Fréttablaðið - 12.08.2003, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 16
Leikhús 16
Myndlist 16
Íþróttir 14
Sjónvarp 20
ÞRIÐJUDAGUR
12. ágúst 2003 – 182. tölublað – 3. árgangur
ÓSAMMÁLA
FISCHLER Fram-
kvæmdastjóri LÍÚ
deilir ekki skoðun
Franz Fischlers á því
að möguleiki sé á
því að Íslendingar
geti tryggt hagsmuni
sína innan núver-
andi kerfis ESB. Hann leggur áherslu á góð
samskipti við ESB en aðild færi okkur enga
nýja möguleika. Sjá síðu 2.
LÍNUÍVILNUN RÆDD Í RÍKIS-
STJÓRN Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins verður línumálið rætt utan dag-
skrár á ríkisstjórnarfundi að frumkvæði
Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra.
Vestfirðingar undirbúa stórfund á Ísafirði
vegna þess sem smábátamenn vestra kalla
brotin loforð stjórnarflokkanna. Sjá síðu 2.
MÁLSHÖFÐUN VEGNA LUNDAR
Bæjarfulltrúi í Kópavogi segir málshöfðun í
undirbúningi vegna samninga bæjarins um
uppbyggingu í Lundi. Erfingjar fyrrverandi
ábúanda fái að lágmarki 500 milljónir á silfur-
fati fyrir eign sem ekki sé þeirra. Sjá síðu 4.
LYSTARSTOL Í ÁSTRALÍU Lystarstol
er nú þriðja alvarlegasta heilbrigðisvanda-
mál unglingsstúlkna í Ástralíu. Meðalaldur
lystarstolssjúklinga er 12 ár en var 14 og
1/2 ár í fyrra. Dæmi eru um fjögurra ára
lystarstolssjúklinga. Sjá síðu 6.
ÁRANGUR Í STARFI Háskólinn í
Reykjavík stendur fyrir námskeiði um ár-
angur í starfi. Aðalfyrirlesari er Howard
Gardner, prófessor við Harvard. Á nám-
skeiðinu verður fjallað um hæfileika ein-
staklingsins og hvernig þeir nýtast í starfi.
DAGURINN Í DAG
SLASAÐIR FLUTTIR Á SPÍTALA Banaslys varð við Hrútsá í Öræfum í gær. Spænsk kona lét lífið en tvær aðrar voru fluttar alvarlega
slasaðar á slysadeild Landspítalans í Fossvogi með þyrlu Landhelgisgæslunnar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Hægviðri
Hæg breyti-
leg átt
+14
+14
+14
Hægviðri
VEÐRIÐ Í DAG
JÁKVÆÐAR VEÐURHORFUR Búist
er við björtu veðri í flestum landshlutum,
síst þó á Suðausturlandi, þar sem búist er
við smá vætu. Hægviðri verður á landinu
öllu og hiti á bilinu 12 til 16 stig.
útvarpsstjóri radíó reykjavíkur
Guðmundur Týr Þórarinsson:
Varist eftirlíking-
una Skonrokk
átti góðan leik um helgina
Pétur Marteinsson:
▲
SÍÐA 14
▲
SÍÐA 26
78 ára í dag
Thor Vilhjálmsson:
Man sjaldnast
aldur sinn
▲
SÍÐA 24
Óviss um
framhaldið
BANASLYS Ung kona lést og fimm
aðrir slösuðust, þar af tvær kon-
ur alvarlega, í umferðarslysi sem
varð á þjóðveginum við Hrútsá
við Kvísker í Öræfum.
Fólkið, sem var allt frá Spáni,
var í bíl sem valt út af veginum
með þessum afleiðingum. Tildrög
slyssins eru óljós en vegurinn er
góður á þessum slóðum og veður
var gott þegar atvikið varð. Lög-
reglan á Höfn fékk tilkynningu
um slysið klukkan 13.45.
Þyrla Landhelgisgæslunnar
var í loftinu við æfingar þegar
tilkynningin kom og þurfti að
lenda eftir lækni og sjúkragögn-
um áður en haldið var af stað. Þá
þegar voru tækja- og sjúkra-
bifreiðar frá Höfn og Kirkju-
bæjarklaustri komnar á staðinn.
Þyrlan lenti með alla fimm ferða-
mennina við Landspítala – Há-
skólasjúkrahús um hálfsexleytið.
Vakthafandi læknir sagði að
konurnar tvær væru með brjóst-
holsáverka og þörf væri á frek-
ari rannsóknum. Taldi hann
líklegt að þær hefðu kastast út úr
bílnum. Aðrir voru minna slasað-
ir.
