Fréttablaðið - 13.05.2003, Qupperneq 6
KJARAMÁL Laun alþingismanna og
ráðherra hækka um fimmtung
samkvæmt úrskurði Kjaradóms.
Laun forsætisráðherra eru nú
871 þúsund krónur en voru áður
730 þúsund.
Hækkunin nem-
ar 141 þúsundi.
Aðrir ráð-
herrar hækka
um 123 þúsund
krónur og fá nú
786 þúsund. Al-
þingismenn fá
437 þúsund
króna grunnlaun
miðað við 367
þúsund áður.
Kjaradómur ákvarðar einnig
laun dómara, biskups Íslands, rík-
issáttasemjara, umboðsmanns
barna, ríkissaksóknara, ríkisend-
urskoðanda og forseta Íslands. Sá
síðastnefndi nýtur engra hækk-
ana nú en heildarlaun forsetans
eru 1.460 þúsund krónur.
Heildarlaun embættismann-
anna hækka á bilinu 7,2% til
13,3%. Minnst hækka heildarlaun
biskups Íslands, úr 657 þúsund
krónum í 705 þúsund. Mest hækka
heildarlaun ríkissaksóknara og
hæstaréttardómara, um 13,3%.
Laun þeirra voru 665 þúsund
krónur en verða 754 þúsund.
Í dómi Kjaradóms segir að sér-
staklega sé litið til aukins álags á
dómara. Því álagi hafi ekki verið
mætt með ráðningu fleiri dómara,
sem þó væru eðlileg vinnubrögð
vinnuveitenda.
Hækkunin á launum alþingis-
manna og ráðherra nemur 18,4%
til 19,3%.
„Með hliðsjón af þeirri breyt-
ingu sem verður nú á launa-
ákvörðun embættismanna telur
Kjaradómur eðlilegt, til samræm-
is, að taka nýja grundvallar-
ákvörðun um launakjör alþingis-
manna og ráðherra,“ segir í úr-
skurði Kjaradóms.
Til viðbótar þingfararkaupi fá
alþingismenn utan suðvestur-
hornsins 72 þúsund krónur mán-
aðarlega í húsnæðis- og dvalar-
kostnað, 47 þúsund krónur í ferða-
kostnað innan kjördæmisins og 53
þúsund í starfskostnað. Þingmenn
suðvesturhornsins fá ekki borgað-
an húsnæðis- og dvalarkostnað og
aðeins 36 þúsund í ferðakostnað
innan kjördæmisins. En þeir fá 53
þúsund krónur á mánuði í starfs-
kostnað. Forseti Alþingis er á
sömu kjörum og ráðherra. Vara-
forsetar þingsins og formenn
þingnefnda og þingflokka fá 15%
álag á þingfararkaupið.
gar@frettabladid.is
6 13. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
„Eðlilegt að
taka nýja
grundvallar-
ákvörðun um
launakjör al-
þingismanna
og ráðherra.
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 72.65 -1,20%
Sterlingspund 117.26 -0,53%
Dönsk króna 11.35 -0,26%
Evra 84.23 -0,33%
Gengisvístala krónu 118,27 -0,48%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 117
Velta 1.881 milljónir
ICEX-15 1.418 -0,26%
Mestu viðskipti
Sjóvá-Almennar hf. 127.923.842
Eimskipafélag Íslands hf. 68.035.319
Íslandsbanki hf. 5.552.176
Mesta hækkun
Skýrr hf. 5,17%
Samherji hf. 3,93%
Nýherji hf. 1,33%
Mesta lækkun
Þormóður rammi-Sæberg hf. -5,00%
Baugur Group hf. -2,70%
Framtak Fjárfestingarbanki hf. -2,20%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ: 8700,3 1,1%
Nasdaq: 1539,4 1,3%
FTSE: 3987,4 0,5%
DAX: 2944,3 -0,4%
NIKKEI: 8152,2 1,5%
S&P: 942,9 1,0%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Hversu margir nýliðar unnu sér sætiá Alþingi í kosningunum á laugardag-
inn?
