Morgunblaðið - 27.12.2005, Page 29

Morgunblaðið - 27.12.2005, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2005 29 MINNINGAR Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Nudd Klassískt nudd Árangursrík olíu- og smyrslameðferð með ívafi ísl. jurta. Steinunn P. Hafstað s. 692 0644, félagi í FÍHN. Húsnæði óskast Vestur-íslenskur, reyklaus og reglusamur námsmaður hyggst dvelja á Íslandi árið 2006 til þess að læra íslensku. Hann leitar að íslenskri fjölskyldu á höfuðborg- arsvæðinu til að búa hjá frá og með 4. janúar nk. Sérherbergi og nettenging nauðsynleg. Æskilegt er að fæði sé innifalið. Gott að- gengi að bílastæði væri mikill kostur. Vinsamlegast skrifið til Kyle Guðmundssonar á netfangið: storilundi@samkoma.com eða hringið í Steinar í síma 896 6543. Sumarhús Sumarhús — orlofshús. Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratuga reynsla. Höfum til sýnis á staðnum fullbú- in hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Námskeið Bættu Microsoft í ferilskrána. Vandað Microsoft nám fyrir kerf- isstjóra hefst 6. feb. Undirbúning- ur fyrir MCP og MCSA gráður. Nánar á www.raf.is og í síma 86 321 86. Rafiðnaðarskólinn. Til sölu Full búð af öðruvísi vörum. Lomonosov postulín, Rússneska keisarasettið, í matar- og kaffi- stellum. Handmálað og 22 karata gyllingu. Frábærar gjafavörur. Alltaf besta verðið. Opið virka kl. 11-18, laug. 11-15. Sigurstjarnan, Bláu húsin Fákafeni, sími 588 4545, netfang: postulín.is Bílamottur - snjómottur í miklu úrvali. 20% afsl. í desember. Póstsendum samdægurs. G.S. varahlutir ehf., Bíldshöfða 14, sími 567 6744. Bílar VW PASSAT STATION 1.8 4WD TIL SÖLU Góður og traustur bíll. Er með dráttarkúlu. Skipti á ódýrari eða jafndýrum. Möguleiki á að yfir- taka bílalán, ca. 11.500 kr. afb. á mánuði (44 greiðslur eftir). Verð kr. 830.000. Upplýsingar í síma 695 0060. Ford F350 King Ranch, árg. '05, til sölu. Nýr með leðursætum og öllum hugsanlegum aukabúnaði, sérsmíðuðu álloki á palli sem hef- ur burðargetu allt að 1.000 kg. Litur satíngrænn. Sími 892 4163, ansa@internet.is DVD & LCD Afþreying í farar- tækið þitt! Opnunartilboð PIMP- ED.ws. Lúxus fyrir farþegann þinn, DVD & LCD 7" flatskjársjón- varp í bílnum. Horfðu á sjón- varpsfréttir, PlayStation2. Sími 661 9660. www.pimped.ws Bílaþjónusta Bryngljái á bílinn! Endist árum saman - verndar lakkið - auðveldar þrif. Mössun - blettun - alþrif - djúp- hreinsun. Yfir 20 ára reynsla! Litla Bónstöðin, Skemmu- vegi 22, sími 564 6415. Ökukennsla Ökukennsla Reykjavíkur ehf. Ökukennsla akstursmat. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat, '05 892 4449/557 2940. Vagn Gunnarsson Mersedes Benz, 894 5200/565 2877. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '02, 863 7493/557 2493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza, 696 0042/566 6442. Gylfi K. Sigurðsson Suzuki Grand Vitara, 892 0002/568 9898. Snorri Bjarnason BMW 116i, nýr, 892 1451/557 4975. Bílar aukahlutir Til sölu plasthús á jap. pallbíl Festingar fylgja. Verð 68 þús. (nýtt 220 þús.) Upplýsingar í síma 898 8577. Litlir hópar - lifandi ferð! Komdu með... …í skíðaferð til Utah í mars, …í ævintýraferð til Slóveníu í maí, …í kóngaferð til Bayern í maí, …á F1 á Nürburgring í maí 2006. Hámarksstærð hópa um 20 manns. Sjá www.isafoldtravel.is, Ferðaskrifstofan Ísafold, sími 544 8866. Ferðalög Smáauglýsingar sími 569 1100 Fyrir rúmum 20 ár- um steig ég mín fyrstu spor í Auðbrekkunni hjá Sigga, þá um 4 ára gömul og þau urðu fleiri með tím- anum. Ég tók þátt í danskeppnunum fyrir hönd skólans og alltaf var Siggi stoltur af okkur krökkunum sínum hvernig sem gekk, aðalatriðið var að vera með og gera sitt besta. Mér fannst þó mikill heiður að því, 9 ára gamalli, að sjá bikar sem ég og dans- félagi minn unnum til standa á hillu fyrir framan skrifstofuna hans Sigga þar sem allir sáu. Það kom að því þegar leið á ung- lingsárin að ég