Fréttablaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 29
Hann var að draga rafmagn íhús í Kópavogi í nóvember 1971 þegar hringt var og honum tjáð að hann ætti að mæta á Al- þingi strax eftir hádegi. Sigurður Magnússon lagði frá sér raf- magnsvírinn, fór heim, skipti um föt og settist síðan á þing: „Ég man ekki alveg hvort ég var kallaður inn fyrir Magnús Kjartansson, þáverandi heilbrigð- isráðherra, eða Eðvarð Jónsson, formann Dagsbrúnar. En ég fór,“ segir Sigurður, sem þá var 23 ára og um það bil 120 daga gamall og því yngri en Gunnar Thoroddsen, sem var 23 ára og 177 daga gamall þegar hann var kjörinn. Birkir Jón Jónsson, sem kjörinn var al- þingismaður fyrir Framsóknar- flokkinn um síðustu helgi, var 23 ára og 290 daga gamall þann dag. „Ég kom að vísu inn sem vara- maður; hinir tveir eru kjörnir sem aðalmenn,“ segir Sigurður, sem sat oft á þingi eftir þetta sem varamaður; settist átta sinnum á þing þegar allt er talið. „Eftir á að hyggja sér maður að Alþýðu- bandalagið var nútímalegur flokkur á þessum tíma. Vildi auka hlut ungs fólks og kvenna í stjórn- málum og setti slíkt fólk á lista.“ Sigurður er nú að verða 55 ára og hætti öllu afskiptum af stjórn- málum árið 1986. Venti sínu kvæði í kross og gerðist myndlist- armaður. Fór í Myndlistarskólann og stundaði eftir það myndlistar- nám í London í þrjú ár: „Ég mála fjári góðar myndir en sel aldrei nóg,“ segir hann. Sigurður gat þó ekki látið póli- tíkina í friði lengi og er nú hrepps- nefndarmaður í Bessastaðahreppi fyrir Álftaneshreyfinguna: „Ég er oddviti hennar en þetta er hálf- gert R-listamódel eins og þekkist í Reykjavík. Mér sýnist á öllu að ég sé efnilegur sveitarstjórnarmað- ur,“ segir hann. eir@frettabladid.is Hrósið 30 13. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR Vinir hans segja hann vinnu-saman öðling sem eigi gott með að fá aðra til að vinna með sér. Sjálfur segist hann vera sportfíkill; jafnvígur á golf, skíði og laxveiði. Gunnar Guðjónsson var kjörinn formaður KR í síðustu viku og ef marka skal fyrirrenn- ara hans á hann eftir að sitja lengi. Síðasti formaður KR sat í tólf ár og sá sem var þar á undan í sautján. Í rúmlega hundrað ára sögu KR hafa aðeins verið átta formenn og það segir sína sögu: „Vonandi á ég ekki eftir að sitja svo lengi en ég er til í slaginn,“ segir Guðjón, sem er 52 ára gam- all viðskiptafræðingur og fæst við rekstrarráðgjöf. Hann býst við að þurfa að vera á vaktinni allan sól- arhringinn sem formaður KR á næstunni: „Ég flutti í bæinn frá Ísafirði átta ára gamall og fór þá strax í KR. Æfði með öllum yngri flokk- unum og lék svo í tvö ár með meistaraflokki sem miðvörður,“ segir Guðjón, sem þá þurfti að leggja skóna á hilluna tímabundið vegna meiðsla. Þetta var á þeim árum sem Tony Knapp kom til landsins til að þjálfa og þjálfaði svo um munaði og endaði með landsliðið: „Þegar ég hafði náð mér af meiðslunum og ætlaði að byrja á ný var ég kominn í vinnu og háskólanám og leist ekki á að þurfa að æfa sex daga vikunnar í þrjá til fjóra tíma í einu. Hafði einfaldlega ekki tíma til þess,“ segir Guðjón, sem er kvæntur Heiðu Elínu Jóhannsdóttur innan- húsarkitekt og saman eiga þau tvö börn, 16 og 20 ára. ■ Persónan GUÐJÓN GUÐMUNDSSON ■ var á dögunum kjörinn formaður KR. Hann byrjaði að æfa fótbolta með liðinu átta ára gamall og náði alla leið í vörnina með meistaraflokki félagsins en varð að hætta þegar hann hafði ekki lengur tíma til að æfa sex daga vikunnar í þrjá til fjóra tíma í einu. ...fær Jónmundur Guðmarsson bæjarstjóri fyrir að standa vörð um varpfugla og vernda egg á Seltjarnarnesi. Fréttiraf fólki Sportfíkill formaður KR NÝI FORMAÐURINN Guðjón Guðmundsson getur átt von á því að sitja lengi sem formaður KR ef marka skal fyrirrennara hans. SIGURÐUR MAGNÚSSON Lagði rafmagnsvírinn frá sér og settist á þing yngstur allra – fyrir 32 árum. Þingmenn ■ Yngsti þingmaður sögunar lætur ekki mikið fyrir sér fara og stundar sína mynd- list í Bessastaðahreppi. Sigurður Magnús- son var kallaður á þing sem varamaður fyrir Alþýðubandalagið í nóvember 1971, þá aðeins 23 ára og um það bil 120 daga gamall. Yngri en bæði Gunnar Thoroddsen og Birkir Jón Jónsson, sem kjörinn var á þing um síðustu helgi. Bowen-tækni á Íslandi Bowen-tækni er áhrifarík en mild meðferð sem er góð við hvers konar líkamlegum vandamálum. Nú kennd á Íslandi 22. til 25. febrúar 2003. Kennari Julian Baker, skólastjóri E.C.B.S. Nánari upplýsingar hjá Margeiri, sími 897 7469, netfang: jmsig@simnet.is og heimasíðu European College of Bowen Studies www.thebowentechnique.com Vinsældir bræðranna Halla ogLadda eru með eindæmum og hefur komið mörgum spekúlant- inum í opna skjöldu. Nú mun fyr- irhugað að hafa aukasýningu á dagskrá þeirra sem gengið hefur fyrir fullu húsi í Loftkastalanum í allan vetur. Þeir voru hættir en „Lengi lifir í gömlum bræðrum“ er óopinber yfirskrift aukasýn- ingarinnar, sem verður 31. maí, og nú mun vera í athugun að gera þá bræður út á landsbyggðina. Margir hjuggu eftir því aðkveðja Egils Helgasonar var með dramatískara móti en hann sagði að þátturinn á sunnudaginn væri sá næstsíðasti. Ekki var annað hægt að ráða í orð hans en að ekki væri einungis ver- ið að hverfa í sumarfrí heldur að Silfrinu væri lokið í þeirri mynd sem menn þekkja. Fréttablaðið hefur greint frá erjum Egils við yfirstjórnin Skjás eins en sam- kvæmt heimildum blaðsins þykir henni halla á Sjálfstæðisflokkinn í þættinum. Ekki virðist sem tekið sé tillit til þess að margir telja að það ætti að liggja í hlutarins eðli að fjölmiðlar séu í stjórnarand- stöðu. Eins og fram hefur komið erBjörk að undirbúa tónleika- ferð um heiminn og mun hefja leikinn í London seinna í þessum mánuði. Hún æfir nú tónleikadag- skrá sína af kappi og er búin að leggja undir sig Loftkastalann í því skyni. Tónlistarmenn af ýmsu þjóðerni eru um þessar mundir þar upp á dag hvern, 10 manna strengjasveit, aðrir sem spila raf- eindatónlist á Macintosh-tölvur og þannig má lengi telja. Æfingar hófust á mánudaginn í síðustu viku. Fréttiraf fólki ■ Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 1. 2. 3. 18. Birkir Jón Jónsson. Brian Warner. ■ Leiðrétting Að gefnu tilefni skal tekið fram að textinn við íslenska Eurovisionlagið er ekki eftir Karl Marx þó lagið sé eftir Richard Marx. Yngsti þingmaður sögunnar fundinn FR ÉT TA B LA Ð IÐ / VI LH EL M

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.