Fréttablaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 27
39 ÁRA „Þegar ég var 19 ára þótt- ist maður vita allt og trúði því sjálfur. Með aldrinum lærist manni ótrúleg margt og með fylgir auðmýktin,“ segir Hilmar Jónsson, leikari í Hafnarfjarðar- leikhúsinu, sem er 39 ára í dag. Hann býst við að slá upp grill- veislu með 11 ára dóttur sinni sem átti afmæli fyrir viku og saman bjóði þau sínum nánustu til að fagna. „Annars verð ég að vinna á afmælisdaginn myrkr- anna á milli eins og venjulega,“ segir Hilmar, sem er að fara að leikstýra nýju verki eftir Hávar Sigurjónsson hjá Þjóðleikhús- inu. Verkið heitir Pabbastrákur og fjallar um strák sem kemur út úr skápnum sem hommi og áhrifin sem það hefur á fjöl- skylduna. „Við erum allir pabba- strákar inn við beinið en þarna er um trúverðuga atburðarás að ræða og nýstárlegt fyrir marga í fjölskyldum að takast á við hluti eins og þessa. Þetta er gott leik- rit,“ segir afmælisbarnið. Lítið hefur farið fyrir afmæl- isveislum hjá Hilmari því hann á afmæli í miðjum prófönnum og það setti strik í reikninginn hér áður fyrr. Hann á sér engar sér- stakar óskir um afmælisgjafir. Nema hvað: „Ég gæti hugsað mér nærbuxur, sokka og gott veður. Það er allt og sumt og þó töluvert,“ segir hann. ■ 28 13. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR Pabbi!, Má ég fá bílinn þinn lánað-an? Ég er nú orðinn nógu gamall!“ „Já, en það er bíllinn ekki! Pondus eftir Frode Øverli Með súrmjólkinni AFMÆLI HILMAR JÓNSSON LEIKARI ■ í Hafnarfjarðarleikhúsinu er 39 ára í dag. Hann segir aukna virðingu fylgja aldrinum en 19 ára þóttist hann vita allt. Nú veit hann betur. Ökónómían ræður för án þess aðslegið sé af kröfunum,“ segir Jónatan Garðarsson Júróvisjón- landsliðseinvaldur. Hann hlær þeg- ar honum er kynnt þessi nýja nafn- gift sem er að festast við hann og segist vona að ekki fari fyrir sér eins og Atla Eðvaldssyni. „Ég vel reyndar ekki í liðið.“ Hann segist ekki vita nákvæmar kostnaðartölur en að þær verði á svipuðu róli og verið hefur. Þann 24. rennur stóra stundin upp og Birgitta Haukdal stígur á sviðið í Ríga ásamt þeim Vigni Snæ Vigfússyn gítarleikara úr Írafári, Herbert Viðarssyni úr Skítamóral og Jóhanni Bachmann Ólafssyni sem er trommari úr báðum þessum hljómsveitum, auk Margrétar Eirar og Regínu Ósk Óskarsdóttur bak- raddasöngkvenna. Að sögn Jónatans heldur ís- lenska liðið út sunnudaginn 18. þessa mánaðar og fyrsta æfingin verður strax morguninn eftir. Lent verður í Ríga 17:25 og þá hefst und- irbúningur fyrir svokölluð póstkort, og það verður unnið á flugvellinum. „Daglegar æfingar hafa verið und- anfarnar vikur og verða fram að brottför. Fyrsta æfing úti í Ríga verður klukkan níu að morgni mánudags. Þá verður æft í fjörutíu mínútur, síðan farið í tækniatriði og svo blaðamannafundur strax að því loknu.“ Sendinefndin telur Jónatan Garðarsson, Sigrúnu Erlu Sigurðar- dóttur skriftu, Gísla Martein Bald- ursson sem mun kynna og upptöku- stjóri mun einnig fylgja. Sá sem sendir fréttir af þessum viðburði er svo enginn annar en Logi Bergmann Eiðsson. Höfundurinn Hallgrímur Óskarsson verður með, sem og kona hans. Hallgrímur réði Selmu Björnsdóttur til að þjálfa Birgittu og hún mun mæta út til að fylgjast með æfingum.“ „Gert er ráð fyrir 25 manna sendinefndum og allar sjónvarps- stöðvar nýta sér það fyrir utan okk- ur,“ segir Jónatan. ■ Nærbuxur, sokkar og gott veður Mig dreymir... Mig dreymir...Má ég nokkuð s etjast hérna? Öhhh.. jújú! Ég verð að viður- kenna að ég hef verið að horfa á þig... ertu einn? Eins og Gísli á Uppsöl- um! Ohh, þú ert svo skemmti- legur! Viltu koma með mér heim? Gerðu það? Mig dreymir... Mig dreymir... JÓNATAN GARÐARSSON Júróvisjóneinvaldurinn fer fyrir sínu fólki í Ríga og segir Ísland einu þjóðina sem ekki nýtir sér rétt til að senda 25 manna sendi- nefnd á staðinn. Söngvakeppni ■ Undirbúningurinn fyrir Júróvisjón er í fullum gangi. Búið er að skipa liðið sem fer til Riga til þess að halda uppi merki þjóðarinnar í keppninni. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Selma Björns og Logi Bergmann til Riga AFMÆLISBARNIÐ Hilmar Jónsson ætlar að slá upp grillveislu með ellefu ára dóttur sinni til að fagna af- mæli þeirra beggja.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.