Fréttablaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 11
12 13. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
■ lögreglufréttir
COLIN POWELL, UTANRÍKISRÁÐ-
HERRA BANDARÍKJANNA,
Powell gerir víðreist þessa dagana. Eftir að
hafa rætt við Palestínumenn og Ísraela
undanfarna daga hefur hann einnig átt
fund með Hosni Mubarak, forseta Egypta-
lands, og heldur fljótlega til Jórdaníu og
Sádi-Arabíu. Tilgangurinn er að afla stuðn-
ings við „vegvísinn“ margumtalaða, sem
eru tillögur Bandaríkjanna, Evrópusam-
bandsins og Sameinuðu Þjóðanna til að
stuðla að friði fyrir botni Miðjarðarhafs.
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR, AP „Þeir vilja
ná yfirráðum yfir olíunni,“ sagði
danskur embættismaður hjá Evr-
ópusambandinu þegar bandarísk
yfirvöld höfðu kynnt nýjar tillögur
varðandi tilhögun mála í Írak að
stríði loknu. „Með þessu ætla
Bandaríkin að fá aðild að OECD.“
Í áætluninni, sem lögð var fyrir
öryggisráð Sameinuðu þjóðanna í
gær, er gert ráð fyrir því að Banda-
ríkjamenn og Bretar fari með völd-
in í Írak í að minnsta kosti eitt ár
héðan í frá. Sameinuðu þjóðunum
er ekki ætlað að gegna lykilhlut-
verki í uppbyggingarstarfinu sem
fjármagna á með olíugróða Íraka.
Aðalmarkmið bandarískra yf-
irvalda er að aflétta viðskipta-
þvingunum sem settar voru á
Íraka í kjölfar Persaflóastríðsins
og binda enda á áætlun Samein-
uðu þjóðanna um mat fyrir olíu.
Þetta hefði í för með sér að
Bandaríkin og Bretland fengju yf-
irráð yfir olíuauði Íraka, sem yrði
notaður til að fjármagna upp-
byggingarstarf og friðargæslu.
Ljóst er að skiptar skoðanir
eru um þessa nýju áætlun innan
öryggisráðsins. Frakkar og
Rússar hafa þegar lýst því yfir
að þeir hafi aðrar hugmyndir um
tilhögun mála, einkum hvað
varðar hlutverk vopnaeftirlits-
manna Sameinuðu þjóðanna. ■
GENGIÐ TIL SAMNINGA
John Negroponte, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, mætti ásamt
varafulltrúanum James Cunningham til fundar við öryggisráðið.
Ný áætlun Bandaríkjamanna um tilhögun mála í Írak:
Vilja yfirráð
yfir olíuauðnum
Í BAÐI Á TENGIVAGNI Lögreglan á
Akureyri stöðvaði bíl sem ók með
tengivagn í miðbænum aðfaranótt
laugardagsins. Á vagninum var
fiskikar með heitu vatni og í því
voru þrír menn að baða sig í mestu
makindum. Ökumanni var bent á
að slíkur farþegaflutningur stang-
aðist á við umferðarlög auk þess
sem baðferðin bryti í bága við al-
mennt velsæmi.
ÓK Á DRÁTTARTAUG Það óhapp
varð á Akureyri á sunnudag að
þegar verið var að draga bíl yfir
gatnamótin á Krossanesbraut og
Óseyri ók bíll inn á gatnamótin og
á dráttartaugina. Bíllinn skemmd-
ist nokkuð við þetta. Dráttartaugin
var tæpir átta metrar á lengd og
var hún veifulaus. Rétt er að
árétta að ef dráttartaug er meira
en fjórir metrar ber að setja veifu
á hana miðja.
GRIPNIR GLÓÐVOLGIR Þrír dreng-
ir voru staðnir að verki þar sem
þeir voru að vinna skemmdarverk
við Síðuskóla á Akureyri aðfara-
nótt sunnudagsins. Sjónarvottur lét
lögreglu vita eftir að hafa séð þá
brjóta útiljós við skólann. Lögregl-
an fór á staðinn og greip þá glóð-
volga við iðju sína.
