Morgunblaðið - 27.12.2005, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 27.12.2005, Qupperneq 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN GRENILUNDUR - GARÐABÆR - GOTT HÚS GLÆSILEGT 185,7 fm EINBÝI Á EINNI HÆÐ ásamt 44,8 fm TVÖFÖLDUM BÍL- SKÚR á góðum stað í GARÐABÆ. Falleg gólf- efni og innréttingar, stór hellulögð verönd. Flott eign sem hægt er að mæla með. 4864 DRANGAGATA - EITT ÞAÐ FLOTT- ASTA Í HAFNARFIRÐI 366 fm einbýlis- hús á frábærum stað við hraunið í Norðurbæ í Hafnarfirði, eina húsið í götunni, algjört parad- ís fyrir börn. Fullt af herbergjum, þrjár stofur, falleg gólfefni og innréttingar, innbyggður tvö- faldur bílskúr, myndir og myndband á netinu, sjón er sögu ríkari. TILBOÐ ÓSKAST. 4693 EFSTILUNDUR - GARÐABÆR - GOTT EINBÝLI Á EINNI HÆÐ - MEÐ ÚT- SÝNI 196 fm einbýlishús með innbyggðum ca 47 fm bílskúr á góðum stað í Garðbæ. Möguleiki á allt að fimm svefnherbergjum. Góð eldhúsinnrétting, stáltæki og gashellur. Gestasnyrting og gott baðherbergi. Parket á stofu, sjónvarpsholi og borðstofu. Sjón er sögu ríkari. Verð 48.7 millj. 4787 FÍFUVELLIR - FRÁBÆRT ENDARAÐ- HÚS FALLEGT OG VANDAÐ 207 fm END- ARAÐHÚS með rúmgóðum innbyggðum bíl- skúr. Góðar innréttingar og skápar, gólfhiti, verönd. Húsið er nánast fullbúið. Örstutt verð- ur í skóla og aðra þjónustu í framtíðinni. GÓÐ EIGN SEM HÆGT ER AÐ MÆLA MEÐ. GOTT VERÐ, endaraðhús, á aðeins 38.9 millj. 4667 LÆKJARGATA 10 - NÝ UPPGERÐ - LAUS STRAX Erum með í einkasölu glæsi- lega mikið endurnýjaða miðhæð á góðum stað við lækinn. Nýlegt eldhús, bað og gólf- efni. Fallegur garður. LAUS STRAX OG NÝ MÁLUÐ. Verð. 23,9 millj. 4691 LAUFVANGUR - SÉRINNGANGUR Góð 4ra herbergja 107,7 fm íbúð á 1. hæð, SÉRINNGANGUR. Íbúðin á 1/18 hlut í óinn- réttaðri ca 75 fm íbúð í kjallara. Verð 20,5 millj. 5061 HRINGBRAUT - FALLEG ENDAÍBÚÐ Falleg og talsvert endurnýjuð 84,1 fm 4ra her- bergja ENDAÍBÚÐ á 1. hæð í góðu fjórbýli á góðum stað í MIÐBÆNUM. Nýlegt þak og ný- lega málað að utan. Verð 17,9 millj. 5050 EYRARHOLT - STÓR EIGN - FRÁ- BÆRT ÚTSÝNI - LAUS STRAX Falleg og rúmgóð 91 fm 4ra herb. íbúð ásamt 45 fm risi (óinnréttað), samtals 136 fm. Hægt er að gera tvö til þrjú herbergi í risinu og sjónvarps- hol. Laus við kaupsaming. Snyrtileg eign og vel með farin. Verð 21.9 millj. 4438 ENGIHJALLI - KÓPAVOGI - LAUS STRAX Falleg og góð 97 fm íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi, fyrir utan sér geymslu í kjallara. Fjögur svefnherbregi. Tvennar svalir. Góð sameign. Laus fyrir jól. Verð 18,3 millj. 4846 ÁLFASKEIÐ - SÉRINNGANGUR Falleg og vel með farin 86 fm 3ja herb. íbúð á 2. hæð. Sérinngangur inn af svölum. Parket og flísar. Baðherbergi nýlegt. Suðvestursvalir. Verð 16,5 millj. 3715 ESKIVELLIR - NÝ FULLBÚIN - LAUS STRAX Vorum að fá í einkasölu nýja, fallega og fullbúna 85,4 fm 3ja herbergja íbúð í nýju viðhaldslitlu lyftuhúsi á góðum stað á VÖLL- UNUM Í HAFNARFIRÐI. Vandaðar innréttingar og tæki. Parket og flísar.Verð 18,9 millj. 5046 MÓABARÐ - LAUS STRAX 82 fm íbúð á efstu hæð í litlu fjölbýli. Falleg og rúmgóð íbúð. Útsýni, laus við kaupsaming. Verð 15.9 millj. Áhílandi 13.0 millj. til 40 ára frá Ísl.banka. 4386 ERLUÁS - FALLEG Nýleg og falleg 62,4 2ja til 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í nýlegu 6 íbúða fjölbýli í Áslandi í Hafnarfirði. SÉRINN- GANGUR. Verönd með skjólveggjum. Falleg og björt eign. Verð 16,5 millj. 