Fréttablaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 13.05.2003, Blaðsíða 28
ÞRIÐJUDAGUR 13. maí 2003 flugfelag.is Börn 2ja–12 ára í fylgd með fullorðnum greiða 334 kr. aðra leiðina í maí. VOPNAFJARÐAR 7.300 kr. Flug, aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Frá Reykjavík til ÞÓRSHAFNAR 7.300kr. EGILSSTAÐA 6.100kr. Flug, aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Milli Reykjavíkur og ÍSAFJARÐAR 5.200kr. Flug, aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Milli Reykjavíkur og 6.300 kr. Flug, aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! GRÍMSEYJAR Frá Reykjavík til AKUREYRAR 5.200kr. Flug, aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Milli Reykjavíkur og flugfelag.is 14.–20. maí ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S - FL U 2 11 34 05 /2 00 3 Flug, aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Frá Akureyri til STJÖRNUM PRÝDDUR SAMLESTUR Það var föngulegur hópur sem mætti til leiks við fyrsta samlestur á söngleiknum Grease í Borgarleikhúsinu. Gríðarlegur áhugi var á að vera með í sýningunni og mætti fjöldi manns í prufur fyrir hlutverk. Sýningin fer á fjalirnar í sumar og munu stjörnurnar Birgitta Haukdal og Jónsi í Svörtum fötum fara með aðalhlutverk söngleiksins. Fernuflug og fagrar bækur Samtökin Börn og bækur – Ís-landsdeild IBBY veitti árlega Vorvindaviðurkenningu fyrir fram- lag til menningar í þágu barna og unglinga. Fram til þessa hafa 59 slíkar viðurkenningar verið veittar. Fyrstu viðurkenninguna í ár fékk barnabókin Engill í vesturbænum eftir Kristínu Steinsdóttur. Ásamt henni unnu bókina Halla Sólveig Þorgeirsdóttir myndlistarmaður og Sigrún Sigvaldadóttir, grafískur hönnuður. Bókin er að sögn dóm- nefndar heildstætt og einstakt lista- verk, hvort sem litið er til textans eða myndlýsinga Höllu Sólveigar. Sigrún Sigvaldadóttir hefur svo ofið verk þeirra saman af einstæðri list- hæfni og smekkvísi. Bókin fékk einnig á dögunum íslensku barna- bókaverðlaunin. Aðra Vorvindaviðurkenninguna fékk Brynhildur Þorgeirsdóttir, sem stytti og endursagði Njálssögu með glæsilegum myndskreytingum Margrétar Laxness. Bókin opnar ungum lesendum leið inn í forn- sagnaheim Íslendinga. Þá fékk Mjólkursamsalan viður- kenningu fyrir átakið Fernuflug. Keppni var haldin meðal 13- 16 ára unglinga um örsögur og ljóð og bárust um 1.200 textar. Voru 64 þeirra valdir og hafa birst á millj- ónum mjólkurferna. IBBY þótti sérstök ástæða að verðlauna þetta framtak, sem gerir ungu fólki kleift að koma hugsmíðum sínum á framfæri með óvenjulegum hætti á nánast hvert einasta heimili á land- inu. ■ Menning ■ IBBY-samtökin Börn og bækur veita viðurkenningar fyrir framlag til barna- og unglingamenningar. Í ár voru tvær bækur verðlaunaðar auk skemmtilegs átaks Mjólkursamsölunnar. ENGILLINN HEIÐRAÐUR Sigrún Sigvaldadóttir, Halla Sólveig Þor- geirsdóttir og Kristín Steinsdóttir unnu saman að bókinni Engill í vesturbænum. Anna Heiða Pálsdóttir afhenti þeim Vor- vindaviðurkenninguna fyrir hönd samtak- anna Börn og bækur.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.