Fréttablaðið - 11.04.2003, Side 35
37FÖSTUDAGUR 11. apríl 2003
■ Konan mín
verð á
herrafötum
Ótrúlegt
5.999kr 2.999
999 kr
verð frá
Úrval af herra bindum OTTO herraskyrtur
Leðurskór st: 40-46 Herra skór st: 41-46
1.999
12.999kr
Jakkaföt st: 46-62
Ullarblanda
19.999kr
Hátíðarbúningur
st: 46-60
OTTO
verð frá
kr
kr
Það kannast flestir við það að
fresta hlutum þangað til í óefni
er komið. Út er komin bókin „Á
morgun segir sá lati“ sem tekur á
þessu vandamáli. Frestunarárátta
getur haft alvarlegar afleiðingar.
Höfundur bókarinnar, Rita
Emmett, tekur á þessum vanda
og hvetur lesendur úr sporunum
með hagnýtum ráðum sem hún
hefur sjálf notað til að vinna bug
á eigin frestunaráráttu. Í bókinni
eru fjölmargar raunverulegar
frásagnir sem opna augu lesand-
ans fyrir þeim lausnum sem
henta hverjum og einum.
■ Bækur
„Hún er falleg, skemmtileg,
greind og góð móðir. Hún er líka
besti vinur minn,“ segir Guðjón
Bergmann jógakennari um eigin-
konu sína, Jóhönnu Bóel. Þau hafa
verið gift í hálft annað ár.
LEIKHÚS Leikmunadeild og hljóð-
deild Þjóðleikhússins eru á höttun-
um eftir hundrað hátölurum af öll-
um stærðum og gerðum. Hátölur-
unum er ætlað hlutverk í sýning-
unni Herjólfur er hættur að elska
eftir Sigtrygg Magnason í leik-
stjórn Stefáns Jónssonar. Það er að
vísu ekki enn komið á hreint hvort
sýningin kemst á fjalirnar en lík-
urnar á því munu væntanlega stór-
aukast ef leikmunadeildin kemst
yfir hátalarana hundrað.
„Við höfum ákveðið að leita til
almennings“, segir Birna Björg-
vinsdóttir yfirleikmunavörður, „en
það er einfaldlega of tímafrekt og
kostnaðarsamt fyrir okkur að fara
á gámastöðvar, leita að hátölurum
og ganga úr skugga um að þeir
virki. Við erum því að gera okkur
vonir um að fólk bregðist vel við
kalli okkar og gefi okkur hátalara
sem það er hætt að nota. Það þarf
þá bara að hafa samband við leik-
munadeildina og við munum sjá um
að koma og sækja þá.“ ■
BIRNA BJÖRGVINSDÓTTIR OG
SIGURÐUR BJÓLA
Eru að leita að hundrað nothæfum hátöl-
urum.
Þjóðleikhúsið:
Vantar
hundrað
hátalara
FÉLAGSLÍF Kristin ungmenni í
Menntaskólanum við Hamrahlíð
hittast í hádeginu í bænastund.
Þetta eru ungmenni úr mismun-
andi kristnum söfnuðum sem
starfa saman í sátt og samlyndi.
Þessa vikuna hafa þau staðið fyrir
Jesúviku í skólanum. „Það hefur
verið geysilega mikil ánægja með
þetta,“ segir Andri Ómarsson, eitt
ungmennanna. Hann segir ekki al-
gengt að hópur utan hins hefð-
bundna skólafélags standi að svo
viðamiklum viðburðum.
Þessa vikuna hafa verið uppá-
komur á hverjum degi. Meðal
þess sem boðið var upp á er leðju-
slagur. Eitthvað sem maður tengir
ekki beint kristindómnum. „Nei,“
segir Andri og gefur til kynna að
ekki sé allt sem sýnist. „Þetta er
íslensk glíma í leðju og við spyrj-
um þá sem taka þátt hvort ekki sé
eftirsóknarvert að komast í sturtu
eftir alla leðjuna.“ Flestir hljóta
að þiggja slíkt. „Þetta er svona
táknrænt. Ef við berum þetta
saman við trúna, þá er syndin
óhreinleiki og Jesús er sturtan
sem getur losað okkur við óhrein-
indin.“
Andri segir að viðbrögð bæði
samnemenda og kennara við þess-
ari athafnasemi hafi verið mjög
góð. Alls konar skemmtun og dag-
skrá hafi verið í boði alla vikuna.
Andri segir ekki skipta neinu máli
þótt hópurinn komi úr mismun-
andi trúfélögum. „Við virðum trú-
arskoðanir hvers annars enda þótt
við komum víða að.“ ■
FJÖR ALLA VIKUNA
Hópur kristinna ungmenna hefur staðið
fyrir uppákomum og dagskrá alla vikuna í
Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Virkur bænahópur í MH:
Leðjuglíma í Jesú nafni