Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.04.2003, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 09.04.2003, Qupperneq 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 '=*>   9   2#  &4 #  4 *   !$&$'6&(,?->!@' A  + 7#2B 0*. 7#;-$7;* .; D    ; ( ; /. ;  2 //( ;. . ; .A / D./   / .A  */  / Bakþankar ÞRÁINS BERTELSSONAR Eitt helsta vandamálið sem maðurstendur frammi fyrir þegar líða tekur á ævina er að ekki skuli vera leyfilegt að taka með sér yfir móð- una miklu þá fjármuni sem manni hefur tekist að reyta saman. Svo er sagt að jarðneskir peningar gildi ekki í himnaríki og jafnvel ennþá síður á verri staðnum. Það er því annað en skemmtilegt að strita við að spara og leggja fyrir og fjárfesta og nurla alla sína daga og þurfa svo að rjúka burt þegar kallið kemur og fá hvorki að taka með sér buddu, seðlaveski, tékkhefti né krítarkort. ÝMSAR RÁÐSTAFANIR hafa þó verið gerðar til að hlífa eldri borg- urum við því að þurfa að yfirgefa uppsöfnuð auðæfi þegar þeir hverfa á brott. Til dæmis hafa svonefndir lífeyrissjóðir tekið að sér að brenna upp verðmætum sem fólk hefur safnað í sveita síns andlits; sömu- leiðis taka margir lífeyrissjóðir að sér að gerast einkaerfingjar sjóðfé- laganna ef þeir hrökkva upp af frá óbrunninni inneign í sjóðnum. LÆKNAR OG LYFSALAR virð- ast líka gera sér góða grein fyrir líknarhlutverki sínu og leggjast á eitt um að hjálpa fólki að eyða fjár- munum sínum hérna megin grafar. Mikið átak hefur verið gert á þessu sviði, meðal annars má nefna að greiðslur sem gamalt fólk fær að inna af hendi vegna sérfræðilegrar læknishjálpar hafa hækkað um 260% frá árinu 1999 sem kemur sér ákaflega vel. EN ÞAÐ ER auðvitað ekki nóg að læknisþjónustan sé kostnaðarsöm ef lyfin eru ódýr. Enda hafa lyfsalar sýnt þessu máli mikinn skilning og axlað ábyrgð sína með því að hækka lyf um 60% frá árinu 1998. Þetta er að vísu ekki mikil hækkun, en þó verður að skoða hana í ljósi þess að íslenskum lyfsölum hefur tekist að byggja hér upp 40-60% hærra lyfja- verð en þekkist á hinum Norður- löndunum. Stjórnvöld hafa líka stutt myndarlega við bakið á eldri borg- urum og forðað því að ellilífeyris- greiðslur hækki í samræmi við aðr- ar verðlagshækkanir í þjóðfélaginu. Það er ánægjulegt að sjá hversu mikil samstaða hefur náðst um það jafnréttis- og sanngirnismál að fólk fái að fara héðan jafnauralaust og það var þegar það fæddist. Óþarfar áhyggjur

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.