Fréttablaðið - 09.04.2003, Blaðsíða 12
12 9. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR
KONUNGLEG HEIMSÓKN
Karl Gústaf Svíakonungur ræðir við Ion
Iliescu, forseta Rúmeníu, skömmu eftir
komu hins fyrrnefnda til Búkarest. Kon-
ungurinn sænski var í stuttri opinberri
heimsókn í Rúmeníu.
VÍMUEFNI Vestfirskir unglingar lifa
mun heilbrigðara lífi en félagar
þeirra í öðrum landshlutnum ef
litið er til notkunar vímuefna. Á
vefslóðinni bb.is er sagt frá því að
áfengisdrykkja og hassnotkun
nemenda í 10. bekk í Ísafjarðar-
bæ, Súðavík og Bolungarvík vorið
2002 hafi verið langt undir lands-
meðaltali. Vitnað er til þess að
Hera Hallbera Björnsdóttir hjá
Rannsóknum og greiningu ehf.
kynnti þessar niðurstöður á opn-
um fundi VáVest-hópsins á norð-
anverðum Vestfjörðum á Hótel
Ísafirði.
Á öllu svæðinu hefur vímu-
efnaneysla unglinga í 10. bekk
minnkað frá árinu 1997 þótt
sveiflur séu á milli ára. Byggt er á
árlegum könnunum sem gerðar
eru meðal 10. bekkinga um land
allt á vorin.
Í könnun Rannsókna og grein-
ingar var spurt hvort nemandi
hefði orðið ölvaður einu sinni eða
oftar síðustu 30 daga. Árið 2002
svöruðu 8% nemenda í Ísafjarðar-
bæ og 16% nemenda í Bolungar-
vík og Súðavík spurningunni ját-
andi. Á landsvísu svöruðu hins
vegar 26% nemenda spurning-
unni játandi.
Árið 1997 svöruðu 40% nem-
enda í 10. bekk í Ísafjarðarbæ
spurningunni játandi og 46%
nemenda í Bolungarvík og Súða-
vík. Þá var landsmeðaltalið aftur
á móti 37%. Þarna hefur því orðið
mikil breyting á. ■
ÍSAFJARÐARBÆR
Unglingarnir eru svæði sínu til sóma.
Vestfirðir:
Vímulausir unglingar
Gríðarleg reiði
um alla Austfirði
LÍFEYRIR „Mín skoðun er sú að
stjórn sjóðsins verði að hugsa al-
varlega sinn gang og hvort það
fólk sem þar situr njóti trausts
fólksins,“ segir Jón Ingi Þor-
steinsson, for-
maður Afls –
starfsgreinafé-
lags og Alþýðu-
sambands Aust-
urlands, um
milljarðs tap
L í f e y r i s s j ó ð s
Austurlands og starfslokasamn-
ing Gísla Marteinssonar, fráfar-
andi framkvæmdastjóra, sem
fékk 29 milljónir króna þegar
hann hætti og sjóðurinn fór í
vörslu Kaupþings. Um sama leyti
keypti lífeyrissjóðurinn hús fram-
kvæmdastjórans, sem flutti frá
Neskaupstað. Sjóðurinn átti húsið
um tíma en seldi það síðan á verði
sem var undir kaupverðinu. Gísli
sagði að milljónirnar 29 hefðu
komið sér á óvart þar sem hann
hefði ekki beðið um neitt.
Jón Ingi segir að mál þetta
verði tekið fyrir á aðalfundi Afls
sem haldinn verður í næstu viku.
Þá muni hann einnig taka það fyrir
á aðalfundi Alþýðusambands Aust-
urlands sem haldinn verður í maí.
Hann segir að þar verði ákveðið
með hvaða hætti stjórn sjóðsins
verði kölluð til ábyrgðar fyrir
meinta óráðsíu.
Jón Ingi segist hafa heyrt í fjöl-
mörgum félagsmönnum sem eigi
það sameiginlegt að vera reiðir.
„Það er gríðarleg reiði meðal
Austfirðinga vegna þess hvernig
komið er fyrir sjóðnum. Það virð-
ist vera sem keypt hafi verið hluta-
bréf í erlendum fyrirtækjum á
borð við knattspyrnufélagið Stoke
án þess að stjórn sjóðsins hafi ver-
ið með í ráðum. Þetta veit hinn al-
menni sjóðfélagi og er reiður,“
segir Jón Ingi.
Hann segir það vera sitt hlut-
verk að gæta hagsmuna umbjóð-
enda sinna innan þeirra félaga
þar sem hann er formaður.
