Fréttablaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 31
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar KRISTÍNAR HELGU GUNNARSDÓTTUR Peningar og meðalmennska Ertu að kaupa, byggja eða breyta? Þú getur á auðveldan hátt samið um fasteigna- eða framkvæmdalán hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum. Um er að ræða hagstætt lán, sem veitt er til allt að 30 ára gegn veði í fasteign. Allt að 80%veðsetningarhlutfallaf verðmæti fasteignar Frjálsa fjárfestingarbankans Fasteignalán Frjálsi fjárfestingarbankinn, Ármúla 13a, sími 540 5000, www.frjalsi.is Almenningsþjónar fengu ein-kunnabókina afhenta um helg- ina. Einhverjir rétt slefuðu og voru himinglaðir, aðrir voru hundfúlir. Sumir fengu næstum jafnmikið og dúxinn og dönsuðu stríðsdans, en dúxinn fékk aðra einkunn og varð steinhissa – hafði alltaf gengið að sinni einkunn vísri. Í stað þess að fara heim, lesa lexíurnar og líta í eiginn barm kenna fallistarnir öðr- um um. Þessi baktalaði mig og hinn kíkti hjá mér. Bót í máli að allir eru hættir að smjaðra. Auðmjúk auglýs- ingabros eru horfin af skjánum og allir orðnir brúnaþungir og yfirlæt- islegir á ný. OG RÉTT EINS OG TRÖLL hafi vaknað til lífs um stund og orðið jafn snögglega að steini á ný er þjóð- in þögnuð og horfin inn í bergið. Hógvær meðalmennska, umlaði þjóðin og sofnaði á ný. Hún vaknar ekki aftur fyrr en að fjórum árum liðnum. Eftir standa spekingar og brjóta heilann. Hvað sagði þjóðin? Hvað í ósköpunum meinti hún með þessu? SÝNDU MÉR glansmyndir og brosandi ímyndir og ég skal gefa þér atkvæðið mitt, var kannski muldrað úr berginu. Íslandsmótið í auglýs- ingabrellum er yfirstaðið og úrslitin liggja fyrir. Hvaða auglýsingastofa sigraði? Sýnt er að litlir maurar sem hyggja á hernað upp úr grasrótinni verða að eiga kraftameðalið peninga til þess að ná að vekja bergrisann. Framboð án fjársjóða verður aldrei annað en kramin padda í grasi. LÝÐRÆÐIÐ hefur talað, en þó er landinn obbolítið ringlaður. Hann er svo lélegur í reikningi að hann áttar sig illa á því hvers vegna sá sem fékk bara sautján prósent heimtar skipstjórahúfuna. Sá hinn sami vann þó vasklega að vexti sínum og vel- ferð. Jafnvel konur eru ringlaðar og ráðvilltar og stilla sér upp á bak við eldavélar. Svona er bara jafnréttið, segja jakkaklæddir menn og yppa öxlum. Það gengur bara betur næst, stelpur mínar. Við erum kannski ekki með margar kerlingar, segir annar, en við erum með helling af krökkum. Kvenlegum stöðugleika hefur kannski verið kollsteypt í þessum kosningum, en hvað um það. Áfram Ísland, áfram gakk, einn, tveir, þrír, fjór. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.