3972 BLÁHAMRAR - RVÍK. - LYFTUHÚS - LAUS STRAX Vorum að fá í einkasölu fal- lega íbúð á efstu hæði í nýklæddu húsi. Glæsilegt útsýni yfir borgina. Nýlegt parket. Mikil falleg sameign m.a. salur o.fl. Aðeins 4 íb. á hæðinni. Lyftuhús. Verð 16,9 millj. 4671 Starfsfólk Áss óskar landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári Laugavegi 170, 2. hæð. Opið virka daga kl. 8-17. Sími 552 1400 ● Fax 552 1405 www.fold.is ● fold@fold.is Þjónustusími eftir lokun er 694 1401. Hjallabrekka - Atvinnuhúsnæði Viðar Böðvarsson, viðskiptafr. og lögg. fasteignasali. Vorum að fá í einkasölu atvinnuhúsnæði á eftirsóttum stað. Gólfflötur er 132,7 fm en verið er að setja milliloft sem skráð er 63,6 fm eða samtals 196,3 fm. Fimm metra lofthæð, góðir gluggar og vel með farið hús. Verð 19,5 millj. Laust fljótlega. ÉG MUN útskrifast sem leik- skólakennari næsta vor ef allt fer eins og það á að fara. Núna síð- ustu daga hef ég leyft mér að efast um val mitt á námi! Er það einhvers virði? Og þá fyrir hvern? Kannski fyrir börn- in okkar og þá líklega foreldra þeirra eða hvað? Hvers virði eru börnin okkar? Þessar spurningar hafa reglulega komið upp á yfirborðið und- anfarna daga. Reynd- ar má segja að þær byrjuðu að kræla á sér sl. haust þegar umfjöllunin var sem hæst í þjóðfélaginu um að skortur væri á ófaglærðu fólki í leikskólum og að bæta þyrfti laun þeirra og kjör. Ég varð hissa á þessari umræðu þar sem ég hélt að leikskólinn væri fyrsta skóla- stigið og taldi þ.a.l. að það vantaði fyrst og fremst faglærða leikskóla- kennara inn í leikskólana og ef það fengjust ekki fagaðilar þyrfti að ráða ófaglærða en ekki öfugt. Af hverju voru ekki uppi hávær- ar raddir um að það vantaði menntaða leikskólakennara til starfa og að bæta þyrfti laun þeirra og kjör? Ekki svo að skilja að ég sjái ofsjónum yfir laununum sem samið var um við Eflingu en ég vil að nám mitt sé metið og þegar ég útskrifast þá sé launa- munurinn á milli mín og starfs- manns Eflingar meiri en 19.000 krónur á mánuði. Miðað við samn- ingana sem taka gildi í janúar 2006 þá fengi ég 184.329 kr. á mánuði en starfsmaður Eflingar væri með 165.685 kr. Ef ég tæki að mér deildarstjórastöðu fengi ég 217.130 kr. á mánuði en starfs- maður Eflingar 229.899 kr. Þar væri hann með tæplega 12.000 kr. meiri í laun á mánuði en ég. Tvær af samnemendum mínum sem eru í Eflingu gegna starfi deild- arstjóra í dag og munu því lækka í launum þegar þær útskrifast! Ef ég svo ber mig saman við uppeldismenntaðan starfsmann Reykjavíkurborgar er mismun- urinn orðin eilítið meiri, á meðan ég fengi 184.329 kr. á mánuði fengi hann 210.252 kr. þarna er næstum 26.000 kr. munur og ef hann væri með deildarstjórastöðu fengi hann 247.666 kr. en ég eins og áður sagði væri með 217.130 kr. á mánuði. Ætli að sá uppeldis- menntaði sé með sex ára háskólanám að baki eða hvað er það sem útskýrir launa- muninn? Ætli að leik- skólakennarar séu ekki nægilega mikið menntaðir til að fá góð laun eða kannski eru þeir of mikið menntaðir? Í inngangi Aðal- námskrár leikskóla segir að leikskólinn sé fyrsta skólastigið og að lengi búi að fyrstu gerð, en hvað er eiginlega átt við með því? Er átt við það að leik- skólakennarar útskrifist með kunnáttu í að snýta og skeina? Ég hefði talið að þriggja ára há- skólanám kenndi meira en það. Ég tel mig hafa fengið fræðslu í hvernig vinna megi með nám barna í leikskóla. Því að börn á leikskólaaldri eru á fullu allan daginn að læra um lífið og til- veruna. Það er ekki svo að þau fæðist