Morgunblaðið - 27.12.2005, Side 6

Morgunblaðið - 27.12.2005, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Á eigin vegum um hátíðarnar ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H ER 3 05 89 12 /2 00 5 Ekkert jafnast á við að aka um frjáls í bíl frá Hertz. Ef þú átt ekki bílinn sem hentar hverju sinni þá getum við hjá Hertz bætt úr því fyrir lægra verð en þig grunar. Það er óþarfi að eiga jeppa til að komast allt sem þú vilt fara. Engar áhyggjur, bara gleðilega hátíð. 50 50 600 • www.hertz.is Sölustaðir: Keflavíkurflugvöllur, Reykjavík, Ísafjörður, Akureyri, Höfn, Egilsstaðir Hátíðartilboð Toyota Corolla frá 3.571 kr. á dag Toyota Rav4 frá 4.471 kr. á dag Toyota Land Cruiser frá 5.071 kr. á dag Innifalið: 100 km á dag og CDW (kaskótrygging). Verð miðast við 7 daga leigu. Tilboð gildir til 15.01.2006 Sjá nánar á hertz.is FYRSTI stúdentinn úr hópi ann- arrar kynslóðar Víetnama hér á landi útskrifaðist frá Mennta- skólanum við Hamrahlíð á dög- unum. Stúdínan tvítuga, Huong Xuan Nguyen, hlaut verðlaun fyr- ir árangur í stærðfræði, en hún útskrifaðist af náttúrufræðibraut. Hún er nú skráð í nám í véla- verkfræði við Háskóla Íslands og stefnir á feril á því sviði. „Ég veit ekki hvað bíður í framtíðinni en mig langar núna að læra eitthvað nýtt, eitthvað sem mér finnst gaman, eins og verkfræði, en starfssvið verk- fræðinnar er mjög breitt og margt sem er hægt að gera eftir námið,“ segir Huong, sem vinnur með náminu sem túlkur í Al- þjóðahúsi. Þá vinnur hún einnig í ræstingum á hverjum degi með móður sinni í prentsmiðju Morg- unblaðsins. „Það er mjög skemmtilegt að vinna sem túlkur. Það má segja að það sé fyrsta al- vöru vinnan mín þar sem ég get notað það sem ég hef lært eins og tungumálakunnáttuna.“ Þegar Huong kom fyrst til Ís- lands árið 2000 átti hún að fara í níunda bekk í Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ, en frændi hennar ráðlagði fjölskyldunni að setja hana í áttunda bekk til að hún gæti lært betur tungumálið. „Það er mikilvægast ef maður ætlar að fara lengra í náminu að ná tökum á tungumálinu. Mesta hindrunin fyrir nemendur af erlendum upp- runa er skortur á tungumála- kunnáttu, en þegar maður hefur lært tungumálið getur maður lært svo margt annað, t.d. menn- ingu, að kynnast fólki, lesið blöð- in og horft á sjónvarpið og hlust- að og lært meira og meira. Ef maður kann ekki tungumálið er maður stopp og kemst ekki lengra. Í byrjun var þetta mjög erfitt, en mér finnst ég hafa feng- ið mjög mikla hjálp. Fólkið var mjög vinalegt og hjálpsamt og ég lærði mjög mikla íslensku þar. Ég vona að fleiri nemendur frá Víetnam fari að útskrifast úr framhaldsskóla, en það þarf að hafa öfluga íslenskukennslu fyrir þau. Ég fékk frábær tækifæri og frábæra kennara í kringum mig og ég vona að fleiri fái svona góð tækifæri eins og ég. Ég þekki mjög marga sem langar mjög mikið að klára stúdentspróf, en tungumálið er mesta hindrunin í leiðinni að langskólanámi.“ Nýstúdentinn Huong Xuan Nguyen frá Víetnam fékk stærðfræðiverðlaun við útskrift í MH Leggur fyrir sig vélaverkfræði Morgunblaðið/Sverrir Huong Xuan Nguyen (lengst til hægri) glöð í bragði ásamt litla bróður Phuong Xuan Nguyen og móður sinni Anh Kim Vu. Eftir Svavar Knút Kristinsson svavar@mbl.is Mikilvægt að efla íslenskukunnáttu nemenda af erlendum uppruna TÖLUVERT var um fasteignavið- skipti á höfuðborgarsvæðinu í vik- unni 16.–22. desember sl. ef marka má fjölda þinglýstra kaupsamninga, en þeir voru alls 185 í vikunni, að því er fram kemur á vef Fasteignamats ríkisins. Er það nokkur aukning miðað við vikurnar á undan en síðustu vikuna í október voru þó fleiri samningar gerðir, eða 198 á höfuðborgarsvæð- inu. Velta samninga í vikunni fyrir jól var samtals 4.250 milljónir og með- alupphæð fyrir hvern samning var því 23 milljónir króna, sem er frekar lágt miðað við aðrar vikur. Flestir samningar voru gerðir í Reykjavík, eða 107, í Hafnarfirði var 31 samn- ingur gerður og 21 í Kópavogi. Á sama tíma í fyrra voru þó gerðir mun fleiri samningar á höfuðborg- arsvæðinu, en vikuna 17.–23. desem- ber í fyrra var alls 255 samningum þinglýst og var meðalverðmæti þeirra 25,5 milljónir króna. Mikil fasteignavið- skipti vikuna fyrir jól MINJAVERND hefur sett bæði Geysishúsið og Ísafoldarhúsið á sölu, og þegar hafa hugsanlegir kaupendur lýst áhuga á húsunum. Saga þessara húsa er samofin sögu Reykjavíkur, en þau eru bæði byggð á síðari hluta 19. aldar. Húsin standa við Aðalstræti 2 og 12. Um fimm ár eru síðan Ísafold- arhúsið var flutt í Aðalstrætið úr Austurstræti þar sem það var reist árið 1896, en það var flutt fjöl fyrir fjöl og gert upp á sama tíma. Miklar endurbætur hafa einnig verið gerð- ar á Geysishúsinu, segir Þorsteinn Bergsson, framkvæmdastjóri Minjaverndar. Hann segir ekki gef- ið upp hvaða verð sé vonast til að fá fyrir húsin. „Við munum leitast við að tryggja að þessi hús fari í hendur góðra að- ila, sem líkindi séu til að haldi þeim vel við, og sinni þeim með þeim sóma sem húsunum ber að okkar mati,“ segir Þorsteinn. Hann segir sögu þeirra afar tengda sögu Reykjavíkurborgar, sem hafi verið ástæða þess að Minjavernd tók hús- in upp á sína arma á sínum tíma. Þorsteinn segir ýmsar ástæður fyrir því að húsin séu seld nú. Það hafi í raun ekki verið hlutverk Minjaverndar að eiga hús um lengri tíma, heldur að stuðla að uppbygg- ingu og varðveislu þeirra. Fjölþætt starfsemi er í húsunum í dag, m.a. upplýsingamiðstöð borgarinnar, skrifstofur, íbúðir og veitingastaðir. Minjavernd er sjálfseignarstofn- un sem varð til upp úr Torfusam- tökunum árið 1985. Ríkið og Reykjavíkurborg eiga jafnan hlut, bæði tæp 40%, en sjálfseignarstofn- unin Minjar á það sem eftir stend- ur. Minjavernd selur Geysishúsið og Ísafoldarhúsið Morgunblaðið/Árni Sæberg Ísafoldarhúsið stendur nú við Aðal- stræti 12. Það var reist árið 1896. HJÁ Franch Michelsen úrsmíða- meistara við Laugaveg 15 í Reykja- vík er nú til sölu úr af gerðinni Oris Flight Timer 1945. Framleidd voru 1945 slík úr til að fagna á afmæl- isári endaloka seinni heimsstyrjald- arinnar. Eitt slíkt úr kemur í hlut Íslands en verslunin hefur allt frá stríðsárunum selt úr frá Oris. Frank U. Michelsen úrsmíða- meistari sagði í samtali við Morg- unblaðið að vegna langra viðskipta föður síns við Oris hafi verslunin fengið eitt úr hingað til lands. „Það voru ekki framleidd nema þessi 1945 úr og því var þeim deilt niður á söluaðila um allan heim. Vegna þessarar löngu sögu hér fengum við eitt úr,“ sagði hann. Frank segir að úrin séu númeruð og úrið hjá sér sé númer 1628. Úrið sýnir þrjá tíma í senn og dagsetningu, það er sjálf- trekkt, höggvarið og vatnsvarið. Þá er úrið bæði með stálkeðju og flug- mannsleðuról, sem Frank segir að sé nægilega löng til að óla megi úr- ið utan um ermi á flugmannsgalla. Úrið kostar 228 þúsund krónur og segir Frank næsta víst að þetta verði safngripur því hann viti til þess að safnarar hafi þegar skrifað sig á biðlista. Og hefur hann trú á að það seljist hér? „Ég hef fulla trú á því, en ef það gerist ekki þá ætla ég bara sjálfur að eiga það,“ sagði Frank að lokum. Morgunblaðið/Kristinn Frank U. Michelsen er hér með Oris-úrið sem er númer 1628. Eitt úr kom í hlut Íslands

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.