Fréttablaðið - 13.05.2003, Síða 8
13. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
N‡jasta tækni og vi›skipti
Málfling um samspil vi›skipta og tækniflróunar
RU Alumni er félagsskapur útskrifa›ra nemenda frá Háskólanum í Reykjavík sem hefur fla› me›al
annars a› markmi›i a› efla tengslanet og samskipti me›al félagsmanna sinna.
Fimmtudaginn 15. maí milli kl. 16.00 og 18.00 stendur félagi› fyrir málsflingi um
samspil vi›skipta og tækniflróunar í húsakynnum Háskólans í Reykjavík vi› Ofanleiti.
Málflingi› er öllum opi› og a›gangur er ókeypis en félagar í RU Alumni eru sérstaklega bo›nir velkomnir.
Setning
Ari Daníelsson, Forma›ur RU Alumni, TD 2000
Vextir og vaxtavextir - Marka›sa›stæ›ur
fyrirtækja í dag og horfur
Einar fiorsteinsson, Greiningardeild Íslandsbanka,
VD 2001
Frumkvö›lar á Íslandi - Ni›urstö›ur GEM sk‡rslu
kynntar
Rögnvaldur J. Sæmundsson, Lektor vi› HR
Á 250 km hra›a á vegg - Liti› í
baks‡nisspegilinn og lært af reynslunni
Skúli Valberg Ólafsson, Framkvæmdastjóri
Íslenska hugbúna›arsjó›sins, í rá›gjafará›i MBA
náms vi› HR
Frá hugmynd til kerfis til vöru – Um vöruflróun í
hugbúna›arger›
Ólafur Andri Ragnarsson, firóunarstjóri BetWare
og kennari vi› HR, TVÍ 1989
Má bjó›a y›ur laustengda tvísamhæf›a
samskiptaeiningu? – Marka›ssetning og sala á
hátæknivörum
Gylfi Árnason, Framkvæmdastjóri Opinna kerfa hf.
Hvort kemur fyrst, eggi› e›a hænan? – Áhrif
n‡rrar tækni á vi›skiptatækifæri
Gísli Rafn Ólafsson, sjálfstætt starfandi rá›gjafi og
kennari vi› HR
Fjármögnun hugmynda – Glórulaust e›a
gró›avon?
Sigur›ur Smári Gylfason
Dagskrá
Fundarstjóri er Sæmundur Sæmundsson, Framkvæmdastjóri Tölvumi›stö›var Sparisjó›anna, TVÍ 1989.
A› málflinginu loknu ver›ur bo›i› upp á léttar veitingar.
Skráning fer fram me› tölvupósti á alumni@ru.is og nánari uppl‡singar eru á www.ru.is/alumni.
KJARAMÁL „Það er hið jákvæðasta
mál. Okkar aðildarfélög og -sam-
bönd eru að undirbúa næstu
kjarasamninga sem losna um
næstu áramót. Það er eðlilegt að
úrskurður Kjaradóms verði þá
hafður til grundvallar og að miðað
verði við töluna 19,3%. Svigrúmið
á komandi árum er greinilega
stórt,“ segir Gylfi Arnbjörnsson,
framkvæmdastjóri ASÍ.
„Kjaradómur taldi eðlilegt að
þessi hópur hækkaði um 7% um
síðustu áramót þegar við öll hin
hækkuðum um 3% og fann fyrir
því einhver rök. Greinilega hefur
Kjaradómur fundið fleiri rök,“
segir Gylfi. ■
ÞROSKAHEFTIR „Það eru eins og
hver önnur mannréttindi að börn-
in okkar fái að búa við sömu skil-
yrði og önnur ungmenni á þeirra
aldri,“ segir Guðleif Sigurðar-
dóttir, foreldri þroskaheftrar
stúlku.
Dóttir hennar, Hildur Hauks-
dóttir, er 26 ára gömul og hefur
beðið lengi eftir að fá inni á sam-
býli. Hún er ekki á svokölluðum
neyðarbiðlista og því gerist ekk-
ert ár eftir ár að sögn Guðleifar.
„Hún var fjórtán ára gömul þegar
við sóttum um vist fyrir hana.
Það var gert í því skyni að hægt
væri að meta þörfina í framtíð-
inni. Við óskuðum eftir að hún
kæmist inn á sambýli upp úr tví-
tugu. Það er á svipuðum aldri og
önnur ungmenni sem yfirgefa
foreldrahús. Eftir því sem tíminn
líður án þess að hún komist að,
því erfiðara verður það bæði fyr-
ir okkur og hana,“ segir Guðleif.
Guðleif og eiginmaður hennar
Haukur Þorvaldsson eru í hópi
foreldra fjögurra þroskaheftra
ungmenna sem hittast reglulega.
Þau hafa gert það síðastliðin ár og
vilja hafa áhrif á að þau geti verið
saman á heimili þegar þar að kem-
ur. „Börnin þekkjast prýðilega og
við teljum að það auðveldi þeim
umskiptin að fara að heiman þeg-
ar þar að kemur. Auk þess skipt-
umst við foreldrarnir á upplýsing-
um og skoðunum. Við höfum
heimsótt mörg sambýli og eftir
því sem við kynnumst því betur
hvað þar fer fram, sjáum við hvað
börn okkar fara mikils á mis.“
Guðleif er þeirrar skoðunar að
verið sé að brjóta á þessum ung-
mennum. Þau séu nauðbeygð til
að vera heima hvort sem þeim líki
betur eða verr. „Mér finnst það
vera í verkahring okkar foreld-
ranna að sjá til þess að framtíð
Hildar sé trygg en komi ekki í
hlut annarra barna okkar. Við vit-
um aldrei hvað bíður okkar og hve
lengi okkar nýtur við. Það er mik-
ið óöryggi falið í því að hafa ekki
gengið frá búsetu hennar og að
framtíð Hildar skuli ekki vera
tryggð. Við getum ekkert gert
nema bíða áfram og reyna að
þrýsta á eins og mögulegt er.
Svörin sem við fáum alltaf eru að
hún komist að á næsta ári en þá er
okkur sagt að því miður hafi þurft
að taka fólk af neyðarbiðlista.“
Guðleif segist skilja það mæta
vel en staðreyndin sé að ekki sé
byggt nægilega mikið og því sé
það alltaf fólk af neyðarbiðlistum
sem fái pláss. „Það þarf að undir-
búa Hildi vel áður en hún flytur
að heiman. Við viljum ekki kasta
til höndunum og ef fram heldur
sem horfir þá verður hún einnig
komin á neyðarbiðlista. Það skap-
ar aðeins erfiðleika sem hægt er
að koma í veg fyrir ef almenni-
lega verður staðið að þessum mál-
um,“ segir Guðleif.
bergljot@frettabladid.is
KJARAMÁL „Ég fagna því mjög ef
góðir embættismenn, sem eru
verðugir launa sinna, fá hækkun,“
segir Ólafur Ólafsson, fyrrverandi
landlæknir og formaður Félags
eldri borgara í Reykjavík, um
hækkun launa æðstu embættis-
manna. „Hins vegar hlýt ég að
telja víst að ráðamenn standi við
gefin kosningaloforð og hækki
laun almennings til jafns í krónu-
tölum. Sér í lagi eftir að hafa heyrt
ráðamennina tala svo vel um bætt
kjör eldri borgara á kosningadög-
unum,“ segir Ólafur. ■
ÓLAFUR ÓLAFSSON
Vonar að ráðamenn hækki laun
almennings.
Ólafur Ólafsson:
Ráðamenn
standi við
loforðin
GYLFI ARN-
BJÖRNSSON
„Svigrúmið á
komandi árum er
greinilega stórt,“
segir fram-
kvæmdastjóri ASÍ.
Kröfur ASÍ:
Sömu hækkun og ráðherra
GUÐLEIF OG HILDUR
Hildur er orðin 26 ára og er tilbúin að fara að heiman. Hún bíður eftir að fá pláss á sam-
býli en á ekki von á að komast að næstu tvö árin eftir því sem foreldrum hennar er sagt.
Fer á mis við
svo ótal margt
Guðleif Sigurðardóttir, móðir þroskaheftrar
stúlku sem lengi hefur verið á biðlista eftir að
komast á sambýli, segir biðina erfiða.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M