Morgunblaðið - 18.12.2005, Blaðsíða 38
38 | 18.12.2005
Ég á síma sem er þeim kostum búinnað hægt er að taka á honum ljós-myndir og hreyfimyndir, taka upp
hljóð og spila mp3-skrár, senda margmiðl-
unarskeyti, lesa gögn þráðlaust í og úr tölvu,
samstilla dagbók og heimilisfangaskrá,
skrifa niður minnipunkta, spila leiki, lesa
WAP-síður, senda SMS-skeyti og lesa vefsíð-
ur, svo fátt eitt sé talið, en hann er reyndar
orðinn gamall og því ekki mjög fullkominn. Já, og
meðan ég man; það er líka hægt að hringja úr honum.
Innflytjendur á hátæknibúnaði hafa iðulega brennt sig
á því að vanmeta tækjaáhuga viðskiptavina sinna og
dæmi eru um að fartölvuinnflytjendur hafi farið
flatt á því að flytja inn ódýrari gerð af tölvu og
einfaldari frekar en þá sem er með allan þann
búnað sem hægt er að troða í slíkt apparat – regl-
an hefur nefnilega verið sú að dýrustu vélarnar
seljast jafnan best, en í þeim er einmitt besti og öfl-
ugasti búnaðurinn. Eins hefur því verið farið með far-
síma – eftir því sem þeir eru betur búnir, meira í þeim
af alls kyns aukahlutum og mis-sniðugum viðbótum
seljast þeir betur. Svo hefur það í það minnsta ver-
ið hingað til, en það eru teikn á lofti um það að
margir séu eiginlega búnir að fá nóg af
flóknum farsímum – þeim fjölgar
sem vilja eiginlega bara fá sér far-
síma til að hringja.
Þarfaþing eða tískuvarningur?
| Þegar fyrstu farsímarnir komu
á markað fyrir rúmum tveimur
áratugum var aðalkosturinn við þá
að hægt var að nota þá til að hringja
nánast hvar sem maður var staddur.
Það er vitanlega enn helsti kosturinn
við farsíma en með tímanum hafa far-
símar breyst úr því að vera þarfaþing í
að vera tískuvarningur og veigamikið
stöðutákn fyrir yngra fólk (og eldra) sem
skýrir að einhverju leyti hve framleiðend-
ur þeirra hafa lagt mikla áherslu á nýjustu
tækni og vísindi. Aðrir markhópar hafa
aftur á móti eiginlega setið á hakanum, til
að mynda eldra fólk, en þeir eru líka fjöl-
margir meðal yngra fólks sem engan áhuga
hafa á flóknum hátæknisímum – þeir vilja bara
síma til að hringja og senda SMS-skeyti.
Hagur farsímaframleiðenda af því að selja sem tæknivæddasta síma er marg-
víslegur, ekki síst sá að dragast ekki afturúr – að vera með flottasta símann, en þeir
taka líka mið af þörfum þeirra sem selja símaþjónustuna sjálfa og græða hlutfallslega
mun meira á gagnaflutningum og ýmsum viðbótum en símaþjónustunni sjálfri. Í
seinni tíð hafa framleiðendur og símafyrirtæki þó lagt við hlustir er fólk hefur kvartað
yfir flóknum símum. Nokkrir hafa þannig sett á markað einfaldari farsíma, enda eru
eiginlega flestir sem langar í farsíma þegar búnir að fá sér slíkt apparat og þó það bæt-
ist við nýir viðskiptavinir eftir því sem börn komast á farsímaaldur, þá er býsna stór
hluti Evrópubúa símalaus, aðallega eldra fólk.
Sími fyrir símtöl | Símafyrirtækið Vodafone, Og Vodafone hér á landi, kynnti fyrir
stuttu svonefnda Simply-síma sem franska fyrirtækið Sagem framleiðir fyrir Voda-
fone, en þeir eru sniðnir fyrir þá sem kjósa einfaldari síma, síma sem eru eiginlega
bara til að tala í og senda SMS-skeyti.
Stjórnendur Vodafone lögðust í miklar rannsóknir til að átta sig á hvernig best
væri að ná til þessa hóps viðskiptavina og þannig leitaði fyrirtækið til fimm þúsund
Evrópubúa á aldrinum frá 35 til 55 ára. Stærstur hluti þeirra óskaði sér einfaldari
síma og sem dæmi má nefna að þriðjungur hafði ekki hugmynd um hvernig lesa ætti
SMS-skeyti, hvað þá hvernig ætti að senda slíkt.
Annað sem ýmsir hafa átt erfitt með að sætta sig við er hve farsímar hafa minnkað
og þá um leið lyklaborð þeirra og skjáir. Simply-símarnir
eru aftur á móti stærri en gengur og gerist og lyklaborðið
því stærra líka. Símanum er líka stjórnað að mestu með
hnöppum á tólinu sjálfu, til dæmis þarf ekki að fara í sér-
staka valmynd til að lækka í símanum eða læra takkarunu – á símanum er einfaldlega
hnappur til að hækka og lækka í hringingunni. Á símanum er líka hnappur til að læsa
lyklaborðinu, þegar rafhlaða hans er við það að tæmast blikka á skjánum boð um að
hlaða þurfi símann, ljós blikkar á símanum þegar SMS-skeyti hefur borist og honum
fylgir kví til að geyma hann í og hlaða líkt og með þráðlausan heimilissíma.
Þótt síminn sé einfaldur og aðallega fyrir símtöl er líka hægt að láta hann hringja á
ákveðnum tíma, til áminningar eða sem vekjara og hægt er að vista í honum síma-
númer. Annað er eiginlega ekki í boði stórvægilegt en sumt smálegt eins og ýtarlegur
hjálpartexti og hægt er að láta eigin númer alltaf sjást á skjánum.
Fleiri einfaldir | Simply-símarnir eru ekki einu einföldu símarnir sem fáanlegir eru í
dag, því helstu farsímaframleiðendur, Nokia og Sony Ericsson, hafa einnig sett á
markað einfaldari farsíma, þó fyrirtækin hafi ekki gengið eins langt í þátt átt og Voda-
fone / Sagem. Sony Ericsson kynnti í haust nokkrar gerðir af farsímum sem eru ekki
með myndavél, MP3-spilara eða tölvupósti. Skjárinn er álíka og á venjulegum farsím-
um og í honum sitthvað fleira en það sem þarf fyrir símtöl, til að mynda eru í þeim
leikir og dagskinna og í einum símanna er innbyggt útvarp.
Nokia 1101 er mjög einfaldur sími frá Nokia, ekki með MP3-spilara, myndavél
eða útvarpi. Í honum er þó reiknivél, vekjaraklukka, tveir leikir, skeiðklukka og inn-
byggt vasaljós og hann styður WAP-gagnaflutninga. | arnim@mbl.is
GRÆJUR | ÁRNI MATTHÍASSON
SÆLIR ERU EINFALDIR SÍMAR
Fjölmargt ungt fólk hefur ekki áhuga á flóknum hátæknisímum og vill bara síma til að hringja og senda SMS-skeyti
Teikn eru á lofti um það
að margir séu búnir að fá
nóg af flóknum farsímum.
L
jó
sm
yn
d:
R
A
X