Fréttablaðið - 13.05.2003, Síða 19
■ ■ FUNDIR
11.00 Dr. Irina Akimushkina heldur
fyrirlestur um sögu rússneskra kvenna í
fortíð og nútíð í stofu 101 í Odda á veg-
um Rannsóknastofu í kvennafræðum
við Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn fer
fram á ensku og er öllum opinn.
12.05 Helga Jónsdóttir, borgarritari
Reykjavíkurborgar, flytur inngangserindi
um samkeppnishæfni opinbera geirans
á hádegisfundi í Háskólanum í Reykja-
vík, þar sem MBA-útskriftarnemarnir
Hildur Hörn Daðadóttir, Rut Jónsdóttir
og Sævar Kristinsson kynna síðan loka-
verkefni sín.
20.00 Þau Hulda Björk Garðars-
dóttir sópran, Davíð Ólafsson bassi og
Sesselja Kristjánsdóttir mezzósópran
flytja tónlist eftir Wolfgang Amadeus
Mozart ásamt Chalumeaux-tríóinu á
tónleikum í Íslensku óperunni sem bera
yfirskriftina Mozart fyrir sex. Chalu-
meaux-tríóið er skipað klarínettuleikur-
unum Kjartani Óskarssyni, Óskari Ing-
ólfssyni og Sigurði I. Snorrasyni.
■ ■ SÝNINGAR
Útskriftarsýning myndlistar- og
hönnunarnemenda Listaháskóla Íslands
stendur nú yfir í Listasafni Reykjavíkur,
Hafnarhúsinu.
Ríkharður Valtingojer og Helgi
Snær Sigurðsson halda sýningu, sem
þeir nefna Tvíraddað, í sýningarsal fé-
lagsins Íslensk grafík í Hafnarhúsinu.
Sýningin stendur til 25. maí.
Í Gerðarsafni í Kópavogi stendur yfir
yfirlitssýning á verkum Gerðar Helga-
dóttur.
Sýning Þorbjargar Höskuldsdóttur í
Listhúsi Ófeigs að Skólavörðustíg 5
stendur til 14. maí.
Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir og
Pétur Magnússon eru með sýningu í
Gallerí Skugga þar sem gefur að líta
100% nælon og lakk. Einnig vínylvegg-
fóður með blómamótífum og ljósmynd-
um af þeim ásamt öðrum ljósmyndum
og stáli.
Í Hallgrímskirkju stendur yfir sýning
á listvefnaði eftir Þorbjörgu Þórðardótt-
ur. Verkin eru unnin í ull, hör, sísal og
hrosshár. Hugmyndir að verkum sínum
sækir Þorbjörg til íslenskrar náttúru og
vinnur úr þeim á óhlutbundinn hátt.
Sýningin er opin daglega kl. 9-17 og lýk-
ur 26. maí.
Ella Magg sýnir ný og „öðruvísi“
olíumálverk í Listasal Man, Skólavörðu-
stíg 14. Sýning hennar stendur til 18.
maí og er opin virka daga frá kl. 10-18,
laugardaga frá kl. 11-18 og sunnudaga
frá kl. 15-18.
Sýningin Handritin stendur yfir í
Þjóðmenningarhúsinu. Sýningin er á
vegum Stofnunar Árna Magnússonar.
Einnig er þar sýning sem nefnist Ís-
landsmynd í mótun – áfangar í korta-
gerð.
