Fréttablaðið - 12.08.2003, Blaðsíða 14
14 12. ágúst 2003 ÞRIÐJUDAGUR
KIM CLIJSTERS
Kim Clijsters vann Lindsay Davenport í
úrslitaleik JPMorgan Chase Open á
sunnudag. Sigurinn færði henni efsta sæti
styrkleikalistans í fyrsta sinn.
Tennis
hvað?hvar?hvenær?
9 10 11 12 13 14 15
ÁGÚST
Þriðjudagur
Barnsley í vanda:
Fækkar í leik-
mannahópnum
FÓTBOLTI Guðjón Þórðarson, knatt-
spyrnuþjálfari Barnsley, getur að-
eins valið úr átján leikmönnum í
kvöld þegar lið hans mætir Black-
pool í deildarbikarnum. Barnsley
má einungis hafa tuttugu leik-
menn á skrá hjá sér en tveir
þeirra eru meiddir.
Barnsley byrjaði 2. deildina
vel með því að leggja Colchester
að velli með einu marki gegn
engu á laugardag. „Ég var mjög
sáttur við leikinn og sérstaklega
sigurinn,“ sagði Guðjón þegar
Fréttablaðið náði tali af honum.
Barnsley hefur átt í fjárhags-
örðugleikum og óvíst var hvort
liðið fengi leikheimild í ensku 2.
deildinni. Heimildin fékkst þó að
lokum með því skilyrði að í hópn-
um yrðu ekki fleiri en tuttugu
leikmenn.
„Ég samdi við fjóra nýja leik-
menn á föstudag og þeir voru allir
í byrjunarliðinu,“ sagði Guðjón en
vildi ekki gefa upp að svo stöddu
hvort fleiri leikmenn bætist í hóp-
inn. ■
Óviss um framhaldið
FÓTBOLTI Stoke City mætir Eng-
landsmeisturum Manchester
United í vináttuleik á morgun á
Britannia-vellinum. „Manchester
United spilar venjulega við eitt-
hvað af nágrannaliðunum sem
síðasta undirbúning fyrir mót og
mér skilst að meistararnir stilli
upp sínu sterkasta liði,“ segir
Pétur um leikinn. „Ef ég spila
verður það væntanlega mitt hlut-
verk að gæta Ruud Van Nistel-
rooy.“
Pétur Marteinsson var óvænt í
byrjunarliði Stoke á laugardag
þegar liðið sigraði Derby 3:0. Pét-
ur lék allan leikinn, fyrst sem aft-
asti maður í þriggja manna vörn
en skipti svo yfir í hægri bak-
vörð. Hann þótti standa sig vel en
segist ekki öruggur um sæti í
byrjunarliðinu gegn United. „Ég
reikna ekki með neinu. Ég hef
áður staðið mig vel með liðinu
þegar það sigraði en í næsta leik
sat ég uppi í stúku. Ég er því al-
veg hættur að spá í það hvort ég
eigi einhvern möguleika í næsta
leik eða ekki. Ég tek þessu bara
eins og það kemur.“
Pétur segist ekki hafa neinar
forsendur til að spá í framhaldið
hjá sér né liðinu. „Þetta er bara
einn leikur og við unnum 3:0 á
sannfærandi hátt á útivelli á móti
Derby. Þetta er langt tímabil og
ýmislegt getur gerst. Þjálfarinn
er búinn að taka inn sjö nýja leik-
menn og mér skilst að hann ætli
að taka inn tvo nýja í viðbót. Það
er ómögulegt að segja til um
hvernig þessi hópur mun stilla
saman strengi sína,“ segir Pétur.
„Hvað mig sjálfan varðar get
ég eiginlega ekki sagt neitt. Ég
mun áfram standa mína plikt og
mæta á æfingar og reyna að vera
tilbúinn þegar kallið kemur. Ég
reikna alveg eins með því að vera
dottinn út úr þessu fyrr en síðar.
