Morgunblaðið - 18.12.2005, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.12.2005, Blaðsíða 6
6 | 18.12.2005 F luga hefur heyrt svo mikið af barokki og Bach í desember að hún óttast að bera ekki barr sitt yfir hátíðina. Vissu- lega jólaleg tónlist á sinn hátt en öllu má nú ofgera. Svo finnst henni hún líka vera lögð í einelti af stórsöngvaranum Garðari Thór Cortes en rödd hans fylgir henni hvert fótmál; hann er á öllum útvarpsstöðvum, sjónvarpinu og er engum blöð- um um það að fletta, þessi fagri drengur brosir alls staðar blítt til Flugunnar. Hrollvekjuþema aðventunnar í ár hefur ekki farið framhjá mörgum en innreið svörtu jólatrjánna er nú í algleymingi. Tar- antino-jól. Ansi spes en bara frekar flott. Svakalega dularfull og dramatísk tré. Svo er auðvitað freistandi að fá sér bleikt skvísu- jólatré og leikur einn er að finna flippað jólaskraut á það í öll- um litlu hryllingsbúðunum í verslunarmiðstöðvunum. Vest- urbæingar eru ,,smart shoppers“, það hefur alltaf verið á hreinu og var sannkallaður stjörnufans í verslun Krónunnar um helgina en þar sást sjónvarpsmaðurinn sjarmerandi Logi Bergmann Eiðsson í matarinnkaupum með börn- unum sínum, og sjónvarpskonan Sigríður Arn- ardóttir, öðru nafni Sirrý. Bragi Ólafsson rit- höfundur er einnig hagsýnn í nýlenduvöru- verslunum og sparaði krónuna í Krónunni ásamt systkinunum Svölu og Krumma Björgvinsbörnum Halldórssonar, sem komu þó hvort í sínu lagi. Krumminn með þung- an, seiðandi rakspíra. Flugustelpa er með einkaþjálfara á sínum snærum í ræktinni eins og hinar stjörnurnar. Hún hefur rekist á ýmsa þekkta aðila sem púla þar í sælu svitabaði en er ekki nægilega ,,nastí til að nafngreina þá. Einkaþjálfarinn skipaði Flugustelpu nýlega með þjósti að fara í afvötnun næstu tíu daga eða fram að jólum. Stúlkan rak upp stór augu, beit sakbitin í neðri vörina og spurði hvort það væri nú ekki bara við hæfi að dreypa á góðu rauðvíni á aðventunni. Í ljós kom að um ann- ars konar afvötnun var að ræða; nefnilega losa aukavatn úr lík- amanum, stundum nefnt bjúgur. Enda gengur einkaþjálfarinn nú undir gælunafninu Bjúgkrækir. Ef maður þarf hins vegar ekki endilega að komast í kjólinn fyrir jólin er tilvalið að vakna snemma á sunnudagsmorgnum og fá sér himneskan morgunverð á Gráa kettinum við Hverfisgötu. Um helgina mátti sjá þar eiganda staðarins, listakonuna Huldu Hákon, með fallega hundinn sinn, svipmikinn bolabít, og Gunnar Smára Egilsson fjölmiðlamann, sem kom líka til að fá sér í gogginn. Mæli sérstaklega með amerísku pönnukökun- um með sírópi og kúbönsku samlok- unni. Undarlegt fyrirbrigði þessi Coca Cola- lest sem tætti og tryllti um borgina með ljósasjóvi miklu og músíkspili. Bein út- sending var frá ferðalagi eimreiðarinnar eymdarlegu í útvarpinu en því lauk auð- vitað í Smáralindinni. Ung kona skrækti af hrifningu þegar lestin nam loks stað- ar: „Nú eru jólin sko komin! Ég syng nú bara: „Búum til betri heim … samein- umst, hjálpum þeim. | flugan@mbl.is Barokk, Bach og innrás svörtu jólatrjánna FLUGAN TRÍÓ ÓLAFS STEPHENSENS hélt tónleika í verslun Sævars Karls. Í HÁSKÓLABÍÓI voru sinfóníu- tónleikar þar sem óperusöngvarinn heimskunni frá Wales, Bryn Terfel, söng með hljómsveitinni. Þröstur Ólafsson, Margrét Hauksdóttir og Guðni Ágústsson. Vigdís Sigur- björnsdóttir og Guðmundur Bjarnason. Jón Ásgeirsson, Garðar Thór Cortes, Garðar Cortes og Elísabet Þorgeirsdóttir. Baltasar Samper, Kristjana Samper, Ólafur Egilsson og Ragna Ragnars. Bylgja Rún Svansdóttir og Árni Örn Arnarson. Ágúst Orri Sigurðsson og Gerður Guðlaugsdóttir. Elísabet Jó- hannesdóttir og Gunnlaugur Haraldsson. Á LAUGAVEGINUM voru jólainnkaupin í algleymingi. Sólveig Þorvaldsdóttir og Kristbjörg Jakobsdóttir. Anna Kristín Daníelsdóttir og Anna Sigríður Stefánsdóttir. L jó sm yn di r: Á rn i T or fa so n Steinunn Jónsdóttir og Herdís Sif Þorvaldsdóttir. Birna Jakobsdóttir, Björg Ingólfsdóttir, Hrund Finnbogadóttir og Árný Hlín Hilmarsdóttir. L jó sm yn di r: Á rn i T or fa so n . . . enda gengur einkaþjálfarinn nú undir gælunafninu Bjúgkrækir . . . Hörður Sigurbjarnarson og Þórunn Harðardóttir. L jó sm yn di r: S ve rr ir Herra Karl Sigurbjörnsson biskup, Valerie Amos barónessa, Ólafur Ragnar Gríms- son, forseti Íslands, Dorrit Moussaieff og Kristín Guðjónsdóttir. Anna Vilborg Gunnarsdóttir, Halldór Guðmundsson og Ingimundur Sigfússon.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.