Tolli sýnir um 30 verk, bæði vatns-
litamyndir og olíumálverk, í Listasetrinu
Kirkjuhvoli, Akranesi. Listasetrið er opið
alla daga nema mánudaga frá kl. 15-18.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
20 13. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
10 11 12 13 14 15 16
MAÍ
Þriðjudagur
Þetta er svolítið öðruvísi, aðsyngja Mozart með klarinett-
um eingöngu. En Mozart er að
mínu viti svolítið mikið klar-
inettutónskáld. Bara þegar hlust-
að er á venjulega Mozartsinfoníu
eða Mozartóperu tekur maður eft-
ir því að klarinettan svífur alltaf
yfir eins og engill og setur sterk-
an svip á tónlistina,“ segir Davíð
Ólafsson söngvari. „Manni finnst
þetta því tilheyra einhvern veginn
að flytja þetta með klarinettum
eingöngu. Einmitt svona á Mozart
að vera.“
Klarinettur af öllum stærðum
og gerðum gegna stóru hlutverki
á tónleikum í Íslensku óperunni í
kvöld. Þar flytja þrír söngvarar
og þrír klarinettuleikarar tónlist
eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
Söngvararnir þrír eru þau Dav-
íð, sem er bassi, Hulda Björk
Garðarsdóttir sópran og Sesselja
Kristjánsdóttir mezzósópran, en
klarinettuleikararnir eru þeir
Kjartan Óskarsson, Óskar Ing-
ólfsson og Sigurður I. Snorrason,
sem nú hafa starfað saman sem
klarinettutríó í um það bil áratug
og nefna sig Chalumeaux-tríóið.
„Við ætlum að flytja bæði verk
sem Mozart hefur samið fyrir
klarinettur og söngvara og líka
verk sem útsett eru sérstaklega
fyrir okkur,“ segir Davíð.
Flutt verða fimm næturljóð og
ein kansónetta eftir Mozart. Öll
þessi verk samdi Mozart fyrir
þrjá söngvara, klarinettur og
bassetthorn í þeim tilgangi að
flytja þau
s j á l f u r
á s a m t
vinum
sínum á góðum samverustundum
í heimahúsum.
Að auki verða fluttar aríur,
dúettar og terzettar úr óperunum
Brúðkaupi Fígarós og Cosi fan
tutte, sem þeir Kjartan og Óskar
hafa umritað fyrir söngvara og
klarinettuhljóðfæri.
■ TÓNLIST
Einmitt svona á
Mozart að vera
!
!
" #
$
%
&
'
! (
&
!
) !
*
+,-
./0)
1
20
314
5365781
9658:
9;0
6<8
=
>?@8<)5
16
6
<
/! A
AA
!
&
%
B, 3
% '
"
!
%
"&
%
0"A
5
!
5
C C
!
$
%
9
Leggja sál
sína í verkin
Þetta eru yfirleitt stærstu ogdýrustu verk sem þau hafa
gert. Mörg þeirra leggja því
hjarta sitt og sál algjörlega í þessi
verk,“ segir Hekla Dögg Jónsdótt-
ir, sem er annar sýningarstjóra
útskriftarsýningar nemenda
Listaháskóla Íslands.
Alls eiga 28 myndlistarnemar
og 28 hönnunarnemar verk á sýn-
ingunni, sem var opnuð í Hafnar-
húsinu í Reykjavík á laugardag-
inn.
„Þetta eru geysilega ólík verk
og af öllu tagi, bæði málverk,
skúlptúrar, ljósmyndir, vídeó og
gagnvirk tæknileg verk. Eigin-
lega sýnishorn af öllum skalan-
um.“
Þetta er í þriðja sinn sem
Hekla Dögg er sýningarstjóri út-
skriftarsýningarinnar, en að
þessu sinni sá hún eingöngu um
myndlistarhlutann. Steinþór Kári
Kárason stýrði hins vegar hönn-
unarhlutanum. Þetta er einnig í
fyrsta sinn sem útskriftarsýning-
in er haldin utan skólans á rót-
grónu listasafni.
„Að vera með sýninguna þarna
hefur haft mikil áhrif á yfirbragð
hennar. Frágangurinn er allur
miklu betri og þetta er meiri sam-
sýning en verið hefur.“ ■
SVAVAR PÉTUR EYSTEINSSON
Svavar er einn nemendanna sem sýna verk sín á útskriftarsýningu Listaháskóla Íslands í
Hafnarhúsinu.
■ MYNDLIST
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M