2Aðstoðarmaður félagsmálaráðherravarð næstyngsti maðurinn í Íslands-
sögunni til að ná kjöri á Alþingi. Hvað
heitir maðurinn?
3Þungarokkarinn Marilyn Mansonhefur gefið út nýja plötu. Hvert er hið
rétta nafn tónlistarmannsins umdeilda?
Svörin eru á bls. 30
NEYTENDUR Bónus er oftast með
lægsta verð á grænmeti og ávöxt-
um af þeim tíu verslunum sem
verðlagseftirlit ASÍ kannaði á höf-
uðborgarsvæðinu 2. maí síðastlið-
inn. Í fjörutíu tilvikum af þeim
fjörutíu og þremur vörum sem
skoðaðar voru var Bónus með
lægsta verðið. Verslun Tíu-ellefu
var með hæsta verð í tuttugu og
sjö tilvikum og verslun Ellefu-ell-
efu í tuttugu og fimm tilvikum.
Munur á hæsta og lægsta verði
var meira en 100% í tæplega
helmingi tilvika, meira en 200% í
sex tilvikum og fór hæst í 305% á
hvítkáli. Minnsti munur á hæsta
og lægsta verði var 28% á svepp-
um í öskju.
Kannað var verð í eftirtöldum
verslunum: Bónus í Faxafeni, Tíu-
ellefu Firði, Hagkaupum í Skeif-
unni, Krónunni í Skeifunni, Nóa-
túni í Smáralind, Ellefu-ellefu á
Skúlagötu, Nettó í Mjódd, Sam-
kaupum Miðvangi, Fjarðarkaup-
um í Hafnarfirði og Europris í
Skútuvogi. ■
ÓGNAÐI STARFSMANNI MEÐ
HNÍFI Drengur með hettu yfir
höfðinu kom inn í myndbanda-
leigu við Kleppsveg á föstudag
og otaði hnífi að starfsstúlku.
Náði hann einhverjum peningum
og hljóp síðan í burtu. Leitað var
að piltinum en hann fannst ekki.
BJARGAÐ ÚR SJÓNUM Manni var
bjargað úr Reykjavíkurhöfn við
Miðbakka. Þegar lögregla kom að
var vegfarandi búinn að henda
björgunarhring til mannsins.
Maðurinn var fluttur með sjúkra-
bíl á slysadeild, kaldur en furðu
hress eftir volkið.
ÓNÆÐI VEGNA UNGLINGASAM-
KVÆMA Rétt fyrir miðnætti á
laugardagskvöld var ítrekað
kvartað yfir hávaða og skemmd-
arverkum sem stöfuðu frá ung-
lingasamkvæmi í Ásahverfi.
Höfðu tré verið rifin upp og brot-
in. Nokkru síðar var kvartað yfir
unglingasamkvæmi í Seljahverfi.
Lögreglumenn ræddu við húsráð-
anda og aðstoðuðu við að rýma
íbúðina. Foreldrar eru minntir á
að leyfa ekki eftirlitslaus ung-
lingasamkvæmi sem oft fara úr
böndunum.
■ Sveitarfélög
DANSKIR Í KENNSLUSTUND 36
danskir sveitarstjórnarmenn
komu hingað til lands til að
kynna sér rafræna stjórnsýslu
hjá íslenskum sveitarfélögum.
Samband íslenskra sveitarfélaga
skipulagði kynningu fyrir þá.
Evrópubandalagið:
Evran styrkist
EVRÓPA Fjármálaráðherrar Evrópu
hittust í Brussel til viðræðna um
hvernig best sé að hægja á evr-
unni. Gjaldmiðillinn hefur verið á
uppleið í talsverðan tíma og hafa
menn áhyggjur af genginu gagn-
vart hinum stóra gjaldmiðlinum,
bandaríska dollaranum. ■
VINNUSKÓLI Vinnuskóli Reykjavík-
ur undirbýr nú sumarstarfið. Að
sögn Svavars Jósefssonar,
fræðslu- og upplýsingafulltrúa
Vinnuskólans, stendur ráðning
leiðbeinenda nú yfir en frestur
unglinga til að sækja um rann út
30. apríl, þótt enn sé tekið við um-
sóknum. Í ár hafa um 3.100 ung-
lingar sótt um starf við Vinnuskól-
ann, sem er mikil aukning frá því
í fyrra, en þá voru nemendur skól-
ans 2700. Um 200 leiðbeinendur
verða ráðnir.