„Á ársfundi lífeyrissjóðsins í
lok maí mun afstaða okkar liggja
fyrir. Það er skylda mín að fara í
gegnum þetta mál,“ segir Jón
Ingi.
rt@frettabladid.is
REYÐARFJÖRÐUR
Fólki er mjög brugðið vegna stórtaps Lífeyrissjóðs Austurlands.
„Það er
skylda mín að
fara í gegn-
um þetta mál.
BÓKAÚTGÁFA „Mér líst ákaflega vel
á þetta og verður gaman að sjá
efndir,“ segir Jóhann Páll Valdi-
marsson útgefandi.
Afnám virðisaukaskatts á bæk-
ur og stórfelld lækkun hans á ís-
lenska tónlist, eða niður í 7%,
verður meðal forgangsverka
Samfylkingarinnar ef hún leiðir
næstu ríkisstjórn, sagði Össur
Skarphéðinsson í lok vorþings
Samfylkingarinnar, sem lauk á
Hótel Sögu í gær.
Það gladdi hjarta Jóhanns Páls
þegar hann sá Davíð Oddsson lofa
því á landsfundi að lækka skattinn
um helming. „En Samfylkingin
býður betur. Í mínum huga er eng-
in spurning að fella á þennan skatt
niður og það segi ég ekki bara
sem hagsmunaaðili. Fyrir utan
menningarlegt mikilvægi þá mun
það jafnframt skila fleiri krónum
í ríkiskassann. Í ljósi gjaldþrota í
bókaútgáfu er ekki vanþörf á
stuðningi.“
Össur sagði að afnám bóka-
skatts treysti mjög stöðu bókar-
innar, sem væri ein af burðarstoð-
um íslenskunnar, en lækkaði líka
verð á fokdýrum skólabókum og
nýttist því námsmönnum vel.
Hann sagði líka löngu tímabært
að íslenskri tónlist, ekki síst sí-
gildri tónlist, yrði gert hærra und-
ir höfði og virðisaukaskattur á
henni minnkaður. Samfylkingin
vill lækka hann úr 24,5% í 7%.
Í lokaræðunni sagði Össur að
hann myndi persónulega beita sér
fyrir því í ríkisstjórn að sérstakur
sjóður yrði settur á laggirnar til
að styrkja útflutning á íslenskri
tónlist og gera hana að útflutn-
ingsvöru eins og íslenskar kvik-
myndir. ■
JÓHANN PÁLL VALDIMARSSON
Varð glaður þegar hann sá Davíð lofa á
landsfundi að lækka virðisaukaskattinn um
helming, en nú býður Össur betur.
Samfylkingin vill fella niður virðisaukaskatt bóka:
Össur býður betur en Davíð
Apar í útrýmingarhættu:
Veiðiþjófar
og ebóla
ógna öpum
LOS ANGELES, AP Á innan við 20
árum hefur öpum í Vestur-Afríku
fækkað um rúmlega helming
vegna veiðiþjófnaðar og ebólu,
samkvæmt nýrri rannsókn sem
birtist í tímaritinu Nature. Rann-
sóknin þykir staðfesta enn og aft-
ur að villtir apastofnar séu í
bráðri útrýmingarhættu.
Þessi mikla fækkun er einkum
rakin til veiðiþjófnaðar en kjöt af
öpum er afar eftirsótt á meðal
heimamanna. Skæðir faraldar
ebólu hafa einnig tekið sinn toll af
apastofnunum.
Með sama áframhaldi mun öp-
unum fækka um 80 prósent á
næstu 33 árum, að sögn vísinda-
manna. Mælt er með því að komið
verði á fót fleiri verndarsvæðum
og gerðar frekari rannsóknir á
ebóluveirunni til þess að vinna
gegn þessari þróun. ■
ENGINN HRYÐJUVERKAMAÐUR
Flokkur Jose Maria Aznar, for-
sætisráðherra
Spánar, hefur
kært basknesk-
an þingmann
fyrir að líkja
forsætisráð-
herranum við
hryðjuverka-
mann. Það
gerði þingmað-
urinn vegna
stuðnings Azn-
ars við innrás í
Írak.
■ Evrópa
Formaður Alþýðusambands Austfjarða segir að sjóðfélögum í Lífeyris-
sjóði Austurlands sé brugðið og stjórn sjóðsins verði að hugsa sinn gang.
Málefni sjóðsins tekin fyrir innan verkalýðshreyfingarinnar.
Í ÚTRÝMINGARHÆTTU
Öpum mun fækka um 80 prósent á næstu
33 árum, að sögn vísindamanna.