Fréttablaðið - 31.05.2003, Blaðsíða 5

Fréttablaðið - 31.05.2003, Blaðsíða 5
6 31. maí 2003 LAUGARDAGUR GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 71.51 -0,15% Sterlingspund 117.85 0,14% Dönsk króna 11.40 -0,70% Evra 84.65 -0,76% Gengisvístala krónu 118,63 -0,55% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 213 Velta 3.324 milljónir ICEX-15 1.459 -0,21% Mestu viðskipti Kögun hf. 333.784.598 Baugur Group hf. 86.967.275 Landsbanki Íslands hf. 42.519.700 Mesta hækkun Hampiðjan hf. 4,21% Opin kerfi hf. 3,03% Flugleiðir hf. 1,76% Mesta lækkun Þorbjörn Fiskanes hf. -11,11% Framtak Fjárfestingarbanki hf. -3,30% Marel hf. -2,60% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ*: 8754,5 1,6% Nasdaq*: 1594,6 1,3% FTSE: 4048,1 -0,9% DAX: 2984,8 2,7% NIKKEI: 8424,5 0,6% S&P*: 961,8 1,3% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 Veistusvarið? 1Hvað heitir nýr oddviti sjálfstæðis-manna í borgarstjórn? 2Óttast er að deilumál á milli Banda-ríkjanna og Írans gætu orðið upp- spretta að hörðum átökum á næstunni. Hvað heitir forseti Írans? 3Þekkt bresk alþýðuhljómsveit heldurtónleika í Íslensku óperunni í kvöld. Hvað heitir sveitin? Svörin eru á bls. 38 Þyrlan Landhelgisgæslunnar flaug 200 sjómílur eftir sjómanni: Veikur sjómaður sóttur SLYS Þyrluáhöfn Landhelgisgæsl- unnar sótti slasaðan skipverja um borð í spænska togarann Hermanos Gandon Guadro aðfaranótt fimmtudagsins. Hönd mannsins hafði lent í spili og var talið að hann væri illa brotinn. Skipið var þá statt við 200 sjómílna lögsögumörkin á Reykjaneshrygg. Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LÍF fór í loftið klukkan 22.30 en skipstjóra spænska togarans var sagt að halda með mestu ferð í átt að Reykjanesi til móts við þyrluna, sem kom að skipinu klukkan hálfeitt um nóttina. Skip- ið var þá statt 186 sjómílur vestsuðvestur af Reykjanesi. Þyrlan lenti síðan á Reykjavíkur- flugvelli með sjómanninn korter fyrir þrjú um nóttina þar sem sjúkrabíll beið og flutti hann á Landspítala í Fossvogi. ■ EFNAHAGSMÁL Raufarhöfn er hugs- anlega aðeins toppurinn á ísjakan- um, segir Hannes G. Sigurðsson, hagfræðingur og aðstoðarfram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins, um uppsagnir 50 starfs- manna fiskvinnsl- unnar Jökuls í vik- unni. Hannes segir að sterk staða krón- unnar geti haft al- varlegar afleiðing- ar á næstu misserum ef stjórn- völd bregðist ekki við vandanum. Íslensk fyrirtæki sem séu í al- þjóðlegri samkeppni geti orðið fyrir mikilli blóðtöku og farið á hausinn ef ekkert verði að gert. „Raufarhöfn er bara eitt dæmi af fjöldamörgum sem við munum sjá á næstunni ef þessi gengis- staða heldur áfram,“ segir Hann- es. „Það er alveg fráleitt að Rauf- arhöfn sé eitthvað einangrað dæmi. Fyrirtæki sem eru mikið í landvinnslu og minna í útgerð standa veikar en þau sem eru með blandaðan rekstur. Þetta ástand þrýstir á að vinnsla hráefnis flyst út á sjó og þar með minnkar vinna í landi. Einnig þrýstir þetta á auk- inn útflutning á óunnu hráefni því það borgar sig hreinlega ekki að vinna það hérna á Íslandi. Þetta eru þær ákvarðanir sem stjórn- endur sjávarútvegsfyrirtækja standa frammi fyrir.