Fréttablaðið - 13.05.2003, Síða 23
13. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Fólk þarf ekki lengur að efast umgildi þess að sofa vel og hvílast.
Sást best á Davíð Oddssyni daginn
eftir erfiða kosn-
inganótt. Mætti í
sjónvarpið útsofinn,
eins og nýr maður
og meira að segja
búinn að skipta um
skoðun frá kvöldinu
áður. Þar sem allt hafði verið
ómögulegt voru nú eingöngu mögu-
leikar. Stríðsglampi í augum í stað
vondeyfðar. Mættu fleiri sofa jafn
vel og Davíð Oddsson.
Undarleg árátta Ríkisútvarpsinsað útvarpa sameiginlegu morg-
unútvarpi á báðum. Til hvers að
vera með tvær rásar með sama
efni? Bylgjan gerir þetta líka með
því að útvarpa morgunsjónvarpi
Stöðvar 2. Ef þú pantar tvær pylsur
viltu ekki sjá aðra í spegli.
Gestur Einar Jónasson tekurblessunarlega við í morgun-
útvarpi Rásar 2 klukkan hálf níu
þegar sameiginlegu samfélags-
þrasi rásanna linnir. Gestur Ein-
ar er náttúrutalent í útvarpi og
ætti að sitja alla vaktina – og
helst einn. Gott að vakna með
góðu fólki. Gestur Einar er góð-
ur í útvarpi.
Þá ber að gleðjast yfir því aðGuðrún Gunnarsdóttir sé aftur
komin í útvarpið. Guðrún stýrir
laugardagsþætti á Rás 2 og hefur
aftur stimplað sig inn sem ein
besta útvarpsrödd landsins. Út-
varpsfólk fer stundum erindis-
leysu í sjónvarp. Og jafnvel í
stjórnmál líka. Guðrún á að vera í
útvarpinu og það á við um ýmsa
aðra sem horfið hafa annað. ■
Við tækið
EIRÍKUR JÓNSSON
■ hefur tröllatrú á góðum nætursvefni
og ýmsu öðru.
Góður nætursvefn
20.00 Kvöldljós
21.00 Bænastund
21.30 Joyce Meyer
22.00 Benny Hinn
22.30 Joyce Meyer
Á Breiðbandinu má finna 28
erlendar sjónvarpsstöðvar sem
seldar eru í áskrift og þar af eru
6 Norðurlandastöðvar. Að auki
sendir Breiðbandið út flestar ís-
lensku útvarpsrásirnar ásamt 10
erlendum tónlistarrásum með
mismunandi tónlistarstefnum.
17.00 Olíssport
17.30 Meistaradeild Evrópu
18.30 Meistaradeild Evrópu Bein út-
sending frá síðari leik Inter Milan og AC
Milan.
21.00 The Punisher ((Mér að mæta)
Frank Castle er fyrrverandi lögga sem
hefur tapað áttum. Kona hans og börn
voru myrt og Frank telur það heilaga
skyldu sína að útrýma öllu glæpahyski.
Hann virðir ekki lengur lög og reglur
samfélagsins og hefur óumbeðinn tekið
að sér hlutverk bæði dómara og böðuls í
málum misindismanna. Aðalhlutverk:
Dolph Lundgren, Louis Gossett, Jr., Jer-
oen Krabbe. Leikstjóri: Mark Goldblatt.
1989. Stranglega bönnuð börnum.
22.30 Olíssport Fjallað er um helstu
íþróttaviðburði heima og erlendis.
23.00 Trans World Sport (Íþróttir um
allan heim)
0.00 Alien Resurrection (Uppris-
an)Ripley er klónuð 200 árum eftir
dauða sinn og þarf enn einu sinni að
berjast við geimverur þegar tilraunir vís-
indamanna fara úrskeiðis. Hörkuspenn-
andi geimtryllir sem gefur tveimur fyrstu
myndunum ekkert eftir. Aðalhlutverk:
Sigourney Weaver, Winona Ryder, Dom-
inique Pinon. Leikstjóri: Jeanne-Pierre
Jeunet. 1997. Stranglega bönnuð börn-
um.
