Fréttablaðið - 31.05.2003, Side 26
31. maí 2003 LAUGARDAGUR
Kannastu við þessa tvo? Tveirfílefldir lögregluþjónar á
tröppunum og sökudólgarnir,
tveir 6 ára, biðu þess sem verða
vildi. Ég ákvað að kannast við af-
kvæmin, sem höfðu að eigin sögn
„rekist“ á málningardollur á
glámbekk og „óvart“ málað úlpur
allra barnanna í hverfinu. Að því
búnu ákváðu þeir að láta reyna á
túttubyssuhæfnina og gróðurhús
nokkrum lóðum frá var nú tóftirn-
ar einar.
Malcolm in the Middle er ský-
laust einn af mínum uppáhalds-
þáttum á Skjá einum. Samúðin er
náttúrlega oftast með einu kven-
persónunni á heimilinu, móður-
inni, sem heldur sönsum á yfir-
náttúrulegan hátt, hvort sem um
er að ræða synina fjóra eða erfið-
asta krakkann á heimilinu, eigin-
manninn. Nú er aumingja konan
ólétt eina ferðina enn og lætur sig
dreyma um draumadóttur. Í síð-
asta þætti sá hún fyrir sér að
drengirnir þrír í föðurhúsum
væru orðnir að stúlkum, og vá!
hvað allt yrði auðveldara. Ég á
sjálf sitt hvort settið af drengjum
og stúlkum og viðurkenni að
stelpurnar voru að mörgu leyti
auðveldari. Það stukku ekki á þær
dularfullir drullupollar í brakandi
þurrki á sólríkum sumardögum
og þær slógust ekki upp á líf og
dauða yfir sokki eða gömlu leik-
fangi. Þó bar nokkuð á flokka-
dráttum í vinkvennahópnum og
dramatísk vinslit og lukkulegar
sáttir daglegt brauð. Ég gæti þó
með engu móti gert upp á milli
hvort var skemmtilegra, erfiðara
eða meira krefjandi. Krakkar eru
vinna og þá skiptir kynið engu
máli. En það hefði verið gaman að
þekkja aðferðir mömmunnar í
Malcolm, þó ekki væri nema
vegna þess hvað hún er ómót-
stæðileg trunta. ■
Við tækið
EDDA JÓHANNSDÓTTIR
■ hefði viljað prófa uppeldisaðferðir
mömmunnar í Malcolm in the Middle á
sínum tíma.
Ómótstæðileg trunta
20.00 Billy Graham
21.00 Praise the Lord
23.00 Robert Schuller
0.00 Miðnæturhróp C. Parker
Thomas
0.30 Nætursjónvarp – blönduð
innlend og erlend dagskrá
Með áskrift að stafrænu sjón-
varpi Breiðbandsins fæst
aðgangur að rúmlega 40
erlendum sjónvarpsstöðvum,
þar á meðal 6 Norðurlanda-
stöðvum. Nánari upplýsingar
um áskrift í síma 800 7000.
13.30 4-4-2
14.25 NBA (Úrslitakeppni NBA)
17.00 Toppleikir
18.50 Lottó
19.00 South Park (5:14) (Trufluð til-
vera) Bráðfyndinn heimsfrægur teikni-
myndaflokkur um félagana Kyle, Stan,
Cartman og Kenny.
19.25 Spænski boltinn Bein útsend-
ing.
21.30 One Man’s Hero (Hetjusaga)
Dramatísk kvikmynd um írska innflytj-
endur sem mæta fordómum í banda-
ríska hernum á 19. öld. Foringi Íranna er
John Riley en þetta er saga hans. Riley
og félagar flýðu til Mexíkós en þar tók
ekkert betra við og Írarnir áttu í útistöð-
um við yfirvöld í báðum löndum. Aðal-
hlutverk: Tom Berenger, Joaquim De Al-
meida, Daniela Romo. Leikstjóri: Lance
Hool. 1999. Stranglega bönnuð börnum.