Þannig hefur það verið hingað til
og ekki skipt nokkru máli hversu
vel ég hef spilað eða hvernig
liðinu hefur gengið. Ég hef ekki
verið í neinu uppáhaldi þarna.“
obh@frettabladid.is
BARNSLEY
Barnsley sigraði í fyrsta deildarleik félagsins undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar.
Pétur Marteinsson segist ekki reikna með að halda sæti sínu í byrjunarliði Stoke þrátt fyrir
góðan leik gegn Derby á laugardag. Stoke leikur vináttuleik gegn Manchester United á morgun.
LEIKIR STOKE Í ÁGÚST
9.8. Derby - Stoke 0:3
13.8. Stoke - Man. United Vináttuleikur
16.8. Stoke - Wimbledon 1. deild
19.8. Stoke - Rochdale 1. deild
23.8. Walsall - Stoke 1. deild
26.8. Stoke - Millwall 1. deild
30.8. Preston - Stoke 1. deild
PÉTUR HAFLIÐI MARTEINSSON
Pétur átti góðan leik í vörn Stoke þegar
félagið vann Derby 3:0 á laugardag.
STOKE CITY
Stoke hóf nýtt keppnistímabil með
góðum sigri gegn Derby. Á morgun leikur
Stoke gegn Englandsmeisturum
Manchester United á Britannia-vellinum.
FÓTBOLTI Fyrri úrslitaleikir Inter-
toto-bikarkeppninnar verða háðir í
kvöld. Heerenveen leikur gegn
Villarreal, félaginu sem FH keppti
við í fyrra, Perugia leikur við
Wolfsburg og Pasching gegn
Schalke. Austurríska félagið
Pasching hefur komið mjög á
óvart í keppninni. Pasching lék í
efstu deild í fyrsta sinn í fyrra og
endaði í 5. sæti en það gaf félaginu
þátttökurétt í Evrópukeppni í
fyrsta skipti.
Seinni úrslitaleikirnir fara
fram eftir tvær vikur og fá sigur-
vegararnir sæti í 1. umferð UEFA-
bikarkeppninnar. ■
Intertoto-bikarkeppnin:
Fyrri úrslita-
leikirnir í kvöld
PASCHING
Austurríska liðið Pasching mætir Schalke
frá Þýskalandi í Intertoto-keppninni í kvöld.
19.00 Sýn
Trans World Sport. Íþróttir um allan
heim.
21.30 Sýn
US PGA Championship 2002. Upprifjun
á US PGA meistaramótinu í fyrra.
22.35 Sýn
Toppleikir. Sýnt frá leik Manchester
United og Barcelona.
■ Fótbolti
DESAILLY FRAMLENGIR Marcel
Desailly hefur framlengt samn-
ing sinn við Chelsea um eitt ár og
er því samningsbundinn liðinu til
2005. Hinn 34 ára gamli franski
varnarmaður hefur verið hjá
Lundúnaliðinu í ein sex ár og
hyggst ljúka ferli sínum þar.
WENGER SÁ RAUTT Arsene Weng-
er, knattspyrnustjóri Arsenal,
segir að Francis Jeffers hafi átt
skilið að sjá rauða spjaldið þegar
Arsenal og Manchester United
áttust við um Samfélagsskjöld-
inn. Rauða spjald Jeffers var það
fimmtugasta sem leikmenn
Arsenal fá að líta frá því Wenger
tók við liðinu. Jeffers sparkaði í
Phil Neville, leikmanna United,
sem lá á jörðinni.
FERGUSON Í VANDA Alex Fergu-
son, knattspyrnustjóri Manchest-
er United, á í
miklum vand-
ræðum með
vörn liðsins
fyrir fyrsta
leik tímabilsins
gegn Bolton.
Bræðurnir
Gary og Phil
Neville eru
báðir meiddir, sem og Quinton
Fortune.