Morgunblaðið - 27.12.2005, Side 17

Morgunblaðið - 27.12.2005, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2005 17 MENNING                       ! "#$%& '(  ' )*+%& ,-& ./ 0''  111!23+22!& MYNDLISTARKONAN Inga Svala Þórs- dóttir heldur um þessar mundir stóra einka- sýningu í Villa Merkel safninu í Stuttgart í Þýskalandi auk þess sem hún tekur þátt í sam- sýningu eftir tíu listamenn í Louisiana- listasafninu í Kaupmannahöfn. Einkasýning Ingu Svölu í Villa Merkel safninu nefnist „Borg 21° W & 64° N“. Í verkinu setur lista- maðurinn fram hugmynd að milljónaborg sem nefnist Borg, og er í Borgarfirði. Inga Svala býr og starfar í Hamborg og seg- ir hún safnstjóra Villa Merkel safnsins hafa boðið sér að sýna eftir að hún sýndi í Kunst- halle í Hamborg í fyrra. Allar ofangreindar sýningar tengjast langtímaverkefni sem Inga Svala vinnur að og felur í sér þróun á skipulagi milljónaborgar. „Í gegnum söguna hafa listamenn fyrst og fremst unnið að rannsóknum á hugmyndum. Sú hugmynd sem ég hef rannsakað frá árinu 1995 er: Hvað er borg? Hvernig getur góð borg orðið? Hvar er best að hafa hana og á hverju lifa borgarbúar? Í ferlinu valdi ég borg- inni stæði við Borgarfjörð, kallaði hana Borg og hef verið að byggja hana smám saman upp. Þetta er borg sem á að lifa af sjálfri sér, þ.e. á hugsun og hugviti borgarbúa fremur en fram- leiðslu eins og hefð er í iðnaðarborgum. Þannig forðast borgin að ganga á gæði náttúrunnar sem borgin á að vera í miklu návígi og samspili við,“ segir Inga Svala. Teygir sig yfir fjórtán rými Sýningin í Villa Merkel safninu sam- anstendur m.a. af teikningum, málverkum, ljósmyndum, módelum, skúlptúrum og mynd- bandsverkum og teygir sig yfir fjórtán rými í safninu. Inga Svala segir að með þessu viða- mikla rými hafi henni gefist tækifæri til að út- færa ýmsa þætti í borginni á ítarlegri hátt en áður. „Ég set til dæmis upp útimarkað og sýni arkitektúrmódel af mannvirkjum úr borginni, m.a. af „Borgarkúplinum“ sem er lýsandi fyrir áhersluna á hugsun í Borg en hann sýnir augnablik hugljómunar í heila mannsins. Þá sýni ég módel af stiga sem er mjög krefjandi í útfærslu í arkitektúr. Stiginn er þannig gerður að ekkert þrep er eins og endurspeglar það lykilhugmynd í útfærslu og starfsemi borg- arinnar. Ekkert form í borgarumhverfinu mun endurtaka sig. Þetta er bæði örvandi fyrir skynjun og þar með hugsun borgarbúanna og mun vera sú þekkingarframleiðsla sem borg- arbúar lifa á.“ Samsýning Ingu Svölu í Louisiana-safninu tengist einnig borgarverkefni hennar. Sýn- ingin nefnist „On Line – teikningar“ og sam- anstendur af teikningum eftir tíu unga lista- menn frá níu löndum. Sýningin er liður í nýrri stefnu Louisiana-safnsins um að halda reglu- lega sýningar á samtímamyndlist undir yf- irskriftinni „Louisiana Contemporary“ en On Line – teikningar er haldin samhliða yfirlits- sýningu á verkum eftir Henri Matisse. Fram- lag Ingu Svölu til samsýningarinnar eru teikn- ingar af lestarstöðvum Borgar, teikningar er sýna birtubrigði í Borginni og teikningar af yf- irskyggðum dölum sem eru nokkurs konar út- ópíur öruggra samfélaga úti í óbyggðum. Vinnur að forrannsóknum Þá sýndi Inga Svala verk úr borgarverkefn- inu á menningarhátíð íslenskra listamanna í Köln í nóvember síðastliðnum. Þegar Inga Svala er spurð að lokum hvort hún hyggist reisa borgina áður en yfir lýkur, segist hún fyrst og fremst vinna að frumrann- sóknum sem muni þó vonandi nýtast við bygg- ingu borga. „Ég er fyrst og fremst að vinna að forrannsóknum um borgir. Það er verið að reisa borgir mjög hratt í dag, og aldrei eins hratt og nú. Það er því mikil þörf á því að hugs- að sé um lausnir á þessu sviði og vonandi sjá því arkitektar og verkfræðingar um að reisa Borg.