„Það er ekkert að veginum á
þessum slóðum og ég veit ekki til
að þarna hafi orðið slys áður,“
sagði Hálfdán Björnsson á
Kvískerjum, en sá bær er næstur
slysstaðnum. Hálfdán varð þó
ekki var við slysið sjálfur fyrr en
lögreglu og sjúkralið dreif að. ■
Bíll með sex spænskum ferðalöngum valt:
Banaslys við Hrútsá
Samkeppnisstofnun
og lögregla:
Samskiptin
í uppnámi
STJÓRNSÝSLA Össur Skarphéðinsson,
formaður Samfylkingarinnar og
nefndarmaður efnahags- og við-
skiptanefndar, segir augljóst að
mismunandi skiln-
ingur sé ríkjandi
meðal viðskipta-
ráðuneytisins og
ríkislögreglustjóra
um það með hvaða
hætti málum sé
vísað frá Sam-
keppnisstofnun til
embættis ríkislög-
reglustjóra. Fund-
ur var haldinn í
nefndinni í gær
þar sem viðskipta-
ráðherra, ríkislög-
reglustjóri, for-
stjóri Samkeppnisstofnunar og
fleiri mættu til að ræða samskipti
lögreglunnar og stofnunarinnar.
„Að mínum dómi túlkuðu þessar
tvær stofnanir þann feril með mis-
munandi hætti. Það er auðvitað al-
gerlega óviðunandi staða sem verð-
ur að ráða bót á sem fyrst. Merki-
legast var þó að samkvæmt ráðu-
neytinu er í gangi samstarf um að
móta sérstakar verklagsreglur um
einmitt þetta atriði, en það virtist
embætti ríkislögreglustjóra alls
ekki kannast við.“
Valgerður Sverrisdóttir við-
skiptaráðherra segir Samkeppnis-
stofnun hafa gert skyldu sína með
því að greina frá frumskýrslu um
verðsamráð olíufélaganna á óform-
legum fundi með ríkislögreglu-
stjóra. Hún kveðst ekki vilja tjá sig
um störf ríkislögreglustjóra.
„Ég læt duga að velta fyrir mér
aðgerðum Samkeppnisstofnunar.
Það er augljóst að Samkeppnis-
stofnun mun ljúka sinni rannsókn,
hvað sem lögreglan gerir.“ ■
SJÁVARÚTVEGUR Verð á ýsu, ufsa og
karfa hefur lækkað um allt að 20
prósent á Evrópumarkaði og tíu
prósent á Bandaríkjamarkaði frá
síðasta ári. Horfur eru á því að
þorskur lækki einnig í verði.
Ástæður lækkunarinnar eru
aukin veiði á Norður-Atlantshafi
og harðnandi sam-
keppni við aðra
matvöru. „Það
vantar kannski
mat í þróunarlönd-
unum, en ekki í
Evrópu. Það er
nægur fiskur á þeim mörkuðum
sem geta borgað,“ segir Steinþór
Steingrímsson, innkaupastjóri
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna. Meðal þess sem þrýst hef-
ur fiskverði niður er aukið fram-
boð af tvífrystum fiskafurðum
frá Kína, sem framleiddar eru
með minni tilkostnaði en íslenski
fiskurinn. Þá hefur lækkandi
verð og aukið framboð á eldislaxi
haft mikil áhrif.
„Markaðirnir eru mettir af
ódýrum mat, ekki síst ódýrum
fiski í beinni samkeppni við okk-
ur. Markaðirnir sem við vinnum
á eru að kaupa prótein, hvort
sem það er kjúklingur, fiskur eða
annað. Menn geta fengið heilan
eldislax á 400 krónur í Evrópu.
Það hlýtur að hafa áhrif á hvern-
ig annar fiskur selst,“ segir
Steinþór.
Jón Jóhannesson, innkaupa-
og gæðastjóri Icelandic USA
inc., sem selur íslenskan fisk á
Bandaríkjamarkað, segist ekki
sjá fyrir að fiskverð muni hækka
í nánustu framtíð. „Ég fullyrði að
verð á ýsu og ufsa hækkar ekki
eins og útlitið er nú. Auk þess er
yfirdrifið framboð af matvælum
á Bandaríkjamarkaði.“ Hann
segir horfur á því að verð á
þorski muni einnig lækka. „Við
megum ekki gleyma því að mat-
vælaverð á Vesturlöndum er al-
mennt að lækka.“
Steinþór segir líklegt að
markaðurinn hafi fundið nýtt
jafnvægi í lægra ýsuverði. „Ég
er ekki viss um að verðið sé í
sögulegu lágmarki. Árferðið var
það gott hér áður fyrr.“
jtr@frettabladid.is
Verðfall á íslenskum
fiskafurðum erlendis
Verð á íslenskum fiskafurðum hefur lækkað um allt að 20 prósent á Evrópumarkaði undanfarið
ár. Ástæðan er meðal annars samkeppni við eldislax og kínverskar fiskafurðir.
LÆGRA FISKVERÐ
Mikill meirihluti íslenska fiskaflans er seld-
ur út til Evrópu og Bandaríkjanna. Verð á
ýsu hefur lækkað um allt að fimmtung og
horfur eru á að þorskurinn lækki líka.
■
„Markaðarnir
eru mettir af
ódýrum mat,
ekki síst ódýr-
um fiski
VALGERÐUR
SVERRISDÓTTIR
Segir samkeppn-
isyfirvöld hafa
gert skyldu sína,
hvað sem ríkis-
lögreglustjóri geri.