1.45 Dagskrárlok og skjáleikur
16.45 Viltu læra íslensku?
17.05 Leiðarljós
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Gormur (7:26)
18.30 Purpurakastalinn (1:13)
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19.35 Kastljósið
20.00 Íslandsmótið í handbolta Bein
útsending frá fjórða leik í úrslitum karla.
21.30 Út og suður (1:12) Myndskreytt-
ur spjallþáttur þar sem farið er vítt og
breitt um landið og brugðið upp svip-
myndum af fólki. Umsjón: Gísli Einars-
son.
22.00 Tíufréttir
22.20 Illt blóð (5:6) (Wire in the
Blood) Breskur spennumyndaflokkur þar
sem sálfræðingurinn dr. Tony Hill reynir
að ráða í persónuleika glæpamanna og
upplýsa dularfull sakamál. Hver saga er
sögð í tveimur þáttum. Atriði í þáttunum
eru ekki við hæfi barna. Aðalhlutverk:
Robson Green og Hermione Norris.
23.10 Finnagaldurinn (Finland the
Secret) Þáttur um finnska hljómsveitar-
stjóra. Þótt Finnar séu aðeins fimm millj-
ónir eiga þeir fleiri heimsfræga hljóm-
sveitarstjóra en nokkur önnur þjóð.
0.00 Kastljósið
0.25 Viltu læra íslensku?
0.45 Dagskrárlok
6.58 Ísland í bítið
9.00 Bold and the Beautiful
9.20 Í fínu formi
9.35 Oprah Winfrey
10.20 Ísland í bítið
12.00 Neighbours
12.25 Í fínu formi (Þolfimi)
12.40 The Court (4:6)
13.25 Third Watch (9:22)
14.10 Daylight Robbery (2:8)
15.00 Trans World Sport
16.00 Barnatími Stöðvar 2
17.40 Neighbours
18.05 Off Centre (6:21)
18.30 Fréttir Stöðvar 2
19.00 Ísland í dag, íþróttir, veður
19.30 Animatrix
19.45 Friends 3 (23:25)
20.10 Fear Factor 3 (11:28) Ímyndaðu
þér sjónvarpsþátt þar sem þínar verstu
martraðir verða að veruleika. Fear Factor
er alvöru raunveruleikasjónvarp þar sem
keppendur fara bókstaflega út á ystu nöf.
Þátturinn var frumsýndur á NBC, sló strax
í gegn og nú hafa fleiri þjóðir gert sína
eigin útgáfu af Fear Factor.
21.00 The Agency (5:22) (Leyniþjón-
ustan) Þegar Gage kemst að því að írask-
ur flóttamaður hefur verið haldið fanga í
Bandaríkjunum í sex ár, fyrirskipar hann
að farið verði með hann aftur til heima-
lands síns til að vitna um árásasvæði.
21.50 The Wire (13:13)
22.55 60 Minutes II Framúrskarandi
fréttaþáttur sem vitnað er í.
23.40 Crossing Jordan (7:25) (Réttar-
læknirinn)
0.25 Coupling (5:7)
0.55 Nil By Mouth (Á köldum klaka)
Aðalhlutverk: Ray Winstone, Kathy Burke,
Charlie Creed-Miles. Leikstjóri: Gary Old-
man. 1997. Stranglega bönnuð börnum.
2.50 Friends 3 (23:25)
3.10 Ísland í dag, íþróttir, veður
3.35 Tónlistarmyndbönd frá Popp
TíVí
6.00 Dinner With Friends
8.00 Dreaming of Joseph Lee
10.00 102 Dalmatians
12.00 Pushing Tin
14.00 Dinner With Friends
16.00 Dreaming of Joseph Lee
18.00 102 Dalmatians
20.00 3000 Miles to Graceland
22.05 Trois
0.00 Frequency
2.00 The Beach
4.00 Trois
7.00 70 mínútur
12.00 Pepsí listinn
16.00 Pikk TV
19.00 XY TV
20.00 Geim TV
20.30 Lúkkið
21.00 Buffy the Vampire Slayer
22.03 70 mínútur
23.10 Meiri músík
18.30 Djúpa laugin (e)
19.30 The King of Queens ( e)
20.00 Listin að lifa Á þriðjudagskvöld-
um dekrar SKJÁREINN við nautnaseggina
og sýnir frábæra þætti fyrir fagurkera um
alþjóðlega hönnun - og stórskemmtilega
þætti um uppruna matar og drykkjar. Er
Dijon-sinnep frá Dijon? Eru hamborgarar
frá Hamborg?
