Fréttablaðið - 09.04.2003, Síða 30
Hrósið
30 9. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR
Ég bjó í Hlíðunum fyrstu árin enflutti í Kleppsholtið þegar ég
var í kringum tólf ára,“ segir Már
Guðmundsson, aðalhagfræðingur
Seðlabankans. „Ég var í Vogaskóla
og tilheyrði hinu alræmda Voga-
skólagengi.“
Már fór svo í Menntaskólann
við Tjörnina og útskrifaðist þaðan
1974 og var í öðrum útskriftarár-
gangi skólans. „Ég tók mér hlé að
loknu stúdentsprófi en fór síðan til
Svíþjóðar og var eitt ár í háskóla í
Gautaborg. Þaðan fór ég til Eng-
lands og lauk hagfræðiprófi frá
Essex árið 1979 og m.phil prófi frá
Cambridge árið eftir. Þá lá leiðin
heim og í Seðlabankann þar sem ég
vann sem hagfræðingur nánast
sleitulaust frá 1980 til 1987.“
Þá fór Már aftur til Cambridge í
einn vetur í doktorsnám. Þegar
hann kom heim aftur gegndi hann
starfi efnahagsráðgjafa Ólafs
Ragnars Grímssonar, þáverandi
fjármálaráðherra, til 1991. Þá fór
hann aftur í Seðlabankann þar sem
hann kann mjög vel við sig. Hann
var fyrst forstöðumaður á hag-
fræðisviði en tók síðar við starfi
aðalhagfræðings.
Eiginkona Más er Elsa S. Þor-
kelsdóttir lögfræðingur og þau
eiga þrjú börn á aldrinum átta til
nítján ára en þar fyrir utan er einn
hundur á heimilinu sem sér um að
húsbóndinn hreyfi sig reglulega.
Foreldrar Más eru Guðmundur
Magnússon heitinn, verkfræðing-
ur, og Margrét Tómasdóttir, sem
starfaði meðal annars lengi á
flokksskrifstofu Alþýðubandalags-
ins. Már segist hafa verið nokkuð
virkur í pólitíkinni þegar hann var
í menntaskóla og hafa starfað inn-
an Alþýðubandalagsins þegar hann
vann með Ólafi Ragnari. „Ég hef
lítið skipt mér af pólitíkinni eftir
að ég byrjaði í því starfi sem ég er
í núna. Það er orðinn ansi langur
tími þannig að ég er frekar ryðgað-
ur í henni.“
Persónan
MÁR GUÐMUNDSSON
■ er aðalhagfræðingur Seðlabanka Ís-
lands en hann hefur eytt lunganum úr
starfsævi sinni hjá bankanum. Hann var
um skeið efnahagsráðgjafi Ólafs Ragnars
Grímssonar fjármálaráðherra, en hefur
ekki komið nálægt pólitík síðan þá.
...fær Árni Magnússon, for-
maður bæjarráðs Hveragerðis,
sem ætlar að skoða gaumgæfilega
beiðni þríburaforeldra í bænum
um afslátt af leikskólagjöldum.
Fréttiraf fólki
Ryðgaður í pólitíkinni
■ Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal tekið fram að Saddam
Hussein var ekki að sniffa gas þegar ein af
forsetahöllum hans sprakk í loft upp.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Már Guðmundsson.
Heilkenni alvarlegrar bráðrar
lungnabólgu.
Fritz.
MÁR GUÐMUNDSSON
„Vinnan er þannig að það er ósköp lítill
tími fyrir önnur áhugamál en fjölskylduna
en annars er ég mikið fyrir það að stunda
útiveru og hreyfingu og fer mikið út að
labba með hundinn. Þá hef ég mjög gam-
an af ferðalögum bæði innanlands og er-
lendis og svo les ég mikið.”
