Fréttablaðið - 09.04.2003, Qupperneq 22
9. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR22
DAREDEVIL b.i. 16 kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.20 SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 4
TWO WEEKS NOTICE kl. 6
THE HUNTED b.i. 16 kl. 5.50, 8, 10.10
THE RING b.i. 16 kl. 10.10
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20
Sýnd í lúxus kl. 8
Sýnd kl. 6 og 9 b.i. 14 ára
kl. 6, 8 og 10NÓI ALBINÓI
kl. 88 FEMMES
kl. 6 og 8CRUSH
kl. 10ADAPTATION
kl. 5.30 og 10.05NOWHERE IN AFRICA
Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 12 ára
Sýnd í lúxus kl. 6 og 10
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 b.i. 16 ára
THUNDERPANTS kl. 4
25th HOUR kl. 10
4 og 6DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN
Sýnd kl. 6 og 9
CHICAGO Sýnd í lúxus kl. 5.30 og 10.30
NATIONAL SECURITY bi 12 4, 6, 8, 10
Það verður ekki af þeim félögumJackie Chan og Owen Wilson
tekið að þeir eru skemmtilegir
þannig að það er eiginlega ekki
hægt að láta sér leiðast yfir Shang-
hai Knights. Chan er hér á kunnug-
legum slóðum og söguþráðurinn er
hálfgert ljósrit af öðrum myndum
hans, skyldleikinn við aðra vinsæla
framhaldsmyndaseríu hans, Rush
Hour og Rush Hour 2, er til dæmis
augljós.
Þáttur Wilsons í Shanghai-
myndunum verður seint vanmetinn
enda óvenju sjarmerandi og
skemmtilegur leikari og þó maður
sé löngu búinn að fá sig fullsaddan
af Chan að slást með stigum, regn-
hlífum og öðrum búsáhöldum þá
leiðist manni aldrei á meðan Wilson
kemur með heilbrigt mótvægi og
mátulegan fíflagang.
Sagan er ekki upp á marga
fiska, enda aukaatriði í myndum á
borð við þessa. Slagsmálin og grín-
ið eru aðalmálið og þar gengur allt
upp. Þeir félagar skjótast úr villta
vestrinu til London á tímum Viktor-
íu drottningar þar sem þeir fletta
ofan af miklu samsæri. Ýmsar
þekktar persónur skjóta upp kollin-
um, m.a. Jack the Ripper og sjálfur
Charlie Chaplin. Þáttur þessara
ágætu manna þolir vitaskuld enga
söguskoðun en býður upp á ágætis
brandara auk þess sem það er eitt-
hvað póstmódern við þetta þar sem
Jackie Chan hefur einmitt verið
eyrnamerktur Chaplin nýrra tíma.
Þórarinn Þórarinsson
SHANGHAI KNIGHTS
Leikstjóri: David Dobkin
Aðalhlutverk: Jackie Chan, Owen Wilson
Eftir stutta lýsingu á sýningunni„Puppetry of the Penis“ er
kannski ekki undarlegt að lögreglan
í borginni hafi verið treg til þess að
gefa samþykki sitt.
„Þetta byggir mest á því að þeir
eru naktir á sviðinu og eru að stunda
það sem er kallað á japönsku origani.
Það þýðir að þeir búa til skúlptúra úr
pappír með tólunum á sér,“ útskýrir
Sigursteinn Halldórsson, talsmaður
Prom.is sem flytur typpalingana til
landsins. „Þeir bretta pappírinn og
flétta og búa til fígúrur með tólunum
á sér. Þetta er bara góðlátlegt grín
sem gert er að karlmannslíkamanum
og sýnir hvað er hægt að gera með
þessu setti.“
Sýningin hefur farið sigurför um
heiminn. Hún hefur verið sýnd fyrir
fullu húsi í New York, London og
Sydney svo mánuðum skiptir.
Typpalingarnir hafa einnig komið
fram og sýnt listir sínar í spjallþátt-
um Jay Leno og
David Letterm-
an. Sjálfur seg-
ist Sigursteinn
hafa fengið hugmyndina að flytja þá
hingað til lands eftir að hafa séð þá í
raunveruleikasjónvarpsþætti Önnu
Nicole Smith.
Typpalingarnir þurfa að vera
naktir til þess að framkvæma kúnst-
ir sínar en það er víst ekki nauðsyn-
legt að vera „með fullri reisn“. Sig-
ursteinn vill taka það fram að ekkert
klámfengið sé við sýninguna og allt
sé í gamni gert. Það var örugglega
mun erfiðara fyrir hann að sannfæra
yfirvöld en almenning.
„Fyrst var ég kallaður á fund til
lögreglunnar þar sem helstu yfir-
menn voru staddir. Þeir ákváðu að
þetta væri fyrir utan velsæmismörk.
Okkur fannst það út í hött, sérstak-
lega þar sem hægt er að finna margt
í Reykjavík sem er grófara. Við
kærðum úrskurðinn til Dómsmála-
ráðaneytisins og sýndum þeim þetta.
Þeim var skemmt og sáu ekkert að
þessu.“
Sýningin opnar í Austurbæ þann
23. apríl og verður sýnd nokkur
kvöld í röð. Skemmtunin er rúmlega
klukkustunda löng og geta áhuga-
samir m.a. fengið að sjá typpaling-
ana smíða eftirmyndir af hamborg-
urum, pylsum, skartgripum, ýmsum
lífverum og þekktum kennileitum
borga úr pappa með sínum nánustu
líkamspörtum.
Sigursteinn tryggði sér sýninga-
réttinn í Skandinavíu og fer með
typpalingana yfir til Kaupmanna-
hafnar eftir að þeir hafa lokið sér af
hér á klakanum.
biggi@frettabladid.is
■ SÝNING
Umfjöllunkvikmynd
Kínverskur
kúreki í London
PUPPETRY OF
THE PENIS
Þessir piltar, Simon
og Friendy, hófu
víst snemma að
grandskoða sína
nánustu útlimi og
áttuðu sig snemma
á notagildinu.
SPÉFUGLAR
Sýningin þykir hnyttin og alger
óþarfi fyrir fólk að hneykslast
þótt sitthvað sé til sýnis.
Typpalingar á
leið í Austurbæ
Eftir tvær vikur hefst afar sérstök sýning í Austurbæ þar sem tveir menn smíða
pappaskúlptúra með sínum allra nánustu líkamspörtum. Erfiðlega gekk að fá leyfi
yfirvalda fyrir sýningunni.