23.30 Jirov/Toney/Tarver/Griffin Út-
sending frá hnefaleikakeppni í Connect-
icut í Bandaríkjunum. Á meðal þeirra
sem mættust voru Vassiliy Jirov og James
Toney en í húfi var heimsmeistaratitill
IBF-sambandsins í milliþungavigt. Á
sama stað mættust einnig Antonio Tarver
og Montell Griffin og börðust um heims-
meistaratitil IBF-sambandsins í létt-
þungavigt.
1.30 Innervision (Sjáaldur) Erótísk
kvikmynd. Stranglega bönnuð börnum.
2.50 Dagskrárlok og skjáleikur
8.00 Barnatími Stöðvar 2
12.00 Bold and the Beautiful
13.20 Legal Eagles (Lagarefir) Aðal-
hlutverk: Daryl Hannah, Debra Winger,
Robert Redford. 1986.
15.10 Vikan í enska boltanum
15.35 Tónlist
16.00 Afleggjarar - Þorsteinn J.
16.25 Monk (2:12)
17.10 Sjálfstætt fólk (Arthúr Björgvin
Bollason)
17.40 Oprah Winfrey
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.55 Lottó
19.00 Friends 4 (13:24)
19.30 Here on Earth (Þetta líf)
Dramatísk kvikmynd með rómantísku
ívafi. Kelley Morse er nemandi í virtum
einkaskóla. Einn daginn fer hann á rúnt-
inn í nýja Benzinum sínum en ökuferðin
endar með ósköpum. Morse og annar
maður sitja uppi með að hafa rústað
veitingastað. Þeir eru dæmdir til að hjál-
pa við endurreisn staðarins en það á eftir
að verða þeim lærdómsrík reynsla. Aðal-
hlutverk: Chris Klein, Leelee Sobieski,
Josh Hartnett, Michael Rooker. 2000.
21.15 Training Day (Nýliðinn) Hörku-
spennandi kvikmynd sem færði Denzel
Washington Óskarinn. Alonzo Harris er
rannsóknarlögga í Los Angeles sem kallar
ekki allt ömmu sína þegar stöðva á eitur-
lyfjasala og annan óþjóðalýð. Nýliðinn
Jake Hoyt slæst í för með hinum reynda
Harris í einn sólarhring og það er reynsla
sem hann gleymir ekki í bráð. Aðalhlut-
verk: Denzel Washington, Ethan Hawke,
Tom Berenger, Scott Glenn. Leikstjóri:
Antoine Fuqua. 2001. Stranglega bönnuð
börnum.
23.20 Proof of Life (Á lífi) Bandaríska
verkfræðingnum Peter Bowman er rænt
af eiturlyfjasölum í Suður- Ameríku. Olíu-
fyrirtækið sem Peter vann fyrir ræður sér-
fræðinginn Terry Thorne til að leysa mál-
ið. Þegar fyrirtækið fer á hausinn þvær
það hendur sínar af málinu og kallar
Terry til baka. Kona Peters þrábiður Terry
um að halda rannsókn málsins áfram og
skrapar saman peningum til þess að það
sé mögulegt. Breyttar aðstæður kalla á
breytta starfshætti en hvorki kona Peters
né Terry bjóst við að rómantíkin myndi
gera vart um sig. Aðalhlutverk: Russell
Crowe, Meg Ryan, David Morse. 2000.
Stranglega bönnuð börnum.
1.35 Possessed (Andsetinn) Aðalhlut-
verk: Timothy Dalton, Henry Czerny, Jon-
athan Malen, Christopher Plummer.
