Fréttablaðið - 11.04.2003, Síða 24
26 11. apríl 2003 FÖSTUDAGUR
Íslenski iðnjöfurinn sem hafði for-
göngu um uppgröftinn á beinum
Jónasar hét Sigurjón Pétursson.
Hann rak klæðaverksmiðju á Ála-
fossi í Mosfellssveit, ekki langt frá
Reykjavík, og var þekktur fyrir
áhuga sinn á sálarrannsóknum og
lífinu fyrir handan. Hann vantaði
tvö ár í sextugt árið 1946. Það er
ónákvæmt hjá Kundera í Fáfræð-
inni að sál Jónasar hafi vitjað iðn-
jöfursins í draumi. Sigurjón kvaðst
hafa verið í miðilssambandi við
Jónas og raunar fleiri framliðna Ís-
lendinga um árabil. „Maður ræður
ekki hver kemur til manns og talar
við mann,“ lét hann hafa eftir sér
skömmu eftir misheppnaða tilraun
sína til að jarðsetja beinin á heima-
slóðum skáldsins. „Og Jónas spurði
mig, „hvort ég ætlaði að láta það
verða, að hann hvíli áfram í danskri
moldu““.
Á hinn bóginn er ljóst að Sigur-
jón, líkt og Kundera, sá tilstandið
með bein Jónasar fyrir sér sem til-
brigði við Heimferðina miklu.
Kveðjuræða sem hann flutti yfir
kistunni í kirkjunni á Bakka í Öxna-
dal, fæðingarsveit Jónasar, er til
marks um þetta. Þar segist Sigur-
jón hafa flutt skáldið heim „fyrir
það, að ég trúði þér, þegar þú komst
til mín og baðst mig um að hjálpa
þér heim úr útlegðinni. Ég fann þrá
þína til heimkynna þinna – til þinna
bernsku heimkynna – hingað, þar
sem þú fæddist – hingað, þar sem
þú sleizt þínum barnsskóm – hingað
heim, þar sem þínir bernsku
draumar eru – hingað heim, þar
sem foreldrar þínir hvíla. – Vertu
velkominn. Vertu hjartanlega vel-
kominn.“ ■
MILAN KUNDERA
Skrifaði um beinamálið í skáldsögu sinni,
Fáfræðinni.
„Vertu hjartanlega
velkominn“
Flíspeysur 3.890 nú kr. 1.945,-
Flísvesti 2.990 nú kr. 1.495,-
Regnjakkar 4.990 nú kr. 2.495,-
Regnbuxur 2.990 nú kr. 1.495,-
Strigaskór 4.990 nú kr. 2.495,-
Gönguskór 10.990 nú kr. 5.495,-
Buxur, bolir, skyrtur,
regngallar ofl. ofl.
Mikið úrval
Reykjavík - Faxafeni 12 Sími 533-1550 Opið virka daga 10 – 18 Laugard. 11 – 16
Keflavík - Hafnargata 25 Sími 421-3322 Opið virka daga 11 – 18 Laugard. 11 - 14
Nýr barnafatnaður
50% afsláttur!
verslun/heildverslun
NÝ BÓK „Þessi bók er kannski of-
vaxin neðanmálsgrein út úr
annarri bók sem ég skrifaði, sem
fjallaði um viðtökur Njálu á Ís-
landi,“ segir Jón Karl Helgason
bókmenntafræðingur. Í vikunni
kom út eftir hann bókin Ferðalok,
þar sem hann kryfur til mergjar
beinamálið svonefnda, síðbúinn
flutning á beinum Jónasar Hall-
grímssonar frá Kaupmannahöfn
til Íslands.
„Stóra spurningin varðandi
Njálu er alltaf hver er höfundur
Njálu. En mér finnst sú spurning
ekki eins merkileg eins og sú stað-
reynd að mönnum þyki hún
merkileg. Það er eins með bein
Jónasar, að mér finnst ekki merki-
legast hvaða bein voru flutt hing-
að heldur hitt að mönnum skuli
finnast það skipta máli.“
Árið 1996 gerði Jón Karl út-
varpsþátt um beinamálið. Þar
byggði hann bæði á viðtölum við
menn sem mundu eftir því sem
gerðist og rituðum heimildum,
sem hann fékk flestar frá Birgi
Thorlacius ráðuneytisstjóra.
Á þremur stöðum í tveimur
löndum?