21.00 Innlit útlit Eins og áður verður
fjallað um hús og híbýli Íslendinga
heima og erlendis, fasteignir, hönnun,
arkitektúr, skipulagsmál og fleira. Nýjung-
ar í innréttingum og byggingarefnum
kynntar og þjóðþekktir einstaklingar
koma í þáttinn í leit að fasteign eða til
að selja.
22.00 Boston Public Bandarískur
myndaflokkur um líf og störf kennara og
nemenda við Winslow-miðskólann í
Boston þar sem hver hefur sinn drösul
að draga. Harper skólastjóri tekst á við
uppreisnargjarna nemendur og reiða
kennara, kennararnir reyna að uppfræða
mismóttækilega nemendur og allt logar í
deilum.
22.50 Jay Leno
23.40 Survivor Amazon (e)
0.30 Dagskrárlok Sjá nánar á
www.s1.is
Gísli Einarsson, fréttaritari á Vest-
urlandi og ritstjóri þess ágæta
blaðs Skessuhorns, verður með
vikulega þætti í Sjónvarpinu í sum-
ar. Þættirnir, sem hafa fengið heitið
Út og suður, verða á dagskrá á
þriðjudagskvöldum og endursýndir
á miðvikudögum og um helgar.
Gísli segist ætla að búa til mynd-
skreyttan spjallþátt þar sem farið
er vítt og breitt um landið og
brugðið upp svipmyndum af fólki
og hann vonast til að viðmælend-
urnir verði sem fjölbreyttastir og
umræðuefnin líka.
Sjónvarpið
21.30 Sýn 18.30
Erkifjendurnir Inter Milan og AC
Milan mætast í undanúrslitum
Meistaradeildar Evrópu. Lið AC Mil-
an á fyrri hluta síðasta áratugar var
eitt hið besta sem knattspyrnu-
áhugamenn hafa séð og félagið
fagnaði margoft sigri í Evrópu-
keppni meistaraliða. Stuðnings-
mönnum Inter Milan var þá ekki
skemmt en lið þeirra lék síðast til
úrslita í keppninni fyrir þrjátíu og
sex árum! Hvort Inter Milan kemst í
úrslitaleikinn nú skal ósagt látið en
þessi nágrannalið þykja nokkuð
áþekk að styrk að mati sérfræð-
inga. Inter Milan á „heimaleikinn“ í
kvöld en bæði lið leika heimaleiki
sína á hinum fræga San Siro-leik-
vangi í Mílanó.
■
Ef þú pantar
tvær pylsur
viltu ekki sjá
aðra í spegli.
Út og suður
Inter Milan-
AC Milan
RAY ROMANO
Starfaði áður sem íþróttafréttamaður á
dagblaði. Er í dag launahæsti sjónvarps-
leikari allra tíma.
Ray Romano:
Launahæsti
leikarinn
SJÓNVARP Leikarinn Ray Romano,
sem skrifar og leikur aðalhlut-
verkið í gamanþáttunum „Ev-
erybody Loves Raymond“, hefur
gengið frá samningum um gerð
áttundu seríu þeirra. Samningur-
inn er ekki af verri endanum því
Romano verður launahæsti sjón-
varpsleikari allra tíma. Hann fær
um 130 milljónir íslenskra króna
fyrir hvern þátt.
Sjónvarpsstöðin CBS gerði
einnig samning við framleiðanda
þáttanna um tvær seríur til við-
bótar. Ray hefur gefið til kynna að
hann ætli sér að hætta að gera
þættina áður en þeir missa vin-
sældir sínar. Eins og flestir þeirra
sem hafa gert það gott í sjónvarpi
keppist hann nú við að landa stór-
um hlutverkum í bíómyndum. ■