Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.05.2003, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 13.05.2003, Qupperneq 2
2 13. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR “Við hljótum að stefna að því að það gerist sem fyrst.“ Ungir sjálfstæðismenn hafa lengi barist fyrir því að bjór og léttvín verði til sölu í verslunum. Nú eru fulltrúar þeirra komnir á þing, til að mynda Birgir Ármannsson. Spurningdagsins Birgir, hvenær kemur bjórinn í búðirnar? STRÆTÓ STOLIÐ Strætisvagni var stolið fyrir utan skiptistöðina við Mjódd um miðnætti í fyrrinótt. Vagnstjórinn hafði brugðið sér inn í aðstöðu bílstjóranna en þegar hann kom út skömmu síðar var vagninn horfinn. Lögreglan fann vagninn skömmu síðar við Dverga- bakka, mannlausan og óskemmdan. Þjófurinn er ófundinn. ÁTTATÍU ÖKUMENN SEKTAÐIR Lög- reglan í Kópavogi hafði afskipti af á áttunda tug ökumanna vegna um- ferðarlagabrota. Þrír ökumenn kærðir vegna gruns um ölvun við akstur, ríflega tuttugu vegna of hraðs akstur. Fjórtán vegna þess að þeir notuðu ekki öryggisbelti við akstur og afgangurinn vegna ým- issa umferðarlagabrota. FRÁ VILNÍUS Þar voru hátíðarhöld fram á rauða nótt. Fyrrum Sovétlýðveldi í ESB: Litháar vilja inngöngu LITHÁEN, AP Yfirgnæfandi meiri- hluti Litháa er fylgjandi aðildar- viðræðum við Evrópusambandið. Óstaðfestar tölur herma að stuðn- ingur landsmanna sé allt að 90 prósent. Ráðamenn í Vilníus, höfuðborg landsins, fögnuðu ákaft þegar nið- urstöðurnar birtust. Flugeldum var skotið á loft, kampavínsflösk- ur opnaðar og þjóðsöngur lands- ins heyrðist víða. Litháen er fyrsta fyrrverandi ríki Sovétríkjanna sem ber þjóð- aratkvæðagreiðslu um aðild undir almenning. ■ Hópuppsagnir hjá Dönum: 1.650 manns sagt upp KAUPMANNAHÖFN, JP Danska síma- stórfyrirtækið TDC hefur ákveðið að segja upp 1.650 starfsmönnum á þessu ári eftir að afkomutölur sýndu mikið tap á þessu ári. Eru þetta einar mestu uppsagnir í Danmörku um langa hríð. „Það er mikil samkeppni á markaðnum, talsvert meiri en verið hefur, og þetta erum við nauðbeygðir að gera til að vernda störf hinna 15 þúsund sem hér starfa,“ sagði Henning Dyremose, forstjóri, í samtali við Jyllands- Posten. ■ Og Vodafone: Hundrað milljóna tap á árinu VIÐSKIPTI Símafyrirtækið sem nú heitir Og Vodafone tapaði 106 milljónum króna á fyrstu þrem- ur mánuðum ársins. Rekstrartekjur Og Vodafone voru 1.420 milljónir króna á þessum þremur mánuðum en rekstrargjöld 1.095 milljónir. Hagnaður af rekstri félagsins fyrstu þrjá mánuði ársins fyrir samrunakostnað, afskriftir, fjár- magnsliði og skatta var þannig 325 milljónir. Reksturinn var samkvæmt áætlun stjórnar fyr- irtækisins. Félagið er afsprengi samruna Íslandssíma, Tals og Halló! Frjálsra fjarskipta. Tapið má m.a. rekja til kostnaðar vegna sameiningarinnar. ■ Litlar breytingar á atvinnuleysi milli mánaða: Vinnumarkaðurinn glæðist örlítið ATVINNUMÁL Atvinnuleysi á land- inu hefur ekki breyst mikið frá síðasta mánuði en var þá u.þ.b. 4%. Að sögn Gissurar Pétursson- ar á Vinnumálastofnun síga þó atvinnuleysistölurnar hægt nið- ur. Hugrún Jóhannesdóttir, for- stöðumaður Vinnumiðlunar höf- uðborgarsvæðisins, segir að vinnumarkaðurinn hafi örlítið verið að glæðast síðustu vikurn- ar. Þó séu enn ekki nógu mörg störf í boði. „Mjög breiður hópur fólks er atvinnulaus, fólk úr alls konar störfum,“ segir Hugrún. Það er óvenjulegt ástand að fjöldi at- vinnulausra karla er nú meiri en fjöldi atvinnulausra kvenna. Að sögn Hugrúnar er aðallega eftir- spurn eftir fólki í almenn verka- mannastörf. Fjöldi nemenda hef- ur einnig sett sig í samband við atvinnumiðlunina varðandi sum- arstörf og má af því draga þá ályktun að heldur treglega gangi fyrir skólafólk að fá sumarvinnu í ár. ■ Bush vill vera vinsæll áfram: Boðar mikl- ar skatta- lækkanir NÝJA-MEXÍKÓ, AP Nú þegar stríðinu í Írak er lokið og tjaldið byrjað að falla á George Bush, forseta Bandaríkjanna, er hann í óða önn að koma skattalækkun- um sínum aft- ur á koppinn til að halda persónulegu fylgi sínu. Hefur hann verið á ferð um ríki sín í því skyni að kynna og afla stuðnings við u m d e i l d a r skattalækkan- ir sem andstæðingar telja að fari beint í pyngju þeirra sem nóg eiga fyrir. ■ Fornleifasjóður: Kolbeinsárós rannsakaður STYRKIR Stjórn Fornleifasjóðs hef- ur í fyrsta skiptið frá stofnun sjóðsins árið 2001 úthlutað styrkj- um til fornleifarannsókna. Sjóðurinn hefur 5 milljónir króna til úthlutunar. Ákveðið hef- ur verið að styrkja 6 verkefni en alls bárust 40 umsóknir um styrki að upphæð rúmlega 35 milljónir. Seinni úthlutun úr sjóðnum verð- ur eftir 18. ágúst. Hæsta styrkurinn, eða 1,5 milljón króna, fer til rannsókna á Kolbeinsárós (Kolkuós), sem á miðöldum var í hópi helstu hafna landsins og þjónaði m.a. sem höfn Hólastóls, næsthæsti styrkurinn, ein milljón króna, fer í rannsóknir á Eyrarbæ í Skutulsfirði. ■ ÍRAK L. Paul Bremer, sem útnefnd- ur hefur verið til þess að hafa yfir- umsjón með uppbyggingarstarfinu í Írak, kom til Bagdad í gær. Brem- er er ætlað að binda endi á þá óöld sem ríkt hefur í Írak síðan landið féll í hendur bandaríska innrásar- hersins og hefur hann þegar tekið við stjórnartaumunum af Jay Garner, landstjóra Bandaríkja- manna. „Ég og Garner höfum heitið því að vinna náið saman,“ sagði Brem- er þegar hann ávarpaði blaðamenn skömmu eftir komuna til Bagdad. Sagðist hann ekki eiga von á öðru en að breytingarnar ættu eftir að ganga snurðulaust fyrir sig og ít- rekaði að ekkert væri hæft í þeim fullyrðingum fjölmiðla að Garner væri á förum frá Írak. Koma Bremer til Íraks endur- speglar umfangsmiklar breytingar sem orðið hafa á skipan mála í landinu að undanförnu. Fyrrum sendiherra Bandaríkjanna í Írak, Barbara Bodine, sem haft hefur umsjón með uppbyggingarstarfinu í Bagdad og nágrenni, hefur verið kölluð heim af óþekktum ástæð- um. Í dagblaðinu The Washington Post er það haft eftir ónafngreind- um bandarískum ráðamönnum að fjórir aðrir háttsettir embættis- menn í Írak verði sendir burt inn- an skamms. Bandarísk yfirvöld binda vonir við það að Bremer takist að koma á lögum og reglu í Írak áður en langt um líður svo hægt verði að hefja uppbyggingarstarf af full- um krafti. Fram til þessa hafa bandarískir embættismenn orðið að hafast við á bak við víggirta múra í höll Saddams Husseins í Bagdad þar sem algjört stjórn- leysi hefur ríkt í borginni. Af þessum sökum hefur þeim orðið lítið ágengt og í stað þess að mynda jákvæð tengsl við írösku þjóðina hafa þeir kynt undir óvild landsmanna í sinn garð. Í framhaldi af yfirlýsingu bandarískra yfirvalda um það að Baath-flokkurinn verði leystur upp hafa verið leiddar að því líkur að Bremer ætli sér að leggja niður ýmsar stofnanir úr tíð Saddams Husseins, þar á meðal Lýðveldis- vörðinn. ■ Margréti Sverrisdóttur vantaði 13 atkvæði til þess að komast á þing: Kosningalög brotin í Reykjanesbæ? KOSNINGAR Yfirkjörstjórn í Holtaskóla í Reykjanesbæ í Suð- urkjördæmi braut kosningalög að mati Sigurðar Inga Jónssonar, oddvita Frjálslyndra í Reykja- víkurkjördæmi suður. Sigurður Ingi segir að nokkrum kjósendum, sjómönn- um frá Vestmannaeyjum, hafi verið vísað frá á kjördag þegar þeir hafi ætlað að kjósa utan kjörfundar í Holtaskóla. Þetta sé alvarlegt þar sem Margréti Sverrisdóttur hafi skort 13 at- kvæði til þess að ýta Árna Magn- ússyni úr uppbótarþingsætinu í Reykjavíkurkjördæmi norður. „Við erum einnig að fara yfir það hvort farið hafi verið eins með öll vafaatkvæði,“ segir Sig- urður Ingi. „Það var víst einhver munur á því hvernig farið var með vafaatkvæði í Reykjavíkur- kjördæmunum. Af því það eru svo fá atkvæði sem okkur vantar til að ná fimmta manninum inn verðum við athuga þetta.“ ■ ■ Lögreglufréttir SIGURÐUR INGI JÓNSSON Oddviti Frjálslynda flokksins segir að nokkrum kjósendum, sjó- mönnum frá Vestmannaeyjum, hafi verið vísað frá á kjördag þeg- ar þeir hafi ætlað að kjósa utan kjörfundar í Holtaskóla. GEORGE BUSH Vill ekki enda eins og pabbi sinn. MÆTTUR TIL STARFA Í ávarpi til fjölmiðla á flugvellinum í Bagdad sagðist J. Paul Bremer fagna þeirri áskorun að koma á lögum og reglu í Írak. GISSUR PÉTURSSON Atvinnuleysistölur fara hægt sígandi. Bjargvætturinn Bremer mættur Mikil uppstokkun er hafin í landstjórn Bandaríkjamanna í Írak. Emb- ættismaðurinn L. Paul Bremer hefur tekið við stjórnartaumunum og freistar þess að koma á lögum og reglu í landinu og hefja uppbyggingu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.