Fréttablaðið - 31.05.2003, Side 17
LAUGARDAGUR 31. maí 2003 19
... notaðu hjálm!
Hvað á þitt barn yfir höfði sér?
Þegar vorar flykkjast börnin okkar
út í góða veðrið og taka fram reiðhjólin,
línuskautana og hlaupahjólin. Öllum
þessum farartækjum fylgir aukin hætta
á óhöppum og því er mikilvægt að við
séum vakandi gagnvart því að vernda
þau eins og kostur er.
Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt að
reiðhjólahjálmar geta komið í veg fyrir
alvarlega höfuðáverka enda kveða
lögin á um að öll börn, yngri en 15 ára,
skuli nota hjálma á reiðhjólum.
Það var nú tilviljun að ég fór íþetta. Dóttir mín hafði áhuga
á þessu námi. Ég fór með henni á
kynninguna og lét svo bara slag
standa“, segir Sigrún Hjaltalín,
húsmóðir í Garðabænum, en hún
og dóttir hennar, Eva Dögg
Bjarnadóttir, gerðu sér lítið fyr-
ir og dúxuðu í sölu- og markaðs-
námi frá Nýja tölvu- og við-
skiptaskólanum. Mæðgurnar
fengu báðar lokaeinkunnina 9,63
og „börðust því um efsta sætið“,
eins og Sigrún orðar það.
Sigrún segist ekki vera með
nein áform um frekara viðskipta-
nám að svo stöddu. „Ég er heima-
vinnandi sem stendur en hafði
virkilega gaman af þessu enda
hef ég verið viðriðin fyrirtækja-
rekstur í mörg ár en við hjónin
rákum Sómasamlokur. Námið var
mjög skemmtilegt og ég bætti
mikið við tölvukunnáttu mína og
öðlaðist mikla víðsýni enda skól-
inn mjög persónulegur.“
Eva Dögg er hins vegar með
ákveðin áform í gangi og efast
ekki um að námið muni koma sér
vel fyrir hana. „Ég útskrifaðist af
tungumálabraut Fjölbrautaskól-
ans í Garðabæ og hafði aldrei tek-
ið neitt viðskiptanám. Mig langaði
í Háskólanum í Reykjavík en
ákvað að prófa sölu- og markaðs-
námið í Nýja tölvu- og viðskipta-
skólanum fyrst til þess að athugga
hvort þetta hentaði mér áður en
ég hellti mér út í þriggja ára nám.
Þetta er svo búið að vera mjög
skemmtilegt og ég er búin að fá
inni í Háskólanum í Reykjavík og
byrja í viðskiptafræði þar í
haust.“ Eva Dögg tók sölu- og
markaðsnámið samhliða vinnu
sinni og segir að það hafi allt
gengið vel fyrir sig enda „góður
andi í skólanum.“ ■
Mæðgur í markaðsmálum
Jóhann Þór Sveinsson útskrifað-ist í vor sem rafeindavirki frá
Iðnskólanum í Reykjavík. Hann
hefur stundað námið meðfram
vinnu, en Jóhann er fjölskyldu-
maður, með konu og barn.
„Í Iðnskólanum er boðið upp á
fyrsta árið í kvöldskóla, en ég var
búinn með tvö ár í menntaskóla
sem ég fékk metið,“ segir Jóhann,
sem lætur vel af skólanum og seg-
ist hafa verið nokkuð virkur í fé-
lagslífinu þrátt fyrir að hann vera
með eldri nemendum. „Þetta er
náttúrlega sá framhaldsskóli í
landinu sem er með breiðastan
aldurshóp og ég var í bekk með
strákum á mínu reki.“
Nú dvelur Jóhann í skólanum
alla daga og undirbýr sveinspróf
sem hann tekur í næstu viku. „Það
fara þrír dagar í prófið sjálft, en
að því loknu fer ég bara að leita
mér að vinnu.“ Jóhann ætlar að
vinna í að minnsta kosti eitt ár, en
konan hans, Kristjana Einarsdótt-
ir, ætlar að drífa sig í hárgreiðslu-
nám næsta vetur. „Það geta ekki
allir verið í skóla í einu,“ segir
Jóhann Þór brosandi, „en ég gæti
vel hugsað mér að bæta einhverju
við síðar.“
Áfanganum fagnaði Jóhann
með góðri útskriftarveislu. „Ég
ákvað að halda upp á þetta með
stæl, maður veit ekki hvort maður
útskrifast aftur svo ég notaði
tækifærið og bauð ættingjum og
vinum. Tók þetta grand, keypti
húfu og hélt eftirminnilega upp á
daginn.“ ■
JÓHANN ÞÓR SVEINSSON
Ætlar að vinna að minnsta kosti í ár áður
en hann tekur ákvörðun um frekara nám.
Áfanganum fagnað með stæl
SIGRÚN HJALTALÍN OG EVA DÖGG
Mæðgurnar luku báðar sölu- og markaðsnámi frá Nýja tölvu- og viðskiptaskólanum með
glæsibrag og fengu lokaeinkunnina 9,63. Sigrún hefur ekki ákveðið hvort hún muni halda
áfram á þessari braut en Eva Dögg byrjar í þriggja ára viðskiptafræðinámi við Háskólann í
Reykjavík í haust.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M