Morgunblaðið - 27.12.2005, Síða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Lífið líkist kappleik í dag og hrúturinn
nýtur sín engan veginn á vara-
mannabekknum. Klæddu þig upp og
búðu þig undir að fá sæti í liðinu. Tvíburi
og vog taka höndum saman með þér og
tryggja velgengni.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Sígildar en oft og tíðum gleymdar ráð-
stafanir, svo sem mikið af vatni og góður
svefn, hjálpa nautinu að takast á við
streitu. Það getur tekist á við hvað sem
að höndum ber, ef út í það er farið. Fjöl-
skyldumeðlimir gefa ráð óumbeðnir, en
af mikilli ást.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Að fórna sér annað veifið er aðdáun-
arvert, en síendurtekin fórnfýsi er sjúk-
leg. Þitt fyrsta verk er að hugsa vel um
sjálfan þig. Ekki láta aðra komast upp
með að notfæra sér þig.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Krabbinn er loksins í félagsskap ein-
hvers sem ögrar honum á vitsmunalega
sviðinu. Upplýsingar og hugmyndir
flæða óhindrað á milli. Til allrar ham-
ingju lumar krabbinn á hvoru tveggja.
Ekki hika við að láta reyna á þínar und-
arlegustu kenningar.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Nú er tími til þess að fara úr vits-
munalega hamnum yfir í þann lík-
amlega; hugsaðu minna og framkvæmdu
meira. Líkaminn hefur sitt eigið vit, sem
er dýpra, eldra og næmara en hugsunin.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Taktu hliðarskref í vinnunni sem
gagnast þér betur til langs tíma litið á
framabrautinni. Fólk í kringum þig
þekkir hæfileika þína, þótt það þurfi
kannski smá tíma til að átta sig á þeim.
Að halda snilld sinni leyndri fór úr tísku í
síðustu viku.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þekktur fjármálasérfræðingur segir:
„Allsnægtir eru að finna til ríkidæmis,
hvort sem maður á peninga eða ekki.“ Í
dag færðu tækifæri til þess að sýna fram
á auðlegð þína á allan hátt. Bogmaðurinn
er þessu til sannindamerkis.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Leiktu, þjálfaðu og elskaðu; það er hin
fullkomna blanda. Jafnvægið þarna á
milli fyllir hjarta þitt og bætir þar að
auki heilsuna á öllum sviðum lífs þíns.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaðurinn er einbeittur og staðráð-
inn. Í þekktu lagi eftir bogmanninn
Nelly Furtado segir: Ég er eins og fugl,
ég flýg bara í burtu. Þannig var þemað í
þínu lífi til skamms tíma, en ekki lengur.
Þú veist hvar þú átt heima, vísbending:
það er þar sem hjartað er.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitin blandar geði við fólk sem líkt
er við rjómann af samfélaginu. Fataval
hefur áhrif á viðhorf þitt. Hugsaðu fram
í tímann og gakktu úr skugga um að þú
sért nógu vel til fara til þess að láta þér
líða vel innan um þá efnameiri.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberinn hefur gutlað í ótilgreindu
verkefni í nokkurn tíma og er nú að
verða búinn. Haltu þig við efnið, það
verður þess virði þegar upp er staðið. En
það hefur þú reyndar vitað allan tímann.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn er í sátt og samlyndi við sitt
nánasta umhverfi og sýnir það að meira
eða minna leyti. Tónlistin vellur upp úr
honum. Syngdu í bílnum, stappaðu,
klappaðu og leiktu á takkana á símanum
þínum.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Mars (framkvæmdaorka)
og Satúrnus (samdráttur)
togast á, og maður spyr sig
(snilldarlega), hvað er raunverulega
þess virði að berjast fyrir? Átökin milli
þeirra hafa varað síðan í byrjun nóv-
ember og halda áfram fram á nýtt ár, en
dagurinn í dag markar tímamót. Ein-
hverjir ákveða að gefa eftir í rifrildi, laga-
deilum eða í prívatherferð.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 notandi, 8 búa
til, 9 megnar, 10 ílát, 11
skrika til, 13 hefur und-
an, 15 vel verki farinn, 18
lítið, 21 umfram, 22
dreng, 23 eldstæði, 24
ímyndunarafl.