“ Myndlist | Einkasýning Ingu Svölu Þórsdóttur í Villa Merkel-safninu Borg hugmyndanna Verk á sýningu Ingu Svölu Þórsdóttur „Borg 21° W & 64° N“. Eftir Heiðu Jóhannsdóttur heida@mbl.is TITILL bókar þessarar á vafalaust að vísa til þess að höfundur er orðinn aldurhniginn. Efnið ber þess einnig merki. Þetta er augljóslega afrakst- ur og samsafn langrar ævi. Með hlið- sjón af útliti er bókin rausnarlega úr garði gerð. Bandið er eins og á hverri annarri »jólabók«. Hönnun og teikn- ingar eru verk listamanna. Sömuleið- is er bókin meiri að umfangi og blað- síðutali en títt er um kvæðabækur sem út eru að koma þessi árin. Tekið er fram að Menningarnefnd Fjarð- arbyggðar og Menningarsjóður Kaupfélags Héraðsbúa hafi styrkt útgáfuna. Ekki er amalegt að eiga slíka að bakhjarli, og sannarlega ekki fyrir hvern sem er! Vonandi styrkja þeir heiðursmenn fleiri ljóðskáld, ekki veitir af; mörg þeirra lepja dauðann úr skel; koma ekki út bók- um sínum nema með betlistaf í hendi. Í hélu haustsins skiptist í níu kafla sem bera hver sitt heiti. Efnið er fjöl- skrúðugt og spannar í raun flest sem við ber í daglega lífinu og umræðu- vert þykir á líðandi stund. Ljóst er sem fyrr segir að kvæðin eru til orðin á löngu æviskeiði, ort af ýmiss konar tilefni og þá með mismunandi sjón- armið fyrir augum. Ætla má að höf- undur sé að leggja þarna fram tiltek- inn hluta af ævistarfi sínu sem jafnframt tengist öðrum hans at- höfnum í lífinu. Efnið er mjög bundið heimahögunum fyrir austan, þar með talin flest tækifæriskvæðin sem ort eru – og vafalaust líka flutt – við ýmiss konar hátíðleg tækifæri. Þarna er t.d. vígslukvæði frá árinu 1955. Kvæði er ort til Menntaskólans á Egilsstöðum. Af efni þess má ráða að það sé flutt á tíu ára afmæli stofn- unarinnar. Ekki telst vera það hár aldur; allt um það tímamót til að minnast í sveit þar sem flest hafði staðið í stað. Kvæði er ort til Lúðvíks Jósepssonar á sjö- tugsafmæli hans. Lúðvík var svo þekkt- ur að höfundur hefur talið óþarft að tíma- setja árnaðarósk- irnar. Birt eru erfiljóð sem ort voru eftir flokksbræður og með- þingsmenn. Konu sinni helgar höfundur sérstakan kafla. Og foreldra sinna minnist hann í ljóði. End- urminningin frá æskustöðvunum er mánasilfri merluð eins og gerst lýsir sér í ljóðunum Um jól og Bernskunnar blíðu jól. Hið fyrrtalda endar svo: »Í hljóði bið ég guð að gefa mér / þá gullnu bernskutrú sem dýrust er.« Þótt höfundur kynni sig sem alvöru- mann, því það gerir hann svo sann- arlega, eru þarna gamanvísur þar sem höfundur beinir spjótunum óspart að sjálfum sér, vafalaust ort til að flytja í heyranda hljóði, og þá í einhvers konar gleðskap. Og ástin, eftir á að hyggja, eldheit og rósrauð – einnig hún kemur fyrir hér og hvar, ekki má gleyma henni! Yfir heildina litið er kvæðasafnið svo sund- urleitt að óþarft sýnist að láta sem hér séu á ferðinni einhver meiri háttar skáldskaparmál. Víðast hvar er ljóðformið einungis búningur utan um hugðarefni höfund- arins. Áðurnefndur tæki- færiskveðskapur er til að mynda nokkurs konar ræðumennska með rími og ljóðstöfum, ortur og fluttur til að minnast tímamóta eða bregða formlegri staðfestingu yfir tiltekna athöfn. Auk tækifær- iskvæðanna má ætla að önnur kvæði séu mörg hver sett saman vegna ákveðins tilefnis þótt ekki sé þess beinlínis getið í fyrirsögn. Að leggja eitthvert strangt ljóðlistarmat á þess konar kveðskap þar sem listin er ein- ungis yfirvarp eða aukageta væri hvorki sanngjarnt né tilhlýðilegt. Allt eins er ljóst að höfundur er bundinn eldri hefð og hefur því fátt nýtt fram að færa. Stíll hans, einkum að því er tekur til árstíða, náttúrulýs- inga og tækifæriskveðskapar, ber með sér að hann hefur gengið í skóla hjá gömlu þjóðskáldunum sem róm- uðu fegurð landsins og göfgi mann- gildisins með hátíðlegu orðskrúði. Gildir það bæði um hugblæ og orð- færi. Til dæmis að taka hefst eitt af- mæliskvæðið á þessum ljóðlínum: »Heill sé hugumdjörfum / hal á þess- um degi.« Og átthögum sínum heils- ar höfundur með þessum andheitu ástarorðum: »Sólris á morgni, gulln- ar perlur glitra / í grasi mjúku, ang- an fyrir ber.« Auk málfarsins hefur höfundur einnig þegið mælsku sína frá sínum gengnu lærimeisturum. Þannig ber öll ljóðagerð Helga merki venjulegs alþýðukveðskapar eins og hann gekk og gerðist á uppvaxtarárum hans, og raunar allt til dagsins í dag. Helgi sómir sér því vel meðal annarra sveitarskálda tuttugustu aldar. Við hitt má setja spurningarmerki hvort umsvif hans á öðrum vettvangi hafi ekki sett hagmælsku hans vissar skorður, gerst óþarflega harður verkstjóri yfir skáldinu. Tilefni og tækifæri BÆKUR Kvæði eftir Helga Seljan. 157 bls. Félag ljóða- unnenda á Austurlandi. Fáskrúðsfirði, 2005 Í hélu haustsins Helgi Seljan Erlendur Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.