og bíði þar til þau eru sex ára með að hefja nám og mik- ilvægt er að hafa í huga að nám eða lærdómur er meira en að lesa og leggja saman eða draga frá. Í námskránni segir einnig að markvisst sé unnið að því að styrkja leikskólastigið og að menntun leikskólakennara sé á há- skólastigi og á meðal þeirra ríki mikill metnaður að gera leik- skólana enn betri. Leikskólakenn- arar verða að taka mið af aðal- námskránni þar sem hún er sett af menntamálaráðherra. Hvað þýðir það? Í lögum segir að Aðal- námskrá leikskóla sé „fagleg stefnumörkun um uppeldis- og menntunarhlutverk leikskólans. Þar er lýst markmiðum leikskóla- starfsins og leiðum að settu marki.“ Námskráin er leiðarvísir fyrir þá sem vinna með börnum í leikskóla. Ég sat heilan áfanga þar sem ég lærði um námskrána, upp- byggingu og tilgang hennar. Ég lærði að búa til eigin skóla- námskrá og vinna út frá henni, gagnrýna og skoða kosti hennar. Ég velti fyrir mér markmiðunum sem lagt er upp með í aðal- námskránni og skoðaði hvernig er hægt að útfæra þau í starfi með börnum. Ætli að sá uppeldis- menntaði starfsmaður Reykjavík- urborgar hafi einnig setið þennan áfanga? Þetta er þó ekki eini áfanginn sem ég hef setið í, ég hef t.d. lært þróunar- og námssálfræði. Í þeim áföngum lærði ég t.d. um hvernig ég get greint ef barn á við sjón-, heyrnar- eða talörð- ugleika að stríða. Ég lærði einnig um umhverfisáhrif á fóstur í móðurkviði og meðgöngu. Fæð- ingu og fyrstu mánuðir barnsins. Líkamsþroska frá fæðingu til unglingsára. Vitsmuna- og mál- þroska o.fl. Einnig var ég í áfanga sem heitir Sérþarfir og einstaklingsnámskrá. Þar lærði ég hvernig ég á að vinna með börnum sem eru með sérþarfir og hvernig ég get unnið með for- eldrum þeirra og öðrum sem að barninu koma. Eins og gefur að skilja er þetta aðeins brot af því sem ég hef lært undanfarin þrjú og hálft ár en það sem ég er að reyna að koma á framfæri er að með námi mínu hef ég fengið fræðilegan grunn og meiri þekkingu til þess að vinna með börnum á leik- skólaaldri. Því tel ég að nám mitt sé mikils virði og meta ætti það sem slíkt eða hvað finnst þér, les- andi góður, er nám mitt einhvers virði? Hvers virði er menntun mín? Svava Björg Mörk fjallar um nám, starfsvettvang og kjaramál leikskólakennara ’Ekki svo að skilja aðég sjái ofsjónum yfir laununum sem samið var um við Eflingu en ég vil að nám mitt sé metið og þegar ég út- skrifast þá sé launa- munurinn á milli mín og starfsmanns Eflingar meiri en 19.000 krónur á mánuði.‘ Svava Björg Mörk Höfundur er nemi við Háskólann á Akureyri. Hulda Guðmundsdóttir: „Ég tel að það liggi ekki nægilega ljóst fyrir hvernig eða hvort hinn evangelísk-lútherski vígsluskilningur fari í bága við það að gefa saman fólk af sama kyni …“ Birgir Ásgeirsson: Opið bréf til vígslubiskups Skálholtsstiftis, biskups Íslands, kirkjuráðs og kirkjuþings. Jakob Björnsson: Útmálun helvítis. „Álvinnsla á Íslandi dregur úr losun koltvísýrings í heiminum borið saman við að ál- ið væri alls ekki framleitt og þyngri efni notuð í farartæki í þess stað, og enn meira borið saman við að álið væri ella fram- leitt með raforku úr eldsneyti.“ Þorsteinn H. Gunnarsson fjallar um rjúpnaveiðina og aug- lýsingu um hana, sem hann tel- ur annmarka á. Eggert B. Ólafsson: Vega- gerðin hafnar hagstæðasta til- boði í flugvallarrútuna. Örn Sigurðsson: Bornir eru saman fjórir valkostir fyrir nýj- an innanlandsflugvöll. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.