Morgunblaðið - 18.12.2005, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 18.12.2005, Blaðsíða 32
KRABBINN Krabbinn tengist fjórða húsinu; heimili, fjöl- skyldu og bernsku í sólarkortinu, sem hafa má í huga við gjafainnkaupin. Inniskór, myndaalbúm, matreiðslubók eða hvaðeina sem hann getur notið á heimili sínu eða bætir lífið innan fjögurra veggja slær ábyggilega í gegn. En það er ekki bara heimilið sem krabb- inn einbeitir sér að, ættfræðiforrit gæti verið eitthvað fyrir hann. Krabbinn er vatnsmerki og því tilfinningavera, gjafir sem höfða til við- kvæmni hans eru enn eitt, eitthvað heimatilbú- ið sem táknar samband þitt og hans snertir hann djúpt. Matur og heimili tengjast órjúf- anlegum böndum, svo allt sem tengist matbún- ingi, til dæmis námskeið eða gjafakarfa, er vel þegið. HUGMYNDIR Konfekt, bækur, inniskór (kona), gjafabréf í byggingavöruverslun, íþróttagalli, gjafakarfa með mat, dúkur (kona), myndaalbúm, eldhús- áhöld eða græjur (kona), dagbók, matreiðslu- bók, grill, matreiðslunámskeið, ættfræðiforrit, kerti (kona), gjafabréf í búsáhaldaverslun, handklæði (kona), hvíld á heilsuhæli. Djúpur hiti í leirbaði slakar á vöðvum og linar verki í stoðkerfi. Leirbað kostar 3.000 kr. hjá Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, einnig er hægt að panta sérstaka heilsudaga. New Wave-kaffistell, frá Villeroy & Boch. Kaffibolli og undirskál 1.980 kr. Hliðardiskur 1.590 kr. Teskeið 990 kr. og 1.200 kr. Verslunin Villeroy & Boch í Kringlunni. Í Ostabúðinni við Skólavörðustíg er hægt að fá körfur með ýmsum íslenskum og erlendum ostum, sérlagaða rjómaosta sem eru hrærðir í Ostabúðinni, sultur, kex eða baguette ( heimalagað brauð). Þær eru á verðbilinu 3.000 kr. og upp úr. Kerti sem skapar réttu stemninguna fyrir krabbann (og sporðdrekann). Blómálfurinn, Vesturgötu. 1.150 kr. Hlýjaðu krabbanum á fótunum (og um hjartað). Mokkainniskór, 995 kr. Steinar Waage, Kringlunni og Smáralind. Súkkulaði, það besta, gæti líka verið upp- lögð gjöf. 2.490 kr. Penninn. On food and cooking sviptir hulunni af leyndardómum matargerðar, Kokka, 3.950 kr. Krabbinn hefur dálæti á því sem tengist heimilinu og matargerð. Ætigarðurinn nefnist handbók grasnytjungsins, 3.490 kr. Penninn. VIÐKVÆMA, LEYNDARDÓMSFULLA OG TILFINNINGARÍKA Vatnsmerkin eru fjórði og síðasti flokkurinn í umfjöllun Tímaritsins um stjörnumerkin og gjafahugmyndir. Minnt er á að hafa ber í huga að hver og einn er yfirleitt samsettur úr nokkrum stjörnumerkjum. Til þess að gaumgæfa það nánar þarf stjörnukort og fæðingartíma þiggjandans. GJAFAHANDBÓK DÝRAHRINGSINS Fyrir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.