Fréttablaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 4
4 13. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR ■ Spánn Ertu ánægð(ur) með úrslit kosn- inganna? Spurning dagsins í dag: Viltu áframhaldandi stjórnarsamstarf Framsóknarflokks og Sjálfstæðis- flokks? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 57% 43% Nei Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is 1. flokki 1989 – 50. útdráttur 1. flokki 1990 – 47. útdráttur 2. flokki 1990 – 46. útdráttur 2. flokki 1991 – 44. útdráttur 3. flokki 1992 – 39. útdráttur 2. flokki 1993 – 35. útdráttur 2. flokki 1994 – 32. útdráttur 3. flokki 1994 – 31. útdráttur Frá og með 15. maí 2003 hefst innlausn á útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum: Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu þriðjudaginn 13. maí. Innlausn húsbréfa fer fram hjá Íbúðalánasjóði, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum og liggja þar einnig frammi upplýsingar um útdregin húsbréf. Innlausn húsbréfa Húsbréf Geir H. Haarde um stjórnarmyndunarviðræður: Getum leyst skattaágreining STJÓRNARMYNDUN „Það verður að koma í ljós hvernig við reynum að samræma skattastefnur okk- ar,“ segir Geir H. Haarde fjár- málaráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, aðspurður um hvort að mismunandi stefnur framsóknarmanna og sjálfstæð- ismanna í skattamálum verði ekki erfiður ljár í þúfu í stjórn- armyndunarviðræðunum. Þar ber á milli um 15 milljörðum. Lýstu framsóknarmenn því yfir í kosningabaráttunni að þeir gætu ekki séð hvernig sjálfstæð- ismenn ætluðu að framkvæma sínar tillögur, upp á ríflega 30 milljarða króna skattalækkun, án þess að skera niður í velferð- arkerfinu. „Ég held að þetta sé mál sem við getum leyst,“ segir Geir. „Ég hef ekki áhyggjur af því að það fáist ekki niðurstaða um þetta, þótt við séum auðvitað ekki farnir að tala saman. En við höf- um unnið saman lengi og erum vanir því að leysa mál af svipuðu tagi.“ Geir segist ekki geta nefnt neina sérstakar hindranir í samningaviðræðum flokkanna, þótt slíkt geti vissulega komið í ljós. Hann segir óskandi að stjórnarmyndunarviðræður gangi hratt og vel fyrir sig. ■ Humri stolið: Tengist fíkniefnum LÖGREGLUFRÉTT Lögreglan í Kefla- vík handtók tvo menn við Kleifar- vatn aðfaranótt sunnudagsins. Þeir voru grunaðir um að hafa reynt innbrot í fiskvinnslufyrir- tæki í Grindavík skömmu áður. Báðir gistu fangaklefa og voru yf- irheyrðir af rannsóknarlögreglu um morguninn. Viðurkenndu þeir meðal annars innbrot og þjófnað á humri í fiskvinnslufyrirtæki í Garði í vikunni og virðist sem þarna sé um að ræða skipulagðan glæp sem tengist fíkniefnaheim- inum en í síðustu viku voru tveir menn handteknir við sams konar iðju bæði í Þorlákshöfn og Eyrar- bakka. ■ EIGINKONUR Í HÆTTU Svo virðist sem blóðhiti Spánverja, sem nægur var nú fyrir, sé að aukast og koma fram í auknu ofbeldi, að sögn spænska blaðsins El Mundo. Þeir skýra frá því að 63 prósent fleiri konur falli nú fyrir höndum eiginmanna sinna eða fyrrver- andi manna en áður. Fyrstu þrjá mánuði þessa árs hafa 18 konur orðið fórnarlömb eiginmanna sinna.Það er mikil aukning frá sama tímabili fyrra árs en þá lét- ust ellefu af sömu völdum. RAUK ÚR HASSPÍPUNNI Tveir átján ára piltar voru staðnir að því að neyta fíkniefna í kyrrstæðum bíl aðfaranótt sunnudagsins á Ísafirði. Hasspípa sem enn rauk úr fannst í bílnum auk lítilræðis af kannabis- efnum. Piltarnir voru teknir í yfir- heyrslu á lögreglustöðina ásamt foreldrum þeirra. Piltarnir mega búast við tilheyrandi refsingu fyrir fíkniefnabrotið. VINNUSLYS Á ÍSAFIRÐI Vinnuslys varð í fiskverkun Klofnings á Suð- ureyri laust eftir hádegi á laugar- dag. Maðurinn slasaðist alvarlega á fæti við lestun afurða í flutnings- gám. Hann var fluttur á sjúkrahús- ið á Ísafirði. Lögreglan og Vinnu- eftirlit ríkisins vinna að rannsókn málsins. Stefnir ekki á formannsslag Ingibjörg Sólrún Gísladóttir kveðst ekki ætla í formannsslag við Össur Skarphéðinsson. Hún segir boltann vera hjá Samfylkingunni um það hvert hlutverk hennar verður. STJÓRNMÁL „Nú ætla ég að fara að taka til í garðinum mínum, bíl- skúrnum og geymslunni. Ég er búin að vera í mikilli törn síðast- liðið hálft ár, þannig að það eru ýmis verk óunnin,“ segir Ingi- björg Sólrún Gísladóttir aðspurð um það hvernig hún hyggist verja tíma sínum