„Hann var með ótrúlega merki-
leg gögn sem snertu málið, þar á
meðal skeyti og bréf sem gengu á
milli manna. Merkilegasta heim-
ildin þar er uppgraftrarskýrsla
Matthíasar Þórðarsonar þjóð-
minjavarðar frá 1946. Þar lýsir
Matthías mjög nákvæmlega því
sem hann finnur í gröfinni og
hvers vegna hann álykti að það
séu bein Jónasar en ekki einhver
önnur.“
Þessi gögn frá Birgi segist Jón
Karl nota sem útgangspunkt sinn í
bókinni. Jafnframt fer hann ofan í
saumana á því hvernig fjallað hef-
ur verið um flutninginn á beinum
Jónasar síðan, meðal annars í
skrifum rithöfunda á borð við
Halldór Laxness, Björn Th.
Björnsson og Milan Kundera.
„Séra Ágúst Sigurðsson er einn
þeirra manna sem ég ræddi við
fyrir útvarpsþáttinn árið 1996.
Hann skrifaði um þetta mál stuttu
síðar fjórar greinar í Dag-Tím-
ann. Þær greinar vöktu enga sér-
staka athygli, en svo vann hann að
því er virðist nýja grein upp úr
þessum gömlu greinum og birti í
Tímariti Máls og menningar fyrir
skömmu. Þá vakti mikla athygli
þessi kenning hans að bein Jónas-
ar væru hugsanlega niður komin á
þremur stöðum frekar en einum
eða tveimur.“
Björn Th. Björnsson fjallar
einnig um beinamálið í bók sinni,
Á Íslendingaslóðum í Kaup-
mannahöfn. Þar lætur hann liggja
að því að einhver önnur bein held-
ur en Jónasar hafi verið flutt
hingað heim. Svo er fræg umfjöll-
un Halldórs Laxness í Atómstöð-
inni, þar sem hann dregur fram
hlálegu hliðarnar á málinu með
svo beittum hætti að margir áttu
erfitt með að fyrirgefa honum.
Danskur slátrari
„Síðast en ekki síst fjallar Mil-
an Kundera um beinamálið í nýj-
ustu skáldsögu sinni, Fáfræðinni.
Hann tekur sama pól í hæðina og
Björn Th. Að minnsta kosti halda
persónur í bók hans því fram að
það sé danskur slátrari sem liggi
grafinn í þjóðgarðinum á Þing-
völlum.“
Í aðra röndina langaði Jón Karl
til að finna út hvað væri satt og
hvað logið í beinamálinu. En
skyldi hann hafa komist að ein-
hverjum niðurstöðum um það?
„Ég er mjög krítískur á það
sem Björn Th. hefur að segja um
málið. Ég er líka mjög krítískur á
hluta þess sem séra Ágúst segir
og hluta af því sem Kundera seg-
ir. Eins merkilegt og það nú er, þá
finnst mér að Halldór Laxness
fari kannski næst sannleikanum,
að svo miklu leyti sem við getum
fullyrt nokkuð um sannleikann.“
Í Atómstöðinni gætir Halldór
Laxness þess að halda því algjör-
lega opnu hvort bein skáldsins
hafi komist til Íslands. Lýsing
hans á morknum beinum í mold-
inni, sem flutt var frá Kaup-
mannahöfn, fer hins vegar mjög
nærri lýsingum Matthíasar í upp-
graftarskýrslunni.
Menning undir glerhjálmi
„Ég held samt að aðalatriðið sé
ekki hvort þetta eru bein Jónasar.
Þetta mál gefur mjög skemmti-
lega innsýn í andrúmsloftið á Ís-
landi á fimmta áratugnum. Það
varpar ekki síður athyglisverðu
ljósi á það með hvaða hætti menn-
ingarafurðir, skáld og listamenn
eru ákveðinn gjaldmiðill sem
menn nota í samskiptum sín á
milli.“
Til dæmis segir Jón Karl
margt í umfjöllun um Halldór
Laxness á seinni árum bera þess
vott að hann sé orðinn hálfheilag-
ur maður. „Það er viss kaldhæðni
í því að Halldór Laxness hefur
fengið þá stöðu sem Jónas hafði á
sínum tíma. Gagnrýnisleysið og
JÓN KARL HELGASON
„Ferðalok“ nefnist bók hans í Svörtu línunni frá Bjarti.
Hið viðsjárverða
aðdráttarafl
ódauðleikans
Í vikunni kom út hjá bókaforlaginu Bjarti bók Jóns Karls Helgasonar Ferðalok.
Í bókinni er fjallað um flutninginn á beinum Jónasar Hallgrímssonar til Íslands
árið 1946.