hætti að æfa dans hjá Sigga en kíkti þó öðru hvoru í skól- ann með foreldrum mínum þegar þau fóru á dansæfingar. Það ríkti alltaf notalegt andrúmsloft í dans- skólanum og gaman að koma þangað og fylgjast með kennslunni hjá Sigga, alltaf stutt í húmorinn og allir fengu viðurnefnið „elskan mín“ hjá Sigga. Síðar á lífsleiðinni lágu leiðir okk- ar saman á ný. Ég orðinn kennari og sé um skólasafnið í Smáraskóla, þar sem Siggi kenndi dans síðustu ár. Siggi settist stundum hjá mér á kaffistofunni eða kom til mín á safnið og við ræddum lífið og tilveruna. Siggi ljómaði þegar við ræddum um dótturson hans, Kristófer Rúnar, en það var auðheyrt á honum að barna- börnin voru honum sérstaklega kær. Siggi var afar hlédrægur en mér þótti vænt um að hann leyfði mér að kynnast sér og segði mér frá lífi sínu nú. Það var mér heiður að fá að kynn- ast Sigga aftur eftir öll árin í dans- inum og sorglegt að leiðir þyrftu að skiljast svo fljótt. Þegar ég gifti mig mun ég hugsa til Sigga í brúðarvals- inum enda hefði hann lagt mikið upp úr því að ég stæði upprétt, lyfti höfð- inu hátt og brosti um leið og sporin yrðu stigin af mikilli nákvæmni. Siggi lagði alltaf mikið upp úr því að SIGURÐUR HÁKONARSON ✝ Sigurður Há-konarson fædd- ist í Reykjavík 4. október 1945. Hann andaðist á heimili sínu laugardaginn 3. desember síðast- liðinn og var jarð- sunginn frá Bú- staðakirkju 12. desember. við brostum í dansin- um til að sýna hversu mikla ánægju hann veitti. Með virðingu og þökk fyrir allt kveð ég Sigga um leið og ég vil votta Ásdísi og Hall- dóri Boga, barnabörn- unum, svo og öðrum aðstandendum samúð mína. Stefanía Ragnarsdóttir (Stefa). Í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð, leiddu mig, og lýstu mér um ævistig. (Pétur Þórarinsson.) Ég vil þakka þér, elsku Siggi minn, fyrir allan þinn stuðning og hjálp, ég mun aldrei gleyma þér. Guð geymi þig. Ólöf Sigurðardóttir, danskennari. Sigurður Hákonarson hefur nú kvatt þennan heim og skilið eftir sig fótspor sem fáir geta fetað í. Leiðir okkar Sigga lágu saman í dansinum, en við kynntumst fyrst þegar hann hélt námskeið í Borgarnesi. Siggi tók mér svo opnum örmum þegar ég flutti suður aðeins 16 ára og hann veitti mér mikið öryggi, enda leið mér alltaf vel í návist hans. Hann var einn menntaðasti danskennari landsins og ákaflega fær á sínu sviði og það voru forréttindi að fá að njóta leiðsagnar hans í danskennaranám- inu. Siggi var víðlesinn og til hans gat maður alltaf leitað, sama hvert erindið var, hvort sem það varðaði dansinn eða bara lífið sjálft. Dans- skóli hans var í fremstu röð og eru flestir starfandi danskennarar í landinu menntaðir þar. Siggi náði mjög vel til fólks og var vinsæll sem kennari vegna þess hve auðvelt hann átti með að miðla til nemenda og danskennara. Hann var snillingur á þessu sviði og hafa margir af hans „frösum“ úr kennslunni fest sig í sessi og eru notaðir víða í dag. Siggi var sjálfur glæsilegur á gólfinu, hann hreinlega sveif um, og skemmtileg- ast þótti honum að dansa Ballroom- dansa, og þá sérstaklega enskan vals. Við Siggi endurnýjuðum kynni okkar þegar við urðum nágrannar fyrir nokkru og við hittumst oft og ræddum málin. Ég vil þakka þessum góða vini mínum allt það sem hann kenndi mér, hann var góð fyrirmynd og góður félagi sem mótaði líf mitt að mörgu leyti. Þín verður sárt saknað kæri vinur, en góðar minningar lifa. Aðstand- endum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Hinrik Valsson. Elsku Siggi, nú er ég loksins kom- in heim eftir tæp tíu ár í erlendis og þá ert þú farinn. Ég man ekki eftir mér áður en ég kynntist þér, enda var ég þriggja ára þegar ég mætti í fyrsta danstímann í Félagsheimili Kópavogs. Þú gafst mér fyrstu fallegu dansskóna mína þegar þú paraðir okkur Edda fyrir sýningu á Broadway 1984. Eftir það varð ekki aftur snúið og ég fékk ekki nóg af dansi. Með glöðu geði eyddi ég á unglingsárunum, öllum kvöld- um og laugardagsmorgnum uppi í dansskóla þér til aðstoðar. Nánast allri æskunni eyddi ég í þinni umsjá, og á þeirri leið var hlut- verk uppalanda óhjákvæmilegt. 12 ára fór ég í fyrstu ferðina til Ipswich, sú ferð og allar sem á eftir komu skilja eftir ljúfar minningar um fólk og atburði. Oftast varstu afar stoltur af okkur, en ég man líka meðal ann- ars þegar við lékum á enskukenn- arann og kenndum honum mjög dónaleg íslensk orð og sögðum hon- um að þau hefðu allt aðra, alsaklausa merkingu. Þá vorum við heldur bet- ur skömmuð. Við vorum alltaf náin, ég og þú. Sama ár og þú varðst stoltur afi eignaðist ég Lenu og þykir svo vænt um að þú mundir eftir mér þó að ég væri langt í burtu og hringdir með hamingjuóskir á afmælisdeginum hennar. Þegar þú varst í Danmörku komstu í heimsókn og sömuleiðis var ég ekki komin „heim“ nema koma aðeins við uppi í Auðbrekku í hverri ferð til Íslands. Þú hefur í gegnum tíðina verið mér miklu meira en danskennarinn minn og ég á þér mikið að þakka. Það er sárt að kveðja þig, sérstaklega þegar ég horfi nú inn í Ástúnið frá nýja heimilinu mínu og mér finnst erfitt, óraunverulegt, að hugsa til þess að við hittumst ekki aftur í bráð. Ég bið Guð að gefa fjölskyldunni þinni styrk til að takast á við þennan mikla missi. Saknaðarkveðjur, Rakel. Mig langar til að skrifa nokkur minn- ingarorð um Báru Hólm. Gunna, yngsta dóttir Báru og Kidda Kalla, er æskuvinkona mín. Við vorum algjörar samlokur alveg frá 12 ára aldri. Við gerðum allt saman og alla meiri háttar við- burði eins og menntaskólagöngu og ævintýraferðir til útlanda skipulögðum við þannig að við gætum fylgst að. Af þessum ástæðum tengdist ég hennar fjöl- skyldu og gekk í gegnum margt með Gunnu, án þess þó að skilja alltaf hvernig henni raunverulega leið. BÁRA HÓLM ✝ Bára Hólmfæddist á Eski- firði 13. júní 1935 og ólst þar upp. Hún lést á heimili sínu aðfaranótt miðviku- dagsins 16. nóvem- ber síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Fossvogs- kirkju 22. nóvem- ber. Þrátt fyrir harða baráttu Báru við þennan harðskeytta sjúkdóm í 20 ár þá var alltaf stutt í glensið hjá henni. Hún lagði okkur Gunnu lífsreglurnar og var löngu farin að tala um stráka og getnaðarvarnir áður en við einu sinni þorðum að nefna slíkt á nafn. Bára var afar op- inská og sagði ná- kvæmlega það sem hún hugsaði. Ég kunni mjög vel við hana sem unglingur og er Bára mér kannski helst hugleikin fyrir það að hafa verið þessi „vinkona“ sem við stelpunar áttum og gátum bara talað um allt við. Ég vil senda fjölskyldu Báru Hólm mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Ég vil sérstaklega senda Gunnu minni styrktarkveðjur. Þú veist að við erum hérna allar stelp- urnar til staðar fyrir þig hvenær sem er. Fjóla Hrafnkelsdóttir. Þær eru ófáar minningarnar sem koma upp í hugann á þessari kveðjustund. Sem barn og unglingur var ég svo heppinn að hafa nánast frjálsan aðgang að ykk- ur ömmu í sveitinni. Það var alltaf gaman að koma til ykkar og að hafa fengið handleiðslu frá fagmanni eins og þér, afi minn, eru algjör for- réttindi, en þú hafðir alveg einstakt PÁLMI ÓLAFSSON ✝ Pálmi Ólafssonfæddist í Ketu í Hegranesi í Skaga- firði 12. október 1916. Hann lést á Heilbrigðisstofnun- inni á Blönduósi 6. desember síðastlið- inn og var jarðsung- inn frá Blönduós- kirkju 17. desem- ber. lag á dýrum. Það held ég að hann Patti kall- inn sé glaður að vera búinn að endurheimta góðan húsbónda og félaga. Það var ósjaldan sem við fé- lagarnir, þú, ég og Patti, skoppuðum um móana og rákum ný- bornar ærnar upp í Bungu. Þú lést okkur hlaupa eins og við ættum lífið að leysa og við fórum eftir bendingunum þínum og reyndum að vera þér að sem mestu gagni. Elsku afi, takk fyrir allar stund- irnar sem við áttum og það ætla ég að vona að þeir eigi rauðan Opal þarna á betri staðnum. Þinn Pálmi Vilhjálmsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.