Fréttablaðið - 13.05.2003, Síða 30
ÞRIÐJUDAGUR 13. maí 2003
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt grein 3.5 í samþykktum félagsins.
Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins:
Heimilisfang Baugs Group hf. verði að Túngötu 6, Reykjavík.
Heimild til stjórnar um hækkun hlutafjár félagsins um 100.000.000 kr.,
eitthundraðmilljónirkróna að nafnverði, sem nota skal til sameiningar
eða kaupa á hlutum í öðrum félögum, svo og að hluthafar falli frá
forkaupsrétti sínum vegna hækkunarinnar, verði framlengd til
31. maí 2004.
Heimild til stjórnar um hækkun hlutafjár félagsins um 10.000.000 kr.,
tíumilljónirkróna að nafnverði, sem nota skal til sölu hlutabréfa til
stjórnenda og starfsmanna samkvæmt kaupréttaráætlun stjórnar, svo
og að hluthafar falli frá forkaupsrétti sínum vegna hækkunarinnar,
verði framlengd til 31. maí 2004.
Tillaga um heimild stjórnar félagsins til kaupa á hlutabréfum í félaginu.
Umræður og afgreiðsla um önnur málefni sem löglega eru upp borin.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
A
U
2
07
70
05
/2
00
3
Aðalfundur Baugs Group hf.
verður haldinn á Hótel Nordica
þriðjudaginn 20. maí 2003 kl . 14.00.
Dagskrá, tillögur og ársreikningur félagsins auk annarra gagna munu liggja
frammi á skrifstofu félagsins að Túngötu 6, 101 Reykjavík, hluthöfum til sýnis,
viku fyrir aðalfund.
a.
b.
c.
Dagskrá fundarins verður sem hér segir:
1
2
3
4
Að hætta að reykja:
Kostar 85
pakka
HVERAGERÐI Heilsustofnunin í
Hveragerði býður nú upp á nám-
skeið fyrir þá sem vilja hætta að
reykja og kostar námskeiðið
42.350 krónur. Samsvarar það 85
sígarettupökkum í smásölu. Nám-
skeiðið er haldið 18.-25 maí og
innifalið í verði er gisting í Hvera-
gerði, fullt fæði og fjöldi fyrir-
lestra.
Margir hafa sótt sér þrek og
kjark til að hætta tóbaksreyking-
um með því að fara í Hveragerði
en námskeiðin byggja að stórum
hluta á hópefli þeirra sem sækja
þau. Fer af þeim gott orð. ■
JÓN KARL HELGASON
Ferðalok, bók hans um hið svokallaða
beinamál, selst vel enda þreytist þjóðin
seint á frásögnum af ástmögri sínum.
Ástmögur-
inn heillar
enn
BÆKUR Bókin Ferðalok eftir Jón
Karl Helgason gerði það býsna
gott í vorbókaflóði Bjatrs en í
henni fjalar Jón Karl um hið svo-
kallaða beinamál, eða heimkomu
jarðneskra leifa Jónasar Hall-
grímssonar. Þjóðin fær sig sjálf-
sagt seint fullsadda af skrifum
um þennan margrómaða ástmög-
ur sinn og bókin rauk upp sölu-
lista íslenskra bókaverslana þeg-
ar hún kom út. Fyrir tveimur vik-
um var hún í efsta sæti á lista yfir
ævisögur, hand- og fræðibækur
og í öðru sæti á aðallista íslenskra
bóka og sótti að Sonum duftsins,
eftir Arnald Indriðason, sem hef-
ur ráðið lögum og lofum á listan-
um mánuðum saman.
Snæbjörn Arngrímsson, út-
gáfustjóri Bjarts, sem gefur
Ferðalok út, segir að líklega hafi
ást þjóðarinnar á Jónasi eitthvað
með þessar vinsældir að gera.
„Svo gerist það sem betur fer enn
hérna að bækur sem spyrjast vel
út seljast. Bókin hefur fengið góð-
ar viðtökur og þessi jákvæðu við-
brögð stuðla að því að fólk vilji
lesa hana.“
Leiðarlok var ein þeirra sjö
bóka sem Bjartur gaf út í vor-
bókaflóði sínu sem Snæbjörn seg-
ir hafa gengið mjög vel. „Salan
hefur verið mjög fín og það er
auðvitað alltaf gaman þegar
svona hlutir takast vel.“ Við þetta
má svo bæta að Bjartur hefur
ákveðið að endurtaka vorbóka-
flóðið að ári. ■
Fréttablaðið er mest lesna dagblað landsins* og prentað í 92.000 eintökum.**
*samkv Fjölmiðlakönnun Samtaka íslenskra auglýsingastofa, Samtaka auglýsenda og fjölmiðlanna.
**Fréttablaðið er aðili að upplagseftirliti Verslunarráðs Íslands.
Fylgir Fréttablaðinu 4. júní.
Hagnýtar upplýsingar fyrir þá sem ætla að ferðast
innanlands í sumar. Gisting, matur, afþreying, fróðleikur
og skemmtun um land allt.
Ferðir innanlands 2003
Auglýsendur athugið:
Dreift með Fréttablaðinu, mest lesna dagblaði landsins,
í 92.000 eintökum. Hafið samband við auglýsingadeild
Fréttablaðsins í síma 515 7584 eða 515 7500 fyrir 2. júní eða með
tölvupósti: petrina@frettabladid.is.
Mest lesna blaðið