“ Hannes segir rækjuvinnslu eiga sérstaklega erfitt uppdráttar. Mjög tvísýnt sé hvort rækja verði áfram unnin hérna vegna þess hversu lágt verð fáist fyrir hana. Gengishækkun krónunnar hafi gert stöðuna enn erfiðari. „Við höfum verið að brýna það fyrir stjórnvöldum að þau beiti aðhaldsstefnu í opinberum fjár- málum til að sporna gegn þessu risi á krónunni. Gengi krónunnar er allt of hátt og fær ekki staðist. Móta verður skýrar línur um það hver verða viðbrögð opinberra að- ila.“ Hannes segir hátt gengi krón- unnar vera afleiðingu væntinga um miklar framkvæmdir í tengsl- um við álverið og virkjunina fyrir austan. Þá megi einnig rekja sterka stöðu krónunnar til vænt- inga manna um mikinn vaxtamun við útlönd vegna baráttu Seðla- bankans við þenslu. „Menn eru náttúrlega mjög ósáttir,“ segir Hannes. „Þetta er afar óheppileg staða að öllu leyti. Þetta fær ekki staðist til lengdar og gengið mun falla síðar og valda þá svona svipuðu ástandi og varð hérna fyrir tveimur árum þegar við fórum í gegnum verðbólgu- kúf. Þá varð nauðsynleg leiðrétt- ing á gengi krónunnar, sem skap- aði sæmilegt jafnvægi í utanríkis- viðskiptum.“ trausti@frettabladid.is Bush ferðast um Evrópu og Mið-Austurlönd: Hlakkar til að starfa með Chirac WASHINGTON, AP George W. Bush Bandaríkjaforseti hóf vikuferð sína um Evrópu og Mið-Austur- lönd í gær. Þetta er fyrsta Evrópu- ferð Bush síðan Íraksstríðið hófst. Forsetinn mun fyrst heimsækja Pólland og þakka landinu fyrir stuðning sinn í stríðinu í Írak. Síð- an ferðast hann til St. Pétursborgar í tilefni af þriggja alda afmæli borgarinnar. Þar ræðir hann við Vladímír Pútín, forseta Rússlands. Næst heldur Bush til Evian í Frakklandi þar sem fundur átta helstu iðnríkja heims verður hald- inn í næstu viku. Á fundinum mun Bush m.a. hitta Jacques Chirac Frakklandsforseta, sem mótmælti Íraksstríðinu kröftuglega á sínum tíma. Bush segist hlakka til að star- fa með Chirac. „Ég vil segja þetta við frönsk stjórnvöld: Við skulum vinna saman fyrir Evrópu, þar sem samstaða, frelsi og friður ríkir. Ég þarf að sannfæra efasemdarmenn í Frakklandi um að áform Banda- ríkjamanna eru af hinu góða,“ sagði Bush. „Frönsk yfirvöld þurfa einnig að sannfæra bandarískan al- menning um að þeim sé annt um öryggi okkar þjóðar.“ Loks heldur forsetinn til Mið- Austurlanda en það er talinn erfið- ast hluti fararinnar. Þar mun hann m.a. funda með þeim Ariel Sharon og Mahmoud Abbas, forsætisráð- herrum Ísraels og Palestínu, um Vegvísinn til friðar. ■ Sendiráð Írans í Osló rýmt: Eldsvoði og hvítt duft OSLÓ, AP Sendiráð Írans í Osló var rýmt í gær eftir að kveikt var í bíl á bílastæði við bygginguna. Auk þess var einn starfsmaður sendiráðsins fluttur á sjúkrahús eftir að hann fann hvítt duft í byggingunni. Að sögn norsku lög- reglunnar er talið að duftið sé hættulaust. Þrír menn sáust fyrir utan sendiráðið skömmu áður en eldur- inn kviknaði í bílnum. Enginn hef- ur verið handtekinn. Talsmaður norska utanríkis- ráðuneytisins segir að árásin sé litin afar alvarlegum augum. Skammt er síðan al Kaída-samtök- in hvöttu til árása á Noreg, Bret- land, Ástralíu og Bandaríkin. ■ Hafnarfjörður: Færri innbrot LÖGREGLUMÁL Innbrotum í um- dæmi lögreglunnar í Bessastaða- hreppi, Garðabæ og Hafnarfirði hefur fækkað um 13% á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs miðað við sama tíma í fyrra, eða úr 81 í 71. Þjófnuðum hefur á sama tíma fækkað um 22%. Flest innbrot í fyrra voru í bif- reiðar eða 42%. Slíkum brotum hefur fjölgað hlutfallslega. Al- gengustu þjófnaðirnir eru úr bíl- um og á reiðhjólum. Reynslan hefur sýnt að inn- brotum og þjófnuðum