Morgunblaðið - 18.12.2005, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 18.12.2005, Blaðsíða 46
46 | 18.12.2005 SMÁMUNIR … Býr lítil Imelda Marc- os í þér? Áttu skó í hundraðatali en engar hallir til að geyma þá í? Lendirðu gjarnan í glímu við skópör sem þvælast hver um önn- ur þver í fataskápnum, á forstofugólfinu, undir rúmi og bara hvar sem er? Þá gætu Clear Box öskjurnar verið lausnin. Þær eru í mismunandi stærð- um sem henta undir skófatnaðinn, hattana og annað sem þarf geymslu við. Gegn- sætt plastið tryggir að ekki þarf að kafa ofan í kassana til að sjá hvaða eftirlætisskópar þeir geyma og boxin gera það að verkum að hægt er að stafla dýrgripunum án þess að þeir fari í hrúgu eða rispi hvern annan. Öskjurnar er hægt að panta á vefsíðunni www.theclearbox.com en þar er m.a.að finna íslenskan birgi sem sendir vöruna heim að dyrum innan þriggja til fjögurra daga. Pakki með 10 skóboxum kostar 3.950 krónur og sama verð er á fimm stígvélaboxum en ýmsar útfærslur eru á pökkunum. Boxin koma samanbrotin en ku vera ein- föld að setja saman. Rúsínan í pylsuendanum er að þau eru framleidd úr umhverfisvænu efni sem skaðar ekki náttúruna. L jó sm yn d: S ve rr ir Skipulag fyrir skófíkla Innblásturinn fyrir nýja herrailminn frá Gant, Adventure, er sóttur á haf út. Hugmyndin er að hrífa notandann frá hávaða, þrengslum og malbiki stórborgarinnar, ef ekki í eigin per- sónu þá í huga sér hvenær sem er. Og hvert skal þá haldið? Auðvitað út á sjó í sjávarúðann, salta loftið og frískan vind í seglum. Ilmberinn getur nánast fundið fyrir mildu viðardekk- inu undir fótum sér og endalausum blámanum yfir höfði sér. Við þetta blandast angan af greipávexti og koriander og allt á þetta að fram- kalla tilfinningu af frelsi, gleði og ævintýri. L jó sm yn d: G ol li Þar sem hafið mætir himninum Nú er kominn sá tími ársins þegar allir eiga aðvera rosalega jákvæðir og ástríkir og hlakka tilallan sólarhringinn. „Éééég hlakka svo til,“ gaular alls staðar og misfærir jólasveinar dúkka upp með minnsta fyrirvara. Grýla og Leppalúði líta aldrei eins út milli daga þar sem þau hræða börn landsins og fólk jarmar yfir því hvað sé erfitt að finna jólagjafir og að það sé bara búið að baka svo og svo margar sortir af jólakökum og hafi áhyggjur af því að hafa ekki pantað nógu snemma jólahlaðborð. Það er sungið um hvernig allt breytist við það eitt að jólin komi og fólk verður hreinlega ástfangið bara út af jólunum. Búðir fyllast af hljómplötum og bókum. Í ár er það smart að gefa út hljómplötu út á það eitt að geta sungið lög eftir aðra. Sjálfsagt er það „ædol“-væðingin sem veldur þessu, nú þykir orðið stórmerkilegt að fólk haldi lagi. Annar hver rithöfundur er farinn að skrifa glæpasögur og menn móðga hver annan með ævisögum. Allt eins og það á að vera fyrir jólin. Ég er ekki að reyna að eyði- leggja jólastemninguna fyrir les- endum en allt frá því ég komst á unglingsaldur hætti ég að hlakka til jólanna. Ég veit bara að þau koma, enda er maður minntur á það frá miðjum nóvember að þau séu að koma. Jólin eru eins og rússíbanaferð sem er alltof stutt. Vagninn er rosalega lengi að silast upp fyrstu brekkuna og brunar svo niður eina litla lykkju. Jólin eru hátíð barna og kvenna. Börn- in hlakka fyrst og fremst til pakkanna. Konur hlakka til þess að skreyta, baka, kaupa jólagjafir, jólatré … í það minnsta þær sem ég þekki. Þær hafa gaman af því að ráfa búð úr búð og kaupa og kaupa. Ég þekki fáa karl- menn sem hafa gaman af því. En það er markaðsaflanna að sannfæra alla um að þeir hlakki í raun og veru til jólanna, það sé hreinlega eitthvað að manni að hlakka ekki til jólanna! Ég viðurkenni að ég fer að hlakka til jólanna en ekki fyrr en í kringum 22. desember. Þá hlakka ég til þess að komast í jólafrí, borða jólamat og að sjá mína nánustu taka upp jólagjafirnar sínar. Þar er minni tilhlökkun lokið. Ég kemst alveg í hátíðarskap þótt úti „séu“ snjór og krap, eins og Helga Möller orðaði það. Það er kærustu minni að þakka að ég kemst í eitthvert jólaskap yfirleitt. Hún kreistir það út úr mér, jólabarnið að tarna. Það er allt breytt vegna þín, þú komst með jólin til mín, eins og Bó Hall myndi orða það. „Finnst þér þetta ekki sætt jólaskraut,“ spyr hún. Jújú, voða sætt jólaskraut. „Finnst þér aðventukransinn ekki fallegur?“ Jú, allra kransa fegurstur. Síðan misþyrmir hún mér með leið- inlegum jólalögum, hlustar meira að segja á þau í bíln- um á leiðinni í vinnuna! „Já ég vild’ að alla daga væru jóóóól,“ syngur Eiríkur Hauksson. Ert’ ekki að grínast Eiríkur? Þá væru allir landsmenn ýmist í skuldafangelsi eða dauðir úr offitu. Allt er nú gott í hófi, Eiríkur! Það vill oft loða við pistla eins og þennan að höfund- arnir hafi allt á hornum sér og þyki allt ómögulegt. Ég er nú vonandi ekki svo mikill Skröggur. Mér finnst jólin frábær þegar þau loksins koma, enda mikið matargat og söngelskur. Mér finnst jólastemningin mest þegar maður er nýkominn úr baði, finnur lyktina af rauðkáli og heyr- ir kórsöng í útvarpinu. Ekki verra að snjói stórum flygs- um. Jólin eiga ekki að vera eitthvert stress-rugl þar sem fólk hleypur móðursjúkt um Kringluna seint á Þorláks- messukvöld. Rólegan æsing, þetta eru nú bara jólin. Gleðileg jól! | helgisnaer@mbl.is Ég hlakka (ekki) svo til Pistill Helgi Snær Jólin eru eins og rússíbanaferð sem er alltof stutt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.