filmverk.
Áætlað er að gefa myndina út á
mynddiski fyrir jólin.
Kvikmyndir | Heimildamynd um Mána frumsýnd
Björn Þórarinsson, hljómborðsleikari Mána, ásamt
konu sinni, Sigríði Birnu Guðjónsdóttur, og dóttur
þeirra, Dagnýju Höllu.
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Ómar Ragnarsson og Labbi í Mánum ræða málin.
Kátt í Höllinni
FRANSKA kvikmyndin Cache eftir
austurríska leikstjórann Michael
Haneke Saturday var valin besta
kvikmyndin þegar Evrópsku kvik-
myndaverðlaunin voru veitt í Berlín
um helgina. Franski leikarinn Dani-
el Auteuil, sem leikur í myndinni,
var valinn besti karlleikarinn. Leik-
arinn Sean Connery fékk sérstaka
viðurkenningu á verðlaunahátíðinni
fyrir ævistarf sitt.
Cache fjallar um þann tíma þegar
Alsír var nýlenda Frakka. Myndin
var m.a. verðlaunuð fyrir leikstjórn
á kvikmyndahátíðinni í Cannes.
Þýska leikkonan Julia Jentsch var
valin besta leikkonan fyrir myndina
Sophie Scholl - The Last Days.
Sean Connery, sem orðinn er 75
ára, fékk verðlaun fyrir ævistarf sitt.
Hann sagði að verðlaunin væru í sín-
um huga afar þýðingarmikil því
hann væri evrópskur föðurlands-
vinur. Sagðist hann vera stoltur af
Evrópu fyrir allar þær góðu kvik-
myndir sem þar hefðu verið gerðar.
Evrópsku kvikmyndaverðlaunin veitt
Reuters
Sean Connery var verðlaunaður fyrir æviframlag sitt til kvikmynda.
FYRSTI DAGUR desembermán-
aðar er alþjóðlegur baráttudagur
gegn alnæmi í heiminum. Fjöldi
samtaka og einstaklinga víða um
heim notar daginn til að vekja máls
á útbreiðslu alnæmis og hugs-
anlegum forvörnum gegn því í
heiminum.
Snyrtivörufyrirtækið MAC kom
fyrir 11 árum á fót Alnæmissjóði og
rennur meðal annars allur ágóði af
sölu varalita fyrirtækisins óskiptur
í hann. MAC VIVA GLAM varalit-
irnir voru seldir í versluninni
Debenhams í Smáralind síðastlið-
inn laugardag, auk þess sem fjöldi
þjóðþekktra einstaklinga tók við
frjálsum framlögum í sjóðinn.
Fjöldi fólks tók sér hlé frá jóla-
versluninni og styrkti verðugt mál-
efni.
Varalitur
gegn
alnæmi
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Birna Þórðardóttir, formaður Alnæmissamtakanna, seldi varaliti.