2000. Stranglega bönnuð börnum.
3.20 Friends 4 (13:24)
3.45 Tónlistarmyndbönd frá Popp
TíVí
6.00 The Deli
8.00 Air Bud
10.00 The Picture Bride
12.00 Bossa Nova
14.00 The Deli
16.00 Air Bud
18.00 The Picture Bride
20.00 Bossa Nova
22.00 Regeneration
0.00 Entrapment
2.00 Shadow of Doubt
4.00 Regeneration
7.00 Meiri músík
12.00 Lúkkið
14.00 X-TV..
15.00 Trailer
16.00 Geim TV
17.00 Pepsí listinn
19.00 XY TV
20.00 Meiri músík
Óskarsverðlaunamynd á Stöð 2
Nýliðinn, eða Training Day, er
hörkuspennandi kvikmynd sem
færði Denzel Washington
Óskarinn. Alonzo Harris er
rannsóknarlögga í Los Angeles
sem kallar ekki allt ömmu sína
þegar stöðva á eiturlyfjasala og
annan óþjóðalýð. Nýliðinn Jake
Hoyt slæst í för með hinum
reynda Harris í einn sólarhring
og það er reynsla sem hann
gleymir ekki í bráð. Leikstjóri er
Antoine Fuqua en með Wash-
ington í helstu hlutverkum eru
Ethan Hawke, Tom Berenger og
Scott Glenn. Myndin, sem er frá
árinu 2001, er stranglega bönn-
uð börnum.
Stöð 2
21.15 Skjár 1 21.00
John Laroquette snýr aftur sem
hinn dularfulli Joey Heric, sem
var sýknaður í tvígang af því að
hafa myrt tvo samkynhneigða
elskhuga sína en ljóst er að
hann framdi morðin. Heric er nú
orðinn lögmaður og fær stofu
Bobby til að aðstoða sig við að
verja fyrsta skjólstæðing sinn.
Það er maður grunaður um
morð og réttarhöldin verða til
þess að Heric getur sýnt leiklist-
arhæfileikana í réttarsal.
Nýliðinn
The Practice
28
13.00 Listin að lifa (e)
14.00 Mótor - Sumarsport (e)
14.30 Jay Leno (e)
15.30 Yes, Dear (e)
16.00 Djúpa laugin (e)
17.00 World’s Wildest Police Videos
(e)
18.00 Fólk með Sirrý (e)
19.00 Cybernet
19.30 Life with Bonnie (e)
20.00 MDs Skoski sjarmörinn John
Hannah fer með hlutverk læknisins Ro-
bert Dalgety í MDs sem eru á dagskrá á
laugardagskvöldum kl. 20.00. Þættirnir
gerast á sjúkrahúsi og meðal annarra
leikara er hinn írskættaði William
Fichtner sem leikur galgopann William
Kellerman.
21.00 Leap Years Hæfileikarík ung-
menni kynnast árið 1993 og halda vin-
skap sínum lifandi næstu ár. Rugla sam-
an reytum og eiga (stundum óþarflega)
náin kynni. Við fáum að líta inn til þeirra
árin 1993, 2001 og 2008 og sjá hvernig
samböndin hafa þróast. Leik- og söng-
konan Athena berst við að ná frægð og
frama, kemst á toppinn en hrynur síðan í
hyldýpi eiturlyfjaneyslu. Vinir hennar
Gregory gagnrýnandi, Joe lögmaður og
Ben ríkisbubbi reyna að hjálpa henni en
eiga sjálfir við sín vandamál að stríða, þá
helst framhjáhöld, fjölskyldudeilur og
vændiskvennaheimsóknir.
22.00 Law & Order SVU (e)
22.50 Philly (e) Kathleen er fyrsta
flokks verjandi, sannur riddari hring-
borðsins í leit að hinum heilaga kaleik
réttlætisins. Ásamt félaga sínum berst
hún harðri baráttu við hrokafulla sak-
sóknara og dómara í von um að fá kerfið
til að virka. Kathleen er líka einstæð
móðir og barnsfaðirinn jafnframt helsti
andstæðingur hennar og ofurfjandi, sjálf-
ur aðalsaksóknari Fíladelfíuborgar.
23.40 Tvöfaldur Jay Leno (e)
1.10 Dagskrárlok Sjá nánar á
www.s1.is
9.00 Morgunstundin okkar
9.02 Mummi bumba (22:65)
9.08 Stjarnan hennar Láru
9.19 Engilbert (15:26)
9.30 Albertína ballerína (18:26)
9.45 Hænsnakofinn (8:13)
10.03 Babar (11:65)
10.18 Gulla grallari (33:52)
10.50 Viltu læra íslensku?
11.10 Kastljósið
11.50 Formúla 1
Bein útsending frá tímatöku fyrir
kappaksturinn í Mónakó.
