Fréttablaðið - 13.05.2003, Síða 17
18 13. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Bi
llu
nd
Bi
llu
nd
DANMÖRK
Beint leiguflug
me› ICELANDAIR
4.
j
ún
í -
4
.
se
pt
.
21
.6
52
21
.6
52
V
er
›
fr
á
kr.
á mann
m. v. að 2 fullorðnir og 2 börn,
2ja-11 ára, ferðist saman.
Innifalið er flug
og flugvallarskattar.
Ef 2 ferðast saman,
24.950 kr á mann.
Takmarkað sætaframboð
HAUKAR
Viðureign Hauka og ÍR-inga í kvöld verður
vafalaust hörkuspennandi.
Esso-deild karla:
Haukar geta
tryggt sér
titilinn
HANDBOLTI Haukar geta tryggt sér
Íslandsmeistaratitilinn í Esso-
deild karla vinni þeir fjórðu
viðureign sína við ÍR-inga í kvöld.
Staðan í einvígi liðanna er 2:1,
Haukum í vil.
Hafnarfjarðarliðið vann þriðja
leikinn með miklum yfirburðum á
Ásvöllum á sunnudag með 34
mörkum gegn 22 og virðist því til
alls líklegt í kvöld.
Fjórði leikurinn verður háður á
heimavelli ÍR-inga í Austurbergi
og hefst klukkan 20.00. ■
ÍSHOKKÍ Kanadamenn urðu heims-
meistarar í íshokkí í 22. sinn eftir
dramatískan 3:2 sigur á Svíum í
úrslitaleik. Anson Carter skoraði
sigurmarkið í framlengingu en
Kanadamenn þurftu að bíða í sjö
mínútur eftir úrskurði dómar-
anna um það hvort pökkurinn hafi
farið yfir marklínuna.
Með sigrinum treystu Kanada-
menn stöðu sína sem besta ís-
hokkíþjóð heims. Þeir eru heims-
og Ólympíumeistarar karla og
kvenna, heimsmeistarar U-18 liða
karla og urðu í öðru sæti á heims-
meistaramóti U-20 liða í vetur.
Keppnin, sem fór fram í Finn-
landi, þótti mjög góð auglýsing
fyrir íþróttina. Aðsókn að leikjum
var sú næstbesta frá upphafi og
áhersla á sóknarleik var meiri en
á undanförnum mótum. Kanada-
menn unnu t.d. Tékka 8:4 í undan-
úrslitum og Svíar unnu Finna 6:5 í
átta liða úrslitum eftir að hafa
lent 1:5 undir.
Svíinn Mats Sundin var valinn
besti leikmaður mótsins en í úr-
valsliðinu voru Sean Burke
(Kanada), Lubomir Visnovsky
(Slóvakíu), Jay Bouwmeester
(Kanada), Dany Heatley
(Kanada), Mats Sundin (Svíþjóð)
og Peter Forsberg (Svíþjóð). ■
HM í íshokkí:
Kanada meistari
HEIMSMEISTARAR
Kanadamenn fagna sigri á heimsmeistara-
keppninni. Þeir þurftu að bíða í sjö mínút-
ur eftir úrskurði dómaranna um hvort sig-
urmark Anson Carter væri gott og gilt.
FÓTBOLTI AC Milan og Inter gerðu
markalaust jafntefli í fyrri undan-
úrslitaleik liðanna, sem þótti lítið
fyrir augað. Sá leikur var heima-
leikur AC Milan en bæði lið eiga
sama heimavöllinn, San Siro. AC
er því á útivelli í kvöld og nægir
jafntefli skori liðið mark í leikn-
um.
Sóknarmennirnir Filippo
Inzaghi og Andriy Shevchenko
voru báðir hvíldir í 1:0 tapleik AC
gegn Brescia um síðustu helgi.
Þeir ættu því að vera tilbúnir í
slaginn í kvöld. Inter verður aftur
á móti án Christan Vieiri, sem
missti einnig af fyrri leik liðanna.
