Morgunblaðið - 27.12.2005, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 27.12.2005, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2005 13 ERLENT FÓRNARLAMBA flóðbylgjunnar miklu á Ind- landshafi fyrir ári síðan var minnst víða um heim í gær en náttúruhamfarirnar, sem áttu sér einmitt stað á öðrum degi jóla í fyrra, kostuðu að minnsta kosti 216.000 manns lífið í tólf lönd- um og heilu samfélögin voru lögð í rúst. Sérstakar minningarathafnir voru haldnar í a.m.k. þremur heimsálfum; Evrópu, Asíu og Afríku. Syrgjendur söfnuðust m.a. saman í borginni Banda Aceh í Aceh-héraði í Indónesíu, en þar varð mannfall mest af völdum flóðbylgj- unnar, á ströndum Taílands, í Sómalíu í Austur- Afríku og í Noregi, Þýskalandi, Finnlandi og Svíþjóð, en a.m.k. 2.400 þeirra sem biðu bana í Taílandi voru evrópskir ferðamenn. Enn aðrir létu hinar eiginlegu minning- arathafnir eiga sig, heimsóttu kannski vettvang hamfaranna eða fóru í mosku eða kirkju til að minnast látinna. Fyrsta minningarathöfnin í gær var haldin í Banda Aceh í Indónesíu en a.m.k. 168.000 manns biðu bana í Aceh-héraði. Susilo Bamb- ang Yudhoyono, forseti Indónesíu, var við- staddur athöfnina en hún þótti látlaus og til- finningaþrungin. „Það var undir þessum sama bláa himni, fyrir nákvæmlega ári síðan, sem móðir jörð leysti úr læðingi öflugustu og hrika- legustu öfl sín,“ sagði Yudhoyono en hundruð manna voru viðstödd athöfnina í Banda Aceh. Einnar mínútu þögn var virt til minningar um fórnarlömb flóðbylgjunnar og hófst hún þegar indónesíski forsetinn hafði látið viðvör- unarkerfi það, sem nú er verið að koma fyrir til að fyrirbyggja annan eins mannskaða af völd- um flóðbylgju í Indlandshafi, óma út yfir hafið. Lét Yudhoyono sírenuna óma kl. 8.16 að stað- artíma, um hálftvö í fyrrinótt að íslenskum tíma, en það var einmitt á þeirri stundu sem fyrsta flóðbylgjan skall á Aceh fyrir ári síðan. Uppbyggingar- og hjálparstarf gengur ekki alls staðar sem skyldi Öllu sunnar í Indónesíu, í borginni Padang, prófuðu menn einnig tsunami-viðvörunarkerfið en á þessu svæði eru gjarnan mikil umbrot í jarðskorpunni og alls ekki útilokað að fleiri flóð- bylgjur ríði yfir. Skiptir þá miklu að hægt sé að vara fólk við þannig að það geti komið sér í örugga fjarlægð frá ströndinni. „Við vissum að þetta var bara æfing,“ sagði Candra Yohanes, 55 ára íbúi Padang, sem tók þátt í æfingunni og hljóp upp til lands þegar við- vörunarbjöllurnar hringdu. „En samt, þegar ég heyrði í sírenunni þá fór hjartað að berjast mjög í brjósti mér.“ Náttúruhamfarirnar 26. desember 2004 urðu í kjölfar þess að jarðskjálfti er mældist 9 á Richters-kvarðanum varð úti í Indlandshafi. Hann leysti úr læðingi mikla flóðbylgju, svo- kallaða tsunami-bylgju, sem síðan skall af mikl- um þunga á löndum þeim sem liggja að Ind- landshafi. Verstar urðu afleiðingarnar í Indónesíu, sem fyrr segir, en einnig urðu Sri Lanka og Taíland mjög illa úti. Mannskaði varð hins vegar víðar, m.a. í Sómalíu, sem fyrr segir, sem er í þúsunda km fjarlægð frá upptökum skjálftans. Útilokað er að segja nákvæmlega til um það hversu margir dóu, lík ótalmargra hurfu á haf út og víða eru íbúatölur á reiki. „Flóðbylgjan eirði engu og hún skall á svo hratt og af svo miklum ofsa að við eigum enn fullt í fangi með að skilja það,“ sagði Kofi Ann- an, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, í ávarpi sem hann flutti í tilefni dagsins. Þegar í kjölfar hamfaranna fyrir ári var byrj- að að safna fé víða um heim til handa þeim sem áttu um sárt að binda á hamfarasvæðunum. Er áætlað að alls hafi verið heitið um 13 milljörðum Bandaríkjadala í aðstoð, um 820 milljörðum ís- lenskra króna, en af þeirri upphæð hafa um 75% skilað sér. Þó hefur verið gagnrýnt hversu hægt uppbyggingin gengur á mestu hamfara- svæðunum og um 80% þeirra næstum tveggja milljóna manna sem misstu heimili sín búa enn í tjöldum, í öðrum bráðabirgðahíbýlum eða hjá vinum og vandamönnum. Sírenur látnar óma til minningar um hina látnu Eitt ár var í gær liðið frá flóðbylgjunni miklu á Indlandshafi AP Susilo Bambang Yudhoyono, forseti Indónesíu (fyrir miðju), dreifir blómum til minningar um látna í Banda Aceh í gær. Um 168.000 manns týndu lífi í Aceh-héraði. Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is Reuters Taílensk stúlka heldur á hvítri rós við minningarathöfn á Phuket-ferðamannastaðnum í gær. Reuters Taílendingar lyfta sérútbúnum luktum til minningar um fórnarlömb flóðbylgjunnar á Pak Meng-ströndinni í Trang-héraði í gær. Trípólí. AFP. | Hæstiréttur Líbýu felldi á sunnudag þann úrskurð að rétta skyldi á nýjan leik yfir fimm búlgörskum hjúkrunar- fræðingum og palestínskum lækni sem fyrr á árinu voru dæmd til dauða fyrir meinta aðild að samsæri um að smita hundruð líbýskra barna með HIV-veirunni, sem veldur al- næmi. Ali Hasnawi, dómsmálaráðherra Líbýu, sagði að ný réttarhöld í málinu yrðu haldin „eftir einn mánuð“ og nýir dómarar myndu þar koma til sögunnar. Stjórnvöld í Búlgaríu og Bandaríkjunum hafa fagnað ákvörðun hæstaréttar og Terry Davis, framkvæmda- stjóri Evrópuráðsins í Strassborg, sagðist vonast til þess að við ný réttarhöld myndu alþjóðlegar reglur, þar sem sanngirni og réttlæti réðu ferðinni, verða notaðar. Heilbrigðisstarfsfólkið hefur verið sakað um að hafa fyrir sjö árum síðan gefið 426 börnum á spítala í Benghazi á Miðjarð- arhafsströnd Líbýu blóð sem smitað var af HIV-veirunni. Fimmtíu þessara barna hafa dáið af völdum alnæmis. En fólkið heldur fram sakleysi sínu og úrskurður hæstaréttar á sunnudag hefur vakið vonir lögmanna þess og aðstandenda um að því muni hugsanlega verða veitt frelsi. Fjölskyldur barnanna sem um ræðir mót- mæltu úrskurði réttarins í fyrradag og stóðu m.a. fyrir mótmælagöngu í Trípólí. Hrópaði það slagorð, „þetta er óréttlæti“, og krafðist þess að fyrri úrskurður fengi að standa. Úrskurði hæstaréttar Líbýu fagnað Réttað á ný yfir er- lendu hjúkrunarfólki Bagdad. AP, AFP. | Að minnsta kosti nítján týndu lífi í árásum uppreisnarmanna í Írak í gær og átján biðu bana á sunnudag. Hefur ofbeldið í landinu magnast á ný eftir að tiltölulega frið- samlegt hafði verið í kringum kosningahaldið 15. desember sl. Sjálfsmorðssprengjumaður ók bíl sínum á lögreglustöð í höfuðborginni Bagdad í gær og banaði þannig þremur og maður á mótorhjóli ók á fleygiferð inn í líkgöngu sjía-múslíma í Bagdad með þeim afleiðingum að tveir dóu og 26 særðust. Þá sprungu fjórar aðrar mann- skæðar bílasprengjur í höfuðborginni. Byssu- menn myrtu síðan fimm lögreglumenn og særðu fjóra við lögregluvarðstöð um 50 km norður af Bagdad. Sögðu fulltrúar lögreglunn- ar að a.m.k. þrjátíu vopnaðir uppreisnarmenn hefðu tekið þátt í þessari árás. Tugir týndu lífi í Írak Graz. AFP. | Nafn Arnolds Schwarzeneggers, ríkisstjóra í Kaliforníu í Bandaríkjunum, var fjarlægt af íþróttaleikvanginum í Graz í Aust- urríki í fyrrinótt, en leikvangurinn hafði heitið í höfuðið á leikaranum fyrrverandi sem er austurrískur að uppruna. Ber leikvangurinn nú aðeins það nafn sem hann bar áður en ákveðið var að heiðra Schwarzenegger sér- staklega 1997, Stadion Graz-Libebenau. Var þetta gert í skjóli nætur, að sögn talsmanna borgaryfirvalda, til að koma í veg fyrir að ein- hverjir kæmu til að trampa á risavöxnum málmstöfunum sem saman mynduðu nafn rík- isstjórans eða taka ljósmyndir af viðburðinum. Schwarzenegger hefur sætt gagnrýni í Austurríki vegna afstöðu sinnar til dauðarefs- inga. Í kjölfar gagnrýninnar, þar sem fram komu m.a. óskir um að nafn Schwarzeneggers yrði fjarlægt af leikvanginum, skrifaði Schwarzenegger borgarstjóranum í Graz bréf þar sem hann sagðist vilja forða borgaryf- irvöldum frá frekari vandræðum sín vegna. AP Búið að fjarlægja nafn Arnolds Schwarzenegger ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.