Unglingunum í Vinnuskólanum
hefur verið boðið upp á fræðslu
samhliða vinnunni og er hverjum
árgangi boðið upp á fræðslu á
þremur sviðum; náttúran og um-
hverfið, listir og menning og ein-
staklingurinn og sjálfsstyrking.
Hver árgangur fær eina fræðslu á
hverju sviði. Hópum vinnuskól-
ans er skipt eftir árgöngum og
vinna 14 ára nemendur skólans á
skólalóðum og íþróttavöllum í
sínu heimahverfi, 15 ára nemend-
ur vinna í görðum hjá eldri borg-
urum og öryrkjum og einnig í
Heiðmörk og á Hólmsheiði við
skógrækt. 16 ára nemendurnir
vinna síðan á stofnanalóðum og
stórum opnum svæðum, t.d.
Miklatúni og í Laugardal.
Auk venjulegra leiðbeinenda
verða ráðnir liðsmenn til að vinna
náið með fötluðum nemendum
skólans. Einnig verða ráðnir létt-
liðar, skv. samvinnuverkefni
Vinnuskólans og ÍTR, sem vinna
með unglingum sem þurfa á sér-
stökum stuðningi í starfi að halda.
Starfsemi Vinnuskólans er fjöl-
breytt og sér Vinnuskólinn einnig
um Skólagarða, gæsluvelli og
Sumargrín, en það er farandleik-
völlur sem ferðast á milli skólalóða
með leiktæki fyrir yngri börn. ■
MIKILL VERÐMUNUR Á GRÆNMETI
Eðlilegt er að verð á vöru eins og grænmeti sveiflist milli árstíða og því þurfa neytendur
að fylgjast grannt með stöðu mála hverju sinni. Aðeins er um verðsamanburð að ræða en
samkvæmt upplýsingum frá ASÍ var ekki lagt mat á gæði eða þjónustu verslananna.
Bónus með lægsta verð á grænmeti og ávöxtum:
Mikill munur á verð-
lagi milli verslana
VINNUSKÓLI REYKJAVÍKUR
Mikill fjöldi unglinga er í Vinnuskólanum í sumar.
Vinnuskóli Reykjavíkur undirbýr sumarstarfið:
Fjölbreytt starfsemi
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Heildarlaun áður Heildarlaun nú Hækkun
Forseti Íslands 1.460 þúsund 1.460 þúsund 0%
Forsætisráðherra 730 þúsund 871 þúsund 19,3%
Ráðherrar 664 þúsund 786 þúsund 18,4%
Forseti Hæstaréttar 759 þúsund 833 þúsund 9,7%
Hæstaréttardómarar 665 þúsund 754 þúsund 13,3%
Ríkissaksóknari 665 þúsund 754 þúsund 13,3%
Ríkissáttasemjari* 460 þúsund 538 þúsund 17,1%
Ríkisendurskoðandi 722 þúsund 774 þúsund 7,3%
Biskup Íslands 657 þúsund 705 þúsund 7,2%
Dómstjóri í Reykjavík 656 þúsund 722 þúsund 10,1%
Dómstjórar utan Reykjavíkur 593 þúsund 650 þúsund 9,7%
Héraðsdómarar 535 þúsund 591 þúsund 11,1%
Umboðsmaður barna 502 þúsund 538 þúsund 7,3%
Alþingismenn 369 þúsund 438 þúsund 18,7%
Ríkissáttasemjari fær einnig aukalega greidda mælda yfirvinnu.
Laun Davíðs upp um
140 þúsund krónur
Kjaradómur hefur hækkað laun ráðherra og alþingismanna um fimmtung. Dómarar og aðrir
háttsettir embættismenn fá einnig umtalsverða hækkun. Mánaðarlaun forsætisráðherra hækka
um 140 þúsund og verða 871 þúsund krónur.
■ Lögreglufréttir