„Við hófum keppni í undanúr-
slitum sem líklegt taplið en núna
finnst mér við vera líklegri til að
komast áfram,“ sagði Hernan
Crespo, leikmaður Inter, sem
verður í framlínu liðsins í kvöld
ásamt Alvaro Recoba. „Við erum
einbeittir og við hlökkum mikið til
að sýna hvað í okkur býr. Bæði
Inter og AC Milan þurfa að skora
og þess vegna er ég viss um að
viðureignin verður meira spenn-
andi en sú fyrri.“
Alessandro Nesta, varnarmað-
urinn sterki í liði AC Milan, á von
á erfiðum leik. „Við verðum að
vera mjög varkárir,“sagði Nesta.
„Ég held að þetta verði ekki eins
taktískur leikur og sá fyrri vegna
þess að núna getum við ekki
treyst á annað tækifæri.“ ■
CRESPO OG NESTA
Alessandro Nesta (til vinstri) og Hernan Crespo berjast um boltann í fyrri leik AC og Inter í
síðustu viku.
AC og Inter mætast í Meistaradeildinni:
Búist við
skemmtilegri leik
AP
/M
YN
D
FÓTBOLTI Í næsta mánuði leikur
Ísland tvo afar mikilvæga leiki í
undankeppni Evrópukeppni
landsliða, fyrst heima gegn
Færeyjum og síðan úti gegn Lit-
háen. Upp úr miðjum ágúst
heimsækja Íslendingar Færey-
inga og í haust leikum við
tvisvar við Þjóðverja.
Þjóðverjar eru efstir í riðlin-
um og verða það að öllum lík-
indum enn þegar keppni lýkur í
haust. Þeir komast því beint í
lokakeppnina en liðið sem nær
2. sæti tekur þátt í aukakeppni
um fimm laus sæti í Portúgal á
næsta ári. Litháar og Skotar
keppa um 2. sætið en Íslending-
ar geta enn blandað sér í þá bar-
áttu með góðum árangri í sumar
og hagstæðum úrslitum í leikjum
annarra þjóða.
Íslendingar verða að vinna
báða leikina gegn Færeyingum
og mega ekki tapa í Litháen. Með
tveimur sigrum og einu jafntefli
kæmist Ísland í tíu stig og gæti
það dugað til að ná þriðja sætinu.
Líklegra er þó að Íslendingar
þurfi einnig að sigra í Litháen til
að ná þessu sæti.
Skotar eiga eftir heimaleiki
gegn Færeyingum og Litháum
og má gera ráð fyrir að þeir fái
a.m.k. fjögur stig úr þeim. Þar
með væru þeir komnir með ell-
efu stig. Skotar eiga líka eftir tvo
leiki við Þjóðverja og væri hag-
stæðast fyrir Ísland að Þjóð-
verjarnir ynnu þá báða.
Auk heimaleiksins gegn Ís-
lendingum keppa Litháar í Fær-
eyjum og Skotlandi í haust. Það
kæmi sér best fyrir Íslendinga
að Litháar næðu ekki að sigra í
þessum leikjum. ■
STAÐAN Í 5. RIÐLI -
LEIKIR, MÖRK OG STIG
Þýskaland 3 5:2 7
Litháen 5 4:6 7
Skotland 4 6:4 7
Ísland 3 4:4 3
Færeyjar 3 3:6 1
Leikir sem eftir eru:
7. júní
Skotland - Þýskaland
Ísland - Færeyjar
11. júní
Færeyjar - Þýskaland
Litháen - Ísland
20. ágúst
Færeyjar - Ísland
6. september
Skotland - Færeyjar
Ísland - Þýskaland
10. september
Þýskaland - Skotland
Færeyjar - Litháen
11. október
Skotland - Litháen
Þýskaland - Ísland
Enn möguleiki
á þriðja sætinu
Ísland þarf sjö til níu stig í næstu þremur leikjum til að ná þriðja sætinu í
5. riðli undankeppni Evrópukeppninnar.
EIÐUR SMÁRI
EIður Smári Guðjohnsen hefur skorað þrjú af fjórum mörkum Íslands í undankeppni
Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu.