Fréttablaðið - 31.05.2003, Qupperneq 13
KNATTSPYRNA „Ég hef ekki orðið fyr-
ir neinu sjálf,“ sagði Valdís Rögn-
valdsdóttir, íþróttakennari og
leikmaður meistaraflokksliðs FH
í Landsbankadeild kvenna, um þá
fordóma sem gjarna hafa fylgt
þeim stelpum sem leggja stund á
knattspyrnu. „En ég hef heyrt
dæmi þess að aðrar stelpur hafi
orðið fyrir áreiti. Það er þá aðal-
lega frá ættingjum og vinum,
jafnvel ástvinum.“
Valdís vildi þó meina að for-
dómar kæmu greinilega fram í
garð kvenna varðandi alla um-
gjörð kvennaboltans. „Það er ekki
gert eins vel við stelpurnar og
strákana með þjálfun og aðstöðu.
Við höfum oft setið á hakanum
hvað það varðar þó það hafi reynd-
ar lagast talsvert undanfarið.“
Klara Bjartmarz, starfsmaður
aganefndar Knattspyrnusam-
bands Íslands, segir að engin mál
þess eðlis hafi komið inn á borð
aganefndar. „Ég held að fordómar
séu enn til staðar gagnvart
kvennaboltanum en þeir fara sem
betur fer minnkandi.“
Rósa Júlía Steinþórsdóttir,
leikmaður Vals, og Íris Björk Ey-
steinsdóttir hjá Þrótti/Haukum
taka í sama streng. „Það örlaði
kannski aðeins á fordómum hér
fyrir nokkrum árum síðan en það
var hvorki mikið né alvarlegt og
þessi síðari ár hef ég ekki orðið
vör við neitt slíkt,“ sagði Rósa.
„Það voru náttúrulega þessar
gömlu lummur um hvað fótbolta-
stelpur væru með stór læri og
þannig hlutir en þær sögusagnir
hafa þagnað líka. Innan míns fé-
lags hefur orðið mikil breyting til
batnaðar, við erum mikið til að fá
það sama og strákarnir og það seg-
ir sína sögu að vinsældir kvenna-
boltans eru að aukast jafnt og
þétt.“
„Ég vil gefa landsliðinu og KSÍ
prik í kladdann fyrir þann árang-
ur sem hefur náðst í baráttunni
við fordóma,“ bætti Íris við. „Ég
hef heyrt foreldra tala um áhætt-
una að dóttir þeirra verði lesbía
eða eitthvað slíkt við það að
stunda fótbolta. Slíkt hefur
minnkað mikið en því miður þá
kemur fyrir að ég heyri þetta enn
þann dag í dag.“
Alþjóða Knattspyrnusamband-
ið, FIFA, tilkynnti nýlega að
dagarnir 21. og 22. júní verði til-
einkaðir baráttu gegn alls kyns
fordómum innan vallar og utan.
albert@frettabladid.is
LAUGARDAGUR 31. maí 2003 15
Klettagörðum 12
104 Reykjavík
sími 575 0000
fax 575 0010
www.sindri.is
Strandgötu 75
220 Hafnarfirði
sími 565 2965
fax 565 2920
www.sindri.is
Draupnisgötu 2
603 Akureyri
sími 462 2360
fax 462 6088
www.sindri.is
H A F N A R F I R Ð I A K U R E Y R IR E Y K J AV Í K
Alfa Laval hálfsoðnu plötuvarmaskiptarnir
eru fyrirferðarminnstu, léttustu og afkasta-
mestu kælitækin á markaðnum.
Fyrirferðarlítil hönnun, hálfsoðni plötuvarmaskiptirinn þarf
20-50% minna pláss en jafn afkastamikill röravamaskiptir.
Lítið neyslurúmmál.
Minni viðhaldskostnaður vegna minna varmaskiptayfirborðs.
Smíðaður úr einingum, þess vegna er auðvelt að breyta síðar
og aðlaga nýjum þörfum.
Mikið rekstraröryggi, langur keyrslutími.
– Frábær tæki fyrir gufun og þéttingu í kælikerfum.
Ástandið hefur lagast heilmikið í kvennaboltanum undanfarin ár:
Fordómar heyra
nánast sögunni til
FAGNAÐ AÐ LOKNUM SIGRI
Íslensku stelpurnar fögnuðu ræki-
lega sigri yfir Spánverjum.
KR-STÚLKUR Á ÆFINGU
Breyting til batnaðar undanfarin ár.
ÍSLENSKA
KVENNALANDSLIÐIÐ
Fordómar í garð
stelpnanna okkar
fara minnkandi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/RÓ
B
ERT