Fréttablaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 15
13. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR ÞROSKAÞJÁLFAR Á aðalfundi Þroskaþjálfafélags Íslands tóku fulltrúar stjórnmálaflokkanna við ályktun um það misrétti sem þroskaheftir búa við á Evrópuári fatlaðra. Skorað er á væntanleg stjórn- völd að snúa við þróun misréttis og lögleysu. Losa fólk með fötlun undan fátæktaránauð, tryggja því faglega og lögboðna þjónustu og gefa þroskaþjálfum svigrúm til að rækja hlutverk sitt eins og lög gera ráð fyrir. Salome Þórisdóttir, formaður félagsins, segir að þroskaþjálfar verði varir við misrétti með ýmsu móti í starfi sínu daglega. „Það má nefna aukið aðhald í rekstri sam- býla sem fyrst og fremst bitnar á heimilismönnum. „Öll þátttaka í menningarlífi og félagsstarfi er erfiðari því ekki má kalla út auka- vaktir,“ segir hún. Salóme bendir á að í mörgum tilfellum sé ferð í sumarbústað, leikhús eða eitthvað annað þroska- heftum illmöguleg nema aðstoðar- maður sé í för. „Skilaboðin sem þroskaþjálfarar fá eru að þeir geti farið en þeir fái ekki greidd laun á meðan. Það stangast á við kjara- samninga og með því er okkur stillt upp við vegg auk þess sem það grefur undan þjónustunni,“ segir Salome Þórisdóttir. ■ Konur voru 23 á Alþingi en eru aðeins 19 nú eftir kosningar. Fækkun kvenna varð mest innan Sjálfstæðisflokks, þar fækkaði þeim um fimm. Þingsæti Frjálslynda flokksins falla öll í hlut karla. Af sjö nýjum þing- mönnum Samfylkingarnnar eru aðeins tvær konur. Konur í miklum minnihluta Ásta Möller: Skerpa aðferðirnar Við konurnar hjá Sjálfstæðis-flokknum vorum í baráttusæt- um og vonuðumst til að ná inn með góðu fylgi,“ segir Ásta Möll- er, en hún missti sæti sitt á Al- þingi í kosningunum. Hún segir þær hafa gert sér grein fyrir því að einhverjar þeirra myndu detta út þar sem hart var sótt að flokkn- um en það kom á óvart hversu margar þær urðu. Þó eru margar þeirra fyrstu varaþingmenn. Ásta segir að í ungliðahreyf- ingum flokkanna sé ljóst að konur séu í miklum minnihluta. Hún segir að það þurfi að laða konur að til þátttöku miklu fyrr. „Það er al- veg sama á hvað flokk er litið, karlar eru í meirihluta. Eitthvað við pólitík veldur því að stúlkur hafa ekki sama áhuga og strákar. Fyrir þær konur sem hafa áhuga á pólitík er þetta gríðarleg ögrun og tækifæri, því mikil eftirspurn er eftir konum. Konur í stjórnmálum leggja mikið af mörkum og hafa margt fram að færa. Konur þurfa að berjast fyrir sínu. Strákarnir eru aðgangsharðari, kannski þurf- um við að átta okkur á þeirra bar- áttuaðferðum til þess að skerpa okkar,“ segir Ásta. ■ Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir: Konum ekki hampað Það er ekki við kjósendur aðsakast í þessum efnum. Þeir hafa ekkert á móti því að kjósa konur, það hefur margsýnt sig,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, varaþingmaður Samfylk- ingarinnar. Hún segir flokksstofnanirnar ekki gera konum nógu hátt undir höfði. Annað hvort séu þær ekki nógu ofarlega á lista eða fái ekki nógu góða útkomu í prófkjöri, þeim sé ekki hampað. Hún segir þetta sjást gleggst hjá Sjálfstæð- isflokknum núna, ástæðan fyrir því að allar þessar konur duttu út núna sé að þær voru neðarlega á lista. Henni finnst dapurlegast í þessu öllu saman þegar konur gera þau sjónarmið að sínum að ekki skipti máli hvort það er kona eða karl heldur sé þetta spurning- in um einstaklinginn, það vinni gegn hagsmunum kvenna. „Nú þótti merkilegt að kjósa unga karla, þá skiptir jafn miklu máli að kjósa konur ef það er yfirleitt verið að flokka fólk. Ég hef verið í pólitík í tuttugu ár og aldrei orðið vör við skort á vilja hjá konum. Flokkarnir þurfa að temja sér önnur vinnubrögð svo konum líði betur innan þeirra,“ segir Ingi- björg Sólrún. ■ Arnþrúður Karlsdóttir: Forystan ræður Arnþrúður Karlsdóttir útvarps-maður telur að það hafi mikið með forystu flokka að gera hversu auðvelt konur eiga með það að koma sér á framfæri. Það sé mjög mismunandi milli flokk- anna hversu stór hlutur kvenna sé og nefnir hún að í sex kjördæmum landsins hafi þrjár konur leitt lista Framsóknarflokksins. Til- hneiging hægri flokka sé hins vegar að hleypa konum síður að. „Konur mega ekki gefast upp heldur halda áfram að koma sér á framfæri,“ segir Arnþrúður, sem telur að erfitt sé að grípa til ákveðinna aðgerða til að jafna kjör kynjanna. Slök útkoma kvenna hafi síður en svo með hæfileika þeirra að gera auk þess sem hugur kvenna standi til þess að vera þátttakendur í stjórnmál- um. Forysta flokkanna geti þó haft mikil áhrif á það hversu vel konum tekst að koma sér á fram- færi innan flokkanna. ■ ■ ÁLIT Þroskaþjálfar: Verða daglega varir við að fatlaðir eru beittir misrétti l i i i i i . i j l i l , i i i . i i j l l l i ll ll í l l . j j i l i i . FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.