fjölgar yfir sumarmánuðina og vill lögregla því hvetja almenning til árvekni gagnvart eigum sínum og að til- kynna um grunsamlegar manna- ferðir. ■ VEIKUR Á VATNAJÖKLI Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í fyrrakvöld sjötugan mann sem var einn úr hópi vélsleðamanna sem ferðuðust um Vatnajökul. Maðurinn hafði fengið slæman brjóstverk og var talið nauðsyn- legt að sækja hann með þyrlu. Var hann fluttur á Landspítala við Hringbraut. ELDUR Í BÍLSKÚR Eldur kviknaði í bílskúr í Garðinum um eittleytið í fyrrinótt. Miklar skemmdir urðu vegna brunans en í bílskúrnum var töluvert af timbri. Að sögn lögreglunnar í Reykjanesbæ var aldrei hætta á að eldurinn bærist í nærliggjandi hús. Ekki liggur fyrir hver eldsupptök voru. LEITAÐ AÐ 12 ÁRA DRENG Leit var gerð í fyrrinótt að tólf ára gömlum dreng sem farið hafði í fússi frá heimili í Breiðholti þar sem hann var gestkomandi. Lög- reglan í Reykjavík hóf leitina klukkan tíu um kvöldið og fannst hann sofandi um fjögurleytið um nóttina. Hafði hann lagst til svefns í geymslu við heimili vinafólks í Kópavogi. Ekkert amaði að drengnum þegar hann fannst þrátt fyrir að hann væri klæðalítill. FJÓRIR HANDTEKNIR Fjórir menn voru handteknir í Reykjavík að- faranótt þriðjudags í tengslum við tvö innbrot. Lögreglan fékk til- kynningu um klukkan hálf tvö um að reynt hefði verið að brjótast inn í heimahús við Lindargötu. Skömmu síðar voru tveir menn handteknir grunaðir um verknað- inn. Tveir klukkutímum síðar var tilkynnt um innbrot í fyrirtæki við Hverfisgötu. Þar voru tveir menn gómaðir á staðnum. Innflutningur bíla: Um 50% aukning VERSLUN Á fyrstu fjórum mánuð- um ársins voru skráðir um 50% fleiri bílar en á sama tíma í fyrra. Að teknu tilliti til árstíðaleið- réttingar benda þessar tölur til þess að alls verði skráðir um 12.500 bílar á þessu ári samanbor- ið við 8.487 bíla í fyrra og 16.700- 19.000 bíla á árunum 1998-2000. Innflutningur heimilistækja hefur einnig vaxið mikið. Að teknu tilliti til verðbreytinga má ætla að innflutningur heimilis- tækja hafi aukist um 25-30% að raungildi á fyrstu fjóra mánuðum þessa árs miðað við sama tíma árið áður. ■ SÓTTUR ÚT Á RÚMSJÓ Veikur sjómaður var sóttur um borð í spænskan togara. M YN D : L AN D H EL G IS G Æ SL AN ■ Lögreglufréttir ■ Stjórnmál BUSH George W. Bush og Laura, eiginkona hans, verða á faraldsfæti næstu vikuna. AP /M YN D LANDVINNSLA Í ERFIÐLEIKUM Fyrirtæki sem eru mikið í landvinnslu og minna í útgerð standa veikar en þau sem eru með blandaðan rekstur. Þetta ástand þrýstir á að vinnsla hráefnis flyst út á sjó og þar með minnkar vinna í landi. ■ „Það er alveg fráleitt að Rauf- arhöfn sé eitt- hvað einangrað dæmi.“ Raufarhöfn aðeins toppur á ísjakanum Aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins óttast stöðu sjávar- útvegsfyrirtækja. Hann kennir háu gengi krónunnar um vanda þeirra. Verðbólga fram undan ef stjórnvöld bregðast ekki við. HANNES G. SIGURÐSSON Aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins segir að gengið muni falla síð- ar. Afleiðingin verði aukin verðbólga. NÝR FRAMKVÆMDASTJÓRI Fram- kvæmdastjórn Framsóknar- flokksins hefur ráðið nýjan fram- kvæmdastjóra í stað Árna Magn- ússonar, sem hefur tekið við embætti félagsmálaráðherra. Nýi framkvæmdastjórinn er Sigurður Eyþórsson, sem hefur starfað fyrir flokkinn frá árinu 1994.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.