HENTI SÉR FRAM AF SVÖLUM
Stúlka féll fram af svölum á 2. hæð
húss við Berjarima í fyrrinótt. Í
ljós kom að henni hafði sinnast við
pilt og í kjölfarið hent sér fram af
svölunum. Stúlkan var flutt með
sjúkrabíl á slysadeild vegna
eymsla í baki og hálsi.
INDLAND, AP Samstarfstilraun ind-
verskra stjórnvalda og banda-
rískra aðila um að koma upp tölv-
um og nettengingum á fátækum
svæðum í Indlandi er farin út um
þúfur. Bandarísku aðilarnir,
hvers slagorð er: „við veðjum á
fólk, ekki vörur,“ virðast hafa
veðjað rangt á samstarfsaðila í
stjórn Indlands því það slitnaði
upp úr sambandinu vegna þess að
stjórnvöldum fannst lítill árang-
ur nást með aðferðum Banda-
ríkjamannanna. ■
INDVERSK BÖRN
Fátækari svæði Indlands eru að mestu
leyti netlaus.
Fátækir fá ekki Netið:
Tilraun fór
út um þúfur
ÞINGMAÐUR „Ég er mjög ánægð
með niðurstöður í mínu kjör-
dæmi,“ segir Margrét Frímanns-
dóttir, fyrsti þingmaður Suður-
kjördæmis, um úrslit kosning-
anna.
Margrét segir
Samfylkingarfólk
hafa stefnt á að
fjórða sætið yrði
baráttusæti sem
vannst og einnig
hafi verið mikill
sigur að fá fyrsta
þingmann kjör-
dæmisins. Hún
segir það skipta
miklu máli að fá Suðurnesjamann
inn í fjórða sætið, það geri þau að
meiri heild og auðveldi þeim að
sinna þessu stóra kjördæmi. „Ég
er líka glöð með árangur Sam-
fylkingarinnar á landsvísu þar
sem við náðum að rjúfa þrjátíu
prósenta múrinn. Þó hefði ég
viljað sjá meira fylgi í Norðvest-
ur- og Norðausturkjördæmi.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk skýr
skilaboð og var rassskelltur
rækilega. Framsóknarmenn
fengu þau skilaboð frá kjósend-
um að þeir verði í það minnsta að
ræða við aðra flokka en Sjálf-
stæðisflokk um stjórnarmyndun,
annað væri svik við kjósendur,“
segir Margrét.
Margrét segir heilsufar sitt
ekki hafa gert þessa kosninga-
baráttu erfiðari en aðrar. Hún
segir þetta búið að vera mjög
skemmtilegt og hafa gengið vel.
„Ég hef fengið ótrúlega mikla
orku og jákvæða strauma þar
sem ég hef farið. Við fundum
strax mikla hreyfingu á fylginu.
Fólk spurði mikið og það gerir
miklar kröfur.“
Hún segir það frábært að fá
þetta unga fólk frá Samfylking-
unni og Framsókn inn á þing, því
fylgi ferskir vindar. Meiri breidd
verði á þingmönnum. „Þetta unga
fólk er að fást við þau vandmál
sem við leggjum áherslu á,
menntamál, fjölskyldumál og
jafnréttismál, og það er öflugir
málsvarar þeirra þátta. Ég
hlakka til að fylgjast með því.
„Ég vil skila þakklæti til fram-
bjóðenda Samfylkingarinnar og
ekki síður til Þrastar Emilssonar
og þeirrar öflugu liðsveitar sem
vann með okkur í Suðurkjör-
dæmi. Við eigum ekki síst þenn-
an sigur þeim að þakka,“ segir
Margrét.
hrs@frettabladid.is
MARGRÉT FRÍMANNSDÓTTIR
Margrét segir þetta hafa verið skemmtilega
kosningabaráttu sem gekk vel.
Þetta er í fyrsta sinn í marga áratugi sem vinstri flokkur fær fyrsta þingmann á Suðurlandi.
Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur fengu skýr skilaboð sem þeir verða að taka tillit til.
Hef ótrúlega orku
■
„Framsóknar-
menn fengu
þau skilaboð
frá kjósendum
að þeir verði í
það minnsta að
ræða við aðra
flokka en Sjálf-
stæðisflokk um
stjórnarmynd-
un.“
Alþrif jeppar frá kr 5500
Alþrif fólksbílar kr 3900
Múlabón
Ármúla 32
108 Reykjavík
sími 5531310