13.00 Út og suður (3:12)
13.25 Í einum grænum (4:8)
13.50 Geimskipið Enterprise
14.35 Vélhjólasport
14.55 Einvígi í borðtennis
16.00 Íslandsglíman Samantekt af Ís-
landsglímunni 2003.
16.20 Landsleikur í handbolta Bein
útsending frá leik karlaliða Íslendinga og
Dana.
17.30 Fótboltaþátturinn Þáttur um Ís-
landsmótið í fótbolta.
18.00 Táknmálsfréttir
18.10 Enn og aftur (1:19)
18.54 Lottó
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19.40 Laugardagskvöld með Gísla
Marteini
20.25 Söngur hjartans (A Song From
the Heart) Rómantísk kvikmynd um
blindan sellóleikara sem fellur fyrir fræg-
um píanóleikara en áttar sig ekki á því
að hún hefur leitað langt yfir skammt.
Aðalhlutverk: Amy Grant, D.W. Moffett og
Keith Carradine.
21.55 Betty hjúkka (Nurse Betty)
Gamanmynd frá 2000 um þjónustu-
stúlku í Kansas sem missir vitið eftir að
maðurinn hennar er myrtur. Hún heldur
að hún sé fyrrverandi kærasta sápuóp-
erustjörnu og fer til Los Angeles að hitta
hann en morðingjar mannsins hennar
veita henni eftirför. Kvikmyndaskoðun
telur myndina ekki hæfa fólki yngra en
16 ára. Aðalhlutverk: Morgan Freeman,
Renée Zellweger, Chris Rock og Greg
Kinnear.
23.40 Að hrökkva eða stökkva (Drop
Zone) Spennumynd frá 1994 um baráttu
lögreglunnar við fallhlífabófa sem brjót-
ast inn á lögreglustöðvar og stela þaðan
gögnum um njósnara. Kvikmyndaskoðun
telur myndina ekki hæfa fólki yngra en
16 ára.Leikstjóri: John Badham.Aðalhlut-
verk: Wesley Snipes og Gary Busey. e.
1.20 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
SJÓNVARPSEFNI Í Bandaríkjunum
geisar mikið áhorfsstríð linnu-
laust milli stóru sjónvarpsstöðv-
anna og áhorfsmælingar eru
framkvæmdar margsinnis á
dag. Nú hefur Fox-sjónvarps-
stöðin hafið sig langt yfir keppi-
nauta sína á því sviði, en sú stöð
hefur alla jafna haldið sig fjarri
toppsætum sjónvarpsáhorfs-
listanna.
Ástæðan er hinir feikivinsælu
sjónvarpsþættir American Idol
sem Fox er með á dagskrá sinni,
en Stöð 2 sýnir þættina um ung-
mennin söngglöðu hérlendis.
Þættirnir eru svo vinsælir að í
síðustu viku vermdu tveir þeirra
auk forþáttar þrjú efstu sætin á
vikulegum topp 10 áhorfslista
þar vestanhafs.
Áþekkir þættir hafa þegar
sprottið upp og njóta þeir einnig
vinsælda. Svo virðist sem áhugi
á ungu fólki sem keppir á sviði
hæfileika sé meiri en á beinni og
harðvítugri líkamlegri og and-
legri keppni manna á milli, sem
hefur verið þungamiðja flestra
raunveruleikasjónvarpsþátta
hingað til.
Eitt er þó víst, að raunveruleika-
bólan er ekki sprungin enn þó
Survivor-þættirnir, sem einnig
hafa verið sýndir hérlendis og
notið töluverðra vinsælda, dali í
áhorfi vestanhafs. ■
HÆFILEIKAR
Fjölmargir rembast eins og
rjúpa við staur og fáir sýna sína
raunverulegu hæfileika.
American Idol:
Gríðarlegar vinsældir
þáttana ekki í rénun