nú að afloknum kosningunum. Staða hennar er óljós. Hún náði ekki kjöri á þing, enda gat brugðið til beggja vona í þeim efnum, og miðað við yfir- lýsingar Össur- ar Skarphéðinssonar og hennar stendur ekki til að hún verði for- maður Samfylkingarinnar. Ef nú- verandi stjórnarflokkar halda áfram samstarfi bíður hennar heldur ekki ráðherrastóll. Spurn- ingin er því hvað Ingibjörg Sólrún hyggst fyrir. „Ég er borgarfulltrúi í Reykja- vík,“ segir Ingibjörg. „En annars er boltinn hjá Samfylkingunni, það er ekki búið að spila úr þess- ari stöðu ennþá eins og er. Við eig- um líka eftir að sjá hvernig þess- um stjórnarmyndunarviðræðum reiðir af. Í ljósi þeirrar niðurstöðu sem þar fæst verður að átta sig á því hvernig er hægt að nýta sér hana. En það er ekki mitt að ákveða hver staða mín verður. Það er Samfylkingarinnar.“ Ingibjörg hefur ekkert við yf- irlýst áform Össurar Skarphéð- inssonar að athuga, um að vera áfram formaður Samfylkingar- innar. Hún hyggst ekki bjóða sig fram gegn honum.“Ég kom inn til þess að starfa við hliðina á Össuri Skarphéðinssyni og öðrum í for- ystusveit Samfylkingarinnar,“ segir hún. „Ég held að formanns- slagur yrði þessum flokki ekki til framdráttar, þannig að ég stefni ekki á neitt slíkt.“ Hún segist ekki líta svo á að henni sé ýtt út í horn af Össuri með yfirlýsingum hans, daginn eftir kjördag.. „Það er ástæðu- laust að líta svo á,“ segir hún. „Hann kallaði mig til starfa og ég geri ráð fyrir því hann telji það einhvers vert að nýta krafta mína.“ gs@frettabladid.is ■ Vestfirðir INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR Komin út í garð að slaka á, enda erfið törn að baki. Staða hennar er nokkuð óljós í hinu pólitíska landslagi. „Það er ekki mitt að ákveða hver staða mín verður. Það er Samfylkingar- innar. GEIR H. HAARDE KEMUR TIL FUNDAR Hann telur líklegt að flokkarnir geti leyst ágreining sinn í skattamálum. Tilboð Samfylkingarinnar hefur ekki nein áhrif á þessu stigi: Ég tala við einn í einu STJÓRNARMYNDUN „Ég tala við einn í einu. Síðan verður að koma í ljós hvernig þetta gengur á milli okk- ar og sjálfstæðismanna. Ef það gengur ekki, þá kemur upp ný staða, sem er engin ástæða til að hugleiða á þessu stigi,“ sagði Hall- dór Ásgrímsson, formaður Fram- sóknarflokksins, að loknum þing- flokksfundi í gær. Þar fékk hann einróma umboð þingmanna til þess að hefja viðræður við Sjálf- stæðisflokkinn um áframhaldandi stjórnarsamstarf. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins lögðu þingmenn Fram- sóknarflokksins ríka áherslu á það inni á fundinum að Halldór yrði forsætisráðherra í næstu rík- isstjórn. Ljóst er að Samfylkingin er reiðubúin að ræða við Fram- sóknarflokkinn um ríkisstjórnar- samstarf undir forsæti Fram- sóknar, eins og Fréttablaðið greindi frá í gær. Halldór sagði það tilboð ekki hafa nein áhrif á viðræður sínar við sjálfstæðis- menn. „Við vorum að ákveða það að fara í viðræður við sjálfstæðis- menn og á því stigi er engin ástæða til þess að ræða neitt um annað samstarf.“ Halldór bendir á að samstarf við Samfylkinguna myndi byggja á ákaflega veikum meirihluta og sé því ekki fýsilegt. Hann segir það engu breyta á þessu stigi þótt Frjálslyndir lýstu sig reiðubúna að koma inn í slíkt samstarf. Að- spurður vildi Halldór ekki játa því að tilboð um forsætisráðherrastól í annarri ríkisstjórn en þeirri sem nú er á teikniborðinu muni leiða til þess að flokkurinn sætti sig ekki við annað en forsætisráð- herrastólinn í ríkisstjórn með sjálfstæðismönnum. Í þessum viðræðum muni flokkarnir byrja á því að ræða málefnin, en ráð- herrastólar bíði. „Ég hef sagt það, að þegar menn fara í viðræður um stjórnarsamstarf, þá byrja menn á því að ræða málefnin,“ sagði Halldór. Halldór kvað það eftir að koma í ljós hvort samkomulag ná- ist um skattamál og önnur mál. Engar málefnaumræður séu hafn- ar. Hann vonast til að umræðurn- ar gangi fljótt fyrir sig. „Það er mikilvægt að eyða óvissu um rík- isstjórn, vegna þess að óvissa er vond og hefur áhrif á ýmis önnur mál í þjóðfélaginu,“ segir hann. „Þess vegna á að reyna að ljúka þessu sem fyrst.“ gs@frettabladid.is HALLDÓR AÐ LOKNUM ÞINGFLOKKSFUNDI Hann segir það ekki hafa nein áhrif á viðræður sínar við Sjálfstæðisflokkinn að Sam- fylkingin hafi boðið honum forsætisráðherrastól. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.