Lóðrétt | 2 víðan, 3 ífæra,
4 ganga hægt, 5 kvendýr-
ið, 6 dálítið súr, 7 þrjósk-
ur, 12 tölustafur, 14 tek,
15 jó, 16 ávöxt, 17 hund,
18 labbakút, 19 héldu, 20
verkfæri.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 grýla, 4 skæra, 7 lúinn, 8 örlar, 9 ill, 11 unnu, 13
frár, 14 gilda, 15 haug, 17 róma, 20 bak, 22 rabba, 23
íhald, 24 koðna, 25 aktar.
Lóðrétt: 1 guldu, 2 ýtinn, 3 asni, 4 spöl, 5 ætlar, 6 aðrar,
10 lilja, 12 ugg, 13 far, 15 horsk, 16 umboð, 18 ósatt, 19
andar, 20 bana, 21 kíma.
Tónlist
Langholtskirkja | Jólatónleikar kamm-
erkórsins Stöku á Íslandi kl. 20. Hátíðleg
jólastund með þessum unga kór er starfar í
Kaupmannahöfn, íslensk og erlend dagskrá.
Ketilhúsið Akureyri | Jólatónleikar Karla-
kórs Dalvíkur og Gunnars Guðbjörnssonar.
Kl. 18.
Dalvíkurkirkja | Jólatónleikar Karlakórs
Dalvíkur og Gunnars Guðbjörnssonar. Kl. 21.
Fyrirlestrar og fundir
OA-samtökin | OA karladeild fundar á
Tjarnargötu 20, Gula húsinu, kl. 21–22. OA
(Overeaters Anonymous) er félagsskapur
karla og kvenna sem hittast til að finna
lausn á sameiginlegum vanda: Matarfíkn.
www.oa.is.
Myndlist
101 gallery | Jólasýning til 6. jan.
Artótek Grófarhúsi | Sýning á verkum
Bjargar Þorsteinsdóttur til áramóta.
Aurum | Lóa Hjálmtýsdóttir sýnir fígúratíva
mynd sem unnin er með lakki.
Café Babalu | Claudia Mrugowski – Even if
tomorrow is not granted, I plant my tree – á
Skólavörðustíg 22a. Gallerí Húnoghún |
Soffía Sæmundsdóttir til 5. jan.
GUK+ | Hartmut Stockter til 16. jan.
Hafnarborg | Jón Laxdal til 31. desember.
Hallgrímskirkja | Kristín Gunnlaugsdóttir
og Margrét Jónsdóttir til febrúarloka.
Hitt húsið | Sýningin Skúlprút í gallerí Tukt,
Hinu húsinu, Pósthússtræti 3–5. Þar sýna
nemendur af listnámsbraut í FB verk sín.
Sýningarsalurinn er opinn alla virka daga frá
9–17 til 5. janúar 2006.
Hrafnista, Hafnarfirði | Ellen Bjarnadóttir
sýnir í Menningarsal til 7. febrúar.
Iða | Sölusýning á málverkum Þóru Guð-
rúnar Benediktsdóttur til loka janúar 2006.
Kaffi Mílanó | Ingvar Þorvaldsson sýnir
vatnslitamyndir til áramóta.
Kaffi Sólon | Dóra Emils – Heyr himna smið-
ur – til 14. jan.
Karólína Restaurant | Óli G. með sýninguna
Týnda fiðrildið til loka apríl 2006.
Listasafn Einars Jónssonar | Fastasýning.
Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist II –
Um rými og frásögn. Sýning á verkum 13 ís-
lenskra samtímalistamanna. Til 12. febrúar
2006.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið, yfirlitssýning. Til 2006.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Bernd Koberling til 22. janúar.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Guðrún
Vera Hjartardóttir til 30. des. Erró til 23.
apríl.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Jó-
hannes Sveinsson Kjarval. 120 ár frá fæð-
ingu málarans. Til 19. mars.
Listasmiðjan Þórsmörk, Neskaupstað | 10
listakonur frá Neskaupstað sýna á Egils-
staðaflugvelli. Til jan.
Listhús Ófeigs | Dýrfinna Torfadóttir, Rósa
Helgadóttir, Þorbjörg Valdimarsdóttir til árs-
loka.
Ráðhús Reykjavíkur | Helga Birgisdóttir –
Gegga. Málverkasýning sem stendur til ára-
móta.
Skaftfell | Rúna Þorkelsdóttir – Postcards
to Iceland. Opið mán.–föst. 13–16, sun. 15–18.
Smekkleysa Plötubúð – Humar eða frægð
| Jólasýning Lóu og Hulla er myndlistasýn-
ing með jólaþema. Hér eru tveir mynda-
söguhöfundar af krúttkynslóðinni að krota á
veggi.
Yggdrasil | Tolli til 25. jan.
Þjóðarbókhlaðan | Brynjólfur Sveinsson til
áramóta.
Þjóðmenningarhúsið | Á veitingastofunni
Matur og menning í Þjóðmenningarhúsinu
eru sýnd málverk eftir Hjört Hjartarson –
Myndir frá liðnu sumri.
Þjóðminjasafn Íslands | Huldukonur í ís-
lenskri myndlist í Bogasal, til 28. maí. Ljós-
myndir Marco Paoluzzo í Myndasal og ljós-
myndir Péturs Thomsen í Myndasal. Til 20.
febrúar.
Söfn
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýning
Borgarskjalasafns „Býarmenningin Tórs-
havn 1856–2005“ er í Grófarsal, Tryggva-
götu 15, en hún fjallar um þróun og upp-
byggingu byggðar í Þórshöfn í Færeyjum.
Sýningin kemur frá Landskjalasafni Færeyja
og Bæjarsafni Tórshavnar. Á sýningunni eru
skjöl, ljósmyndir, skipulagskort og tölfræði.
Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Borg-
arskjalasafn Reykjavíkur býður upp á
ókeypis gamaldags jólakort til að senda á
vefnum. Skoðaðu slóðina www.borg-
arskjalasafn.is
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn er opinn alla daga nema mánudaga í
vetur frá kl. 10–17. Vönduð hljóðleiðsögn,
margmiðlunarsýning og gönguleiðir. Vel-
komin. www.gljufrasteinn.is
Hönnunarsafn Íslands | Feðginin Erla Sól-
veig Óskarsdóttir, iðnhönnuður, og Óskar L.
Ágústsson, húsgagnasmíðameistari, sýna
verk sín. Sýningin er í tilefni af 85 ára af-
mæli Óskars sem hefur hannað og smíðað
húsgögn frá því hann lauk sveinsprófi árið
1942. Safnið er opið kl. 14–18, lokað mánu-
daga. Til 20. jan.
Þjóðmenningarhúsið | Handritin – saga
handrita og hlutverk um aldir, Þjóðminja-
safnið – svona var það, Fyrirheitna landið –
fyrstu Vestur-Íslendingarnir; mormónar
sem fluttust til Utah, Bókasalur – bókminja-
safn, Píputau, pjötlugangur og diggadaríum
– aldarminning Lárusar Ingólfssonar, og
fleira. Veitingastofa, safnbúð.
Þjóðmenningarhúsið | Í tilefni þess að 50 ár
eru liðin frá Nóbelsverðlaunaveitingunni til
Halldórs Laxness hefur Gljúfrasteinn sett
upp sýningu í bókasal Þjóðmenningarhúss-
ins. Sjá má sjálfan Nóbelsverðlaunapening-
inn, kjólinn sem Auður Laxness klæddist við
afhendingarathöfnina, borðbúnað frá Nób-
elssafninu í Svíþjóð o.fl.
Þjóðmenningarhúsið | Sýnishorn af árangri
fornleifarannsókna sem njóta stuðnings
Kristnihátíðarsjóðs eru til sýnis í anddyri
Þjóðmenningarhússins. Rannsóknirnar fara
fram á Skriðuklaustri, Hólum, Þingvöllum,
Keldudal, Reykholti, Gásum, Kirkjubæj-
arklaustri og Skálholti. Auk þess eru kumla-
stæði um land allt rannsökuð.
Þjóðminjasafn Íslands | Í Þjóðminjasafni Ís-
lands er boðið upp á fjölbreytta fræðslu og
þjónustu fyrir safngesti. Þar eru nýstárlegar
og vandaðar sýningar auk safnbúðar og
kaffihúss. Hlutverk safnsins er að auka og
miðla þekkingu á menningararfi Íslendinga
frá landnámi til nútíma. Opið alla daga nema
mánudaga kl. 11–17.
Fréttir og tilkynningar
Happdrætti bókatíðinda | Dregin hafa verið
eftirtalin númer í Happdrætti Bókatíðinda
2005: 1. des. 80830; 2. des. 102216; 3. des.
37782; 4. des. 89546; 5. des. 99701; 6. des.
24160; 7. des. 78604; 8. des. 55009; 9.
des. 52268; 10. des. 96479; 11. des. 56130;
12. des. 58994; 13. des. 94269; 14. des.
14075; 15. des. 96301; 16. des. 60379; 17.
des. 7744; 18. des. 84324; 19. des. 74862;
20. des. 12641; 21. des. 99986; 22. des.
4785; 23. des. 664; 24. des. 27004.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is