Fréttablaðið - 09.04.2003, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 9. apríl 2003
Gefur út sögur á Netinu:
Ófeiminn og lendir í öllum fjáranum
RITHÖFUNDUR Ólafur Þór Eiríksson
dó ekki ráðalaus þegar útgefandi
hans treysti sér ekki til að gefa sög-
urnar hans út vegna blankheita.
Hann setti þær út á Netið og nú get-
ur hver sem er keypt þær á 500 kall
stykkið á vefnum netsaga.is. Vefur-
inn hefur verið opinn í á annan mán-
uð og töluvert heimsóttur, þrátt fyr-
ir litla kynningu.
Ólafur er að vinna að því þessa
dagana að gera enska útgáfu vefjar-
ins. Hann þýðir sögurnar sjálfur á
ensku. „Ég er háskólamenntaður í
ensku og maður verður að nýta
menntunina.“
Fyrsta sagan er lífsreynslusaga
hans sjálfs. Saga ungs pilts sem
horfir á eftir tveimur félögum sín-
um í bílslysi og er sjálfur öryrki á
eftir. „Ég var lamaður frá hálsi. Í
dag er ég labbandi og dansa um
hverja helgi,“ segir Ólafur. Ári eftir
slysið var hann sestur í Kennara-
skólann. Mjög fatlaður.
Ólafur segist hafa skrifað frá
táningsaldri og töluvert í blöð á und-
anförnum árum. Fyrsta sagan lýsir
baráttu hans við afleiðingar slyss-
ins. Hann segist sækja söguefnin í
eigið líf. „Ég er svo ófeiminn þannig
að ég lendi í öllum fjáranum.“ segir
Ólafur og hlær. „Engu hættulegu
samt.“ Hann segist nýta sér það
sem hann lendir í sem söguefni.
„Svo krydda ég það pínulítið.“ ■
REKSTRARERFIÐLEIKAR Einn glæsileg-
asti sproti íslenskrar nýsköpunar
í tískuheiminum er kominn að fót-
um fram. Reykjavík Collection,
sem byggði fataframleiðslu á eig-
in hönnun og bauð vöru sína til
sölu í 150 verslunum í Evrópu,
rær nú lífróður til að minnka fjár-
hagsskaða eigenda sinna og upp-
gjöfin blasir við:
„Þetta er farið til fjandans og
ekki annað að gera en að loka og
setja punktinn,“ segir Jón Árna-
son tölvunarfræðingur, sem
keypti fyrirtækið fyrir hálfu ári
ásamt öðrum fjárfestum og hefur
síðan ekki séð til lands. Gerist það
þrátt fyrir aðkomu Nýsköpunar-
sjóðs, sem í tvígang hefur sett fé í
fyrirtækið. Fyrst á meðan það hét
Reykjavík Clothing og síðar í arf-
taka þess, Reykjavík Collection.
Tapið hleypur á tugum milljóna.
Hugmyndin að öllu saman er
komin frá hjónunum Gunnari
Hilmarssyni og Kolbrúnu Gunn-
arsdóttur, sem saman reka GK-
verslanirnar í Kringlunni og við
Laugaveg. Eftir að þau seldu
Reykjavík Collection hafa þau
haldið áfram að hanna eigin tísku-
línu í fatnaði undir nafninu GK en
lengst af voru vörur Reykjavík
Collection seldar í verslunum
þeirra. Gunnar Hilmarsson segir
GK-verslanirnar ganga vel,
reyndar miklu betur nú en áður,
og Reykjavík Collection sé ekki
lengur þeim viðkomandi.
Um tíma var fyrirtækið með
skrifstofu í Kaupmannahöfn, hélt
þar miklar tískusýningar og varð
vel ágengt í sölumennsku. Þótti
hönnunin nýstárleg og framsetn-
ing öll í takt við það besta sem
gerist í þessum geira. En úti er
ævintýri. Margt fer öðruvísi en
ætlað er. Skaðinn ef til vill mestur
hjá ungum fatahönnuðum sem
þarna áttu möguleika sem að öðru
jöfnu gefast ekki.
eir@frettabladid.is
ERFIÐ LÍFSREYNSLA
Ólafur Þór Eiríksson slasaðist alvarlega í bílslysi sem ungur maður. Hann skrifar sögur á
Netinu og dansar um hverja helgi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
REYKJAVÍK COLLECTION
Miklar vonir voru bundnar við útrás íslenskrar hönnunar á vegum fyrirtækisins. Þær vonir
eru óðum að deyja.
Tíska
■ Eftir glæsilega byrjun, smart hönnun
og góðar vonir virðist útséð með Reykja-
vík Collection. Þrátt fyrir aðkomu Nýsköp-
unarsjóðs og sterkra fjárfesta verður fyrir-
tækinu ekki bjargað.
Reykjavík
Collection rúllar