Fréttablaðið - 13.05.2003, Síða 12
■ Lögreglufréttir
ÞRIÐJUDAGUR 13. maí 2003
Mi›inn á 800 kr. á mánu›i e›a
a›eins 185 kr. fyrir hvern útdrátt.
20%
fjölgun
vinninga
-vinningur í hverri v ikuwww.das.is
e›a á netinu
561 7757
Hringdu núna
og trygg›u flér mi›a.
...og allt skattfrjálst!
Fær› flú símtal
frá okkur?
D
r
e
g i›
í h ve rr i v
ik
u
52x
DAS
Vinningaveisla
Heildarfjöldi vinninga
tæplega 2000
næsta fimmtudag
fia› er ekki of
seint a› vera me›
á fimmtudaginn
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
A
S
20
93
5
04
/2
00
3
Snæfellsnes:
Umhverfis-
vænn
ferðastaður
UMHVERFISMÁL Samgönguráðuneytið
hefur samið við fimm sveitarfélög
á Snæfellsnesi um að staðirnir
verði, fyrst svæða á Íslandi, gerðir
að umhverfisvottuðum áfangastað
ferðamanna.
Þau sveitarfélög sem standa að
verkinu eru: Snæfellsbær, Grund-
arfjarðarbær, Stykkishólmsbær,
Eyja- og Miklaholtshreppur og
Helgafellssveit. Að undirbún-
ingsvinnu lokinni verður sótt um
vottun hjá alþjóðlegu samtökunum
Green Globe 21. ■
Framhaldsskólar:
15 milljónir
í styrki
MENNTAMÁL Menntamálaráðu-
neytið hefur úthlutað 37 styrkj-
um til þróunarverkefna í fram-
haldsskólum og fullorðins-
fræðslu á þessu ári.
Um er að ræða 14,9 milljónir
króna sem skiptast milli verk-
efnanna, en hæstu styrkirnir eru
700 þúsund krónur og sá lægsti
150 þúsund. Alls var sótt um
styrki til 62 verkefna.
Á meðal verkefna sem fengu
styrk var verkefni þar sem
rannsaka á hvað það er sem hef-
ur áhrif á námsárangur asískra
nemenda á Íslandi og verkefni
um átak gegn brottfalli í fram-
haldsskólum. ■
ÓGNAÐI FÓLKI MEÐ SKRÚFJÁRNI
Mjög æstur og ölvaður maður
með skrúfjárn að vopni gekk
niður Laugaveg aðfaranótt laug-
ardagsins. Hann otaði skrúf-
járni að vegfarendum og sagðist
jafnframt vera á leið til vinar
síns sem hann sagðist eiga sök-
ótt við. Lögreglumenn höfðu tal
af manninum og tókst þeim að
taka af honum lítið skrúfjárn.
Maðurinn var hinn rólegasti við
lögregluna. Nokkru síðar sáu
lögreglumenn hvar maðurinn
hékk í glugga við Hverfisgötu.
Hann var handtekinn og færður
í fangamóttöku.
VILDI MÓTMÆLA BARNAÞRÆLK-
UN Lögreglumenn sem óku
vestur Laugaveg aðfaranótt
laugardags sáu hvar maður var
að sprauta með úðabrúsa á
glugga í verslun. Maðurinn var
handtekinn. Kvaðst hann vera
að mótmæla barnaþrælkun fyr-
irtækis sem framleiðir vörur
sem seldar eru í versluninni.
Lofaði maðurinn að þrífa glugg-
ann og var hann að því þegar
ekið var framhjá stuttu síðar.