Fréttablaðið - 31.05.2003, Side 16
18 31. maí 2003 LAUGARDAGUR
Áfangasigur í vorblíðunni
Guðbjörg Guðmundsdóttir út-skrifaðist sem hönnuður frá
Iðnskólanum í vor, en lét ekki þar
við sitja heldur bætti við sig ein-
ingum til stúdentsprófs. „Hönn-
unarnámið tekur tvö ár,“ segir
Guðbjörg, „ en ég ákvað að halda
áfram og taka stúdentinn líka.“
Hún lætur vel af skólavistinni
sem var „bara meiriháttar“.
„Innan skólans er fjölbreytt líf,
þar úir og grúir af allskonar fólki
með misjöfn markmið,“ segir
Guðbjörg. „Á minni braut er
mikið af fólki sem kemur úr
öðrum skólum, þannig að þarna
er fólk á öllum aldri. Námsefnið
er líka í stöðugri þróun og
kennararnir mjög meðvitaðir.
Þetta er mjög lifandi nám og
allar ábendingar okkar nemend-
anna teknar til greina.“
Guðbjörg veit ekkert hvað nú
tekur við, en hún verður að
minnsta kosta heima í sumar að
sinna börnum sínum. „Það þýðir
ekkert fyrir konu með barn á
leikskólaaldri að leita sér að
vinnu yfir sumartímann,“ segir
hún.
Veislan sem Guðbjörg hélt í
tilefni útskriftarinnar var lítil og
pen. „Þetta voru nánustu ætt-
ingjar sem komu í kaffi og komu
jafnvel með veitingar með sér.
Ég ætlaði ekki að halda neina
veislu og keypti ekki einu sinni
stúdentshúfu. Maðurinn minn
var hálf hneykslaður á því og ég
sé það nú eiginlega eftir á að það
hefði verið skemmtilegra. En ég
geri þetta bara með stæl næst.“ ■
Lifandi og skemmtilegt nám
GUÐBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR
Lauk stúdentsprófi og hönnunarnámi frá
Iðnskólanum í vor.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM
Á hverju ári útskrifast
rúmlega 2.000 manns
sem stúdentar. Alla jafna
ljúka á bilinu 400 til 500
manns stúdentsprófi
um jólin þannig að ætla
má að um 1.500 manns
setji upp hvíta húfu á
vordögum. Þá eru fjöl-
margir að klára lengra
eða skemmra framhalds-
nám á öðrum sviðum
þessa dagana og fagna
áfangasigrunum í sólinni.
NÝSTÚDENTAR
Kvennaskólanum í Reykjavík var slit-
ið við hátíðlega athöfn í 129. sinn í
Hallgrímskirkju. 105 nýstúdentar
voru brautskráðir að þessu sinni.
Íris Pétursdóttir er nýútskrifaðurstúdent af Listabraut Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti. „Þetta
er búið að vera alveg frábært,“
segir Íris og er afar ánægð með að
áfanganum sé náð þó hún segi
reyndar að árin í skólanum hafi
verið þau bestu í lífi hennar hingað
til. „Ég valdi listabrautina einfald-
lega vegna áhuga á listum, teikn-
ingu, hönnun og þess háttar. Námið
var mjög skemmtilegt og ég mæli
hiklaust með þessari braut. Síðasta
árið var bara verklegt þannig að
það var eiginlega skemmtilegast.“
Íris fékk húfuna á kollinn fyrir
rúmri viku og að sjálfsögðu var
haldin vegleg veisla þar sem henni
voru færðar margar góðar gjafir.
En hvað tekur nú við? „Ég veit það
ekki alveg,“ segir Íris hlæjandi.
„Ég ætla að sjálfsögðu að halda
áfram að læra, en er ekki alveg
búin að ákveða hvað. Háskólinn
hér heima kemur vel til greina, svo
og einhvers konar nám í útlöndum.
En svo langar mig líka í Lögguskól-
ann. Hann byrjar hins vegar ekki
fyrr en í janúar þannig að það er
aldrei að vita hvað ég geri í milli-
tíðinni.“
Í sumar er Íris að teikna og
mála með krökkunum á leikskólan-
um Holtaborg, og víst að krakkarn-
ir þar njóta góðs af námi og
reynslu nýstúdentsins. ■
Listrænn stúdent
á leið í lögguna?
ÍRIS PÉTURSDÓTTIR
Er nýútskrifaður stúdent af listabraut Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti og ekki alveg
búin að ákveða hvað verður í framhaldinu.
Hana langar þó í lögguskólann.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Opið 9-18 virka daga og 10-15 laugardaga.
FYRIR SJÓMANNADAGINN
MÖRG GÓÐ TILBOÐ
20 - 50% AFSLÁTTUR