Mjódd • Dalbraut • Austurströnd
1000 kr. tilboð
TILBOÐ sótt kr. 1.000
Stór pizza með
4 áleggstegundum
®
Mjódd • Dalbraut • Austurströnd
Verslanir NEXT eru Íslending-um að góðu kunnar og fjöl-
margir sem fara ekki til Bret-
lands nema eiga þar viðkomu. Frá
og með fimmtudeginum geta Ís-
lendingar hins vegar verslað í
NEXT án þess að leggja í langferð
yfir hafið.
Eigendur verslunarinnar á Ís-
landi eru Ragnhildur Anna Jóns-
dóttir og Sverrir Berg Steinars-
son. Þau segja NEXT skemmti-
lega viðbót á markaði og að
áhersla verði lögð á fjölskyldu-
væna stemmningu. „Við höfum
rekið verslunina Noa Noa í nokk-
ur ár, en fannst vanta verslun af
þessu tagi, þar sem fólk getur
komið og keypt fatnað á alla fjöl-
skylduna, frá fæðingu og upp úr.
Þá er líka til sölu hjá okkur
skemmtileg gjafavara.“
Þau segja að þrátt fyrir að versl-
unin sé deildaskipt og skiptist í
dömu-, herra- og barnadeild eigi
viðskiptavinir að geta fundið fyrir
svokallaðari „boutique“-tilfinningu.
„Við ætlum að vera með leðurstóla
og bjóða upp á kaffihorn svo og að-
stöðu fyrir krakkana þar sem þau
geta horft á myndbönd eða leikið
sér í fallegu umhverfi og hvílt sig
þegar þau eru orðin þreytt á búða-
rápinu.
Stemningin verður sem sagt afar
fjölskylduvæn.“
NEXT er breskt fyrirtæki með
um 35.000 starfsmenn og skráð í
Kauphöllinni í London. „Við höfum
lært mikið á viðskiptum okkar við
NEXT,” segir Ragnhildur Anna.
„Fyrirtækið er gríðarlega stórt og
rekur fjölmargar verslanir í Bret-
landi og Asíu. Þetta er 380. verslun-
in sem er opnuð undir merkjum
NEXT og hin fyrsta í Norður-Evr-
ópu. Við hlökkum mikið til að bjóða
viðskiptavini velkomna og erum
stolt af því að geta boðið Íslending-
um upp á þessar vörur hér heima,
og á góðu verði.“
Verslunin opnar sem fyrr segir á
fimmtudag og er á 2. hæð Kringl-
unnar, þar sem Nanoq var áður, við
hlið verslunarinnar BOSS. ■
Davíð Oddsson forsætisráð-herra opnaði á dögunum
nýja og endurbætta heimasíðu
Heimdallar á slóðinni
www.frelsi.is. Her manns hefur
umsjón með vefnum þannig að
reikna má með hressilegum
greinaskrifum á endaspretti
kosningabaráttunnar enda
munu valinkunnir hægripennar
láta til sín taka. Nægir þar að
nefna Ingva Hrafn Óskarsson,
aðstoðarmann dómsmála-
ráðherra, Jón Hákon Halldórs-
son, Magnús Þór Gylfason,
Margréti Einarsdóttur, Ragnar
Jónasson, Sigurð Kára Krist-
jánsson þingmannsefni, Sig-
þrúði Ármann, Tinnu Trausta-
dóttur og einn öflugasta
málsvari Sjálfstæðisflokksins á
Netinu, norðanhaukinn Stefán
Friðrik Stefánsson.
NÝ VERSLUN Í KRINGLUNNI
NEXT býður upp á fatnað fyrir alla fjölskylduna. Engar undirlínur eru í fyrirtækinu, en öll framleiðsla er undir vörumerkinu NEXT.
EIGENDUR NEXT
Ragnhildur Anna Jónsdóttir og
Sverrir Berg Steinarsson.
Þarf ekki lengur
til London
Á morgun, fimmtudag, verður opnuð í Kringlunni fyrsta NEXT-versl-
unin á Íslandi og jafnframt á Norðurlöndum. Verslunin verður á 800
fermetrum og hefur undirbúningur staðið síðastliðna fimmtán mánuði.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M